Morgunblaðið - 19.04.1997, Side 20
20 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Herzog
kvaddur
CHAIM Herzog, fyrrverandi
forseti ísraels, var borinn til
grafar í gær í Jerúsalem en
hann lést sl. fimmtudag 78 ára
að aldri. Hann var fæddur á
Irlandi og kom víða við um
dagana. Hann barðist með
breska hernum, tók þátt í inn-
rásinni í Normandí og var
meðal fyrstu hermannanna,
sem sóttu yfir Rín. Að stríðinu
loknu var Herzog sérstakur
fulltrúi Bernard Montgomerys
hershöfðingja á ráðstefnu um
flóttafólk í Evrópu en fluttist
til Palestínu áður en Ísraelsríki
var stofnað 1948. í æsku stund-
aði hann hnefaleika en auk
þess las hann lög og skrifaði
bækur. í Sex-daga-stríðinu
1967 var Herzog hershöfðingi
í varaliðinu og fékk þá það
verk að ræða við þjóðina í út-
varpi um stríðsátökin og gang
þeirra. Var til þess tekið hve
vel honum gekk að sefa ótta
landa sinna. Herzog var sjötti
forseti ísraels og gegndi emb-
ættinu í áratug fram til 1993
þegar Ezer Weizman tók við
af honum. Benjamin Netanya-
hu, forsætisráðherra ísraels,
flutti ræðu við útför Herzogs
í gær og sagði, að fáir hefðu
skilið hina ísraelsku þjóðarsál
jafn vel og hann. Fremstur á
myndinni er Shimon Peres,
Reuter
leiðtogi Verkamannaflokksins,
en fjær eru þau Netanyahu og
kona hans, Sarah.
Skoðanakannanir um Netanyahu
Ákæra eða dóm-
ur ráði afsögn
Jerúsalem. Reuter.
MEIRIHLUTI ísraela
telur, að Benjamin
Netanyahu, forsætis-
ráðherra landsins, eigi
að segja af sér emb-
ætti verði hann
ákærður eða dæmdur
fyrir spillingu. Net-
anyahu lýsti yfir í
fyrradag, að hann
hygðist ekki láta af
embætti.
í Gallup-könnun
fyrir dagblaðið Maariv
kom fram, að 52,6%
töldu Netanyahu eiga
að segja af sér, yrði
hann ákærður en
39,3% sögðu, að hann
ætti að bíða eftir endanlegri niður-
stöðu í málinu. Lögreglan hefur
lagt til, að Netanyahu og þrír sam-
starfsmenn hans verði ákærðir fyr-
ir að hafa skipað mann, sem al-
mennt var talinn óhæfur, í emb-
ætti ríkissaksóknara í janúar sl.
Var hann ekki í embætti nema í
nokkrar klukkustundir að vísu en
sagt er, að hann hafi átt að greiða
fyrir embættið með því að fella
niður ákærur á formann eins af
stuðningsflokkum rík-
isstjórnarinnar.
Ákvörðun á
sunnudag?
í annarri könnun
fyrir dagblaðið Dahaf
sögðu 52%, að Net-
anyahu ætti því aðeins
að segja af sér, að
hann yrði dæmdur en
25% vildu afsögn hans
nú þegar. 20% sögðu,
að yrði hann ákærður,
ætti hann að segja af
sér.
Saksóknarar hafa
legið yfir lögreglu-
skýrslunni síðustu
daga og jafnvel er búist við, að
þeir taki ákvörðun um framhaldið
á morgun, sunnudag.
Yehuda Harel, einn fjögurra
þingmanna lítils flokks, sem styður
stjórn Netanyahus, sagði í gær,
að kæmi í ljós, að forsætisráðherr-
ann hefði brugðið út af viður-
kenndum, lýðræðislegum leikregl-
um, gæti flokkurinn ekki stutt
hann áfram. Skipti þá engu máli
hvort hann yrði ákærður eður ei.
Benjamin
Netanyahu
OPIÐ HÚS
SUÐURVANGUR 2 - HAFNARFIRÐI
HAGSTÆTT VERÐ
Til sölu rúmgóð 3ja herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. íbúðin er 94
fm að stærð og skiptist í góða stofu, rúmgott hol (sjónvarpshol) og
eldhú m. borðkrók. Sér þvottahús og búr inn af eldhúsi. Þá eru
einnig 2 svefnherb. og bað á sérgangi. Góðar svalir, snyrtileg
sameign. Lækkað verð, nú aðeins 6,3 millj. Ibúðin er í mjög góðu
ástandi og laus nú þegar.
Til sýnis í dag laugardag kl. 12-15. Gjörið svo vel og lítið inn.
Dyrabjalla merkt opið hús.
Eignasalan, Ingólfsstræti 12,
sími 551-9540.
r
FASTEIGNA
MARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
íbúðir
SÖLUSÝNING
Til sýnis eru í dag, laugardag , milli kl. 13.00 og
16.00, nýjar og vandaðar 3ja og 4ra herbergja
íbúðir við Garðatorg í Garðabæ. íbúðirnar eru allt
frá 100 til 140 fm að stærð.
Bílastæði eru í bílageymslu.
Sölumenn okkar á staðnum.
Verið velkomin.
FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540-
Samgöngur lamast
vegna sprenginga
Viðræðum
kóresku
ríkjanna
seinkar
Seoul. Reuter.
KRAFA Norður-Kóreumanna um
matvælaaðstoð frá Bandaríkjunum
og Suður-Kóreu kom í veg fyrir
að samkomulag næðist um þátt-
töku Norður-Kóreu í friðarviðræð-
um, að sögn suður-kóreskra emb-
ættismanna í gær. Viðræðurnar
áttu að halda áfram í gær en var
seinkað um óákveðinn tíma að
beiðni Norður-Kóreumanna.
Háttsettir embættismenn frá
löndunum þremur ræddust við í
New York á miðvikudag um hvort
Norður-Kóreumenn væru reiðu-
búnir að ganga til viðræðna við
landa sína í suðri, með þátttöku
Bandaríkjamanna og Kínverja.
Aðstoð skilyrði
fyrir viðræðum
Suður-Kóreumenn segja Norður-
Kóreumenn hafa gert matvælaað-
stoð að skilyrði fyrir viðræðum.
Þeir fyrrnefndu eru hins vegar
ákveðnir í því að tryggja ekki neina
aðstoð fyrr en fyrir liggur vilyrði
Norður-Kóreumanna um þátttöku
í viðræðunum.
Bandaríkjamenn og Suður-
Kóreumenn lögðu fyrst fram tillögu
um viðræðurnar fyrir ári en þær
miða að því að ná friðarsamkomu-
lagi, sem leysi vopnahléssamkomu-
lagið sem batt enda á Kóreustríðið
árið 1953, af hólmi.
TVÆR sprengingar og fjöldi
viðvarana um yfirvofandi
sprengjutilræði af hálfu írska
lýðveldishersins (IRA) varð til
þess að bifreiða- og járn-
brautasamgöngur lömuðust í
norðurhluta Englands i gær.
Virðist sem um sé að ræða enn
eina tilraun IRA til þess að
valda usla fyrir þingkosning-
arnar í Bretlandi 1. maí nk.
Sprengjurnar sem sprungu
á lestarstöðvum í Leeds og
Doncaster voru ekki öflugar
en lögreglan í Leeds lokaði þó
miðborgina af í öryggisskyni
eftir tilræðið því engin viðvör-
un var gefin og óttast að fleiri
sprengjur kynnu að leynast í
stöðinni.
Lögreglan sprengdi einnig
grunsamlegan pakka sem
fannst í lestastöð í Stoke í norð-
vesturhluta landsins. Þá var
ákveðið að loka þjóðvegi, sem
tengir suður- og norðvestur-
hluta landsins, vegna
sprengjuhótunar. Vegurinn er
nálægt íþróttaleikvangi þar
sem John Major forsætisráð-
herra hugðist flylja kosninga-
ræðu í dag.
Á myndinni kanna lögreglu-
menn brautarteina eftir
sprenginguna í lestastöðinni í
Leeds.
Skólastjóra vantar að Grunnskólanum í Grindavík
í eitt ár, þar sem skólastjórinn hefur fengið eins árs leyfi frá
störfum.
Undirritaður mun veita nánari upplýsingar um starfið, m.a. um
sérstök kjör, sem gílda fyrir kennara og skólastjóra í Grindavík.
Umsóknarfrestur (framlengdur) er til 6. maí 1997.
Grindavík, 17. apríl 1997,
Bæjarstjórinn í Grindavík.
írska stjórnin missir fylgi
ÍRSKA stjórnin varð fyrir áfalli
í vikunni þegar birt var skoðana-
könnun sem bendir til þess að
fylgi eins stjórnarflokkanna,
Verkamannaflokksins, hafi
minnkað um tæpan helming í
Dublin.
Fréttaskýrendur segja að kjós-
endur í höfuðborginni geti ráðið
úrslitum um hvort stjórn Fine
Gael, Verkamannaflokksins, og
Lýðræðislegra vinstrimanna
haldi velli í þingkosningunum
sem verða síðar á árinu. Kjör-
tímabilinu lýkur í nóvember en
líklegt hefur verið talið að John
Bruton forsætisráðherra boði til
kosninga 23. maí.
i
I
I
\
)
I
>
í
i
i
l
t
i
t
I
L
I
í
í
r
f