Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ 18 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 ERLEIMT Farið að hitna undir í bresku kosningabaráttunni Saka Ihaldsflokk- ínn um skítkast London. Reuter. LABOUR'S POSITION ON EUROPE. Reuter AUGLÝSINGIN, sem íhaldsflokkurinn birti í bresku blöðunum. Belgía Fleiri lík- amshlutar finnast Brussel. Reuter. SAKSÓKNARI í Belgíu skýrði frá því í gær að lögreglan, sem leitar að raðmorðingja, hafi fundið þijá plastpoka með líkamshlutum ná- lægt borginni Mons. Pokarnir fundust í þorpinu Havre. Áður hafði lögreglan fundið plastpoka með líkamshlutum að minnsta kosti fjögurra kvenna í grennd við Mons. Höfuð og fótur konu fundust í tveimur plastpokum við veg í Havre á laugardag. Lögreglumaður fann einnig tíu poka með líkamshluta fyrir tilviljun í þorpinu Cuesmes nálægt Mons í liðnum mánuði. Saksóknarinn í Mons sagði að talið væri að raðmorðingi hefði myrt konurnar því líkamshlutarnir hefðu allir verið skornir með sama hætti. Grunur leikur á að sami maður hafi myrt fimmtu konuna, sem fannst aflimuð á sama svæði í júlí í fyrra. ---------------- Lá við árekstri yfir Los Angeles Los Angeles. Reuter. LITLU munaði að tvær breiðþotur skyllu saman við Los Angeles síð- degis á miðvikudag að staðartíma, samkvæmt upplýsingum banda- ríska loftferðaeftirlitsins, sem rann- sakar atvikið. Þotumar vom báðar á leið til Los Angeles með um 350 manns innan- borðs. Um var að ræða MD-11 þotu frá brasilíska flugfélaginu VASP og Boeing-747 þotu hollenska flug- félagsins KLM. Flugmenn brasilísku þotunnar breyttu stefnu vélar sinnar og skeyttu síðan ekki um fyrirmæli flugumferðarstjóra. Urðu flugmenn hollensku þotunnar sveigja af leið til að koma í veg fyrir árekstur. Báðar þoturnar lentu síðan heilu og höldnu á vellinum í Los Angel- es. Hermt er að flugstjóri brasilísku þotunnar hafi gefið þá skýringu á framferði sínu, að sjálfstýring þot- unnar hafi ekki starfað í samræmi við þær flugupplýsingar sem tölva hennar hefði verið mötuð á. ÓEIRÐALÖGREGLA í Suður- Kóreu ræðst gegn mótmælend- um með kylfum og stálrörum við Hanyang-háskólann í höfuðborg- inni Seoul í gær. Til átakanna kom er námsmenn efndu til mót- mæla til að krefjast afsagnar AUGLÝSING eða kosningaáróður, sem breski íhaldsflokkurinn hefur birt í blöðum, hefur vakið hörð við- brögð hjá stjórnarandstöðunni, eink- um Verkamannaflokknum, enda beinist áróðurinn gegn honum. Sýn- ir hún Tony Blair, leiðtoga Verka- mannaflokksins, sem búktalara- brúðu í kjöltunni á Helmut Kohl, kanslara Þýskalands. Yfirskriftin er: „Afstaða Verkamannaflokksins til Evrópu." John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær, að auglýsing- in ætti að sýna hve Blair væri fús til að fórna breskum hagsmunum í samningum við Evrópusambandið, ESB, en væri á engan hátt niðrandi fyrir Kohl. Um var að ræða heilsíðu- auglýsingu í öllum stóru, bresku blöðunum. „Ekki drengstaula“ Undir myndinni af þeim Kohl og Blair er vitnað til ESB-fundarins í júní þar sem rætt verður um mynt- bandalagið og þar segir m.a.: „Á næstu vikum og mánuðum mun reyna á þá hæfustu samningamenn, sem Bretland hefur á að skipa. Lát- um ekki drengstaula axla ábyrgð fullorðins manns.“ Gordon Brown, kosningastjóri Verkamannaflokksins, sagði í gær, að auglýsingin sýndi niður á hvaða plan Ihaldsflokkurinn væri kominn. Persónulegt skítkast af þessu tagi sýndi gjaldþrotið og örvæntinguna, sem einkenndi nú kosningabaráttu hans. Paddy Ashdown, leiðtogi ftjálslyndra demókrata, sagði, að auglýsingin myndi ekki koma Major að neinum notum og ekki breskum stjórnmálum. Hún gerði hins vegar kosningabaráttuna ómerkilegri en vera þyrfti. Talsmaður breskrar stofnunar eða siðanefndar, sem fjallar um auglýs- ingar, sagði, að fólk hefði hringt og kvartað vegna auglýsingarinnar og yrði hún tekin til athugunar ef skrif- legar umkvartanir bærust. Stofnun- in féllst fyrir nokkru á kvartanir vegna annarrar auglýsingar íhalds- flokksins, sem sýndi Blair í líki Kölska, en auglýsingin, sem birtist í fyrradag, er ekki jafn gróf. Major hefur átt í erfiðleikum I eigin flokki vegna glímunnar við Kim Young-sam, forseta landsins og handtöku sonar hans. All- margir aðstoðarmenn forsetans og pólitískir samherjar sæta nú rannsókn vegna aðildar að um- fangsmiklu spillingarmáli, tengdu Hanbo-samsteypunni. Evrópuandstæðinga innan hans en nú hefur hann snúið blaðinu nokkuð við og nýr Blair því um nasir, að hann sé hallur undir ESB og reynslu- laus í milliríkjasamningum. Roy Jenkins, eini Bretinn, sem verið hefur formaður framkvæmda- stjórnar ESB, sagði í gær, að það væri óskynsamlegt að blanda erlend- um stjórnmálamönnum inn í bresku kosningabaráttuna. Sagði hann, að hver sem ynni kosningarnar 1. maí, yrði að vinna með Kohl. Talsmaður þýsku stjórnarinnar, Peter Hausmann, gerði lítið úr þessu máli í gær og sagði, að í kosninga- baráttu ryki oft heilmikið þótt lítill eldur væri undir. Peter Hintze, framkvæmdastjóri Kristilega demókrataflokksins, flokks Kohls, sagði hins vegar, að breski íhaldsflokkurinn hefði sýnt ódreng- HÓPUR sænskra presta hyggst ekki taka því þegjandi og hljóðalaust að Svíar fengu í gær fyrsta kvenbiskup- inn, þegar Christina Odenberg var kosinn biskup Lundarstiftis með knöppum meirihluta. Það kemur reyndar í hlut Maritu Ulvskog menntamálaráðherra að útnefna biskupinn, en hún hefur þegar sagst hlynnt kvenbiskup. Prestarnir hyggjast ekki samþykkja Odenberg sem andlegan leiðtoga, heldur aðeins að líta á hana sem embættismann. Um fjörutíu ár eru liðin síðan fyrstu sænsku kvenprestarnir voru vígðir. Odenberg er 57 ára og í samtali við sænska útvarpið í gær sagð hún kosninguna viðurkenningu á að kon- ur hefðu náð fótfestu í sænsku kirkj- unni og að embætti hennar væru opin jafnt konum sem körlum. Prestarnir andsnúnir kvenbiskup tilheyra flestir fríprestafélagi sænsku kirkjunnar og hafa áður haft í hótunum um að segja sig úr kirkjunni, ef kona yrði biskup. Þeirri skap með því að nota mynd af þýska kanslaranum með þessum hætti. Fjórðungur óákveðinn Skoðanakönnun, sem breska blað- ið The Independent birti í gær, sýn- ir, að heldur hefur dregið saman með stóru flokkunum. Fékk Verka- mannaflokkurinn stuðning 49% kjós- enda en íhaldsflokkurinn 31%. Frjálslyndi demókrataflokkurinn var með 13%. Fram kom, að rúmur fjórð- ungur kjósenda taldi hugsanlegt, að hann skipti um skoðun fyrir kjördag og eru kjósendur íhaldsflokksins lausari í rásinni en Verkamanna- flokksins eða 30% á móti 17%. Mest- ar vomur eru þó á kjósendum Ftjáls- lynda demókrataflokksins því að hvorki meira né minna en 45% kjós- enda hans sögðu ekki útilokað, að annar flokkur yrði fyrir valinu. leið hafna þeir nú en sumir hafa stungið upp á að komið verði á fót embætti „fljúgandi biskups", líkt og gert hefði verið í bresku biskupa- kirkjunni eftir að fyrsti breski kven- biskupinn var kosinn. Til að prestar þyrftu ekki að lúta andlegri leiðsögn hennar var stofnað biskupsembætti ótengt stað og af því kemur heitið. Aðrir prestar hafa hvatt til að fólk leggi ekki pening í kirkjubauk- inn, heldur sendi fé til andstæðinga kvenbiskups. Enn aðrir hafa hugleitt að velja sér einhvers konar „skugga- biskup“ og leita til hans. Rök prestanna gegn kvenbiskup eru að það sé Guðs orð sem gildi, en ekki ríkjandi skoðun hvers tíma. Þeir sem eru hlynntir því að bæði konur og karlar gegni embættum innan kirkjunnar minna á að það hafi verið konur, sem fyrstar sögðu frá upprisu Jesú. Málið stefnir í að verða hitamál í Svíþjóð líkt og var í Noregi fyrir nokkru, þegar fyrsti kvenbiskupinn var kosinn þar. Kasparov vill mæta Karpov GARRÍ Kasparov, heims- meistari skáksambands at- vinnumanna (PCA) sagðist í gær tilbúinn að mæta til ein- vígis við Anatólí Karpov, heimsmeistara FIDE. Sagði hann að samið hefði verið um alla þætti slíkrar viðureignar nema verðlaunaféð. Sagt er að Kasparov sé ekki til við- ræðu að tefla nema verðlaunin nemi a.m.k. einni milljón doll- ara. Einvígið yrði haldið óháð PCA og FIDE, að sögn rússn- esks skákforystumanns. Það yrði óopinbert og hefði því enga þýðingu varðandi heims- meistaratignina. Hurd fær lávarðstigTi DOUGLAS Hurd, fyrrverandi utanríkisráðherra Breta, tekur sæti í efri deild breska þingsins 1. maí en þann dag verður hann aðlaður ásamt 21 öldruðum breskum stjórnmála- mönnum sem hverfa úr neðri deildinni í vor. Fær Hurd lávarðstign en sæti í lávarðadeildinni en meðal þingmanna sem flytjast upp í deildina úr neðri deild eru Sir Patrick Mayhew ír- landsmálaráðherra, Roy Hatt- ersley, varaformaður Verka- mannaflokksins 1983-92, Sir David Steele, fyrrverandi leið- togi Fijálslyndaflokksins og Sir James Molyneaux, fyrrver- andi leiðtogi flokks norður- írskra sambandssinna. Prímakov á sjúkrahúsi RÚSSNESKI utanríkisráð- herrann, Jevgení Prímakov, var fluttur í sjúkrahús í gær og þarf að gangast undir upp- skurð vegna gallsteina. Óljóst er hve lengi hann verður frá störfum og hvaða afleiðingar það hefur á viðræður um stækkun NATO í austurátt. Sýknaður af stríðsglæpum SVISSNESKUR stríðsglæpa- dómstóll sýknaði í gær Bosníu- Serba af ákæru um að hafa myrt og pyntað fjölda múslima í fangabúðum í Omarska og Keretrem í norðurhluta Bosníu 1992. Voru honum dæmdar 100 þúsund svissneskra franka skaðabætur, jafnvirði 4,9 milljóna króna og látinn laus samstundis. Missa trú á réttarkerfið ALMENNINGUR í Belgíu hef- ur glatað trúnni á bæði ríkis- stjórn landsins og réttarkerf- inu í kjölfar barnaníðings-, nauðgunar og morðmála og pólitískra fláræðisverka, sam- kvæmt niðurstöðum skoðana- könnunar. Aðeins 3% sögðust treysta ríkisstjórninni fyllilega og sama hlutfall bar fullt traust til réttarfarskerfisins. Reuter Kreíj ast afsagnar forsetans Deilt um sænsk- an kvenbiskup Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.