Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 35 einnig mikill og minnist ég glamp- ans í augunum er ég heimsótti hann fársjúkan á síðasta ári og hann fór að segja mér að hann væri kominn með alnetstengingu og ræddi þá miklu möguleika sem tengdust því. Eg átti þess kost síðar á lífsleið- inni að kynnast Birki eins og áður sagði og átti með honum góðar stundir. Vegna búsetu okkar er- lendis voru sameiginlegu stundirn- ar samt of fáar. Birkir var traustur félagi og vinur vina sinna. Hann átti sína drauma og var fæðing dóttur hans Elísu væntanlega sá stærsti. Hann mun væntanlega sakna þess hvað mest að geta ekki verið í meiri nálægð við hana á hennar lífsleið. Birkir átti einstaklega trausta foreldra sem stóðu við hlið hans í stríðu og blíðu. Það er óvíða að fínna þær miklu fórnir og þá innilegu blíðu og umhyggju sem foreldrar hans veittu honum. Síðustu árin voru eflaust þau erfíðustu, en þá stóðu þau traustari en nokkurt bjarg við hlið hans. Hann fær þeim víst seint fuilþakkað sem og öðru hjúkrunar- fólki, vinum og aðstandendum sem stóðu við hlið hans í baráttunni. Þau eiga alla virðingu okkar. Birkir hafði ekki sama álit á kveðskap Ásbjarnar Mortens og undirritaður. Eg veit samt sem áður að hann fyrirgefur mér þann grikk að enda þessi fátæklegu orð með tilvitnun í einn af hans textum: Ég hef staðið við gluggann, heyrt hann tala um komandi harðæri, nístandi él. Aldrei fyrr séð hann svo hryggan stara. Þegar þú kvaddir hvað ég skildi hann vel. Óskar Sigmundsson. Það var að kvöldi 7. apríl sl., ég var nýkominn heim úr vinnu, að síminn hringdi. Á leið minni að sím- anum leit ég upp og sá regndrop- ana renna niður rúður eldhús- gluggans. „Hann Birkir var að skilja við fyrir nokkrum mínútum." Með símann í höndunum varð mér aftur litið á eldhúsgluggann og sá þá að það var ekki regn, það voru tár sem runnu niður rúðurnar, Eyjan var að gráta einn sona sinna, hún grét allt kvöldið og alla nóttina. Það var 1969 að ég og fjölskylda mín fluttum hingað til Vestmanna- eyja, fljótlega tókust kynni milli okkar og þeirra hjóna Systu og Hugins og barna þeirra. Síðan þá hafa leiðir þessara fjölskyldna legið meira og minna saman, mismikið eins og gefur að skilja. Við vorum ung og líkt og aðrir að koma yfír okkur framtíðarhúsnæði, og eftir langan vinnudag var oft unnið í húsbyggingum á kvöldin og um helgar. Um tíma var það nær eina upplyfting okkar að þessar tvær fjölskyldur hittust síðla sunnudags og þá var spjallað og gantast og krakkarnir léku sér úti í sólinni. Birkir var elstur af hópnum og þá þegar var þessi eiginleiki hans, að vera hann sjálfur, kominn í ljós. Ég minnist þess að þegar búið var að klæða hann í sunnudagafötin og gera hann fínan þá setti hann upp götóttu ullarhúfuna og það fékk hann enginn til að taka hana niður þó um hásumar væri, og þar sem hlaupið var um úti í sólinni stóðu ljósu lokkarnir út um götin líkt og strá á fuglahræðu. Það kom fljótlega í ljós að Birk- ir var mjög músíkalskur, og eftir að hafa notið lítilsháttar leiðsagnar hjá föður sínum á klarinett hóf hann að spila í Lúðrasveit Vest- mannaeyja, þá aðeins barn að aldri. Enn var það þessi eiginleiki sem einkenndi hann, hann var ekki ánægður með að gera eins og hin- ir, hann varð að gera hlutina eins og hann vildi gera þá, vel, og það gerði hann, enda leið ekki á löngu þar til hann var orðinn leiðandi í tréblástursdeildinni. Það sama fylgdi honum í gegnum hljómlistar- feril hans, það var aldrei spilað hálfæft lag, allt skyldi vera vel gert. Ég minnist þess að við fórum niður í Alþýðuhús 1. maí til að hlusta á Birki og félaga hans spila í fyrsta skipti opinberlega, þá var Birkir líklega 15 ára en enginn við- vaningsbragur á leik hans eða ann- arra. Þá var hann farinn að blása í saxófóninn sem átti eftir að vera hans atvinnutæki, vinur og sálufé- lagi það sem eftir var. Fljótlega eftir að skólanámi lauk hóf hann nám í húsamálun hjá föð- ur sínum, en þeir feðgar voru mjög nánir og fáa feðga hef ég þekkt sem hafa unnið svo vel saman, enda voru áhugamálin þau sömu. Birkir lauk tilskildu námi en tók aldrei sveinspróf, því þá þegar voru veikindin farin að þjá hann og hann treysti sér ekki til að gera það eins vel og hann vildi, og þá var það ekki gert. Það sama var uppi á teningnum um fyrirhugað tónlist- arnám, veikindin urðu þess vald- andi að hann treysti sér ekki í það, en það var ekki hætt við, hann ætlaði bara að bíða þar til hann yrði frískur. Birkir var í sambúð um tíma með Þóru Guðnýju Sigurðardóttur frá Keflavík og eignuðust þau sam- an dótturina Elísu, sem var sólar- geislinn í lífí hans, og alltaf var það Elísa sem fyrst kom upp í huga hans þegar af honum bráði eftir erfið veikindaköst, og birtan og friðurinn sem færðist yfír andlit hans þegar hún birtist, er ógleym- anlegur þeim sem sáu. Birkir var um eða innan við tví- tugt þegar hann var greindur með hinn illvíga sjúkdóm MS, sem leiddi hann til dauða. Honum var ráðlagt að fara vel með sig, nei, hann vildi vera hann sjálfur, og gera hlutina á sinn hátt, kannski bitnaði það á honum seinna, en aldrei heyrðist hann kvarta, hann tók öllu sem að höndum bar með þvílíkum kjarki og þeirri baráttu sem hann háði verður ekki Iýst með orðum. Hann gafst aldrei upp, hann prófaði allt, reyndi öll lyf sem hugsanlega gætu hjálpað, fór í erfíða sjúkraþjálfun og hann fór eitt sinn til Bremen í nálastungumeðferð ef það gæti hjálpað, en ekkert dugði. Hann varð að játa sig sigraðan, og að kvöldi mánudagsins 7. apríl andað- ist hann á Sjúkrahúsi Vestmanna- eyja með þau tvö sér við hlið sem honum þótti vænst um fyrir utan Elísu litlu, og sem staðið hafa með honum í baráttunni, foreldra sína. Vegir Guðs eru órannsakanlegir og ekki skil ég hvers vegna Drott- inn bjó Birki svo stutt og kvala- fullt líf, en hitt veit ég að engla- hljómsveitin á himnum hefur feng- ið nýjan saxófónleikara. Elsku Elísa, foreldrar, systkini og fjölskylda, megi Drottinn styrkja ykkur í sorg ykkar og minn- ing um góðan dreng lifa. Þyrí, Snorri og fjölskylda. Það voru blendnar tilfínningar sem bærðust mér í bijósti þegar hringt var í mig og mér tilkynnt um lát vinar míns Birkis Hugins- sonar saxófónleikara. Fyrst vantrú, því næst viss léttir, að þrautagöngu þinni væri nú loks lokið, en svo kom nístandi söknuður. Leiðir okkar lágu saman um haustið ’85 þegar við ásamt fleirum stofnuðum hljómsveitina 7-und. Næstu fjögur árin þar á eftir lékum við linnulaust um hveija helgi um allt land svo óhjákvæmilega kynnt- umst við mjög vel. Það var mér mikið reiðarslag þegar Birkir tjáði mér hvaða sjúkdóm hann gengi með og enn verra var að sjá hversu miskunnarlaus og óvæginn hann reyndist vera. Þrátt fyrir mikil veikindi var allt- af stutt í glens og grín hjá Birki, og traustari vin er vart hægt að finna. Margar gleðistundir áttum við ásamt félögum okkar í hljóm- sveitinni og þessar gleðistundir varðveiti ég í hjarta mínu. Það er minningin um góðan dreng sem sefar sárustu sorgina. Kæru Elísa, Systa, Huginn, Odda og Viðar, megi algóður guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Pétur Már Jensson og fjölskylda. VILHJALMUR KRIST- JÁN HALLDÓRSSON + Vilhjálmur Kristján Hall- dórsson fæddist í Vörum í Garði 5. júlí 1913. Hann lést 1. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Útskála- kirkju 12. apríl. Með fáeinum orðum langar mig að minnast Villa og þakka honum fyrir allt það sem hann gerði fyrir mig og allar þær stundir sem við áttum við sameigin- legt áhugamál okkar, knattspyrn- una. Oft var spjallað og glaðst þegar vel gekk hjá uppáhaldsliðinu okkar, Víði í Garði. Villi bróðir var mikill keppnismaður í eðii sínu og áhugasamur um flest sem að íþróttum sneri og naut hann þess að spila brids, tefla og síðast en ekki síst var hann mjög leikinn púttspilari og hlaut margan verð- launagripinn fyrir þátttöku sina í púttkeppnum. Villi var einn af stofnendum og fyrsti formaður Púttklúbbs Suðurnesja, sem enn starfar af mikilum krafti. Hann átti einnig þátt í að stofna fleiri slíka klúbba, m.a. í Garði og á Seltjarnarnesi. Villi var góður heimilisfaðir og við hlið hans var hans trausta eigin- kona, Steinunn Sigurðardóttir. Villi hafði sjaldan mörg orð um hlutina, en var mjög greiðvikinn og hjálpsamur þeim sem minna máttu sín. Hann var traustur og sterkur og kom það ekki síst fram í öllum hans veikindum. Á kveðjustundu er mér þakklæti efst í huga fyrir allt það sem Villi var mér og börn- um mínum. Ég bið guð að styrkja eiginkonu Villa og ástvini hans alla. Guð blessi minningu hans. Karitas Halldórs- dóttir. Mig langar að minn- ast elsku bróður míns, Vilhjálms Halldórsson- ar. Hann var mér meira en bróðir, hann var besti vinur minn. Það er margs að minnast frá okkar æskuá- rum. Þú varst alltaf svo mikill grín- isti. Það var mikið hlegið. Þú varst driffjöðrin í öllu nálægt þér. Mikið var talað um að þú værir sætur strákur þegar þú varst ungur, einn- ig að við værum lík þó að þú værir sjö árum eldri og var ég mjög mont- in af því. Ég hermdi allt eftir þér, til dæmis þegar þú tókst í vörina, þá setti ég tunguna út í vörina og þóttist vera að gera það sama og þú. Var mér þá bent á að ég væri stúlka, en þú strákur og var þá ánægjan búin hjá mér. Vilborg amma okkar átti heima í hæsta húsi og vorum við oft hjá henni. Hún kenndi okkur bænir og var ég búin að læra margar af henni. Þegar ég var sjö ára dó hún, þá tókstu mig inn í herbergi, læstir að okkur og skrifaðir allar bænirnar á blað, en þær voru ekki svo fáar. Á kvöldin, áður en ég fór að sofa, last þú þær með mér og sagðir að KRISTBORG STEFANÍA SNJÓLFSDÓTTHt + Kristborg Stef- anía Snjólfs- dóttir fæddist í Vet- urhúsum í Ham- arsdal 25. septem- ber 1916. Hún lést 27. mars síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Ásdís Sigurðardóttir og Spjólfur Stefánsson er bjuggu í Vet- urhúsum í 37 ár. Systur Kristborgar voru Sigurbjörg, Málfríður Halldóra og Steinunn Dagm- ar. Bræður hennar voru Sig- urður, sem lést ungur, Þórður og Ingvar Þórlindur sem enn eru á lífi. Kristborg giftist Arnóri Karlssyni 1. janúar 1942. Hann lést 7. janúar 1987. Þau stofn- uðu heimili á Djúpavogi og eignuðust fjögur börn, þau Björn, Stefán, Reyni og Kol- brúnu. Barnabörnin eru 19 og barnabarnabörnin eru 20. Útför Kristborgar fór fram frá Djúpavogskirkju 5. apríl. Það er margs að minnast, en smágrein í blaði nær skammt. Skírdagur 27. mars var stór dagur hjá börnunum sem voru fermd í Djúpavogskirkju þennan dag, þar á meðal barnabörnum Kristborgar, þríburunum Ásdísi, Bryndísi og Njáli. Það voru allflestir sammála um að athöfnin hafi verið sú falleg- asta sem þeir hefðu farið í. En eitt skyggði þó á gleði okkar allra, hún Kristborg, amma okkar, lá mikið veik á Norðfjarðarspítala. Hún sem var svo hress og kát tveimur dögum áður, og hlakkaði mikið til að koma heim og vera við ferminguna. En að kvöldi skírdags lést hún. Amma var alla tíð mjög hraust kona, en eftir að hún lét af störfum hjá Búlandst- indi, haustið 1995, fór henni hratt hrakandi. Amma hafði gaman af vinnu sinni og hún þótti mjög góður flak- ari. Amma var holl húsbændum sínum. Sem dæmi um það má nefna að ef við sáum að hún var þreytt þá sögðum við kannski, „af hverju tekur þú þér ekki frí?“, þá sagði hún „það væri nú ekki gott ef menn væru alltaf að taka sér frí, þá gengi nú lítið í vinn- unni“. Og þótt aldur færðist yfir var hún eiginlega aldrei tilbúin til að hægja á ferð, svo kappsöm var hún við vinnu sína, og mátti marg- ur sem yngri var una við minni afköst en hún. Þannig var hún bæði kröfuhörð og ósérhlífin við sjálfa sig og kvartaði helst aldrei. Hún gat hins vegar haft áhyggjur af öðrum, og orðað það að þeir legðu of hart að sér við vinnu og hlytu að vera þreyttir, en hún hafði aldrei þær áhyggjur varðandi sjálfa sig. Já, það var ekki ömmu líkt að setjast í helgan stein og njóta ævikvöldins. Hún vann svo lengi sem hún hafði heilsu til, ekki vegna þess að hún endilega þyrfti, heldur vegna þess að hana langaði til þess. Þegar amma var ung stúlka fór hún suður til Reykjavík- ur og var í vist bæði í Viðey og á Bessastöðum, sem þá voru mynd- arbýli með hefðbundinn búskap. Amma átti góðar minningar um dvöl sína þar, en þó lá leið hennar ég mætti ekki segja eitt orð, því þá yrði ég að byija upp á nýtt. Það var erfitt að þegja því hópurinn var stór sem herbergið gisti og freist- ingin því mikil að skrafa. ^ Það er margs að minnast. Þú varst prakkari hinn mesti og eitt sinn þegar mamma ætlaði að ávíta þig, tókstu í pilsið hennar og snerir henni í hringi, svo það varð hlátur en ekki grátur. Mér er minnisstætt þegar þú veiktist, aðeins nitján ára, og fórst á Vífilsstaði í rúmt ár. Eft- ir það gekkst þú aldrei heill til skóg- ar. Bijósklos hijáði bakið og hefur það verið kvalafullt og þreytandi fyrir ungan mann. Ákveðið hafði verið að þú færir á sjúkrahús snemma einn morgun. Við vorum hrædd og kvíðin, en þú spilaðir brids við pabba og bræðuma uppi á lofti í herberginu þínu og heyrðum við hin hláturinn í þér niður. En þannig varst þú alltaf þegar á reyndi í lífí þínu, kvartaðir aldrei við neinn og um leið og bráði af þér varstu svo lifandi í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Þegar þú varðst að hætta að vinna vegna veikindanna, settist þú niður og fórst að sauma og telja út og gerðir það svo vel, Villi minn, að nú prýða myndir þínar heimili bama þinna og okkur systkinum þínum gafst þú myndir sem þú hafð- ir málað af húsinu í Vömm, eða Brekku sem við munum varðveita ásamt minningunni um þig. ^ Þú fékkst áhuga á púttinu sem þú dreifst áfram af kappi og gerðir marga góða hluti eins og þeir vita sem unnu með þér í því. Þú gafst mér fyrsta púttarann og kúluna og dreifst mig í þetta, og síðan hef ég verið full af áhuga og haft gaman af. Elsku Villi minn, ég þakka þér samveruna og allt það sem þú varst mér. Ég bið Guð að blessa þig og leiða í ljósinu sínu. Guð blessi fjöl- skyldu þina. Elisabet Halldórsdóttir. aftur á heimaslóðirnar. Þeir voru ófáir göngutúrarnir sem við krakkarnir fórum með henni út í fjárhús, a.m.k. við þessi sem eldri erum. En eftir að afí dó hætti hún fljótlega með kindurnar. Það var alltaf gaman að labba með henni út í „tanga" eða út á „land“. Það var ýmislegt skrafað í þeim ferð- um. Elsku amma, við þökkum þér samfylgdina og megi þér líða sem allra best þar sem þú ert núna. Guð blessi minningu ömmu okkar. í fomöld á jörðu var frækomi sáð, það fæstum var kunnugt, en sums staðar smáð, það frækom var Guðs ríki, í fyrstunni smátt, en flóvgaðist óðum og þroskaðist brátt. Þá dundu yfir stormar og hretviðrin hörð, og haglél og eldingar geisuðu um jörð. Það nísti af frosti, það funaði af glóð, en fijógvaður vísir þó óskemmdur stóð. Og frækomið smáa varð feiknarstórt tré, þar fá mátti lífsins í stormunum hlé, það breiddi sitt lim yfir lönd, yfír höf, á lifenda bústað, á dáinna gröf. í skjóli þess þjóðimar þreyta sitt skeið og þreyttur fær hressing á erfiðri leið, í skjóli þess hrakinn og vesæll fær vörn, þar velja sér athvarf hin saklausu böm. Oddný Dóra og Kristborg Ásta. Sérfræðingar í blomaskrevliníium vift bll lækilæri mblómaverkstæói I INNAm- I Skóhoörðuslíg 12, a liorni Itergsluðastrælis. smii 551 ‘1(190
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.