Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Er og ætlar 'i I , - I ,■■■', Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir BJÖRG Jóna Sigtryggsdóttir hlaut hæstu einkunn sem gefin hefur verið fyrir blómaskreytingu í Garðyrkjuskóla ríkisins. Fékk 10 fyrír brúðarvönd Hveragerði - Björg Jóna Sig- tryggsdóttir, 23 ára nemi á blómaskreytinga- og markaðs- braut Garðyrkjuskóla rikisins á Reykjum, fékk nýlega hæstu ein- kunn sem gefin hefur verið fyrir blómaskreytingu á brautinni til þessa. Björg Jóna fékk einkunn- ina 10 fyrir litrikan brúðarvönd sem hún lagaði, en hann var annað af tveimur prófverkefnum sem lögð voru fyrir nemendur brautarinnar nýlega. Prófdóm- arar voru þau Vigdís Hauksdótt- ir og Uffe Balslev, sem einnig er kennari á blómaskreytinga- brautinni. Prófdómarar taka til- lit til 10 atriða þegar verkefni eru metin. Þar má nefna skurð blómanna, samsetningu, form, nýtni og fleira. Öll þessi atriði voru fullkomin í brúðarvendi Bjargar Jónu og því hlaut hún þessa góðu einkunn. Aðspurð sagði Björg að sér likaði afskaplega vel í skólan- um.„„Mér finnst gaman að vinna með blóm og aðra hluti úr náttúr- unni. í skólanum lærist margt nýtt sem er góð viðbót við verkn- ámið, sem er 11 mánuðir." Björg Jóna, sem er frá Akureyri, stund- ar sitt verknám í Blómabúðinni Akri þar í bæ svo brúðir sumars- ins norðan heiða ættu að geta verið öruggar um hinn full- komna brúðarvönd. Mikil aðsókn í blómaskreytingar Gríðarlegur áhugi virðist vera fyrir hendi á blómaskreytingum, því öll námskeið sem Garðyrkjuskólinn hefur auglýst undanfarið hafa fyllst samstundis. Magnús Hiynur Heiðarsson endurmenntunarsjóri skólans segir það mjög ánægjulegt hve vel þessi námskeið hafi verið sótt og því sé það stefna skólans að auka framboð á þeim til að mæta þessari eftirspurn. Innan Garðyrkjuskólans er nú stefnt að því að hrinda í framkvæmd tveggja daga blómaskreytinganámskeiðum í sumar sem ætluð eru bæði fagfólki sem og áhugamönnum um blómaskreytingar. Islendingar við flug- vallargerð á Grænlandi MorgunblaðiðyHafþór Jónsson ÍSLENSKU flugvallarstarfsmennirnir á Grænlandi, Ómar Krist- jánsson, Heiðar Engilbertsson, Ástþór Kjartansson, undir stýri, og Sigurjón Kristinsson. Námskeið fyrir skólasafnakennara Vogum - Hópur íslendinga er farinn til Grænlands til að starfa við flug- vallargerð við bæinn Aasiaat sem stendur á eyju í Diskóflóa við vestur- strönd Grænlands, langt norðan heimskautsbaugs. Það er fyrirtækið Gronland Prime Contraktor sem sér um framkvæmdina og fara átta ís- lendingar utan í dag. Framkvæmdir við flugvallargerð- ina hófust á síðasta ári en þær hafa legið niðri í vetur. Verið er að byggja 800 metra langa flugbraut og með öryggissvæði verður fiugvöllurinn alls 1 km að lengd. Að sögn Hafþórs Jónssonar, véla- manns hjá íslenskum aðalverktök- um, sem tekur þátt í verkefninu þarf að sprengja klappir til að búa til efni fyrir flugvallargerðina. Starfsmenn fara út í 6 til 7 vikur í senn og verklok verða þegar völl- urinn er tilbúinn undir malbikun sem verður á næsta ári. Ferðin til Aasiaat tekur sólar- hring. Það er flogið með Flugleiðum frá Keflavík til Kulusuk og þaðan er flogið með Grænlandsflugi til Syðri-Straumsfjarðar og þaðan er flogið með flugvél til Jakobshavn. Frá Jakobshavn er farið með þyrlu til Kristjanshavn og svo síðasta hluta leiðarinnar með þyrlu til Aasiaat. Gamall draum- ur rættist Egilsstöðum - Þessar tvær gínur á myndinni eiga það sameiginlegt að íklæðast fötum frá versluninni Okkar á milli á Egilsstöðum. Ekk- ert fleira er þeim sameiginlegt því önnur er manneskja en hin bara venjuleg gína. Af sérstökum áhuga falaðist þessi ungi maður eftir því að fá að „leika“ eða „vera“ útstillingargina fyrir of- angreinda verslun. Hann heitir Logi Helguson og sagði að hann hefði átt þann draum sem lítill strákur að fá að sýna föt. Hvort þetta hlutverk uppfyllir sýningar- þörfina er ekki vitað en a.m.k. hefur gamall draumur Loga orðið að veruleika. Blönduós Eigendaskipti hjá Bílaþjón- ustunni Blönduósi - Eigendaskipti hafa átt sér stað á Bílaþjónustunni við Efstu- braut á Blönduósi. Lárus Helgason sem rekið hefur fyrirtækið til langs tíma snýr sér að öðrum verkefnum en við taka þrír ungir menn, Andrés I. Leifsson, Eysteinn Jóhannsson og Vilhjálmur Stefánsson. Hinir nýju eigendur eru allir fyrr- um starfsmenn Vélsmiðju Húnvetn- inga sem varð gjaldþrota í vetur. Hyggjast þeir félagar starfrækja al- hliða viðgerðaþjónustu fyrir bifreiðar auk þess að reka sprautu- og rétt- ingaverkstæði. Reyðarfirði - Á vegum Skólaskrif- stofu Austurlands er nýlokið fyrri hluta námskeiðs fyrir skólasafna- kennara. Tíu manns af svæðinu frá Breiðdalsvík til Borgarfjarðar eystri tóku þátt í námskeiðinu undir stjórn Laufeyjar Eiríksdóttur, skólasafna- fulltrúa. í flestum skólum er kominn vísir að skólasafni þar sem starfa kenn- arar, bókasafnsfræðingar eða bóka- verðir. í aðalnámskrá grunnskóla er kveðið á um að skólasöfn séu eitt af meginhjálpartækjum í skóla- starfí. Það hefur verið átaksverk- efni hjá Skólaskrifstofu Austur- lands að samræma störf þessara safna og vonir standa til þess að skólasöfnin í umdæminu samtengist í bókasafnskerfinu Feng á næsta skólaári. Seinni hluti námskeiðsins verður í ágúst og þá verður farið yfir tölvu- væðingu safnanna. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir FRÁ námskeiði skólasafnakennara á Austurlandi. Morgunblaðið/Sig. Jóns. KÓR Fjölbrautaskóla Suðurlands, myndin er tekin á söngferða- lagi kórsins til Þýskalands sl. sumar. Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands með vortónleika í Vík í Mýrdal Selfossi. Morgunbiaðið. Ómarsson. Undirleik annast félagar úr kórnum, Magnea Gunnarsdóttir, Sigurður Eyþór Frímannsson og Guðjón Emilsson. Stjórnandi kórs- ins er Jón Ingi Sigurmundsson. Gestakór á tónleikunum verður Jórukórinn, sem er kvennakór á Selfossi stofnaður síðastliðið haust. Stjórnandi hans er Elín Gunnlaugs- dóttir. KÓR Fjölbrautaskóla Suðurlands heldur vortónleika sína þessa dag- ana. Fyrstu tónleikarnir voru í gær á Selfossi og í kvöld, laugardaginn 19. apríl, heldur kórinn tónleika að Leikskálum í Vík í Mýrdal klukkan 20.30. Á efnisskrá tónleikanna í Vík eru íslensk og erlend lög frá ýmsum tímum. Einsöngvarar eru Magnea Gunnarsdóttir og Halldór Unnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.