Morgunblaðið - 19.04.1997, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Embætti rí kislögreglustj óra
hluthafi í Neyðarlínunni
SAMSTARFSSAMNINGUR á milli
embættis ríkislögreglustjóra og
Neyðarlínunnar var undirritaður í
gær, en þar er kveðið á um aukið
samstarf þessara aðila. Embætti
ríkislögreglustjóra verður um leið
hluthafi í hlutafélaginu Neyðarlínan
hf.
Eiríkur Þorbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, seg-
ir aukið samstarf m.a. fela í sér
þjónustu umfram það sem verið
hefur til þessa, svo sem þegar lög-
regluembætti á landsbyggðinni vilji
hafa vaktstöðvar sínar ómannaðar
til að sem flestir lögreglumenn geti
sinnt málum á vettvangi, geti Neyð-
arlínan annast símsvörun og ýmis-
legt fleira sem lögreglumaður á
vaktstöð hefur sinnt að öðrum kosti.
Samræmt farstöðvakerfi
í skoðun
Embætti lögregla greiðir vegna
útþenslu þessa samstarfs tvær millj-
ónir króna í grunngjald og þijár
milljónir í þjónustutengt gjald, eða
samtals fimm milljónir á ári.
„Við þurfum að taka að okkur
þjónustu umfram símsvörun og boð-
un, en á því eru fjarskiptamálin
nokkur hængur. Við getum ekki náð
í farstöðvar nema á höfuðborg-
arsvæðinu, en draumurinn er sá að
sett verði upp eitt samræmt lands-
kerfi fyrir alla þá aðila sem nota
talstöðvar við störf sín.
Þá gætum við rætt við lögregluna
á t.d. Húsavík og hvar sem er ann-
ars staðar, á sama hátt og lögregl-
una í Reykjavík. Nú er það svo að
á fjöllum víða um land eru t.d. fímm
fjarskiptamöstur fyrir lögreglu,
björgunarsveitir, almannavarnir
o.s.frv., en næðist fram samræming
myndi öryggi aukast," segir Eiríkur.
Búið er að setja á fót nefnd til
að kanna möguleika á slíkri sam-
ræmingu farstöðva, meðal annars
um gervihnött, og kveðst Eiríkur
gera sér vonir um að niðurstaða liggi
fyrir innan tíðar.
Morgunblaðið/Golli
EIRÍKUR Þorbjörnsson, framkvæmdasljóri Neyðarlínunnar, Sím-
on Sigvaldson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, og Þór-
hallur Olafsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, kynna sér
efnisþætti samstarfssamnings á milli fyrirtækisins og lögreglu.
Evita fram-
sýnd í júní
SÖNGLEIKURINN Evita eftir
Andrew Lloyd Webber verður
frumsýndur í Islensku óperunni í
byijun júní. Leikstjóri söngleiks-
ins er Andrés Sigurvinsson og
kynnti hann þá leikara og söngv-
ara sem valdir voru úr hópi 170
umsækjenda sem tóku þátt í
áheyrnarprófum.
Með hlutverk Evu Peron fer
Andrea Gylfadóttir. Önnur helstu
hlutverk verða í höndum Egils
Ólafssonar, Björgvins Halldórs-
sonar, Baldurs Trausta Sveinsson-
ar og Vigdísar Hrefnu Pálsdóttur.
Tónlistarstjóri er Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson sem stýrir níu
manna hljómsveit í verkinu.
Evita fjallar um líf Evu Peron
sem gjörbreytti lífi alþýðunnar»
Argentínu og gaf fólki út um allan
heim mikla von um að betri tímar
væru í nánd. Söngleikurinn er
orðinn einn vinsælasti söngleikur
allra tíma og hefur unnið til allra
merkustu verðlauna sem söngleik-
urgetur unniðtil.
Morgunblaðið/Ásdís
CCO 1 1 rn rrn 1Q7n IÁRUSÞ.VAUHMARSSam.framkvæmdastjóri
UUL I I uU'UUL lu/U JÓHANNÞÓRBARSON,HRL.L0G9IUUR WSTEIGNftSflli.
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Góð eign - vinsæll staður
Mjög gott parhús suðurendi 76,4 fm nettó við Hjallasel. Allt eins og
nýtt. Sólskáli. Góð geymsla. Þjónustuhúsnæði fyrir aldraða.
Vinsamlegast leitið nánari uppl.
Góð eign - hagkvæm skipti
Vandað og vel byggt raðhús við Hrauntungu, Kóp. Skipti möguleg á
góðri 4ra herb. íb. m. sérinng. og bilskúr.
Einstakt tækifæri
Til sölu: Steinhús, hæð og kj., samtals 102 fm við Austurgötu í
Keflavík. Kjallari getur verið séríb. Bílskúr 50 fm. í skiptum fyrir eign í
Reykjavík eða nágrenni. Tilboð óskast.
Grindavík - einbýlishús - skipti
Gott steinhús, ein hæð 130,2 fm. Sólskáli um 30 fm. Góður bílskúr
60 fm. Ræktuð lóð 875 fm. Vinsæll staður í góðu atvinnuplássi.
í gamla Austurbænum
Lítið einbýlishús, járnklætt timburhús á steinkj. með 3ja-4ra herb. íb.
Mikið endurbætt. Langtímalán kr. 4,0 millj. Eignarlóð.
Vegna sölu að undanförnu
Óskast sérstaklega:
Einbýlishús eða raðhús á einni hæð við Háaleitisbraut, í Fossvogi
eða nágrenni.
Skipti möguleg á stórri og glæsilegri eign i sérfl. Nánar á
skrifstofunni.
3ja-4ra herb. íb. á jarðhæð eða 1. hæð í Sundum/nágr. -
Bústaðaveg/nágr.
Góðar eignir einkum í nýja miðbænum, Vesturborginni og á Nesinu.
• • •
Opið í dag, kl. 10-14.
Viðskiptum hjá okkur fylgir
ráðgjöf og traustar
upplýsingar
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370
Tryggingastofnun ríkisins
Mikið álag
vegna end-
urmats
MIKIÐ álag var á lífeyristrygginga-
deild Tryggingastofnunar ríkisins
um miðja vikuna eftir að auglýst var
að þeir elli- og örorkulífeyrisþegar
sem misst hefðu sérstaka heimilis-
uppbót að hluta eða algerlega vegna
tekna og teldu sig nú vera undir
nýjum tekjumörkum gætu sent ný
gögn til lífeyristryggingadeildar svo
að hægt væri að endurmeta rétt
þeirra til greiðslna en tekjumörkin
hafa nú verið hækkuð úr 75 þúsund
krónum á mánuði í 80 þúsund.
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að álagið hefði
verið gífurlegt, mikið hefði verið
hringt til þess að leita upplýsinga
og margir hefðu komið til þess að
skila inn gögnum. „Vegna mats á
rétti til greiðslna þarf að leggja fram
gögn sem snerta t.d. umönnunar-
kostnað, sjúkra- eða lyfjakostnað,
og húsaleigukvittanir, eigi lífeyris-
þegi ekki rétt á húsaleigubótum.
Þetta kostaði þúsundir hringinga og
spurninga," sagði Karl Steinar.
Hann sagði að starfsfólki hefði held-
ur fækkað á Tryggingastofnun
vegna erfiðra rekstraraðstæðna og
ofan á það hefðu bæst veikindi þann-
ig að álagið hafí verið mjög mikið.
Karl Steinar tók fram að þeir sem
ekki hefðu náð að skila inn gögnun-
um í tæka tíð til þess að fá leiðrétt-
ingu um næstu mánaðamót þyrftu
ekki að óttast að tapa rétti, leiðrétt-
ingin myndi þá koma um þarnæstu
mánaðamót og væri afturvirk til 1.
janúar. Hann sagði enn ekki vitað
hversu stór hópur það væri sem nú
fengi leiðréttingu sinna mála, þar
sem enn væri verið að vinna úr gögn-
unum.
Grunn-
skóla-
kennarar
samþykktu
samning
GRUNNSKÓLAKENNARAR
hafa samþykkt kjarasamning,
sem gerður var við launanefnd
sveitarfélaga 20. mars sl. og
gildir til júlíloka.
Alls greiddu 3.183 grunn-
skólakennarar _af 3.575 í Kenn-
arasambandi Íslands atkvæði
um samninginn, eða 89%. Þar
af sögðu 2.645 já, eða 83,1%
og 427 nei, eða 13,41%.
Af 188 grunnskólakennur-
um í Hinu íslenska kennarafé-
lagi greiddu 95 atkvæði um
samninginn, eða 50,5%. Þar af
sögðu 70 já, eða 74,7% og 22
sögðu nei, eða 22,1%.
Samningurinn fól í sér 4%
launahækkun frá og með 1.
mars og gildir til júlíloka. Full-
trúar kennara sögðu þegar
samningurinn var undirritaður,
að með honum væri samið um
frið til haustsins og á meðan
ynnist tími til að endurskipu-
leggja ýmis mál varðandi
vinnuumhverfí skólanna.
I samningnum var kveðið á
um að á samningstímanum
myndu aðilar endurskoða nú-
verandi fyrirkomulag á röðun
í launaflokka, skipulag vinnu-
tíma, störf skólastjóra og
greiðslu sveitarfélaga til kenn-
ara og skólastjóra sem ekki
rúmast innan gildandi kjara-
samninga.
Vatnsveita
Reykjavíkur
Styrkur til
kvenna
BORGARSTJÓRN Reykjavík-
ur hefur samþykkt tillögu
vatnsveitustjóra um að Vatns-
veita Reykjavíkur veiti árlega
í framtíðinni 300 þús. króna
styrk til konu til náms í raun-
og eða tæknigreinum. Gert er
ráð fyrir að styrkurinn verði
veittur í fyrsta sinn vorið 1997.
Tillagan gerir ráð fyrir að
skipuð verði nefnd er semji
reglur fyrir veitingu styrksins.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar veitustofnana, sagði á
fundi borgarstjórnar að hann
teldi rétt að hin veitufyrirtæk-
in, Hitaveita Reykjavíkur og
Rafmagnsveita Reykjavíkur,
mynau feta í fótspor Vatns-
veitunnar og veita samskonar
styrki. „Staðreyndin er sú að
hjá veitufyrirtækjunum eru
afar fáir starfsmenn konur á
raun- og tæknisviði og menn
hafa vissar áhyggjur af því,“
sagði hann.
Veiðibráðir
stöðvaðir
LÖGREGLUMENN höfðu af-
skipti af tveimur mönnum við
Hólsá við Vesturlandsveg síð-
degis í gær, en tvímenningarn-
ir höfðu þjófstartað veiði í ánni.
Mennirnir voru stöðvaðir við
veiðar sínar og veittu lögreglu-
mennirnir þeim tilhlýðanlegt
tiltal og gættu þess að þeir
héldu á brott án frekari tilrauna
til að renna fyrir fisk.
Enginn afli var hins vegar
sjáanlegur, hvort sem um er
að kenna ánni eða seinheppni
umræddra einstaklinga við
veiðarnar. Óheimilt er að hefja
veiðar í Elliðavatni og Hólsá
fyrr en 1. maí næstkomandi.