Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 19
ERLENT
Reuter
Enn deilt um nasistagullið
Hótuðu Þjóðverjar
Svíum innrás?
ískalt
vorbað í
Pétursborg
ÞAÐ vorar seint í Pétursborg
í Rússlandi, þar sem þessi
hrausti Rússi lét ekki klaka-
hrönglið í ánni Nevu á sig fá,
og skellti sér út í.
Vetrarböð eru vinsæl þar í
landi og enn er hægt að stunda
þau þótt að það eigi að heita
komið vor.
ÞJÓÐVERJAR hótuðu þvi að gera
innrás í Svíþjóð í heimsstyrjöldinni
síðari ef sænska stjómin féllist ekki
á að greitt yrði fyrir málm með
gulli sem tekið hafði verið af gyðing-
um. Þetta kemur fram í skjölum
bankastjórans Mats Lemne, sem lést
fyrir skemmstu, en sagt var frá
málinu í fréttatíma sænska sjón-
varpsins i fyrrakvöld.
Sé þetta rétt vissi sænska stjórnin
hvaðan gullið kom sem Þjóðveijar
greiddu með á stríðsárunum. Lemne
var seðlabankastjóri á sjötta ára-
tugnum og fékk skjöl um gullið í
hendur í bankastjóratíð sinni. Hann
hafði að minnsta kosti einu sinni
sent skjöl um málið til ríkisstjómar-
innar og var afar ósáttur við að þau
skyldu ekki vera birt. Hann var þá
orðinn veikur og hafði ekki heilsu
til að fylgja málinu eftir.
2000. fundur
ráðherraráðs
Evrópusambandsins
Merki um aukið samstarf aðildarríkjanna
Brussel. Morgunblaðið.
RÁÐHERRARÁÐ Evrópusam-
bandsins (ESB) mun halda 2000.
fund sinn frá upphafi á mánudag
er landbúnaðarráðherrar ESB koma
saman til fundar í Lúxemborg.
Fyrsti fundurinn var haldinn þann
1. júlí 1967, er ráðherraráð og
framkvæmdastjórn Efnahags-
bandalags Evrópu, fyrirrennara
ESB, vom sett á fót. Þar á undan
höfðu verið haldnir 460 ráðherra-
fundir aðildarríkjanna frá tilurð
Kola- og stálbandalagsins árið 1952
og síðar Efnahagsbandalagsins og
Euratom 1958.
Sem merki um aukið samstarf
aðildarríkjanna á undanförnum
árum þá var 1000. fundurinn hald-
inn í apríl 1985, átján árum eftir
þann fyrsta en aðeins 12 ámm síð_-
ar er 2000. fundurinn haldinn. Á
þessum tíma hefur árlegum fund-
um ráðherraráðsins fjölgað úr 20
í u.þ.b. 90 og aðildarríkjunum
fjölgað úr 6 í 15. Með þessari fjölg-
un hefur einnig sú breyting orðið
á starfsemi ráðsins að fleiri og fleiri
mál eru nú rædd í undirnefndum
þess og afgreidd án umræðu í ráð-
inu sjálfu.
Hefðbundinn fundur
landbúnaðarráðherra
Dagskrá fundarins að þessu sinni
verður með hefðbundnu sniði, þrátt
fyrir tímamótin, ef frá er talin stutt
móttaka að honum loknum. Ráð-
herramir munu ræða verðlagninu
landbúnaðarafurða fyrir 1997-98.
Þess má geta að 1000. fundur ráð-
herraráðsins var einnig fundur land-
búnaðarráðherra aðildarríkjanna.
KÍNVERJAR aflýstu í gær
heimsókn varaforsætisráð-
herra Kína, Zhu Ronggji, til
fjögurra Evrópusambands-
landa. Að sögn Jyllandsposten
er ástæðan reiði Kínveija
vegna stuðnings Iandanna við
tillögu sem lögð var fyrir Mann-
réttindanefnd Sameinuðu þjóð-
anna í Genf í síðustu viku, um
að lýsa yfir áhyggjum af
ástandi mannréttindamála í
Kína. Voru sendiherrar Hol-
lands, Lúxemborgar, Austur-
ríkis og írlands í Kína kallaðir
í kínverska utanríkisráðuneytið
í gær þar sem þeim var til-
kynnt að hætt hefði verið við
heimsókn Zhu vegna „óvildar“
rikjanna í garð Kínveija.
við Hagkaup Skeifunni
Opið: Laugardaginn 19. april kl. 10-18
og sunnudaginn 20. april kl. 12-18
Einstakt tækifæri til að ná í
rábærar vörur á frábæru verði
HAGKAUP
- fiirirflölskfflduna.