Morgunblaðið - 19.04.1997, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 31
ERLEND HLUTABREF
Dow Jones, 18. apríl.
VERÐ HREYF.
NEWYORK
DowJones Ind 6686,7 t 100%
S&PComposite 764,8 t 100%
Allied Signal Inc 70,5 t 100%
AluminCoof Amer... 68,4 t 100%
Amer Express Co 60,3 ! 100%
AT & T Corp 33,8 t 100%
Bethlehem Steel 8,0 T 100%
Boeing Co 99,9 t 100%
Céterpillar Inc 85,4 t 100%
Chevron Corp 65,0 t 100%
Coca Cola Co 59,4 t 100%
Walt Disney Co 75,8 t 100%
Du Pont 104,6 t 100%
Eastman Kodak Co... 79,4 t 100%
Exxon Corp 52,5 t 100%
Gen Electric Co 104,0 100%
Gen Motors Corp 55,9 t 100%
Goodyear 51,9 t 100%
Intl Bus Machine 138,4 t 100%
Intl Paper 41,5 t 100%
McDonalds Corp 49,6 t 100%
Merck & Co Inc 85,8 t 100%
Minnesota Mining.... 83,1 t 100%
MorganJ P&Co 97,1 f 100%
Philip Morris 44,1 t 100%
Procter&Gamble 122,8 í 100%
Sears Roebuck 47,8 t 100%
Texacolnc 103,9 t 100%
Union CarbideCp 47,6 f 100%
United Tech 73,6 t 100%
Westinghouse Elec .. 18,1 t 100%
Woolworth Corp 19,8 t 100%
AppleComputer 2340,0 t 100%
Compaq Computer.. 73,1 100%
Chase Manhattan .... 89,4 t 100%
ChryslerCorp 30,1 t 100%
Citicorp 104,6 100%
Digital Equipment 27,1 t 100%
Ford MotorCo 34,1 t 100%
Hewlett Packard 50,3 100%
LONDON
FTSE 100 Index 0,0 100%
Barclays Bank 1008,8 t 100%
British Airways 681,5 t 100%
British Petroleum 63,5 t 100%
British Telecom 904,0 t 100%
Glaxo Wellcome 1135,0 t 100%
Grand Metrop 499,5 t 100%
Marks&Spencer 495,3 100%
Pearson 725,0 t 100%
Royal&Sun All 440,8 t 100%
SheliTran&Trad 1049,5 t 100%
EMI Group 1187,0 j 100%
Unilever 1578,0 t 100%
FRANKFURT
DT Aktien Index 3361,2 t 100%
Adidas AG 178,1 t 100%
Allianz AG hldg 3205,0 t 100%
BASFAG 66,4 t 100%
Bay Mot Werke 1382,5 t 100%
Commerzbank AG.... 45,9 t 100%
Daimler-Benz 131,5 1 100%
Deutsche Bank AG... 88,6 t 100%
Dresdner Bank 54,5 t 100%
FPB Holdings AG 323,0 t 100%
Hoechst AG 64,3 t 100%
Karstadt AG 516,0 t 100%
Lufthansa 22,0 t 100%
MAN AG 495,5 t 100%
Mannesmann 649,8 t 100%
IG Farhen Liquid 1,9 t 100%
Preussag LW 446,3 100%
Schering 165,5 t 100%
Siemens AG 88,7 t 100%
Thyssen AG 390,0 t 100%
Veba AG 93,5 t 100%
Viag AG 754,0 í 100%
Volkswagen AG 1065,0 t 100%
TOKYO
Nikkei 225 Index 18352,1 t 100%
AsahiGlass 1110,0 t 100%
Tky-Mitsub. bank 1970,0 t 100%
Canon 2750,0 í 100%
Dai-lchi Kangyo 1350,0 t 100%
Hitachi 1130,0 t 100%
Japan Airlines 473,0 t 100%
Matsushita E IND 1970,0 f 100%
Mitsubishi HVY 810,0 t 100%
Mitsui 922,0 t 100%
Nec 1500,0 t 100%
Nikon 1770,0 t 100%
Pioneer Elect 2140,0 t 100%
Sanyo Elec 452,0 t 100%
Sharp 1520,0 t 100%
Sony 8850,0 t 100%
Sumitomo Bank 1460,0 t 100%
Toyota Motor 3350,0 t 100%
KAUPMANNAHÖFN
Bourse Index 153,5 t 100%
Novo Nordisk 657,0 t 100%
Finans Gefion 140,0 f 100%
Den Danske Bank.... 545,0 t 100%
Sophus Berend B .... 800,0 t 100%
ISS Int.Serv.Syst 200,2 t 100%
Danisco 386,0 t 100%
Unidanmark 329,2 t 100%
DS Svendborg 280000,0 1 100%
Carlsberg A 389,0 t 100%
DS 1912 B 199000,0 t 100%
Jyske Bank 510,0 t 100%
OSLÓ
OsloTotal Index 1075,1 t 100%
Norsk Hydro 332,0 t 100%
Bergesen B 143,5 t 100%
Hafslund B 41,5 t 100%
Kvaerner A 351,0 t 100%
Saga Petroleum B.... 106,5 t 100%
OrklaB 537,5 t 100%
Elkem 129,0 t 100%
STOKKHÓLMUR
Stokkholm Index 2651,4 t 100%
Astra AB 342,5 t 100%
Electrolux 96,0 t 100%
EricsonTelefon 72,0 t 100%
ABBABA 860,0 f 100%
Sandvik A 28,4 t 100%
Volvo A 25 SEK 47,0 t 100%
Svensk Handelsb .... 55,5 ! 100%
Stora Kopparberg.... 101,0 t 100%
Verð allra markaða er I dollurum. VERÐ: Verð
hluts klukkan 16.00 í gær. HREYFING: Verð-
breyting frá deginum áður.
Heimild: DowJones
AÐSEIMDAR GREINAR
ATHYGLI vekur að
tilboð í verklegar
framkvæmdir eru
stundum miklu lægri
en kostnaðaráætlun,
jafnvel aðeins tveir
þriðju eða helmingur
af áætluninni.
Von er að spurt sé:
Hvað er að gerast. Er
maðkur í mysunni?
Starfsemi óháðra
verktaka við fram-
kvæmdir á íslandi á
sér ekki mjög langa
sögu. Lengi vel leystu
opinberar stofnanir
verkefni sín af hendi
einkum með því að ráða vinnu-
flokka eða einstaka starfsmenn,
er unnu síðan sem launþegar hjá
viðkomandi stofnun.
Fyrir um þremur áratugum
hófst að einhveiju marki sú þróun,
sem enn stendur og hefur ekki
verið örari í annan tíma og felst í
því að leita samkeppnistilboða í
alls konar framkvæmdir og rekst-
ur. Miklar framfarir í tæknibúnaði
og verkþekkingu hafa orðið sam-
tímis þessari þróun og mega þær
jafnframt teljast forsenda hennar.
Tæknimenn hjá verktökum
allt er með felldu getur
sá verktaki, sem átti
lægsta tilboð í verk,
unnið verkið fyrir til-
boðsupphæðina og
jafnframt borið úr být-
um hagnað til þess að
reka fyrirtæki sitt.
Þótt þetta sé hinn
eðlilegi gangur mála,
væri rangt að loka
augunum fyrir því að
vissulega þekkist einn-
ig sú staða að kostnað-
ur verktaka reynist
hærri en tilboðsupp-
hæðin. Ýmsar ástæður
geta verið fyrir þessu
og verða þessar nefndar sem dæmi:
a) Röng áætlanagerð vegna
vanþekkingar eða mistaka.
b) Við sérstakar aðstæður kann
fyrirtæki að kjósa að gera tilboð
undir kostnaðarverði til þess að
treysta markaðsstöðu eða afla
reynslu.
c) Of lágt tilboð er gert til þess
að afla verkefna og lengja þannig
um takmarkaðan tima líf fyrirtæk-
is sem er þegar í taprekstri.
Það skal ítrekað að þetta á að
vera undantekning. Regian á að
vera sú að það sé eðlileg fylgni
Þörf þjóðfélagsins fyrir
tæknimenntað starfs-
fólk, segir Jónas
Frímannsson, fer
sívaxandi.
milli tilboðsupphæðar og raun-
kostnaðar verktakans.
Sljórna framkvæmdum
Tæknimenn vinna oft við stjórn-
un framkvæmda. Þar er um fjöl-
breytt starf að ræða sem felur í
sér tengsl við fjölda marga aðila
og krefst lipurðar og hæfni í mann-
legum samskiptum ekki síður en
fagþekkingar. Yfirstjórnandi þarf
að gera verksamninga við verk-
kaupa en einnig við hóp undirverk-
taka sem annast sérhæfða verk-
þætti.
Á verksviði stjórnandans er
einnig að gera verkáætlanir og
annast eftirlit með_ framvindu sem
og lokaúttekt. Ákvarðanir um
tæknilausnir, val aðferða og bún-
aðar, koma í hans hlut. Ennfremur
ráðning starfsmanna og samning-
ar við þá um kaup og kjör.
Margs konar „pappírsvinna“
fylgir jafnan starfi stjómandans
og fer vaxandi eftir því sem þjóðfé- í
lagsgerðin verður fjölþættari.
Hvert stefnir ^
Tæknimenn með góða menntun
og starfsþjálfun, innlenda sem er-
lenda, gegna lykilhlutverki við
uppbyggingu verktakastarfsemi
og sókn til hagkvæmari vinnu-
bragða. Batnandi laun og lífskjör
þjóðfélagsþegnanna, sem þykja
svo eftirsóknarverð, verða naum-
ast að veruleika nema sem afleið-
ing vaxandi verktækni.
Þörf þjóðfélagsins fyrir tækni- *
menntað starfsfólk fer vaxandi og |
þess vegna er það áhyggjuefni að
fjöldi tæknimanna sem útskrifast
á ári hveiju hefur að heita má stað-
ið í stað sl. tvo tugi ára. Á sama f
tíma hefur íjöldi nemenda marg- |
faldast í ýmsum öðrum námsgrein- I
um á háskólastigi.
Það þarf að búa þannig í haginn
að eftirsóknarvert þyki að stunda
kennslu og nám í tæknigreinum,
því að brýn þörf er aukinnar að-
sóknar að verkfræði- og tækni-
fræðinámi á allra næstu árum, ef
íslenskt þjóðfélag á að geta haldið
í horfinu og fylgst með öðrum í
sókn til betri lífskjara.
Höfundur er verkfræðingur er í
starfar bjá verktakafyrirtæki.
Er maðkur í mysunni?
Jónas Frímannsson
Starfsstéttir verkfræðinga og
tæknifræðinga hafa að mestu orð-
ið til á því tímabili sem að framan
greinir. Flestir tæknimenn vinna
við ráðgjafarstörf og stjómsýslu,
en þeir hafa í seinni tíð einnig
haslað sér völl við ýmsan rekstur,
þar á meðal í verktakastarfsemi.
Til skamms tíma voru stopul
verkefni og óstöðugt fjármálakerfi
þjóðarbúsins Þrándur í Götu iðn-
þróunar og hagræðingar. Á þessu
hefur orðið breyting til bóta og
skiptir stöðugleiki gengis og verð-
lags þar meginmáli, en einnig má
nefna afnám aðflutningstolla af
vinnuvélum og byggingarefni.
Hagnýting alþjóðlegra staðla,
greið miðlun upplýsinga og vax-
andi samskipti á mörgum sviðum
eiga hér einnig hlut að máli.
Hvað gera tæknimennirnir
Verktakar leysa margs konar
verkefni, sem ekki verður lýst í
stuttu máli. Störf tæknimanna eru
því ijölbreytt og verða hér aðeins
tekin tvö dæmi:
Reikna tilboð
Þegar verk eru boðin út kemur
það í hlut verktaka að gera tilboð
skv. skilgreiningum í útboðsgögn-
um. Tilboðsgerðin felst í því að
velja verkaðferðir og búnað til
verksins og verðleggja síðan þessa
þætti. Val verkaðferðar ræður
jafnan kostnaði við mannvirkja-
gerð. Oft geta verið margar leiðir
færar að sama marki og kostnaður
jafn mismunandi og leiðirnar eru
margar.
Hér er að finna svarið við þeirri
spurningu sem sett er fram í yfir-
skrift þessarar greinar: Það þarf
ekki að vera „maðkur í mysunni“
þótt lægsta tilboð víki verulega frá
kostnaðaráætlun verkkaupa. Ef
ISLENSKT MAL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
897. þáttur
UMSJÓNARMAÐUR á að
þakka eftirfarandi bréf Kristni
V. Jóhannssyni í Neskaupstað:
„Sæll og blessaður Gísli.
Ég skrifa (reyndar vélrita)
þessar línur með tvennt í huga.
I fyrsta lagi til að þakka þér
kærlega fyrir hina prýðisgóðu
þætti þína um íslenskt mál, sem
ég hef lesið með áhuga og
ánægju allt frá því að ég álpað-
ist til að fara að kaupa Mogg-
ann. Og í öðru lagi til að biðja
þig að fjalla um ákveðinn þátt
málsins við tækifæri. Hér á ég
við að mínu mati vaxandi til-
hneigingu manna til að rugla
saman tveimur orðatiltækjum og
jafnvel málsháttum. Ennfremur
finnst mér fara í vöxt, að menn
noti orð, sem þeir ekki þekkja
og fara því rangt með. Ég læt
stundum liggja blað og penna á
eldhúsborðinu og hripa niður það
sem sker í eyru og hér koma
örfá nýleg dæmi:
1. Gísli fréttaritari Sigurgeirs-
son hafði í fyrra eftir rann-
sóknarlögreglumanni vegna
slyss (27.4. ’96) „að rétt væri
að spyrna við fótum áður en
barnið dytti ofan í“.
2. Skólameistari Verkmennta-
skóla Austurlands sagði sl.
vor um fyrirrennara sinn, „að
hann hefði lagt dijúga hönd
á plóg þegar verið var að ýta
málinu úr vör“.
3. í október sl. sagði fréttamað-
ur (Broddi?), „að líklegt væri
að Bárðarbunga færi að kræla
á sér“.
4. Iþróttafréttamaðurinn Adolf
Ingi sagði 13.1. ’97: „Og þar
er sama sagan aftur upp á
teningnum."
5. Ari Skúlason, hagfræðingur
ASÍ, sagði 24.3. ’97: „Verðlag
virðist vera að fara úr skefj-
um.“
6. Sama kvöld sagði heilbrigðis-
fulltrúi Suðurlands við frétta-
mann - og var þá að lýsa
ástandinu á söndunum um-
hverfis Víkartind: „Þetta er
eins og hráviðri út um allt.““
Fyrst sný ég mér að fyrra
málefni bréfsins. Frá þvi er að
segja að mál okkar, einkum
skáldamálið, er ríkt af líkingum.
Að líkingum get.r verið mikil
prýði, ef rétt og hóflega er með
þær farið. Að sama skapi getur
rangt og afbakað líkingamál ver-
ið ærið átakanlegt. Þegar skáld
héldu ekki líkingunni út yfir heil-
an vísuhluta (heila vísu), kallaði
Snorri Sturluson það nykrað.
Ég skil það svo, að það sé líkinga-
mál (= afbakað), því að nykur-
inn var vanskapaður, með öfuga
hófana. Hitt er aftur kallað
samruni (contaminatio), þegar
tveimur orðum eða tveimur orð-
tökum er blandað saman. Dæmi
um hið fyrra: grandalaus og
andvaralaus verður „grand-
varalaus", hið síðara: að „hafa
vaðið fyrir neðan nefið“. Þar
hafa runnið saman orðtökin að
hafa munninn fyrir neðan nef-
ið = vera orðhvatur (og orðljót-
ur) og svo að hafa vaðið fyrir
neðan sig = fara með gát. Þeir
sem fara yfir vatnsfall, skilja
slíkt mætavel.
Engum er vorkunn að rugla
saman orðtökum. Ég ætla rétt
aðeins að minna á tvær afbragðs-
góðar bækur um þetta efni: Is-
lenzk orðtök eftir Halldór Hall-
dórsson og Merg málsins eftir
Jón G. Friðjónsson.
Þá skulum við líta á hin tölu-
settu efnisatriði:
1. Það þykir góð varúðarregla
að byrgja brunninn, áður en
barnið getur dottið ofan i.
2. Menn leggja gjörva hönd á,
t.d. plóginn, og naumast telst
það fallegt líkingamál „að ýta
máli úr vör“. Nema vör sé
þarna hugsað sem líkams-
hluti, en ekki lendingarstaður
báts.
3. Þarna vantar bara sögnina
að láta með orðasambandinu
að kræla á sér, sjá Orðastað
Jóns Hilmars.
4. Saga er ekki „uppi á teningi".
5. Ég hyllist til að veija mál Ara
Skúlasonar. Skefjar getur
þýtt takmarkanir, aðhald.
6. „Hráviðri" er vitleysa. Hrá-
viði merkir hins vegar nýfellt
tré eða blautur rekaviður. Sjá
Merg málsins.
★
Ég ætlaði einmitt að fara að
skrifa um hversu það angrar
mig, þegar menn nota orð sem
þeir ekki vita fyrir víst hvað
merkja. Og þá er rétta aðferðin
að fletta upp í orðabókum. Til
þess eru þær. Verst er, þegar
menn slá um sig með orðum sem
enginn veit hvað merkja. Dæmi
er ögurstund. Nú hafa menn
þröngvað inn í þetta fornyrði
merkingunni „úrslitastund" og
það í heimildarleysi. Bið ég menn
að geyma þetta orð, þangað til
þeir hafa lesið Völundarkviðu í
Sæmundar-Eddu. En kærar
þakkir fær Kristinn V. Jóhanns-
son.
Urð og gijót
upp í mót,
ekkert nema urð og gijót,
kvað Árnesingurinn Tómas Guð-
mundsson. Ætli honum fyndist
nokkuð skrýtið, þó að seint gangi
að „finna urðunarstað“ á Háfs-
fjöru. Umsjónarmaður heldur að
þar sé sandur fremur en urð. Svo
bagalegt urðunaræði hefur runn-
ið á íslendinga, að þeim virðist
hafa gleymst sögnin að grafa.
Ég þykist vita hvað mín bíður.
★
Salómon sunnan kvað:
Hún Marsibil sáluga mön
að Magnúsar hjúfraðist grön,
ekki af hans döngun
né af innvortis löngun.
En hún var ekki vildara vön.
Auk þess þykir umsjónar-
manni betra að segja að menn
hafi brugðist vel við (einhveiju)
heldur en „á jákvæðan hátt“.
Góðs máls þurfum við að gæta
sem sjáaldurs augna okkar, ekki
„sjáaldur".
Ath. í síðasta þætti urðu, sem
sjaldan skeður, nokkrar villur.
Lakast var að Vilhjálmur (viður-
lag) var sagður „lítill“ merkis-
maður, en átti að vera mikill.