Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
MESSUR Á MORGUIM
Sjómaður
ferst
ÉG ER sonur sjómanns sem lifði
af Halaveðrið á togaranum Ara
gamla og sigldi síðan á skipum
Eimskips í 30 ár, þar
með talin öll stríðsárin,
og átti þá fyrir níu
börnum að sjá. Mig
rekur því minni til
þeirrar vitneskju að
hefði faðir okkar farist
bar móður minni í dán-
arbætur sex mánaða
laun hans. Það var allt
og sumt. En þá var
ísland fátækt, í dag
er það sagt ríkt. Og
þá les ég mér til undr-
unar í blöðunum að
ekkja bátsmannsins á
Ægi eigi rétt á þriggja
mánaða launum bónda
Jóhannes Helgi
síns, manns sem ferst við björgun-
arstarf í broddi lífsins.
í gamla daga, þegar ísland var
enn fátækt og fjölskyldur misstu
Það eru ekki fjármun-
irnir einir sem skipta
máli, segir Jóhannes
Helgi, heldur það
smyrsl, sem hugurinn
að baki framlögunum
er þeim er eiga um sárt
að binda.
fyrirvinnu sína, sýndu íslendingar
dæmafáa drenglund sem hlýtur að
ylja hveijum sæmilegum manni um
hjartaræturnar. Móðir mín og Þor-
bergur, faðir Guðrúnar Katrínar,
voru systkinabörn, og enn þann
dag í dag lifir raunar þessi ein-
dæma þróttmikli og fríði sjómaður
í barnsminni mínu, frá
heimsóknum hans til
foreldra minna. Hann
fórst á stríðsárunum,
maður á besta aldri,
og þá brá svo við að
félagar hans úr Skip-
stjóra- og stýrimanna-
félaginu knúðu dyra á
heimili ekkjunnar og
afhentu henni afsalið
fyrir húsinu.
Falleg saga, íslensk
saga.
Og alla tíð síðan og
löngu fyrir þann tíma
hefur samkennd af
þessu tagi verið falleg-
drátturinn í fari íslendinga,
asti
og hún lét heldur ekki á sér standa
gagnvart ekkju bátsmannsins og
barna þeirra uns svo óhönduglega
tókst til að söfnunin var tortryggð,
sem þó hefur vafalaust verið óvilja-
verk. í tilvikum sem þessum eru
það ekki fjármunirnir einir sem
skipta máli, þótt vægi þeirra sé
dijúgt, heldur það smyrsl, sem
hugurinn að baki framlögunum er
þeim sem eiga um svo ólýsanlega
sárt að binda.
Ég er ókunnur Ijölskyldu báts-
mannsins, en mér renna svona
harmleikir ætíð mjög til rifja af
því að ég er ekki aðeins sjómanns-
sonur, heldur hef ég sjálfur verið
til sjós og orðið vitni að því að
félaga minn tók út í brotsjó og
náðist ekki. Það er þess vegna sem
ég í andvöku hripa þessar fátæk-
legu línur.
Höfundur cr rithöfundur.
ÞAK-0G
VEGGKLÆÐNINGAR M : w
Hún valíli skartgripi frá SilfurbúÖinni
í SVAL-BOkGA EHF. HÖFÐABAKKA 9. 112 REYKJAVÍK SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751
<v9)SILFURBÚÐIN Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066 - Þar fœröu gjöfina -
WICANDERS
GUMMIKORK
í metravís
WICANDERS
• Besta undirlagið fyrir trégólf
og linoleum er hljóðdrepandi,
eykur teygjanleika gólfsins.
• Stenst hjólastólaprófanir.
• Fyrir þreytta fætur.
GUMMIKORK róar gólfin niður!
PP
&co
í rúllum - þykktir 2.00 og 3.2 mm.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SIMI553 8640 568 6100
Guðspjall dagsins:
Ég mun sjá yður aftur.
(J6h. 16.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Foreldrar hvattir til þátt-
töku með börnunum. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son. Aðalsafnaðarfundur Bú-
staðasóknar kl. 15.15. Kaffiveit-
ingar í boði sóknarnefndar.
DOMKIRKJAN: Prests- pg
djáknavígsla kl. 10.30. Biskup ís-
lands herra Ólafur Skúlason vígir
Skúla Sigurð Ólafsson sem að-
stoðarprest í ísafjarðaprestakalli,
Jónínu Elísabetu Þorsteinsdóttur
sem fræðslufulltrúa kirkjunnar
með aðsetri á Akureyri og Svölu
Sigríði Thomsen til djáknastarfa
í Langholtsprestakalli. Vígsluvott-
ar: sr. Örn Bárður Jónsson, sem
lýsir vígslu, sr. Baldur Vilhelms-
son, prófastur, sr. Jón Helgi Þór-
arinsson, sr. Magnús Erlingsson
og Ragnheiður Sverrisdóttir,
djákni. Sr. Hjalti Guðmundsson
annast altarisþjónustu ásamt
biskupi. Dómkórinn syngur. Org-
anleikari Marteinn H. Friðriksson.
Barnasamkoma kl. 13 í kirkjunni.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10.15. Organisti
Kjartan Ólafsson. Sr. Gylfi Jóns-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Söngur, sögur,
kennsla. Leiðbeinendur Eirný
Ásgeirsdóttir, Sonja Berg og Þur-
íður Guðnadóttir. Kristniboðið
kynnt. Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Sr. Kjartan Jónsson
kristniboði prédikar. Sr. Halldór
S. Gröndal þjónarfyriraltari. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Tekið
á móti gjöfum til kristniboðsins
eftir messu.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnasamkoma kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir. Messa kl. 14. Org-
anisti Pavel Manasek. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Helgistund
kl. 11. Haukur Ingi Jónasson fjall-
ar um efnið: Er unga kynslóðin
sjúk? Ágústa Jónsdóttir og fleiri
leiða safnaðarsöng. Fermingar-
börn hvött til að mæta. Barna-
starf kl. 13 í umsjá Lenu Rós
Matthíasdóttur.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Drengjakór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Friðriks S.
Barnaguðsþjónusta
kl. 11.15.
Skráning í vorferð barnanna.
Messa kl. 14.
Fermd verður fris Erla
Thorarensen, Kjarrhólma 10.
Organisti Pavel Smid.
Sr. Bryndís Malla Elídóttir
þjónar í forföllum
safnaðarprests.
Allir velkomnir.
Kristinssonar. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Barnastarf á sama
tíma. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Guðsþjónusta kl. 11. Athugið
breyttan tíma. Prestursr. Halldór
Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Organisti
Viera Manasek. Barnastarf á
sama tíma. Framhalds-aðalsafn-
aðarfundur eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11. Organleikari
Kristín G. Jónsdóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
usta á sama tíma. Dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson messar. Sam-
koma Ungs fólks með hlutverk
kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Barnaguðsþjón-
usta á sama tíma.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11 í umsjón Ragnar
Schram. 5 ára börn í Hólabrekku-
söfnuði sérstaklega boðin til
guðsþónustunnar. Prestur sr.
Guðmundur Karl Ágústsson.
Organisti Lenka Mátéová. Barna-
guðsþjónusta á sama tíma.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa
Hjörtur og Rúna. Barnakór Engja-
skóla syngur. Fermingarmessa
kl. 13.30. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Organisti Hörður Braga-
son. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Fermingar-
messa kl. 13.30. Organisti Oddný
J. Þorsteinsdóttir. Ath. barna-
starfi vetrarins lauk síðasta
sunnudag. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Skólakór
Kársnesskóla syngur undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur kórstjóra.
Einnig syngja börn úr barnastarfi
kirkjunnar. Organisti Örn Falkner.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Laugardag: Vor-
ferðalag barnastarfsins til Kefla-
víkur Farið frá kirkjunni kl. 11.
Sunnudag: Guðsþjónusta kl. 14.
Altarisganga. Sr. Valgeir Ástr-
áðsson prédikar. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Aðalfundur
Seljasóknar verður haldinn að
lokinni guðsþjónustu. Sóknar-
prestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.15. Skráning í
vorferð barnanna. Messa kl. 14.
Fermd verður íris Erla Thorarens-
en, Kjarrhólma 10, Kópavogi.
Organisti er Pavel Smid. Sr. Bryn-
dís Malla Elídóttir þjónar í forföll-
um safnaðarprests.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur kl. 10.30, kl. 14, kl. 20
(á ensku). Laugardaga og virka
daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87:
Messa sunnudag kl. 10 á þýsku.
Laugardag og virka daga messa
kl. 18.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30.
Messa virka daga og laugardaga
kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnar-
firði: Messa sunnudaga kl. 8.30.
Messa laugardaga og virka daga
kl. 8.
ÍSAFJÖRÐUR, Mjallargötu 9:
Messa sunnudag kl. 11. Bolung-
arvík: Messa kl. 17. Flateyri:
Messa laugardag kl. 18.30.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu
7: Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
HVITASUNNUKIRKJAN Fíladelf-
fa: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson. Al-
menn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Sheila Fitzgerald. Allir
hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Kristið samfélag,
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sam-
koma sunnudag kl. 16.30. Jón Þór
Eyjólfsson prédikar. Barnastarf á
meðan á samkomu stendur. Allir
velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag
kl. 20. Altarisganga öll sunnu-
dagskvöld. Prestur sr. Guðmund-
ur Örn Ragnarsson. ,
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8.
Almenn samkoma kl. 11. Ræðu-
maður Ásmundur Magnússon.
Fyrirbænaþjónusta/bænaklútar.
Allir hjartanlega velkomnir.
FÆREYSKA Sjómannaheimilið:
Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Samkoma fyrir
hermenn og samherja kl. 17.
Bæn kl. 19.30. Hjálpræðissam-
koma kl. 20. Elsabet Daníelsdótt-
ir talar.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Jón Þorsteinsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Nemendur úrforskóladeild
Tónlistarskólans í Garðabæ taka
þátt í athöfninni. Kór Vídalíns-
kirkju syngur. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Sunnudaga-
skóli á sama tíma í safnaðarheim-
ilinu. Sunnudagaskóli í Hofstaða-
skóla kl. 13 sem er síðasta skipt-
ið í vetur. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Aðalsafnaðarfundur
að lokinni guðsþjónustu. Sigurð-
ur Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Vor-
ferð allra sunnudagaskóla kirkj-
unnar til Grindavíkur. Farið verð-
ur með rútum frá Setbergsskóla
og Hvaleyrarskóla kl. 10. Heim-
koma kl. 14. Allir velkomnir. Börn
yngri en 6 ára komi í fylgd með
fullorðnum. Kl. 14 Grogorsk
messa. Ræðuefni: „Heimska kris-
tinnar trúar". Prestur sr. Þórhall-
ur Heimisson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón: Edda
og Aðalheiður. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Miyako Þórðarson, prest-
ur heyrnarlausra, þjónar ásamt
safnaðarpresti og flytur messuna
á táknmáli heyrnarlausra. Organ-
isti Þóra Guðmundsdóttir. Kaffi í
safnaðarheimili að lokinni guðs-
þjónustu. Einar Eyjólfsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Börn sem verða
5 ára á árinu koma til kirkju ásamt
foreldrum sínum. Veitingar í
Kirkjulundi eftir samverustundina
í kirkjunni. Aðalsafnaðarfundur
Keflavíkursafnaðar verður kl. 13
í Kirkjulundi.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Hátíðar-
messa kl. 14. Sr. Bragi Friðriks-
son, fráfarandi prófastur, prédik-
ar og þjónar fyrir altari ásamt
sóknarpresti. Kór og barnakór
Grindavíkurkirkju syngja. Sóknar-
nefndin býður kaffiveitingar í
safnaðarheimilinu að messu lok-
inni. Söfnuðurinn er hvattur til að
fjölmenna. Kl. 11 koma börn og
foreldrar úr sunnudagaskólanum
í Hafnarfjarðarsókn í heimsókn í
kirkjuna. Sunnudagaskólabörnin
sem hafa mætt í vetur eru hvött
til að mæta ásamt foreldrum sín-
um og taka á móti gestunum.
Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Helgistund í Garðvangi kl.
15.30. Önundur Björnsson.
SELFOSSKIRKJA: Fermingar-
messur kl. 10.30 og kl. 14. Sókn-
arprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sóknar-
prestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Fermingarguðsþjónustur kl.
11 og kl. 14.
HRÍSEYJARKIRKJA: Fermingar-
messa sunnudag kl. 10.30. Sókn-
arprestur.
HALLGRÍMSKIRKJA í Saurbæ:
Fermingarmessa kl. 11. Prestur
sr. Kristinn Jens Sigurþórsson.
AKRANESKIRKJA: Stutt helgi-
stund í dag, laugardag, í kirkjunni
kl. 11. Föndur á eftir í safnaðar-
heimilinu. TTT samvera í safnað-
arheimilinu kl. 13. Björn Jónsson.