Morgunblaðið - 19.04.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1997 37
EYJOLFUR
ÁGÚSTSSON
Brosin þín mig að betri manni gjörðu.
Bijóst þitt mér enn þá hvíld og gleði veldur.
Þú varst mitt blóm, mín borg, mín harpa
og eldur.
(Davíð Stefánsson.)
Þín barnabarnabörn ætíð,
Arna og Baldur.
Elsku amma, sem varst mér svo
góð. Þú ert loks búin að fá hvíldina
og komin til afa Þórhalls og pabba
Steinars. Við áttum góðar stundir
með þér síðastliðið sumar á ættar-
móti á Ánastöðum. Þú varst svo
ánægð með að svo margir gætu
komið að hitta þig. Þetta var yndis-
leg helgi sem leið svo hratt.
Ég minnist þess þegar ég var
lítil telpa í sveit hjá þér, að þú
kenndir mér að pijóna, sauma og
hekla. Þú kenndir mér svo margt.
Þú varst mér svo góð, þú hugsaðir
svo vel um mig þegar ég kom til
þín veik. Þér fannst svo gaman að
spila við okkur og það fannst alltaf
tími til að spila við okkur, þegar
við komum til þín.
Það er sárt að kveðja en við vit-
um að þér líður vel á þeim stað sem
þú ert á núna.
Guð geymi þig, elsku amma.
Ólöf Ingibjörg
Steinarsdóttir.
í dag, laugardaginn 19. apríl,
verður amma mín, Ólöf Ingibjörg
Ólafsdóttir, jarðsungin. Hún verður
lögð til hinstu hvíldar í Kirkju-
hvammskirkjugarði, við hliðina á
afa, sem hún giftist á nýársdag
árið 1924, í litlu timburkirkjunni
sem í garðinum stendur. Þennan
nýársdag kom hún ríðandi til kirkj-
unnar, í söðli, og fór í skautbúning-
inn sinn áður en athöfnin byrjaði,
hrædd um að það sæist að hún var
orðin ófrísk og að um yrði talað í
sveitinni. Ég spurði hana aldrei
hvernig veðrið hefði verið þennan
dag, gleymdi því eins og svo mörgu
öðru sem ég hefði átt að spyija
hana að, en ég vona að það hafi
verið fallegur dagur. Hann var upp-
haf á löngu og farsælu hjónabandi
hennar og Þórhalls afa, og búskap
þeirra á Anastöðum, þar sem þau
eignuðust átta börn, sjö syni og
eina dóttur. Amma og afi voru um
margt ólík, hann þurfti snemma að
fara að vinna, að bjarga sér og
beijast fyrir lífinu, var jafnlyndur
og rólegur, en hún hafði verið borin
á höndum allra í Ánastaðafjölskyld-
unni, var örugg með sig og ákveð-
in. Þó að amma og afi væru kannski
ekki alltaf sammála um allt, voru
þau alltaf ástfangin hvort af öðru,
og máttu ekki hvort af öðru sjá.
Amma fæddist þremur árum eft-
ir að 20. öldin byijaði, þann 21.
júlí árið 1903, og hún yfirgefur
okkur þremur árum áður en nýja
öldin byijar. Næstum til síðasta
dags fylgdist hún með öllu, og gat
lengst af hjálpað sér sjálf, og það
var henni mikils virði, hún var allt-
af stolt og vildi ekki vera upp á
aðra komin. Hún bjó alla ævi sína
á sama stað, á Ánastöðum á Vatns-
nesi, þar sem hún fæddist, nema
síðustu árin sem hún eyddi í Nes-
túni, íbúðum aldraðra á Hvamms-
tanga, fyrst með afa og svo ein
eftir að hann dó, árið 1984. Síðustu
mánuðina var hún svo á Sjúkrahús-
inu á Hvammstanga, og þar var ég
svo lánsöm að geta séð hana rétt
fyrir síðustu jól, og þá gátum við
talað saman og sagt hvor annarri
svo margt sem við áttum eftir
ósagt, og það er mér ómetanlegt.
Amma var það sem í dag myndi
vera kallað dóttir einstæðrar móð-
ur, því faðir hennar dó áður en hún
fæddist, og móðir hennar giftist
aldrei. Hún var alin upp í stórri fjöl-
skyldu, á Ánastöðum, hjá móður
sinni, ömmu og afa, frændum og
frænkum, og hlaut alltaf þá bestu
umhyggju og viðmót sem hægt er
að hugsa sér, og það hefur áreiðan-
lega mótað allt hennar líf. Hún fékk
ekki langa skólagöngu, það var
ekki til siðs þá að stúlkur færu
nema rétt í barnaskóla. Hún minnt-
ist oft á að hana hefði langað til
að læra meira, og veturinn sem hún
var við nám og störf á Akureyri
var henni efni í óteljandi frásögur.
Samt var hún menntuð, og vissi svo
margt sem hún gat miðlað öðrum.
Hún hafði ekki mikla ánægju af
húsmóðurstörfum, að elda mat og
taka til, en hún var einstök móðir,
einstök amma og langamma. Það
var sama hvar amma kom, ef lítil
börn voru á staðnum voru þau strax
skriðin upp í kjöltu hennar og kom-
in í hrókasamræður við hana. Og
hún hlýjaði þeim ekki aðeins með
viðmóti sínu, heldur pijónaði hún
óteljandi sokka og vettlinga á litla
hönd og lítinn fót, næstum fram á
síðasta dag.
Flestar bernskuminningar mínar
eru bundnar ömmu, og einhvern
veginn fínnst mér hún hafa kennt
mér allt sem máli skiptir. Ekki bara
að lesa og reikna, heldur líka að
gefa þúfutittlingsungum smjör á
strái, að þekkja jakobsfífil, eyrar-
rós, blesóttan hest og hrossagauk,
hvernig á að mjólka kú, að það eigi
að vera góður við börn og dýr, og
alla þá sem eru minni máttar. Mér
finnst ég hafa lært af ömmu að
skilja lífið sjálft, þekkja ísland og
íslenska náttúru, þó að aldrei setti
hún sig í spor þess sem allt vissi.
Hún bara sagði frá og sýndi, og
hafði ótakmarkaðan tíma, sagði
aldrei að hún hefði of mikið að
gera, heldur var alltaf tilbúin að
hlusta og skilja. Og það var gert
af ánægju einni, því henni þótti
sjálfri svo gaman að vera með börn-
um og ungu fólki, skildi þau og
gladdi á alveg einstakan hátt, allt
fram á síðasta dag. Ein af mínum
fyrstu bernskuminningum er tengd
ömmu, sem situr með mig vafða
inní sæng, við erum á ferðalagi, og
allt í kringum okkur er ókunnugt
fólk. Ég man ennþá öryggið sem
hún veitti mér, og það öryggi fylg-
ir mér enn á hinum ýmsu ferðalög-
um um heiminn. Stundum heyri ég
röddina hennar, sem ég þekki best
allra radda, hlýja og góða, kalla til
mín, sama hvar ég er stödd, og ég
veit að hún hugsar til mín eins og
ég hugsa til hennar.
í dag vil ég minnast þess sem
hún var mér og ég held öllum í fjöl-
skyldunni, einhver merkilegasta
kona sem ég hef kynnst. Við sökn-
um hennar öll svo mikið, getum
varla trúað að hún sé horfin, sé
ekki lengur í Nestúninu, tilbúin að
hita heitt súkkulaði og kaffi handa
gestum sem að garði ber.
í huga mínum er amma nátengd
bláum, öldóttum firði og grænni
lautu. Hún situr á bakkanum og
horfir út á sjóinn, eða í blóm-
skrýddri brekku og segir börnum
sem eru í kringum hana frá ferð-
inni sem hún fór á fimmta ári, árið
1908, að heimsækja ömmu sína og
afa í föðurætt í Önundarfirði, á
skipi og hesti, ferðamáti sem okkur
er framandi í dag. Ég man enn
þessa sögu, hesturinn sem afi henn-
ar, sem hún hafði aldrei séð áður,
reiðir hana á, hrasar og kjóllinn
hennar verður blautur og hún verð-
ur að fara í föt af frænda sínum
og skammast sín svo óskaplega
fyrir. Sagan lýsir ömmu vel, frá því
fyrsta var hún full af stolti og vildi
ekki láta stjórna sér eða gera eitt-
hvað sem henni var ekki að skapi.
Amma var tengsl okkar við gamla
tímann, en samt svo einkennilega
nálæg í nútíðinni, hún skildi allt,
við hana var hægt að tala um öll
heimsins vandamál og hún gat gef-
ið endalaus góð ráð. Amma var eins
og sólin sjálf, enda skein sólin oft-
ast daginn sem hún fæddist, 21.
júlí. Amma mín, í síðasta sinn vil
ég segja þér hversu þú varst ein-
stök kona, og hvað okkur þótti öll-
um vænt um þig. Að hugsa um þig
er að hugsa heim, og þessvegna vil
ég kveðja þig með vísu úr ljóði
Matthíasar Johannessen, „Fjöllin í
bijósti þér“.
Þú kemur heim, þín sól við sund og vík
er seiður dags og engri stjömu lík,
hún bræðir hrim og vekur vor sem er
svo vængblá kyrrð og þögn í bijósti mér.
Þakka þér fyrir, amma, allt sem
þú gafst mér.
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir.
•4- Eyjólfur Ágústsson, bóndi
' í Hvammi á Landi, var
fæddur í Hvammi 9. janúar
1918. Hann lést á Hellu 30.
mars síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Skarðskirkju í
Landsveit 14. apríl.
Hringaðir hálsar hljóðar taka dýfur
árvakur skarinn öldufallinn klýfur.
Andi Guðs friðar, yfir vötnum svífur.
(Jóhannes út Kötlum.)
Fyrir nærri ijórum áratugum
bauð Eyjólfur Ágústsson, góðbóndi
að Hvammi í Landsveit, okkur
nokkrum kunningjum sínum og
vinum að koma með sér inn í Veiði-
vötn. Þetta voru gleðitíðindi, því
aðeins einn úr hópnum hafði kom-
ið inn í fjalladýrðina og farið fjálg-
legum orðum um ferðalagið. Á
þessum árum var enn fáferðugt
um Landmannaleið og ekki algengt
að aðrir færu til „Vatna“, en
heimamenn, sem áttu sínar góðu
minningar um vötn, veiðiskap og
óbyggðakyrrðina. Á tilteknum síð-
sumarsmorgni vorum við mættir í
Hvammi. Töðuilmur úr troðfullri
hlöðu var eins og tilkynning um
að bóndinn væri ekki að hlaupa frá
einhveiju hálfkláruðu inn til fjalla.
Þeir sem ekki höfðu áður komið
að Hvammi reyndu að þar er
rausnargarður, hjartahlýja og
höfðinglega á borð borið. Á slíkum
heimilum líður börnum og búsmala
vel. Eftir rausnarlegan morgun-
verð hjá húsmóðurinni henni Guð-
rúnu Sigríði Kristinsdóttur, Dúnu
frá Skarði, var haldið úr hlaði. Það
fór svo sannarlega ekki á milli
mála að Eyjólfur bóndi eða Eyfi
eins og hann var oft nefndur af
kunningjunum var vel nestaður úr
kokkhúsinu í Hvammi. Sjálfur
hafði Eyjólfur tekið til margskonar
verkfæri og veiðigræjur eins og
þær gerast bestar. Fyrirhyggju-
samir fjallferðamenn vissu, að ekk-
ert varð sótt heim, hugsuðu fyrir
öllu. Eyjólfur virtist líka eiga allt
til alls. Bóndinn í Hvammi hafði
gaman af bílum eins og búsmalan-
um og bauð gestum sínum upp í
fallegt farartæki, en ætíð átti hann
bíla eins og þeir gerðust fullkomn-
astir á hveijum tíma. Hann kunni
líka manna best með þá að fara.
Eyjólfur ók fimlega um svört hraun
og sanda og sagði okkur frá fjöllum
og örnefnum og að þeim fróðleik
er enn búið.
Frágangur
afmælis-
ogminning-
argreina
Mikil áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í texta-
meðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Þá er enn fremur
unnt að senda greinarnar í
símbréfi (5691115) og í tölvu-
pósti (MBL@CENTRUM.IS).
Um hvern látinn einstakl-
ing birtist ein uppistöðugrein
af hæfilegri lengd, en aðrar
greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og
hæfilega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksenti-
metra í blaðinu). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þijú erindi. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Eyjólfur varð þegar á æskuárum
vel kunnugur á Landmannaafrétt,
því hann gerðist snemma fylgdar-
maður bæði einn og með tengda-
föður sínum, Kristni Guðnasyni,
bónda og hreppstjóra í Skarði
meðan enn var ferðast á hestum
og klukka landsins sló hægt og
rólega og tíminn ekki mældur í
mínútum og stressið ekki farið að
leika menn grátt. Fyrir nærri fjöru-
tíu árum var vegarslóðinn víða
ógreiðfær inn í öræfadýrðina.
Hekla huldi sig þoku þennan dag,
en Búrfell blasti við í norðri með
sínar hamrahlíðar. Enda þótt
Eyjólfur fræddi okkur um fjöll og
hraun, voru ferðapelanum gerð
skil, menn voru orðnir heitir og
háværir þegar komið var inn á
Tungná, en nú hafði hvesst og
komið kvöld. Tungná var þá enn
óbrúuð illur farartálmi, ófrýnileg,
jökulgrá með þungum straumi.
Skammt ofan við Bjallavað var
bátur Landmanna geymdur í kofa.
Einmitt þarna við þungan vatnanið
og úfna ána sé ég, að Eyjólfur í
Hvammi gat verið ákveðinn og
gallharður. Enginn fékk að snerta
ár, þótt þeir bæru sér í munn að
þeir hefðu verið á togurum í illvið-
rum og ölduróti, með landsþekkt-
um skipstjórum gamla skólans.
Nei, nei hér skyldi hann einn ráða.
Það er skemmst frá að segja, að
Eyjólfur feijaði okkur farsællega
yfír jökulvatnið beitti stefni upp í
strauminn og stakk við af kunn-
áttusemi og leikni. Ekki gleymist
fyrsta gistinóttin í Tjarnarkoti þeg-
ar hinn djúpi róandi fjallafriður var
öðru hveiju rofinn með bresthljóð-
um í jöklum eða kvaki frá him-
brima eða lómi. Það var líka
ógleymanleg stund, sem ég átti
með. Eyjólfi einum á Frostastaða-
hálsi á kyrru haustkvöldi. Vatnið
lognslétt, fjöllin skörtuðu litum,
jörðin sofandi og íjallafarinn hrif-
inn eins og ég. Enda þótt hann
hafi í áratugi verið bændaprýði var
hann öðrum þræði sannur sonur
hinna fijálsu óbyggða. Maður
hinna straumþungu vatna, fjalla
og hrauna. Mikill og góður ferða-
maður, sá mesti sem ég hefi
kynnst. Hann kunni allra manna
mest með byssur að fara. Lágfóta
mátti vara sig þegar bóndinn í
Hvammi var búinn að blindsigta
þó af löngu færi væri. Stundum
brá hann sér austur á land á haust-
dögum með vinum sínum og þar
tók hann þátt í að grisja ljónstygg-
ar hreindýrahjarðir á Brúaröræf-
um. En Eyjólfur kunni margt fleira
en að handleika veiðistengur og
gljáfægðar byssur. Hann var góður
smiður á tré og járn og búvélum
sínum hélt hann ávallt í fyrirmynd-
ar ásigkomulagi. Hann var hraust-
menni, úrræðagóður, verkséður og
hjálpsamur höfðingi með hjartað á
réttum stað. Að slíkum mönnum
hænast börn, þau finna alltaf hvað
að þeim snýr. Afi hans og nafni
var Eyjólfur Guðmundsson,
„landshöfðingi“ sem var forystu-
maður í Landsveit um áratugi.
Hann kom víða við í framfaramál-
um sveitar sinnar og héraðs. Sat
í sýslunefnd Rangárvallasýslu í
hálfa öld og var hreppsnefndarodd-
viti sama tímabil. Hann var lands-
þekktur fyrir störf sín við heftingu
sandfoks og landgræðslu. Hann
byggði stórt og myndarlegt íbúðar-
hús í Hvammi fyrir hundrað árum,
sem enn sómir sér með stóra sál.
Jafnlengi hefur þetta virðulega hús
verið höfðingjasetur. Landshöfð-
ingjann heimsóttu Björn Jónsson,
ritstjóri ísafoldar, Einar skáld
Benediktsson, Tryggvi Þórhallsson
forsætisráðherra og Jónas Jónsson
frá Hriflu, svo einhveijir af þeim
sem settu svip á bæinn á sínum
tíma séu til sögunnar nefndir.
Sama ættin hefur setið höfuðbólið
Hvamm frá því um 1850. Hjónin
Eyjólfur og Guðrún, Dúna, eins og
húsmóðirin er oftast nefnd, sátu
ættgarðinn saman með sæmd og
prýði í fimmtíu og fimm ár. Þessum
höfðingshjónum varð sex myndar-
legra barna auðið. Þau stóðu fast
saman á gleði- og sorgarstundum.
það var lífsstíll þeirra. Tómas Guð-
mundsson skáld segir í ljóði sínu:
„Og sorgin gleymir engurn." Á
einu misseri hafa sorgarský og
þungbær harmur lagst á Hvamms-
heimilið. Tveir synir hjónanna á
blómaskeiði kvöddu lífið, dugnað-
armenn eins og þeir áttu kyn til
og nú hefur húsbóndinn, mann-
dómsmaðurinn og ljúflingurinn
Eyjólfur Ágústsson i Hvammi lagt
upp_ í ferðina miklu yfir landamær-
in. í Mattheusarguðspjalli má lesa:
„Sælir eru hjartahreinir því þeir
munu Guð sjá.“ Ég er þakklátur
fyrir að hafa átt Eyjólf í Hvammi
að samstarfs- og samferðamanni.
Hann var einn af þeim góðu mönn-
um, sem svo lengi prýddu sýslu-
nefnd Rangárvallasýslu. Nærvera
hans var notaleg og ekta og það
ríkir heiðríkja yfir minningunni.
Við Margrét biðjum Guð að styrkja
húsmóðurina í Hvammi og ástvina-
hópinn, sem svo mikið hefur misst.
Pálmi Eyjólfsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
INGIBJARGAR SIGURGEIRSDÓTTUR,
Hlff,
ísafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Þorgrímur Guðnason,
Pálina Kristín, Eiríkur Þórðarson,
Sigurgeir Bjarni,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
KARLS JÓNATANSSONAR,
Nfpá.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 3. hæðar
Sjúkrahúss Húsavíkur fyrir góða umönnun.
Sólveig Bjarnadóttir
og aðrir aðstandendur.