Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 101. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Fylgst með glímu tölvu og manns Breytt fyrirkomulag í Bretlandi Seðlabankinn fær frelsi til að ákveða vexti London. Reuter. Mobutu til Gabon Kveðst ekki á leið í útlegð Kinshasa, Brussel. Reuter. MOBUTU Sese Seko, forseti Zaire heldur í dag til Gabon og hyggst snúa aftur að tveimur dögum liðn- um. Sögusagnir hafa verið á kreiki um að hann hyggist fljúga þaðan til Frakklands, en talsmaður hans vís- aði þeim fréttum á bug í gær. Skæruliðasveitir Laurents Kabila nálguðust í gær höfuðborg Zaire, Kinshasa, og hvöttu þeir stjórnar- herinn til að gefast upp til að koma í veg fyrir blóðug átök um borgina. Mobutu mun eiga fund með leið- togum nokkurra Afríkuríkja í Ga- bon en forseti landsins, Omar Bongu, er náinn vinur Mobutus. Sagði talsmaður Mobutus það rangt að túlka ferð forsetans til Gabon á þann hátt að hann væri á leið í út- legð, hann hefði ævinlega lagt áherslu á að hann myndi ekki flýja af hólmi. Telur Kabila ekki betri Emma Bonino, sem fer með mannréttindamál í framkvæmda- stjóm Evrópusambandsins, for- dæmdi í gær fjöldamorð á rúandisk- um flóttamönnum á yfirráðasvæði skæruliða í Austur-Zaire og kvaðst efast um að Kabila yrði betri leið- togi en Mobutu, kæmist hann til valda. Alþjóðlegar hjálparstofnanir hafa gagnrýnt Kabila harðlega fyrir meðferð manna hans á flóttafólki en þeir hafa m.a. gert starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna erfitt fyrir að hjálpa fólki, sem býr við skelfilegar aðstæður í flóttamannabúðum. Vildu „ná vagninum“ San Diego. Reuter. MAÐUR sem talið er að hafi ver- ið félagi í sértrúarsöfnuðinum „Himnahlið", svipti sig lífi í gær, mánuði eftir að 38 manns úr söfn- uðinum frömdu fjöldasjálfsmorð. Annar félagi úr söfnuðinum gerði misheppnaða tilraun til sjálfsvígs. CiVN-sjónvarpsstöðinni barst í gær myndband frá tvímenn- ingunum þar sem þeir segjast vona að þeir hafi „ekki misst af vagnin- um“. Söfnuðurinn trúði því að geimskip væri komið til að sækja meðlimina og að það væri á bak við halastjömu. SKÁKÁHUGAMENN fylgdust í gær spenntir með þriðju skák Garrí Kasparovs og skáktölvunn- ar Dimmblárrar í New York. Skákinni lauk með jafntefli eftir 47 leiki. Hún var tvísýn og spenn- Clinton í Mexíkó BILL Clinton Bandaríkjaforseti og Ernesto Zedillo, forseti Mexíkó, undirrituðu í gær sam- komulag, sem felur m.a. í sér hertar aðgerðir gegn eiturlyfja- smygli og peningaþvætti. Clinton er nú í þriggja daga opinberri heimsókn í Mexíkó og markaðist upphaf hennar af geysilega ströngu öryggiseftirliti, sem vakti takmarkaða hrifningu Mexíkóbúa. Clinton hefur þó verið vel tekið víðast hvar. Á myndinni ganga Clinton og Zedillo fram hjá hópi barna sem fögnuðu gestunum í Campo Marte-herstöðinni í Mexík- óborg. andi, Kasparov fórnaði peði og náði frumkvæði í miðtaflinu en lék ónákvæmt. Var samið um jafntefli eftir fjögurra tíma skák. ■ Skák/45 VEIÐAR norskra útgerðarmanna í Suður-íshafi hafa vakið umtal í Noregi, en þeir hafa gengið mjög á stofn svokallaðs patagónsks tann- fisks. Hafa þjóðir sem eiga lögsögu í Suður-íshafí gagnrýnt Norðmenn fyrir ásókn í stofna sem standa illa og veiðarnar hafa mælst misjafn- lega fyrir í Noregi, enda þykir sum- um þær minna á veiðar Islendinga í Smugunni. Norsku útgerðimar sem hlut eiga að máli, sigla undir hentifána Panama og Vanuatu. I samtali við NTB-fréttastofuna segir talsmaður útgerðar „Norse Pride“, eins togar- anna, að þar sem yfirvöld í Panama hafi ekki undirritað samninga um fiskveiðistjórnun í Suður-íshafi, að- hafist þeir ekkert ólöglegt. Norsk stjórnvöld hafa hins vegar undirrit- að samningana og verður málið tek- ið fyrir í næstu viku á fundi CCAMLR-nefndarinnar sem hefur umsjón með fiskveiðum á svæðinu. Margir norsku togaranna hafa veiðiheimildir á svæðinu, en nokkr- HIN nýja stjórn breska Verka- mannaflokksins tilkynnti í gær, flestum að óvörum, að breska seðla- bankanum yrði veitt fullt frelsi til að ákveða vexti. Fjármálaráðherrann, Gordon Brown, tilkynnti að vextir myndu hækka úr 6,0% í 6,25% til að koma í veg fyrir að verðbólga færi úr böndunum en sagði að fyrsta vaxtaákvörðun sín yrði jafnframt sú síðasta. „Við verðum að koma í veg fyrir að þær grunsemdir vakni að skammtíma flokkshagsmunir hafi áhrif á vaxtaprósentuna," sagði Brown. „Ég hef því ákveðið að láta breska seðlabankann bera ábyrgð á henni, og tekur þessi ákvörðun gildi nú þegar.“ Með þessu gekk Brown mun lengra en Verkamannaflokkur- inn hafði lýst yfir að yrði gert fyrir kosningar. Ekki nóg fyrir EMU Áhrif þessarar ákvörðunar urðu þau að verð á hlutabréfum og ríkis- skuldabréfum snarhækkaði og sterlingspundið hefur ekki staðið eins vel gagnvart þýska markinu í hálft fimmta ár. Hins vegar sögðu hagfræðingar að ákvörðun stjómar- innar væri ekki nóg til að mæta þeim kröfum sem gerðar væru um aðild að evrópska myntsamstarfinu, EMU. Veita yrði seðlabankanum al- ir veiða innan og utan lögsögu að- ildarríkja CCALMR án nokkurra heimilda. Saka stjórnvöld á Nýja- Sjálandi, í Suður-Afríku og Frakk- landi Norðmenn um að ganga allt of hart fram í veiðum á patagónskum tannfiski, sem er afar verðmætur. Togararnir höfðu þá gefist upp á að veiða hann á alþjóðlegu hafsvæði, vegna lítils afla. Rannsókn í Argentínu Þá hafa argentínsk yfirvöld hafið rannsókn á norsku útgerðarfyrir- tæki sem gerir út undir argentínsk- um fána og sagði sendiherra Argentínu í Noregi að þau hefðu miklar áhyggjur af veiðum norsku togaranna. Meðal þeirra sem eiga hlut í tog- urum á svæðinu er Viðskipta- og svæðaþróunarsjóður norska ríkisins og þingmaðurinn Magnus Stange- land. Þykir málið afar neyðarlegt fyrir norsk stjómvöld, sem hafa reynt að koma í veg fyrir veiðarnar frá því um áramót en ekki tekist. gert sjálfstæði en sú væri ekki raunin þar sem stjórnin héldi eftir rétti sínum til að skipa seðlabank- anum fyrir. Sagði Brown ólíklegt að Bretai' yi'ðu aðilar að EMU þegar árið 1999. Héðan í frá verða vextir ákveðn- ir á mánaðarlegum fundum nýrrar níu manna nefndar sem í eiga sæti fimm fulltrúar seðlabankans og fjórir utan hans. Ríkisstjórnin mun sem fyrr ákveða innan hvaða marka halda á verðbólgunni og verður seðlabankanum í sjálfsvald sett hvernig hann nær þeim. „Nokkur árangur4< á fundi Rússa og NATO Lúxeraborg, Moskvu. Reuter. „NOKKUR árangur" varð af fundi Jevgenís Prímakovs, ut- anríkisráðherra Rússlands, og Javiers Solanas, framkvæmda- stjóra Atlantshafsbandalagsins, NATO, um stækkun NATO í Lúxemborg í gær. Sagði í sam- eiginlegri yfirlýsingu Rússa og NATO að ganga ætti til frekari viðræðna eins fljótt og auðið yrði. Ekki var tilgreint nánar hvar eða hvenær slíkur fundur yrði og þá var heldur ekki tekið fram hvaða árangur hefði náðst. Fyrir fundinn höfðu Pól- verjar spáð því að Rússar kynnu að fallast á stækkun. I viðtali, sem birtist við Bor- ís Jeltsín Rússlandsforseta í Krasnaja Zvevda í dag, segist forsetinn munu gera allt sem í hans valdi standi til að draga úr þeirri hættu, sem sé samfara mögulegri stækkun NATO í austur. Segist hann munu leggja áherslu á nánari sam- skipti við fyrrum Sovétlýðveldi og Kína. 65% óánægð með Chirac París. Reuter. TVEIR þriðjuhlutar franskra kjós- enda eru ósáttir við frammistöðu Jacques Chiracs forseta. Þá telur 41% þjóðarinnar að hann eigi að segja af sér, vinni vinstrimenn sig- ur í komandi kosningum. Þetta kemur fram í skoðanakönn- unum sem birtar voru í gær. Þær benda hins vegar til þess að stjórn- in muni halda meirihluta sínum þrátt fyrir nokkurt fylgistap, nái 301 af 555 þingsætum en vinstri- flokkarnir fái 254 sæti. ■ Lýsir yfír stuðningi/18 Reuter „Smuguveiðar“ Norðmanna í Suður-Ishafí Ósló. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.