Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Rekstrarafkoma Borgeyjar hf. á árinu 1996 olli vonbrigðum Hagnaður nam um 24 milljónum króna BORGEY hf. á Höfn í Hornafirði skilaði alls liðlega 24 milljóna króna hagnaði á árinu 1996. Þar er með- talin hlutdeild félagsins í afkomu dótturfélaga, en á móti kemur af- skrift yfirverðs hlutabréfa í dóttur- félaginu Húnaröst. Hagnaður móðurfélagsins nam um 5 milljónum á síðasta ári en árið áður nam hagnaður þess tæp- lega 44 milljónum. Rekstrarafkoma móðurfélagsins á árinu 1996 olli vonbrigðum, að því er fram kemur í skýrslu stjómar sem lögð var fram á aðalfundi í gær. í skýrslunni er m.a. skýrt frá því að áætlað hafði verið að afla um 20 þúsund tonna af síld á árinu, en vegna rekstrarstöðvunar í fryst- ingu á vertíðinni og vegna þess að veiði í nót brást að mestu frá því seinnipartinn í nóvember, varð síld- araflinn mun minni. Þá kemur fram að saltfiskverkun jókst úr 2.171 tonni í 2.887 tonn eða um 948 tonn. Afkoma vinnslunnar var hins vegar afar slök fyrrihluta ársins og eru þær ástæður tilgreindar að hráefn- isverð hafi verið hátt miðað við gæði. Þá hafi vinnslan ekki ráðið við þetta mikla magn. Vinnubrögð- um við hráefniskaup og vinnslu var breytt seinnihluta ársins, þannig að mun betri árangur náðist á haust- vertíð. Þá gekk síldarfrysting hjá Borgey ekki sem skyldi bæði vegna seinkunar á uppbyggingu vinnslu- kerfis, mistaka við þrýstiprófun fry- stikerfis og lélegrar veiði í nóvem- ber og desember. Frysting loðnu gekk aftur á móti vonum framar, en afkoma kolavinnslu varð lakari en ráðgert var. Fjárfest fyrir 1 milljarð Starfsemi Borgeyjar á síðasta ári einkenndist af töluverðum fjárfest- ingum. Gengið var frá kaupum á Húnaröst ehf. sem gerir út Húna- röst SF 550. Kvótaeign félagsins er tæplega 2,5% af loðnukvótanum og rúmlega 4,55% af síldarkvótan- um auk rúmlega 100 þorskígildis- tonna. Húnaröst á aftur 40% hlut í fiskimjölsverksmiðjunni Óslandi þannig að eignarhlutur Borgeyjar í því félagi óx í 80% með kaupunum. Auk þess var ráðist í umfangs- mikla uppbyggingu í landvinnslu félagsins. Byggðar voru nýjar vinnslulínur fyrir kola og uppsjávar- fiska. Fjárfestingar móðurfélagsins námu samtals um 1 milljarði króna á árinu, en þar af voru 75 milljónir fjármagnaðar með hlutafjáraukn- ingu, 715 milljónir með langtíma- lánum og 212 milljónir út úr rekstri og með skammtímalánum. Borgey gerir út einn bát, Hvann- ey SF 51, sem gerður var út á snur- voð og humartroll. Þá hefur fyrir- tækið átt í samstarfi við heimabáta sem aflað hafa hráefnis tii salt- fisks-, kola- og humarvinnslu. Loks hefur félagið fengið hráefni frá Grindvíkingi GK 606 svo og Jónu Eðvalds SF 20. Heildartekjur samstæðunnar námu 2.345 milljónum á árinu 1996 en voru 2.047 milljónir árið á und- Boraey hl Úr reikningum 1996 Samstæða Móðurfélag Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1996 1995 Rekstrartekjur 2.345,3 1.853,4 1.359,1 Rekstrarqjöld 2.047.5 1.685.9 1.182.1 Hagnaður án fjármagnskostn. 114,5 70,0 98,0 Fjármagnsliðir (85,5) (64,8) (51,1) Hagnaður af reglul. starfsemi 29,0 5,2 46.9 Hagnaður ársins 24,2 24,2 43,6 Efnahagsreikningur Miiijónir króna 31/12 '96 31/12*96 31/12*95 j Eiymr: Veltufjármunir 558,2 495,4 372,8 Fastafjármunir 1.925,5 1.624,7 688,3 Eignir samtals 2.483,7 2.120,1 1.061,1 1 Skuldir oq eigiO fé: \ Skammtímaskuldir 734,7 591,9 222,1 Langtímaskuldir 1.174,0 961,2 340,2 Eigið fé 567,0 567,0 498,8 Skuldlr og eigið fé samtals 2.483,7 2.120,1 1.061,1 Kennitölur 1996 1996 1995 Veltufé frá rekstri Miiljónir króna 187,8 87,9 123,0 an, en nánari upplýsingar úr árs- reikningi Borgeyjar er að finna á meðfylgjandi yfirliti. Ávöxtun eigin fjár, þ.e. hagnaður samstæðunnar í hlutfalli við eigið fé í ársbyijun var 4,8%. Hlutafé var aukið um 60 milljónir á árinu eða úr 366 milljónum í 426 milljónir. Bréfin voru seld á genginu 1,25 eða fyrir 75 milljónir. Gengi hlutabréf- anna hækkaði mjög á árinu frá því félagið var skráð á Opna tilboðs- markaðnum. Það var 1,20 í febrúar en fór hæst í 3,85. í lok árs 1996 var gengið 3,50, en síðustu við- skipti urðu á genginu 3,0. Morgunblaðið/Jón Svavarsson FYRIRÆTLANIR utanríkisráðuneytisins um aukna þjónustu við atvinnulífið hlutu góðar viðtökur á aðalfundi Utflutningsráðs í gær. Útflutningsráð íslands og utanríkisþjónustan í samstarf Stóraukin þjónusta við útfíutningsfyrirtæki Landsbréf hf. um verðhækkanir hlutabréfa Verðið hærra en ínágranna- ríkjunum ÚTFLUTNINGSRÁÐ íslands og ut- anríkisþjónustan munu á næstu misserum stórauka þjónustu við ís- lensk fyrirtæki sem stunda eða hafa áhuga á að hefja útflutning eða starfsemi erlendis. Frá og með 1. september næstkomandi verður boð- in samræmd viðskiptaþjónusta í öll- um sendiráðum íslands erlendis en á næsta ári er stefnt að því að bjóða slíka þjónustu í fleiri löndum. Þetta kom fram í erindi Helga Ágústssonar, ráðuneytisstjóra ut- anríkisráðuneytisins, á aðalfundi Útflutningsráðs, sem haldinn var í gær. Að undanförnu hefur staðið yfir endurskipulagning á samstarfi utanríkisráðuneytisins og Útflutn- ingsráðs, sérstaklega með tilliti til reksturs viðskiptaskrifstofa og sendiráða erlendis. Helgi gerði grein fyrir þeirri vinnu og sagði að m.a. hefði verið stuðst við viðhorfskönnun sem gerð var á meðal forráðamanna fyrirtækja. Niðurstaðan var sú að mikil þörf væri fyrir formlega við- skiptaþjónustu á vegum íslenskra stjórnvalda sem næði til sem flestra staða í heiminum. í könnuninni sögð- ust rúmlega 70% aðspurðra stjórn- enda að þeir myndu notfæra sér slíka viðskiptaþjónustu ef þeir ættu þess kost og 96% sögðu að að sú þekking reynsla og aðstaða, sem utanríkis- þjónustan ræður yfir, ætti að vera aðgengileg íslenskum fyrirtækjum. Samræmd þjónusta Útflutningsráð starfrækir nú þijár viðskiptaskrifstofur erlendis, í New York, Berlín og Moskvu. Þá hafa sendiráðin erlendis um árabil þjónað íslenskum fyrirtækjum með óform- legum hætti. Helgi sagði það vera skoðun ráðu- neytisins að utanríkisþjónustan ætti að ýta undir útrás íslenskra fyrir- tækja sem víðast en það þýddi að veita þyrfti formlega viðskiptaþjón- ustu á fleiri stöðum en nú er gert. Ákveðið hefði verið að efla og sam- ræma viðskiptaþjónustuna erlendis og tengja viðskiptaskrifstofur Út- flutningsráðs við ráðuneytið. „Frá og með 1. september næstkomandi verður boðin þjónusta á tíu stöðum, þ.e.a.s. í Kína, Bandaríkjunum, Frakklandi, Rússlandi, Þýskalandi, Bretlandi, Belgíu, Danmörku, Sví- þjóð og Noregi. Næstu skref verða að útvíkka þjónustuna til umdæmislanda sendi- ráðanna. Þannig geri ég t.d. ráð fyrir að Suður-Evrópuríkin, Kanada og Suður-Ameríka bætist fljótlega við,“ sagði Helgi. ÞINGVÍSITALA hlutabréfa hefur haldið áfram að hækka að undan- förnu og í gær hafði vísitalan hækkað um 39,9% frá áramótum. Kemur þessi hækkun í framhaldi af nálægt 60% hækkun allt árið í fyrra. Þessi þróun er gerð að umtals- efni í nýjum Kauphallarvísi Lands- bréfa. Þar segir m.a. að eftir þess- ar miklu hækkanir sé svo komið að verð hlutabréfa á markaðinum í heild sé orðið mjög hátt, það sé orðið hærra (sem hlutfall af hagn- aði) en í nágrannaríkjum okkar. Það eitt þýði að þegar verið sé að íhuga hlutabréfakaup þurfi að fara varlega og vanda valið verulega því það sé mikill munur á góðu hlutafélagi og góðu hlutabréfi. Kaup á hlutabréfi í góðu félagi sé ekki endilega góð fjárfesting, það sé háð því verði sem greitt sé. „Það sem einna helst virðist valda undangengnum hækkunum er umframeftirspurn eftir hluta- bréfum, en þetta ástand hefur nú varað í nokkuð langan tíma. Viðlíka hækkanir geta varla haldið áfram með þeim hraða sem verið hefur undanfarnar vikur. Það hlýtur að ÞYZKI iðnrismn Thyssen AG krefst 500 milljóna marka aukagreiðslu frá Krupp vegna samruna stálum- svifa fyrirtækjanna fyrir skömmu að sögn fréttaritsins Der Spiegel. Spiegel sagði að Krupp neitaði að inna greiðsluna af hendi og samruninn kynni að fara út um þúfur. Talsmenn fyrirtækjanna sögðu koma til þess á einhveijum punkti að há ávöxtun skuldabréfa á Is- landi komi að einhveiju leyti í stað hlutabréfa hjá íslenskum fjárfest- um,“ segir ennfremur. Spá lækkun langlímavaxta Hvað vaxtaþróun áhrærir segir í Kauphallarvísi Landsbréfa að vextir hafi lækkað nokkuð á lang- tímamarkaði í kjölfar tilkynningar um áætlaða lánsfjárþörf ríkissjóðs á árinu. En nú bendi allt til þess að framboð ríkistryggðra bréfa í frumsölu verði mjög takmarkað það sem eftir lifi árs. Ávöxtunar- krafa húsbréfa hefur nú náð jafn- vægi í kringum 5,60% eftir að hafa verið á milli 5,80 og 5,90% um síð- ustu áramót. „Þrátt fyrir þá lækkun sem þeg- ar er orðin á langtímavöxtum eru forsendur fyrir frekari vaxtalækk- unum. Eins og áður sagði verður framboð ríkistryggðra bréfa tak- markað, en auk þess hafa mörg af stærri fyrirtækjum og sveitarfé- lögum leitað til útlanda eftir lánsfé vegna mikils vaxtamunar hérlendis og erlendis. að viðræðurnar um samrunann væru á réttri leið. Stáldeildir fyrir- tækjanna voru sameinaðar 1. apríl í Thyssen Krupp Stahl AG og á Krupp 40% hlutabréfa en Thyssen 60%. Samkvæmt samningnum á Thyssen Krupp að greiða Thyssen 300 milljónir marka á ári af hagn- aði sínum til ársloka 2001. Thyssen vill meira fé frá Krupp Hamborg. Reuter. h I í 6 i i I i L i I t I I I I 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.