Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
GREINAKURLARAR
ÞOR HF
Reykjavík - Akureyri
Reykjavík: Ármúla 11 - Sími 568-1500
Akureyrl: Lónsbakka - Sími 461-1070
STEINAR WAAGL
SKÓVERSLUN
GÚMMÍ-
SKÓR
MYNDBOND/KVIKMYNDIR/UTVARP-SJONVARP
Litu.r: SuartLir
Stærðir: 24—46
Verðfrá 1195,
5% staðgreiðsluafsláttur
Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Domus Medica/ Egilsgötu 3, sími 551 8519
Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 568 9212
Toppskórinn, Veltusundi, sími 552 1212
WMestfrost
Frystikistur Staðgr.verð
HF201 72x65x85 36.614,-
HF 271 92 x 65 x 85 40.757,-
HF396 126x65x85 47.336,-
HF 506 156x65 x85 55.256,-
Frystiskápar
FS205 125 cm 49.674,-
FS275 155 cm 59.451,-
FS 345 185 cm 70.555,-
Kæliskápar
KS 250 125 cm 46.968,-
KS315 155 cm 50.346,-
KS 385 185 cm 56.844,-
Kæli- og frystiskápar
KF285 155 cm 70.819,-
kælir 199 Itr frystir 80 Itr 2 pressur
KF 283 155 cm 61.776,-
kælir 199 ltr frystir 80 ltr 1 pressa
KF350 185 cm 82.451,-
kælir 200 ltr frystir 156 ltr 2 pressur
KF 355 185 cm 77.880,-
kælir 271 ltr frystir 100 ltr 2 pressur 1
(•jj • [ 1
Faxafeni 12. Sími 553 8000 <
ÁSTIN nær tökum á Michelle
Pfeiffer og George Clooney í
„One Fine Day“.
JAMES Woods sem kynþátta-
hatarinn Byron De La Beck-
with í „Ghosts of Mississippi"
SIGOURNEY Weaver og Winona Ryder
takast á í „Alien Resurrection".
Væntanlegar
kvikmyndir í
Regnboganum
MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Staðgengillinn Framandi þjóð
(The Substitute)'k>h (Alien Nation)
Lækjargata Keðjuverkun
(River Street)k k 'h (Chain Reaction)k k
Svarti sauðurinn Beint í mark
(Black Sheep)-k k (Dead Ahead)k k
Snert af hinu illa Jarðarförin
(Touch byEvil)-k'/i (The Funeral)k k
Undur og stórmerki Fræknar stúlkur
(Phenomenon)k k 'h í fjársjóðsleit
Einstirni (Gold Diggers: The Secret ofBear
(Lone Star)k kkk Mountain)k k'h
Skemmdarverk Sú fyrrverandi
(Sabotage)'k'h (TheEx)k
Einleikur Lokaráð
(Solo)k'h (Last Resort)'h
Aðferð Antoniu Varðeldasögur
(Antonia’s Line)k k k 'h (Campfíre Tales)k k
í morðhug Vörðurinn
(The Limbic Region)k (The Keeper)k
REGNBOGINN sýnir um þessar
mundir Basquiat, fyrstu kvikmynd
listmálarans Julians Schnabels.
Myndin er um feril listamannsins
Jeans Michels Basquiat. Jeffrey
Wright fer með aðalhlutverkið en
í öðrum hlutverkum eru Michael
Wincott, Benicio Del Toro, Claire
Forlani, David Bowie, Dennis
Hopper og Gary Oldman.
Nýjasta kvikmynd Jackie Chan
Supercop verður frumsýnd í Regn-
boganum 9. maí. Með honum í
myndinni er stærsta kvenhasar-
myndastjarna Asíu, Michelie Khan,
en bæði eru þekkt fyrir að fram-
kvæma öll áhættuatriði sjálf. Stanl-
ey Tong leikstýrir Supercop en
hann stýrði Chan í „Rumble in the
Bronx“.
Hryllingstryllir Wes Cravens
Scream er síðan væntanlegur í
Regnbogann 16. maí nk. Scre-
am segir frá raðmorðingja
sem heijar á friðsælan smábæ
í Bandaríkjunum og notar
þekkingu sína á hefðbundn-'
um þáttum hryllingsmynda
til þess að rugla fórn-
arlömb sín í ríminu. David
Arquette, Neve Campbell,
Courtney Cox, og Drew
Barrymore fara með aðalhlut-
verkin í myndinni.
Clint Eastwood leikstýrir og
leikur aðalhlutverkið í spennu-
myndinni Absolute Power sem
verður sýnd 30. maí. Utgangs-
punkturinn er á þessa leið: Inn-
brotsþjófurinn Luther Whitney
(Eastwood) lendir í vondum málum
þegar hann verður vitni að morði
sem tengist forseta Bandaríkjanna.
Með önnur hlutverk fara Gene
Hackman, Scott Glenn, Judy Davis
og Ed Harris.
Gamanmyndin The Pallbearer
segir frá Tom Thompson (David
Schwimmer) sem er nýútskrifaður
úr háskóla, býr enn heima hjá
mömmu og er bæði að leita sér að
vinnu og kærustu. Vandræði hans
byija þó fyrst þegar hann er beðinn
um að bera gamlan skólafélaga til
grafar. The Pallbearer er fyrsta
kvikmynd leikstjórans Matt Reeves
en hann skrifaði einnig handritið
ásamt Jason Katims. Myndin er
væntanleg 6. júní.
Mynd franska leikstjórans Lucs
Bessons Le cinquieme element
verður sýnd í Regnboganum 13.
júní. Myndin hefst árið 2300. Bruce
Willis leikur leigubílstjóra í New
York sem er valinn til þess að hjálpa
mannkyninu í baráttu gegn illu
afli sem sendir fullrúa sinn til jarð-
ar á 5000 ára fresti. Gary Oldman,
Jean Reno, Ian Holm og Luke Perry
fara með önnur hlutverk í mynd-
inni.
Sýningar á rómantísku gaman-
myndinni One Fine Day með Mich-
elle Pfeiffer og George Clooney
heíjast 4. júlí. Pfeiffer leikur hönn-
uð og einstæða móður sem óvænt
þarf að deila ábyrgðinni í barna-
uppeldi með blaðamanni og helgar-
pabba sem Clooney leikur. Michael
Hoffman leikstýrir parinu.
Framhaldsmyndin Speed 2:
Cruise Control verður sýnd í ág-
úst. Jan De Bont leikstýrir Söndru
Bullock aftur. í þetta skipti er hún,
ásamt kærastanum sínum (Jason
Patric) stödd um borð á skemmti-
ferðaskipi sem er rænt.
Volcano og Copland eru síðan
væntanlegar með haustinu. í Volc-
ano er Los Angeles ógnað af eld-
gosi og Tommy Lee Jones er í hlut-
verki bjargvættarins. í Copland
fáum við óvænta mynd af Sylvester
Stallone en hann þyngdi sig þó
nokkuð fyrir hlutverkið í myndinni.
Titanic, Alien Resurrection,
Looking for Richard, subUrbia,
Some Mother’s Son, og Ghosts
of Mississippi eru einnig væntan-
legar í Regnbogann en ekki er
búið að ákveða frumsýningardag.
James Cameron leikstýrir Titanic
sem Qallar að sjálfsögðu um sögu-
lega jómfrúrsiglingu skemmta-
ferðaskipsins. Leanardo DiCaprio,
Kate Winsiet, Bill Paxton og Kathy
Bates leika aðalahlutverkin.
Alien Resurrection er fjórða
myndin um Ripley (Sigourney
Weaver) og baráttu hennar við
geimverurnar ógurlegu. Jean Pi-
erre Jeunet leikstýrir myndinni en
hann stýrði m.a. „City of Lost
Children".
Looking for Richard er frum-
raun A1 Pacino sem leikstjóra.
Myndin snýst um hóp leikara sem
er að setja upp verk Shakespeares
Ríkarð þriðja. Ásamt Pacino í
myndinni eru Kevin Spacey, Aidan
Quinn, Alec Baldwin, Winona Ryd-
er og Estelle Parsons.
subUrbia er nýjasta kvikmynd
Richards Linklater. Hún er byggð
á leikriti Erics Bogosians og fjallar
um hóp vina sem halda partý til
að fagna heimkomu vinar sem hef-
ur verið á tónleikaferðalagi.
Some Mother’s Son segir sögu
tveggja írskra mæðra sem eiga
syni í fangelsi. Þeir eru liðsmenn
IRA og fara í hungurverkfall til
þess að fá bresk stjórnvöld til að
viðurkenna þá sem pólitíska fanga.
Helen Mirren og Fionnula Flanag-
an leika mæðurnar en Terry Ge-
orge leikstýrir.
Ghosts of Mississippi fjallar um
kynþáttabaráttuna í Bandaríkjun-
um. Alec Baldwin leikur lögfræðing
sem tekur upp áratugagamalt
morðmál. James Woods og Whoopi
Goldberg fara með önnur aðalhlut-
verk, en Rob Reiner leikstýrir.