Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Mæja, ó Mæja og sálarkeröldin LEIKLIST Ungó á Dalvík UNDIR STÓRASTEINI LEIKFÉLAG DALVÍKUR Sungin og leikin lög úr leikritum sem leikfélagið hefur sett upp o.fl. Kynn- ir við barinn: Björn Bjömsson. Hljóinsveitir: Jafnmargar og lögin. Söngvarar og leikarar: Maja, Maja, Maja og ekki má gleyma Ylfu. Ungó á Dalvík 2. maí. SJÁÐU fyrir þér leikmyndina: Tvö ríflega mannhæðarhá spjöld og á þeim málað norðlenskt lands- lag. Til vinstri vatnsgrænn foss en á hægri hönd fjöll í óræðum litum sem verða bara til í íslensku vori um lágnættið.^Það er óljóst hvaðan fossinn kemur en svo mikið er víst að ekki flýtur hann um sviðið því þar gengur fólk þurrum fótum allt kvöldið. Til hægri við þessa máluðu tvenningu glittir svo í gardínu- kappa úr rauðu, rykktu flaueli sem gæti átt heima í norsku leikriti frá síðustu öld en fyrir framan þá og svo til á hlaðinu á sveitabænum á málverkinu hefur verið tyllt vínbar sem gefur orðatiltækinu eins og skrattinn úr sauðarleggnum alveg nýja vídd. Svo tínast leikarar og hljóðfæra- leikarar inn á sviðið, afslappaðir eins og rétt æfing sé að hefjast og eru í því sem verður, af skorti skrifarans á viðeigandi íslensku orði, að kallast ekki búningar held- ur múndering. Hér virðist hafa verið stefnt markvisst að því að tína saman ósamstæður. Sá sem er með frönsku herdeildarhúfuna er í rósóttum, hólkvíðum lérefts- buxum, gítaristinn er með pípu- hatt, trommarinn með rauðköflótta skotahúfu, þverflautuleikarinn var klædd eins og lögga og sá sem mundaði blásturshljóðfærið var í allt of stuttum buxum. Og svartklæddur, kvikur kynnir- inn, Björn Björnsson, er með svart- an borða um höfuðið sem heitir bandana og Bjöm segir fyrstu setningu kvöldsins, eitt makinda- legt jæja, rétt eins og við í salnum séum ekki til. Svo heilsar hann fram í salinn einhveijum sem hann þekkir og setur þar með tóninn fyrir sýninguna alla sem er gríðar- lega skemmtileg af því að hún rembist ekki við og kemur til dyr- anna eins og hún er klædd, tekur sjálfa sig alls ekki hátíðlega og verður þess vegna að ljúfum gern- ingi. Hérna fléttast saman grínakt- ugheit sem allir eru sammála um, en eru ekki síst að þakka Birni Björnssyni, sem segir dágóðar sög- ur vel, og ágætar skrýtlur, og dreg- ur áhorfandann alveg til sín með því að rabba við hann milli laga. Ég get lítið sagt um tónlistina sem þarna var framin, hef ekki vit þar til, en það hvíldi yfir henni þokki áhugamannsins og þó að ljóst sé að meðal söngvaranna leynist eng- in María Callas fóru Majurnar allar vel með sitt af gleði og látleysi og þó allra best hún Ylfa sem á sál í raddböndunum sem kemur við hlu- stirnar eins og frotte sé strokið um hörund. Þegar á brestur eitthvað sem mætti kalla hlé drífa sig flestir upp á svið og fá þar sjóðheitt kaffi í plastmál við barinn í hlaðvarpanum á sveitabænum og sjá þá að á bak við barinn er kind á beit í túninu, gemlingur kannski, og þegar mað- ur er sestur aftur og hefur á tilfinn- ingunni að sýningin sé hafin á ný þekkir þessi með frönsku húfuna konu á sjötta bekk frammi í sal (en í Ungo er sjötti bekkur í raun fjórði bekkur) og arkar til hennar á hólkvíðum, rósóttum léreftsbrók- unum og kyssir. Svo heldur sýning- in áfram eins og ekkert hafi í skor- ist. Þannig leið þessi uppákoma, létt og skemmtileg, og á einhvern óskilgreindan hátt einnig hjart- næm og fyllandi fyrir sálarkeröld- in, svo vitnað sé í texta eftir meist- ara Þórberg sem þarna var flutt- ur, þannig að þegar ég gekk út í svarfdælskt vorið leið mér betur en þegar ég fór inn og ég hygg að svo hafi verið um alla í húsinu, ekki síst þá sem sköpuðu þessa stund og deildu henni svo ljúflega með öðrum. Guðbrandur Gíslason Menningarsj óður 13,6 milljónirtil 48 aðila STJÓRN Menningarsjóðs hefur veitt 48 styrki, samtals að fjárhæð kr. 13,6 miiyónir, en 121 umsókn barst að þessu sinni með beiðni um styrki að fjárhæð u.þ.b. kr. 110 milljónir. Stjórn Menningarsjóðs skipa þær Bessí Jó- hannsdóttir, sagnfræðingur, formaður, Áslaug Brynjólfsdóttir, umboðsmaður foreldra og skóla í Reykjavík, og Sigríður Jóhannesdóttir, alþing- ismaður. Eftirtalin verkefni voru styrkt: Nafn umsækjanda: Heitirits: Bókaútgáfanlðunn Landsbókas. ísl. - Háskólabókas. Leikfélag Reykjavíkur Nesútgáfan Setberg, bókaútgáfa Ferðafélag íslands Lýður Bjömsson Skákprent Skákprent Sigurður Gylfi Magnússon Blindrabókasafn íslands Bókmenntaklúbbur Suðurnesja Delos ehf. Hljóðbókagerð Blindrafélagsins Hörpuútgáfan Hringurinn, Kvenfélag íslenska bókaútgáfan Mál og menning Mál og mynd Orðanefnd Rafmagnsverkfræðinga- deildar Verkfræðingafélags íslands (RVFÍ) Skáksamband íslands Skerpla Vaka-Helgafell íþróttafélag Reykjavíkur Iþróttasamband fatlaðra Knattspymufélag Reykjavíkur Vaka-Helgafell Vaka-Helgafell Ármann Jakobsson Ættfræðifélagið Bókaútgáfan Iðunn Bókmenntafræðistofnun Háskóla íslands Gunnar Þorsteinn Halldórsson Hannes H. Gissurarson og Ragnar Árnason Háskólaútgáfan og Clarence E. Glad IÐNÚ, bókaútgáfa Kristinn Haukur Skarphéðins- son ogNáttúrufræðistofnun Islands Kvennasögusafn íslands Mál og menning Mái og menning Rannsóknastofa í kvennafræðum Skúli Magnússon Anna H. Þorsteinsdóttir og Inga Þóra Þórisdóttir Skjaldborg ehf. Hið íslenska þjóðvinafélag Leiklistarsamband íslands Mál og menning Ítölsk-íslensk orðabók eftir Paolo Maria Turchi. Passíusálmar Hallgríms Péturssonar. Leikfélag Reykjavíkur 100 ára. Höfundar Eggert Þór Bernharðsson og Þórunni Valdimarsdóttur, viðbótarstyrkur. Rússnesk-íslensk orðabók eftir Helga Haraldsson, viðbótarstyrkur. í nærvera sálar - Einar Hjörleifsson Kvaran - maðurinn og skáldið, eftir Gils Guðmundsson. Islandsreise 1858 eftirKonrad Maurer. Rekstrarsaga Innréttinganna. íslenskir myndlistarmenn e. Sigurður Kr. Árnason og Gunnar Dal. Saga Fóstbræðra eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson Sýnisbók alþýðumenningar á 19. öld. Fræðirit og handbækur á Daisy formi. Ritsafn eftir Hilmar Jónsson. 2 bindi. Leitin að ljósinu - ævi, störf, fræðimennska og kenningar dr. Esra Péturssonar eftir Ingólf Margeirsson. Islendingasögurnar á hljóðbókum, 2. áfangi. Ritstjórn Örnólfur Thors- son. Brautryðjandinn JúlíanaJónsdóttirskáldkonaeftirGuðrúnu P. Helga- dóttur. Hringurinn í Reykjavík eftir Björgu Einarsdóttur, viðbótarstyrkur. Rætur málsins í íslenskri biblíumálhefð eftir Jpn G. Friðjónsson. Islenskar sjávarnytjar eftir Gunnar Jónsson, Ólaf Karvel Pálsson og Karl Gunnarsson. Ljósmyndarar á íslandi 1846-1926 eftir Ingu Láru Baldvinsdóttur. ■ Raftækniorðasafn 7. Styrkur kr. 600.000 600.000 600.000 500.000 500.000 400.000 400.000 400.000 400.000 350.000 300.000 300.000 300.000 300.000 300.000 300.000 300.000 300.000 300.000 300.000 Skáksamband íslands í 70 ár. I. bindi. Þráinn Guðmundsson. 300.000 Saga fískveiða á íslandi fram til 1970 eftir Jón Þ. Þór. 300.000 íslenska þjóðsagnasafnið. Ólafur Ragnarsson og Sverrir Jakobsson sjá 300.000 um útgáfuna 90 ára afmælisrit ÍR. Ágúst Ásgeirsson. 250.000 íþróttir fatlaðra á íslandi í 25 ár. Sigurður Magnússon. 250.000 „KR-öídin okkar“ í ritstjórn Ellerts Schram og Magnúsar Orra Schram. 250.000 Brennunjálssaga. HalldórLaxness. 250.000 Skáldsnilld Laxness. Kristján Jóhann Jónsson, Pétur Már Ólafsson og 250.000 Valgerður Benediktsdóttir taka saman. í leit að konungi - konungsmynd fslenskra konungasagna. 200.000 Manntalið 1910, 2. og3. hefti. HólmfríðurGísladóttirogEggertTh. 200.000 Kjartansson hafa umsjón með útgáfunni. Skotveiðar í íslenskn náttúru eftir Ólaf E. Friðriksson. 200.000 Studia Islandica - Úr landnorðri, Samar og ystu rætur íslenskrar 200.000 menningar eftir Hermann Pálsson. Mál manna. 200.000 Kvótakerfíð. 200.000 Klassísk menntun á íslandi 1846-1996 eftir Clarence E. Glad og 200.000 Ágúst Ásgeirsson. Gamlir skólasiðir eftir Guðlaug R. Guðmundsson. 200.000 Varpfuglar á Suðurlandi eftir Einar Ólaf Þorleifsson, Jóhann Óla Hilm- 200.000 arsson og Kristin Hauk Skarphéðinsson. Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna. Anna Sigurðardóttir/Erla 200.000 Hulda Halldórsdóttir. Vínlandsgátan eftir Páll Bergþórsson. 200.000 Stórbók 18. aldar. Þorfinnur Skúlason, Víkingur Kristjánsson, Mörður 200.000 Árnason. íslenskar kvennarannsóknir. Helga Kress og Rannveig Traustadóttir. 200.000 Rjúpan. 200.000 Þjóðsögur og sagnir. 150.000 Hafræna - sjávarljóð og siglinga. Guðmundur Finnbogason safnaði, 150.000 Finnbogi Guðmundsson hefur umsjón með útgáfunni. Andvari 1997, ársrit. 100.000 Leikhúsorð. Sigmundur Öm Amgrímsson. 100.000 Af tvennu illu: Ritgerðir um heimspeki eftir Kristján Kristjánsson. 100.000 Morgunblaði Jón H. Sigurmundsson. HALLDÓR, skóla- og leikstjóri, ásamt leikurunum Tinnu Sæmundsdóttur og Helgu Rúnu Þorsteinsdóttur. Bugsý Malone í Þorlákshöfn Þorlákshöfn. Morgunblaðið. NEMENDUR grunnskólans í Þor- lákshöfn sýndu fyrir skömmu söngleikinn Bugsý Malone, eftir Alan Parker, fyrir troðfullu húsi. Sýningargestum var boði upp á „hnallþóruveislu" í hléi og mæltist það vel fyrir. Foreldrar 10. bekkjar nemenda sáu um veitingarnar. „í vetur hafa óvenju margir nemendur verið í leiklistarvali, þess vegna var valið leikrit þar sem margar persónur koma fram,“ sagði Halldór Sigurðsson skóla- stjóri, sem jafnframt er leikstjóri og stjórnandi leiklistarvalsins. Halldór sagði að gaman væri að vinna að þessu með nemendum. Bugsý væri fjörmikið verk sem höfðaði vel til unglinganna. í upp- færslu á leikverki er víða komið við og tekið á ýmsum námsþáttum á óhefðbundinn hátt. Slík vinna sem að mestu er unnin utan skóla- tíma er góð tilbreyting og eykur samkennd þar sem hópur unglinga sameinast í að ná ákveðnu tak- marki og getur glaðst saman er því er náð. Við skólann er sam- komusalur sem tekur allt að 200 manns í sæti og ágætisleiksvið þannig að aðstæður eru allar hinar bestu, sagði Halldór. SIGURÐUR Marteinsson og Martin Frewer. Vortónleikar á Sauðárkróki MARTIN Frewer fiðluleikari og Sigurður Marteinsson píanóleik- ari halda vortónleika í bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðár- króki fimmtudaginn 8. maí ld. 16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.