Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 13
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
SIGURÐUR Ágúst Sigurðsson, forstjóri
Happdrættis DAS.
HAPPDRÆTTIDAS býður nú
einn hæsta mögulega vinning
allra happdrætta á landinu, 40
milljónir króna, á eitt númer. 80
þúsund númer eru í útdrætti í
hvert skipti. Fyrsti útdrátturinn
með þessum stóra vinningi er
9. maí nk. Sigurður Ágúst Sig-
urðsson, forstjóri Happdrættis
DAS, segir happdrættið hyggja
á landvinninga í Kanada og auk
þess er nú hægt að kaupa miða
á alnetinu.
Sigurður segir að flokkahapp-
drættin hafi ekki notið sannmæl-
is hér á landi. Staðreyndin sé sú
að hjá DAS séu vinningslíkur á
einn miða 1 á móti 80 þúsund
en á tíu miða tíu á móti 80 þús-
und. Með því að kaupa fleiri
miða sé verið að margfalda
möguleikana á því að
fá vinning.
Vinningum fjölgað
um 50%
„Við erum að
fjölga vinningum í
Happdrætti DAS um
50%. Vinningarnir
voru um 2.000 í hveij-
um mánuði en nú
verða þeir um 4.000.
Við drögum líka viku-
lega og það er sama
verð á miðanum, 700
krónur hver miði,“
sagði Sigurður.
Hann segir að DAS
hafi boðið miða til
sölu í Færeyjum í eitt
ár og hafi viðtökurn-
ar verið góðar. Nokk-
ur þúsund miðar seld-
ust þar á síðasta ári.
Sigurður segir að
Færeyingar hafi
fengið um 40% af
framlagi sínu til
happdrættisins til
baka í vinningum.
„Okkur datt einnig
í hug að kanna áhuga
kanadísks fólks af íslensku bergi
brotnu á happdrættinu. Við
sendum nokkur þúsund vinn-
ingaskrár vestur um haf og
þessa dagana eru að berast pant-
anir á happdrættismiðum og
greiðslumátinn er greiðslukort.
Við rennum alveg blint í sjóinn
með þetta en byrjunin lofar
góðu,“ sagði Sigurður.
Einnig er happdrættið komið
með heimasíðu á alnetinu þar
sem saga happdrættisins er rak-
in og vinningaskrá birt. Hægt
er að panta miða á alnetinu og
greiða fyrir þá með greiðslu-
kortum. Að auki er þar leitarvél
sem leitar uppi númer miða. Með
þessu móti er auðvelt að sjá
hvort vinningur er á viðkomandi
miða.
DAS býður 40
millj. á einn miða
Helgidagafriður á
föstudaginn langa
Dansleikja-
hald eftir
miðnætti
leyft
SAMKVÆMT lögum um helgi-
dagafrið, sem afgreidd voru frá
Alþingi á mánudag, er eftir sem
áður leyft að halda dansleiki aðfara-
nótt laugardags eftir föstudaginn
langa. Töluverðar umræður hafa
orðið um þennan lið frumvarpsins
á Alþingi og klofnuðu þingflokkarn-
ir allir í afstöðu sinni, nema Þing-
flokkur jafnaðarmanna.
Samkvæmt upphaflegu frum-
varpi átti helgi föstudagsins langa
að ná til klukkan sex að laugardags-
morgni. Einar K. Guðfinsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, mótmælti
harðlega þessari breytingu á eldri
lögum og vísaði til þess að í kjör-
dæmi hans á Vestfjörðum væri hefð
fyrir því að halda dansleiki á þess-
um tíma. Andstæðingar hans bentu
á að ef dansleikir hæfust á mið-
nætti mætti búast við því að gleð-
skapur hæfist fyrr. Dansleikjahald-
ið myndi trufla fjölskyldufrið og
verða til þess að vinnutími ýmissa
launamanna lengdist.
Formenn Alþýðubandalags og
Sjálfstæðisflokks á móti
Við atkvæðagreiðsluna greiddu
37 þingmenn atkvæði með breyt-
ingartillögu Einars K. Guðfinnsson-
ar þess efnis að helgidagafriðnum
á föstudaginn langa lyki á mið-
nætti, en tíu voru á móti. Þar á
meðal var Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og tveir samflokksmanna
hans, þrír þingmenn Framsóknar-
flokksins og fjórir þingmenn Al-
þýðubandalags, þar á meðal Mar-
grét Frímannsdóttir formaður
flokksins. í þingflokki Kvennalist-
ans sat Guðný Guðbjörnsdóttir hjá,
en aðrir greiddu atkvæði með til-
lögu Einars, sem og allur Þingflokk-
ur jafnaðarmanna.
Sjomannadagurmn
60. hóf sjómanndagsráðs á Hótel íslandi
laugardaginn 31. maí 1997
Dagskrá:
Húsiö opnaö kl. 19:00.
Guömundur Hallvarösson,
formaöur sjómannadagsráös,
seturhófiö.
Kynnnir kvöldsins veröur:
Þorgeir Ástvaldsson.
Fjöldi glæsilegra
skemmtiatríða:
Kvöldveröartónar:
Haukur Heiöar Ingólfsson.
Söngsystur.
Braggablús: Glæsileg söngbók
Magnúsai Eiríkssonar.
Stórhljómsveit Gunnars
Þórðarsonar.
Sniglabandiö
leikurfyrir dansi til kl. 03:00.
Verb: Kr. 4.900 fyrir manninn.
iffat'Seóill
Xarrýlöguð austurknsk fiskisúpa.
Jíeilsteiktur lambavöðvi
meðjylltum jarðeplum, smjörsteim
prœnmeti og Madeira piparsósu.
SúkfdaMjúpuðpera ocj sérrí-is.
Songsystur
v Söngvararnir i Braggablús
Sniglabandið
MIÐASALA OG
BORÐAPANTANIR
ALLA DAGA
KL. 13-17. I |( \y\-\ I Q
SÍMI 568 7111. 1IV 1 Ll- 1(0
Hvernig bíl
mundir þú fá þér
44 nailljcifltir i
ATH! Adeins 20 kr. röðin
L#TT#
Til mikils aö vinnal
ÍT«I«J6511
■GJALOFfUAtST ÞJÓNUSTUNUMER
Alla miðvikudaga
fyrirkl. 16.00.