Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 21
Síðasta meginsending íslenskra handrita kom með Yædderen í gær
Grettis saga
kominí
Arnastofnun
Síðasta meginsending íslensku handrítanna
frá Ámasafni í Kaupmannahöfn kom
með danska varðskipinu Vædderen í gær-
dag, en liðin eru 26 ár síðan fyrstu
Morgunblaðið/Kristinn
FIMMTÁN sjóliðar danska varðskipsins Vædderen báru jafnmarga böggla með íslenskum
handritum á land i gærdag.
íslensku handritin komu hingað til lands
frá Danmörku með dönsku varðskipi
sem einnig bar nafnið Vædderen.
HANDRITIN sem komu með
Vædderen í gær voru vel pökkuð
inn í fimmtán böggla og báru jafn-
margir sjóliðar sinn böggulinn hver
á land, þar sem Kai Rasch Larsen,
skipstjóri á Vædderen, afhenti
Stefáni Karlssyni, forstöðumanni
Árnastofnunar á íslandi, handritin
formlega. Að því búnu flutti lög-
reglan í Reykjavík handritin að
Árnagarði við Suðurgötu í Reykja-
vík.
Stefán Karlsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að í þess-
ari síðustu meginsendingu væru
nálægt 160 fornbréf, eins og til
dæmis samningar um jarðakaup,
jarðaskipti, kaupmálar hjóna,
erfðaskrár og fleira þvíumlíkt, en
mörg þessara skjala hafa ekki ver-
ið prentuð. Þá eru í sendingunni
átta handrit flest skinnhandrit. Það
elsta þeirra er frá 14. öld og hefur
m.a. að geyma Guðmundar sögu
góða, en annað er skrifað um 1500
og í því eru Bárðar saga, Víglund-
ar saga og Grettis saga.
Kaupsamningur um Reykjavík
Starfsmenn Árnastofnunar
munu opna bögglana með handrit-
unum í dag, miðvikudag, og segir
Stefán að handritin verði skráð í
gögn stofnunarinnar og komið fyr-
ir í hillum, þar sem þau verði að-
gengileg fyrir starfsmenn og aðra
gesti sem þurfi á að halda.
Aðspurður sagðist Stefán ekki
eiga von á því að þessi handrit
yrðu sýnd almenningi á sérstakri
sýningu, nema þá helst eitt bréf
frá fyrri hlta 17. aldar. En það
hefur að geyma samning Herlufs
Daas, höfuðsmanns á Bessastöð-
um, um kaup konungs á hluta af
Reykjavík, sem þá var bújörð, af
ekkju Narfa Ormssonar sýslu-
manns.
Nýr forstjóri Norræna hússins
Fjölbreytni í
starfsemi æskileg
NÆSTI forstjóri Norræna hússins
í Reykjavík verður Riitta
Heinámaa frá Finnlandi. Stjórn
Norræna hússins samþykkti ein-
róma á fundi nýlega að mæla með
henni og að hún taki við störfum
1. janúar 1998.
Það er Norræna ráðherranefnd-
in sem tekur endanlega ákvörðun
um ráðningu forstjóra og verður
það gert fljótlega. Riitta Heinamaa
tekur við af K. Torben Rasmussen
frá Danmörku sem hefur verið for-
stjóri síðan 1. janúar 1994.
Nýi forstjórinn, sem er fæddur
1962, er skólastjóri kennsluleik-
húss Leiklistarháskólans í Helsing-
fors og hefur gegnt því starfi frá
1994. Hún hefur verið framleið-
andi við sama skóla, skipuleggj-
andi Vasa-listahátíðarinnar og ver-
ið leikhúsritari brúðuleikhússins
Tummetott.
Umsækjendur um starf forstjóra
Noræna hússins voru 61, flestir frá
Svíþjóð. Margir Finnar sóttu einnig
um, en færri frá Noregi og Dan-
mörku. 5 íslendingar sóttu um
starfið og umsóknir bárust einnig
frá Færeyjum og Álandseyjum.
Breidd
mikilvæg
í samtali blaðsins við nýja for-
stjórann kom í ljós að hún hafði
verið hér á landi í fyrsta sinn í lið-
inni viku og kunni að sögn vel við
sig, mætti alls staðar vinsemd. Hún
taldi það lofa góðu um framtíðina.
Hún sagðist bíða eftir ákvörðun
ráðherranefndarinnar um skipun í
stöðuna. Á meðan ætlaði hún að
undirbúa sig og læra íslensku.
„Það mikilvægasta fyrir mig er að
læra eitthvað í íslensku og búa
mig undir starfið", sagði hún. Hún
sagðist hafa lært norræn mál í
háskólanum í Helsingfors og þá
kynnst fornum íslenskum bók-
menntum. Nú væri aftur á móti
töluvert um þýðingar íslenskra
verka á finnsku og sænsku og
nefndi hún í því sambandi skáld-
sögur eftir Einar Má Guðmundsson
og Vigdísi Grímsdóttur sem hún
þekkti til.
Riitta Heinamaa sagði að hún
myndi án efa njóta góðs af starfi
sínu við leikhús. Hún kvaðst ekki
vera tilbúinn að nefna ákveðin
markmið sem hún hefði sem vænt-
anlegur forstjóri, en hún kynni vel
þeirri breidd sem greinilega væri
í starfsemi Norræna hússins í
Reykjavík. Hún teldi ekki að ein-
skorða ætti starfsemina við ákveð-
in efni, fjölbreytni væri góð. Hún
sagðist hlakka til starfsins. I að
taka við því fælist í senn mikil
eftirvænting og áskorun.
- -
Morgunblaðið/Hjálmar
VARÐSKIPIÐ Týr tók á móti danska varðskipinu Vædderen rétt við ytri höfnina í Reykjavík í gær
og þegar Vædderen sigldi framhjá heilsuðust skipverjar að hermannasið.
r
1111111
Námstefna 14. maí nk.
STJÓRNUN BREYTINGA
í ÍSLENSKU STARFSUMHVERFI
STJORNUN BREYTINGA
• Síðasta námstefna vorannar fjallar um stjórnun breytinga
í íslensku staiísumhverfi. Stjórnunarfélagið hefurfengið
Þorkel Sigurlaugsson, framkvæmdastjóra þróunarsviðs
Eimskips, til að leggja línurnar fyrir sumarið. Sérstakt rit,
sem ber nafnið Stjórnun breytinga, er komið út eftir
Þorkel. Ritið er innifalið í námstefnugjaldi.
Tími:
SFÍ verð:
Innifalið:
Staður:
EFNISTOK:
• Áhrif breytinga, sem hafa orðið í viðskiptaumhverfi
hér á landi og erlendis.
• Hvaða ný viðhorf eru uppi?
• Stefnumörkun með nýjum hætti!
• Hverjar eru forsendur árangursríkra breytinga?
• Endurmótun
• Endurskipulagning
• Endurlífgun
• Endurþjálfun
• Mikilvægi þess að hafa framtíðarsýn.
• Heildarsýn og þátttaka starfsmanna við breytingar.
Stjórnun breytinga snýst um fólk!
• Leiðarvísir breytinga.
Kl. 13-17, miðvikudaginn 14. maí.
Kr. 12.300,-
Námsgögn, ritið Stjórnun
breylinga °g kafnveitingar StjÓmUnarfÉlag
Loftleiðahotelið, þingsalur 1 ...
Islands
■
Skráningar í síma: 562 1066 og myndsími 552 8583.