Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997________________________________________________________________MÓRGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Davíð Oddsson forsætisráðherra á aðalfundi Vinnuveitendasambands Islands Betri sóknarfæri í atvinnu- lífinu eftir kjarasamninga Morgunblaðið/Þorkell DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Ólafur B. Ólafsson formað- ur Vinnuveitendasambands íslands á aðalfundi VSÍ í gær. DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, og Ólafur B. Ólafsson, formaður Vinnuveitendasambands íslands, gerðu báðir nýlega kjarasamninga að umtalsefni í ræðum sínum á aðalfundi VSÍ. Sögðu þeir langan samningstíma byggjast á því að verðþólga verði lág og sagði forsæt- isráðherra mikilvægt að atvinnulífið notaði vel sóknarfæri sem byðust. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði kjarasamningana byggjast á meiri kaupmáttaraukningu en menn hefðu lengi þorað að stefna að. Sagði hann góðan hagvöxt og stöðugleika hafa lagt grunninn að þeim. Hann ræddi einnig sóknarfærin: „Líklega eru nú betri sóknarfæri í íslensku atvinnulífi en um langt ára- bil í ljósi nýgerðra kjarasamninga, umbóta í efnahagsmálum og hag- stæðra þjóðhagslegra skilyrða heima fyrir og erlendis. Sjaldan hafa verið jafn góð skilyrði fyrir atvinnulífið til að sækja fram, auka framleiðni og verðmætasköpun. Forráðamönn- um fyrirtækja yrði ekki fyrirgefið, og ætti ekki að fyrirgefa, ef þeir nýttu ekki þessi tækifæri til fulls. í óðaverðbólguskeiði liðinna áratuga gátu lélegir stjómendur falið sig í heimi efnahagslegrar óreiðu og skellt skuldinni á aðra. Nú hafa Hörð verk- fallsvarsla fyrir vestan VERKFALLSVERÐIR á ísafirði höfðu sig nokkuð í frammi í gær og stöðvuðu störf verkstjóra við flutning á rækju og akstur Bolvík- ings með umbúðir til Bakka í Bol- ungarvík, héldu vörð um að gámar yrðu ekki fluttir til móts við skip Eimskipafélagsins í Bolungarvík og höfðu afskipti af störfum bílstjóra hjá Gámaþjónustu Vestfjarða. Vinnuveitendur telja aðgerðimar ólöglegar, talsmenn ASV segja að um verkfallsbrot hafi verið að ræða. Viðræður hafa ekki farið fram í kjaradeilunni fyrir vestan í rúma viku en Pétur Sigurðsson, forseti ASV, segir að verkalýðsfélögin áformi að leggja fram tilboð þegar tími gefíst til frá önnum í verkfalls- vörslu vegna tíðra verkfallsbrota. Einar Jónatansson, formaður Vinnu- veitendafélags Vestfjarða, sagði í gær að hann gæti ekki séð að staða fyrirtækja á Vestfjörðum væri sterk- ari en annars staðar og að þau gætu ekki tekið á sig meiri kostnað- arhækkanir en önnur fyrirtæki. þeir sem betur fer ekkert slíkt skjól. Þeir verða að standa sig eða rýma til fyrir öðrum.“ Þá sagði forsætisráðherra að endurskoða yrði kerfi almanna- trygginga sem nú væri orðið alltof flókið og óskiljanlegt, m.a. vegna víðtækrar tekjutengingar. Hann upplýsti að á næstunni yrðu af- greidd lög frá Alþingi um að breyta Landsbanka og Búnaðarbanka í hlutafélög og stefnt væri að sölu hlutafjár ríkisins í SKÝRR, íslensk- um aðalverktökum, Áburðarverk- smiðjunni, Sementsverksmiðjunni og íslenska járnblendifélaginu. Varað við ofþenslu Ólafur B. Ólafsson, sem var end- urkjörinn formaður VSÍ á fund- inum, sagði nýjar hættur fylgja miklum launabreytingum og góðu gengi i atvinnurekstri. Varaði hann við ofþenslu, að framkvæmda- og eyðslugleðin mætti ekki bera heil- brigða efnahagsstjóm ofurliði. Sagði hann merki ofþenslu birtast í baráttu fyrirtækja um vinnuafl, sem þýddi verri afkomu útflutnings- fyrirtækja, vaxandi halla í viðskipt- um við útlönd, hækkandi verðlag og lækkandi gengi. Sagði hann nauðsynlegt að ríkisstjórnin beitti tiltækum ráðum til að góðir mögu- YFIR tuttugu sinubrunar hafa verið á höfuðborgarsvæðinu seinustu daga og eru slíkar íkveikjur orðnar árlegt vanda- mál. Fossvogsdalur og Elliðár- dalur hafa iðulega verið vett- vangur brennuvarganna, auk Öskjuhlíðar og fleiri bersvæða, meðal annars í Mosfellsbæ þar sem barist var við sinuelda í SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu Raf- iðnaðarsambands íslands og Pósts og síma hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu í dag. Óformlegur fundur var hald- inn hjá sáttasemjara síðdegis í gær en þá voru níu dagar síðan form- legur fundur í deilunni var síðast haldinn. Verkfallsnefnd rafiðnaðarmanna dró til baka í gær ótímabundnar undanþágur fyrir vaktmenn á mælaborði Landsímans og tvo starfsmenn sem vinna við símkerfið á Keflavíkurflugvelli. Nefndin stöðvaði jafnframt afgreiðslu leikar í efnahagslífinu spilltust ekki vegna ofþenslu. Sagði hann ýmsar leiðir til þess, m.a. að nýta efnahagsbatann til að hefja endurgreiðslur á lánum sem tekin hefðu verið á erfiðleikaárum og örva mætti sparnað almennings. Varpaði hann fram þeirri hugmynd Barist við sinuelda gærmorgun eins og sjá má á myndinni. Bannað er lögum sam- kvæmt að kveikja í sinu og brenna hana í þéttbýli og varða beiðna um undanþágu og lá við að hún yrði leyst upp í gær, að sögn Sigurðar Kjartanssonar formanns verkfallsnefndar rafiðnaðarmanna. „Við teljum að Póstur og sími hafi framið verkfallsbrot með því að láta mann sem ekki er í okkar samtökum ganga í viðgerð á fjöl- síma í Landsímahúsinu í fyrradag, sem okkar menn hefðu gengið í að öðrum kosti. Því sáum við á tímabili ekki tilganginn í því að halda nefndinni úti, þar sem ekk- ert mark er tekið á því hvort við veitum undanþágur eða ekki,“ seg- ir hann. að veittur yrði afsláttur frá tekju- skatti vegna viðbótar iðgjalda í líf- eyrissjóð. Þá mætti og stækka þann hluta hagkerfísins sem háður væri virkri samkeppni. Ríki og sveitarfé- lög gætu aukið kaup sín á þjónustu- fyrirtækjum og selt opinber fyrir- tæki. brot á lögunum sektum. Lögregl- an hvetur foreldra og forráða- menn bama til að sjá til þess að bömin hafi ekki eldfæri undir höndum og brýni fyrir þeim hættur af íkveikjum. Að fenginni reynslu er m.a. hætta á að lítil böm geti lokast inni á milli mik- illa sinuelda og að eldurinn ber- ist 1 annan gróður og eignir. Norðanátt fram yfir helgi NORÐLÆGAR áttir verða ríkjandi fram yfír næstu helgi en þó hlýnar eitthvað í veðri, segir Hörður Þórð- arson veðurfræðingur. Hann telur að ekki verði eins kalt í veðri næstu daga og var í gær. Næstu daga er útlit fyrir að verði norðlægar áttir og frost að nætur- lagi norðan til á landinu en annars staðar fremur svalt, eða 1-5 stiga hiti á daginn norðan til á landinu en heldur hlýrra sunnan til. Hörður segir að fremur öfiug lægð við Noreg og hæðarhryggur vestur af íslandi beini til okkar köldu lofti ættuðu norðan úr íshafi. Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri segir að töluvert sandfok hafi verið austur í Hornafírði úr aurum og farvegi Hornafjarðarfljóta. Einn- ig var sandfok á Mýrdalssandi. „Það er mjög slæmt að fá svona veður í maí þegar gróður er ekki kominn af stað en allur snjór er farinn og jörðin farin að þoma. Það verða einhveijir gróðurskaðar, ekki síst ef þessi átt helst. Sem betur fer sjáum við árangur af aðgerðum landsmanna á þessu sviði því í svona veðri fyrir um tíu árum hefðum við ekki séð út úr augum hérna í Gunn- arsholti," sagði Sveinn. -----♦ ♦ ♦----- Betra veðurútlit á Everest VEÐUR er heldur að skána efst á Everest, að sögn Bjöms Ólafssonar, en hann og félagar hans, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnús- son, leggja af stað á tind Everest á morgun, uppstigningardag. Aðrir leiðangursmenn í leiðangri Johns Tinkers lögðu af stað í gær og gekk þeim vel. Þeir fóru beint upp í þriðju búðir og fara í fjórðu búðir í dag. Björn sagði að það Væra strangir dagar framundan. Þeir myndu ekki taka sér hvíldar- daga heldur fara beint úr þriðju búðum í fjórðu búðir og þaðan í fimmtu búðir í Suðurskarði. „Við áætlum að hvíla okkur fram eftir degi í Suðurskarði og leggjum síðan af stað um kl. 11 aðfaranótt sunnudags. Við gerum ráð fyrir að við munum ná toppnum á milli kl. 7-9 um morguninn, þ.e. á milli 1-3 að íslenskum tíma. Það lítur ágæt- lega út með veðurútlit núna, en það þarf hins vegar ekki nema einn óveðursdag til að þessi áætlun rask- ist. Sé horft til sögu fjallaferða á Everest er þetta besti tíminn. Mönn- um hefur yfirleitt gengið vel í kring- um 10. maí.“ ■ Sherparnir einstakir/10 Forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ „Ekki yfirgrips- mikil athugnn“ Á RÁÐSTEFNU sjávarútvegs- ráðherra á Akureyri í gær var lögð fram skýrsla um „veiðigjald og skattbyrði byggðarlaga". í inngangsorðum skýrslunnar seg- ir Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla íslands svo meðal ann- ars: „Rétt er að taka fram að við- fangsefnið er nokkuð margþætt, meðal annars ber að hafa í huga að skattkerfi landsmanna er flók- ið og veiðigjald er unnt að leggja á með ýmsum hætti. Á hinn bóg- inn er hér ekki um yfirgrips- mikla athugun að ræða. Með- fylgjandi skýrsla getur því ekki falið í sér endanlegar niðurstöður um áhrif veiðigjalds á skattbyrði eftir landshlutum. Á hinn bóginn er vonast til þess að hún gefi sæmilega réttvísandi mynd af þeim áhrifum." ■ Veiðigjald leiðir/12 Sáttafundur eft- ir 9 daga hlé
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.