Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 29
AÐSENDAR GREINAR
Vaknaðir?
Góðan daginn!
ÞAR kom þá að því
að sölumenn sjávaraf-
urða vöknuðu til lífs-
ins varðandi stefnu
gagnvart svokölluðum
náttúrverndarsamtök-
um. Allt í einu virðast
menn átta sig á þvi
að eitthvað er til í því
sem þeir hafa verið
varaðir við mörg
undanfarin ár. Nefni-
lega því, að á stefnu-
skrá margra þessara
samtaka er að finna
ályktanir gegn fisk-
veiðum þjóða og eru
íslendingar þar ekki
undanskildir.
Söluaðilum hefur verið bent á
þá staðreynd að þessi samtök taka
ekkert tillit til landamæra og fyrir
þeim vakir ekki einlæg náttúru-
verndarstefna. Þetta eru harðir
viðskiptamenn sem vilja hluta af
kökunni. Þeir beita engum rökum
í sínum málflutningi eins og best
má sjá af baráttu þeirra gegn hval-
veiðum. Um ofveiði úr þeim stofn-
um hefur ekki verið að ræða á
íslandsmiðum síðan snemma á
þessari öld. En það skipti þá engu
máli, baráttan var arðsöm og mót-
staðan veik vegna samstöðuleysis
hér heima. Sumir voru tilbúnir að
gefa eftir, þar á meðal söluaðilar
sjávarafurða.
Nú er lítið út úr baráttunni gegn
hvalveiðum að hafa vegna m.a.
breytinga á almenningsáliti í heim-
inum. Nokkrar þjóðir hafa reyndar
ekki hlustað á þetta og tekið
ákvarðanir án tillits til öfgastefnu
og innihaldslausra hótana þessara
samtaka. Hvergi hefur verið bent
á að það hafi orðið þessum þjóðum
til vansa eða skaðað viðskiptahags-
muni þeirra svo teljandi sé.
Hvað er nú til ráða? Nú á að
hefja varnarbaráttu kostaða af al-
menningi. Líklega er það ekki svo
vitlaust og eitthvað ætti nú Sölum-
iðstöðin að geta látið af hendi
rakna miðað afkomu síðasta árs.
Það er fróðlegt að sjá áherslubreyt-
inguna nú þegar menn vakna til
lífsins. Fram að þessu hafa söluað-
ilar í sjávarútvegi talið sig geta
keypt sér frið frá hryðjuverkasam-
tökum með því að fórna hvalveiði-
mönnum á þeirra altari. En nú
kveður við annan tón þegar bankað
upp á í næsta húsi, hjá söluaðilun-
um sjálfum. Þá skal hætt dansinum
og bundist samtökum við aðra um
að hefja baráttu fyrir okkar mál-
stað.
Eg segi nú bara, velkomnir á
fætur! Okkur sem höfum barist
fyrir hvalveiðum veitir ekki af lið-
veislunni. Hagsmunir okkar fara
saman. Barátta okkar vinnst ekki
með því að stíga dansinn við
hryðjuverkasamtök. Hún vinnst
með því að snúa bökum saman og
móta stefnu um nýtingu náttúru-
auðlinda okkar samkvæmt ráð-
leggingum þeirra vísindamanna
sem við treystum.
c.ytaviléttar
^ SPLENDESTO
seidenSticker
Nú þegar Sölumið-
stöð hraðfrystihús-
anna er orðin sammála
okkur um skynsama
nýtingu náttúruauð-
linda hafsins, eins og
skilja mátti á forstjóra
SH í ræðu hans á
markaðsfundi fyrir-
tækisins fyrir stuttu,
þá reikna ég með að
sj ávarútvegsráðherra
sé ekkert lengur að
vanbúnaði með að
taka ákvörðun um að
hefja hvalveiðar hér
Jón við land. Hann hefur,
Gunnarsson ásamt forsætisráð-
herra, lýst því yfir í
fjölmiðlum að meirihluti sé fyrir
málinu á Alþingi. ítrekað hefur
Nægur markaður er
til fyrir hvalaafurðir,
segir Jón Gunnarsson,
það er aðeins tækni-
legt atriði að koma
þeim á markað.
b 1 ú s s u r
Uéuntv,
TÍSKUVERLSUN
v/Nesveg, Seltj.. s. 561 1680
komið fram að mikill meirihluti
þjóðarinnar og flestir hagsmuna-
aðilar í sjávarútvegi eru eindregið
fylgjandi hvalveiðum og ekki er
verra fyrir hann að hafa afdráttar-
lausa samþykkt landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins um hvalveiðimálið
frá því í haust þegar hann dustar
rykið af tillögu þriðju nefndarinnar
um þetta mál í hans tíð sem sjávar-
útvegsráðherra.
Vangaveltur forsætisráðherra
um markaðsmál fyrir hvalaafurðir
eru léttvægar og til þess fallnar
að slá málinu á frest. Verum minn-
ug yfirlýsinga sjávarútvegsráð-
herra eftir fund hans með japönsk-
um embættismönnum seint á síð-
asta ári þegar hann sagði að ef
íslendingar gengu í Alþjóða hval-
veiðiráðið væri ekkert til fyrirstöðu
af þeirra hálfu að kaupa af okkur
hvalaafurðir. Aðalatriði málsins er
það að nægur markaður er fyrir
hvalaafurðir í heiminum og því er
það eingöngu tæknilegt atriði að
koma vörunni á markað. Ég man
reyndar ekki eftir því að ráðherrar
hafí velt fyrir sér afkomu fyrir-
tækja í sjávarútvegi eða markaðs-
horfum fyrir afurðir þegar ákveðn-
ar eru veiðar á íslandsmiðum eða
annars staðar. Við ættum kannski
að banna veiðar og vinnslu þegar
stefnir í að þær séu ekki arðsam-
ar. Slík forsjárstefna væri í anda
Sjálfstæðisflokksins eða hitt þó
heldur. Það er mikilvægt að menn
gleymi ekki uppruna sínum þegar
mál sem þetta er til umræðu.
í júní 1996 gaf sjávarútvegsráð-
herra þá yfirlýsingu á fundi Sjávar-
nytja og í fréttatímum sjónvarps-
stöðvanna að þingsályktunartil-
laga yrði lögð fram þá um haustið
í samvinnu við sjávarútvegs- og
utanríkismálanefnd Alþingis um
að hvalveiðar hæfust aftur við Is-
land. Það er löngu kominn tími til
að standa við gefin loforð um að
Alþingi fái að ljúka málinu á þessu
þingi. Ég kýs að kalla það dóna-
skap hvernig haldið hefur verið á
hvalveiðimálinu í vetur. Dónaskap
gagnvart öllum þeim sem láta sig
málið varða, bæði þingmenn og
almenning. Þau vinnubrögð og þær
skýringar sem gefnar hafa verið
undanfarnar vikur sæma ekki
mönnum sem sitja í stjórnunar-
stöðu. Þá er með ólíkindum lang-
lundargeð sumra þingmanna í
þessu máli. Margir þeirra ágætu
manna eru orðnir að athlægi í
augum kjósenda sinna. Og það
vegna vinnubragða þeirra sem
stjórna.
Ég er sammála forstjóra Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna um
að tími sé kominn til að vinna að
samstöðu á milli þjóða um þá eðli-
legu kröfu að þeim sé heimilt að
nýta auðlindir sínar með skynsam-
legum hætti og að vinna að kynn-
ingu þeirrar stefnu sem hér hefur
ríkt gagnvart nýtingu á auðlindum
hafsins. Ég er aftur á móti mátu-
lega bjartsýnn á það að okkur tak-
ist að sannfæra svokölluð náttúru-
verndarsamtök um að okkar sé að
marka stefnuna og framfylgja hér
við land. Sú stefna er of létt í vasa
til að hún henti þeim. Eðlilegt er
að ríkisvaldið komi hér til ásamt
hagsmunaaðilum. Þegar Norð-
menn tóku ákvörðun um að hefja
hvalveiðar settu þeir sig í varnar-
stellingar og hófu sína baráttu.
Af þeim getum við eflaust lært
eitthvað í þeim efnum, en þeirra
reynsla er líka ljós. Þeir hættu
aðgerðum sínum árið 1995 eða
tveimur til þremur árum eftir að
þeir byrjuðu. Það kom í ljós að
óttinn var ástæðulaus þannig að
það þurfti engar sérstakar vama-
raðgerðir til lengdar.
Stefnufesta og áræði er það sem
hér þarf til. Eftirgjöf á einum vett-
vangi kallar á árás á þann næsta.
Að láta undan þrýstingi og semja,
gegn betri vitund, við svokölluð
náttúruverndarsamtök kallar á
herskáa aðför að sjálfstæði okkar
til að nýta auðlindir sem okkur em
fengnar til lands og sjávar.
Höfundur er formaður
Sjávarnytja.
Rutland þéttir,
bætir og kætir
þegar að þakið
fer að leka
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360
SÍMI553 8640 / 668 6100
Rutland er einn helsti
framleiðandi
þakviðgerðarefna í
Bandaríkjunum
Veldu rétta efnið - veldu Rutland!
pp
&CO
fc». ÞORGRÍMSSON &CO
128 REYKJAViK
FÓLK Á FLÖTTA
sýning í Kringlunni
Verii) velkomin d sýningu
RauSa kross íslands um
mdlefiii fiólks d filótta
d annarri hœð Kringlunnar
dagana3.-7. maí.
+
RAUOI KROSS ÍSIANDS
Félag skrúðgarðyrkjumeistara 30 ára
Færir borginni
umhverfis-
verk að gjöf
Nú hafa skrúðgarðyrkjumeistarar ákveðið að
færa Reykjavíkurborg að gjöf, segir Steinþór
Einarsson, frágang á umhverfi minnis-
merkis lettnesku þjóðarinnar.
MIKLAR breytingar hafa orðið
á undanförnum árum þegar litið
er til frágangs lóða hvort heldur
er við heimahús eða stofnanir. All-
ur almenningur er orðinn meðvit-
aður um að það er síður en svo
tilgangslaust að setja niður tré og
plöntur þrátt fyrir að veðurfar sé
hér ekki alltaf hið ákjósanlegasta,
að minnsta kosti ef miðað er við
það sem gerist í gróðursælum ná-
grannalöndum okkar.
A sama tíma og gróðuráhugi
almennings hefur vaxið hefur eitt
fámennasta fagfélag landsins, Fé-
lag skrúðgarðyrkjumeistara, dafn-
að, en þijátíu ár eru nú liðin frá
stofnun þess, árið 1967. Félags-
menn em aðeins 15 talsins. Þór
Snorrason skrúðgarðyrkjumeistari
var útnefndur heiðursfélagi á aðal-
fundi í mars síðastliðinn en hann
er einn af stofnendum félagsins.
Formaður félagins er Jón Júlíus
Elíasson. Félagið hefur frá fyrstu
tíð haft það að höfuðmarkmiði að
vinna að faglegum framgangi
skrúðgarðyrkju á Islandi, en skrúð-
garðyrkja er löggilt iðngrein. Nám-
ið fer fram hjá meisturum og í
Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum
í Ölfusi og endar í sveinsprófi eins
og gerist með aðrar löggiltar iðn-
greinar.
Skrúðgarðyrkjumeistarar hafa
lagt sig fram um að viðhalda ís-
lenskum byggingarhefðum. Þeir
em margir hveijir leiknir í hvers-
konar hleðslu úr íslensku gijóti og
kemur það víða fram í verkum
þeirra. Starfssvið skrúðgarðyrkju-
mannsins er fjölbreytilegt. Það nær
til hvers konar yfirborðsfrágangs
og mannvirkjagerðar á lóðum og
útivistarsvæðum, jafnt í einka-
görðum sem hjá opinbeijum stofn-
unum. Á síðustu árum hafa skrúð-
garðyrkjumeistarar verið í æ ríkari
mæli fengnir til þess að ganga frá
opnum svæðum á vegum sveitarfé-
laga víðs vegar um landið og teng-
ist það mjög hinum aukna áhuga
manna á að bæta og fegra um-
hverfi sitt. Það er því óhætt að
fullyrða að skrúðgarðyrkjan sé
umhverfisvæn atvinnugrein.
Venja er að minnast afmæla á
einhvem hátt og svo verður einnig
um afmæli Félags skrúðgarðyrkju-
meistara en þó verður þess minnst
með nokkuð óvenjulegum hætti. Á
horni Túngötu og Garðastrætis
hefur verið komið fyrir minnis-
merki sem er gjöf frá lettnesku
þjóðinni til hinnar íslensku. Nú
hafa skrúðgarðyrkjumeistarar
ákveðið að færa Reykjavíkurborg
að gjöf frágang á umhverfi þessa
minnismerkis — gjöf á sviði um-
hverfisfágunar. Unnið er að frá-
ganginum í samráði við embætti
garðyrkjustjóra Reykjavíkur, sem
látið hefur hanna framkvæmdirn-
ar, en skrúðgarðyrkjumeistararnir
sjá um lokafrágang umhverfis
minnismerkið. Hellur og steinar,
sem í fráganginn fara, eru frá BM
Vallá. Verkið verður unnið dagana
8. til 12. maí og meðan á því stend-
ur munu skrúðgarðyrkjumeistar-
arnir veita þeim, sem fram hjá
fara og áhuga hafa á, fræðslu um
hvað eina sem tengist starfinu og
skrúðgarðyrkju almennt. Því má
segja að hér verði um tvíþætta
gjöf að ræða — gjöf til borgarinn-
ar og síðan gjöf til borgaranna í
formi upplýsingar.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, tekur síð-
an formlega við gjöf Félags skrúð-
garðyrkjumeistara til borgarbúa
kl. 14 sunnudaginn 11. maí. Er
það von skrúðgarðyrkjumeistara
að með þessu hafí þeir ekki aðeins
lagt sitt af mörkum til að fegra
umhverfið í borginni heldur muni
þeir, sem koma til þeirra með fyrir-
spurnir á meðan á verkinu stend-
ur, fara þaðan um margt fróðari
er lýtur að því að fegra umhverfi
okkar allra.
Höfundur er ritari Félags
skrúðgarðyrkjumeistara.
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Láttu ekki minniháttar lýti
verað að stóru vandamáli.
MARBERT
ANTI - COUPEROSE EFFECI:
Sérstök meðlerð sem vinnur
gegn roða og hóræðasliti.
Með reglulegri notkun
styrkjast hóræðarnar
og húðin fær eðlilegan
litarhátt.
ANTl - COUPEROSE EFFECT
skilar undraverðum árangri.
Kynning i SNYRTIHÖLLINI,
Garðabæ miðvikudag
og föstudag.
Glæsilegur kaupauki.
SNYRIIHCXUN
MIÐBÆ GARÐABftJAR