Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 43
4_
FRETTIR
i
ú Kirkjuráð með
fund á Hólum
KIRKJURÁÐ Þjóðkirkjunnar heid-
ur fund á Hólum 5.-6. maí í boði
Bolla Gústafssonar, vígslubiskups
Hólastiftis. Á dagskrá ráðsins er
afgreiðsla reikninga og úthlutun
úr jöfnunarsjóði sókna auk annarra
mála.
I framhaldi af fundinum verður
síðan efnt til námskeiðs fyrir presta.
Það eru þau Ragnhildur Benedikts-
dóttir, lögfraðingur biskupsemb-
ættisins, og séra Baldur Kristjáns-
son, biskupsritari, sem efna til
þessa námskeiðs. Verður námskeið
þetta haldið á Hólum miðvikudag-
inn 7. maí kl. 10 og á Staðarflöt
við Staðarskála föstudaginn 9. maí
kl. 11.
Efnið sem fjallað verður um er
annars vegar stjórnsýslulögin og
upplýsingalögin og hins vegar
mannanafnalögin og starfsskýrslur
og embættisfærslur presta. Þessi
námskeið hafa verið haldin á
Isafirði, Akureyri og Húsavík og
eru áformuð um land allt.
Biskupshjónin munu halda frá
Hólum austur á Fáskrúðsfjörð og
þar mun biskupinn prédika við
guðsþjónustu á uppstigningardag,
8. maí, og funda með fermingar-
börnum og öðrum þeim sem hafa
áhuga á því að ræða við biskup,
segir í fréttatilkynningu.
-----» ♦ -♦--
Þekktur mat-
reiðslumaður
á Grillinu
MATREIÐSLUMEISTARINN Se-
an Flanagan frá Mosimann’s í
London mun starfa í Grillinu, Hótel
Sögu, frá 7.-13. maí, þar sem hann
kemur til með að matreiða þá rétti
sem í boði eru á matseðli Mosi-
manns í dag.
Anton Mosimann fæddist í Sviss
og stundaði þar nám í matargerð
fyrst um sinn en hélt svo til Kanada,
Frakklands, Japan og Ítalíu enda
gætir sterkra áhrifa frá þessum
löndum í allri hans matargerð. Fyr-
ir um 20 árum tók Mosimann við
stöðu yfirmatreiðslumanns á Dorc-
hester hótelinu í London. Hann
starfaði þar í 13 ár og hlaut á þeim
tíma fjölmargar viðurkenningar í
matargerð, þar á meðal var veit-
ingastaður Dorchester hótelsins
sæmdur 2 Michelin stjörnum, en
slíkt mun vera ein eftirsóttasta við-
urkenning sem veitingastaðir
hljóta. Mosimann hefur gefið út
bækur um matargerð.
♦ ♦ »
ÓSKAR H. Gunnarsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar sf. og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður
Iþróttasambands fatlaðra, undirrita styrktarsamninginn. Með þeim á myndinni er Ólafur Magnús-
son, framkvæmdasljóri Iþróttasambands fatlaðra.
Styðja starfsemi íþrótta-
sambands fatlaðra
Hafnarfjarðarkirkja
• •
Oldruðum
boðið til
kirkju
ÖLDRUÐUM er boðið til guðsþjón-
ustu í Hafnarfjarðarkirkju á upp-
stigningardag, fimmtudaginn 8.
maí, og hefst hún kl. 14. Eftir
messu er kaffisamsæti í Veitinga-
húsinu Gaflinum. Rútan kemur að
Hrafnistu kl. 13.15, Höfn kl.
13.25, Sólvangi um kl. 13.30 og
Sólvangshúsunum um kl. 13.40 og
ekur þaðan að kirkju og þangað
aftur síðar.
Einkabílar verða líka í förum.
Þeir sem óska eftir bílferð geta
haft samband við kirkjuþjóna í
kirkjunni eða safnaðarheimilinu.
Þeir taka við pöntunum þar frá
kl. 10-12 þennan dag. Prestur í
Sjðsþjónustu verður sr. Þórhildur
lafs og hún verður líka veislu-
stjóri í samkvæminu í Gaflinum
ásamt Sveini Guðbjartssyni, for-
stjóra. Natalía Chow, sópran,
syngur einsöng við undirleik Helga
Péturssonar.
OSTA- og smjörsalan sf. og
Iþróttasamband fatlaðra (IF) hafa
gert með sér samning um stuðning
Osta- og smjörsölunnar sf. við IF
vegna undirbúnings og þátttöku
fatlaðs íþróttafólks í Olympíuleik-
unum í Sydney árið 2000.
Árangur íslensku keppendanna
á Ólympíumóti fatlaðra í Atlanta
1996 var afrakstur markvissrar
vinnu þar sem allt var gert til
þess að búa þá 10 keppendur er
þátt tóku sem best undir mótið.
Eftir Ólympíumót fatlaðra í Barc-
elona 1992 var mörkuð stefna,
landsliðsþjálfarar voru ráðnir og
í samráði við þá undirbúningshóp-
Dagur
aldraðra í
Dómkirkjunni
UPPSTIGNINGARDAGUR er á
morgun og jafnframt dagur aldr-
aðra. Þá verður messa i Dómkirkj-
unni og hefst hún kl. 14.
Þar predikar sr. Tómas Guð-
mundsson, fyrrum sóknarprestur í
Hveragerði. Sr. Hjalti Guðmunds-
son þjónar fýrir altari. Einsöng
syngur Signý Sæmunsdóttir óperu-
söngkona og einnig syngur Dóm-
kórinn. Organleikari verður Bjarni
Jónatansson.
Eftir messu er kirkjugestum boð-
ið til kaffidrykkju á Hótel Borg þar
sem Signý Sæmundsdóttir mun
syngja fyrir gesti við undirleik
Bjarna Jónatanssonar.
-----»■ ♦ ♦----
Fundur um
sjálfstæði
Háskólans
HOLLVINASAMTÖK Háskóla ís-
lands í samvinnu við Háskóla ís-
lands og Stúdentaráð Háskóla ís-
lands boða til opins fundar um sjálf-
stæði Háskólans. Fundurinn verður
haldinn í Norræna húsinu miðviku-
daginn 7. maí og hefst kl. 17.
Frummælendur verða Sveinbjöm
Björnsson, rektor Háskóla íslands,
Kristrún Heimisdóttir, laganemi og
Sturla Böðvarsson, þingmaður.
Fundarstjóri verður Gestur Jónsson,
lögmaður.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp til
laga um háskóla sem mun valda
verulegum breytingum á stjórnkerfi
og þróun Háskóla Islands verði það
að lögum.
ur fyrir mótið í Atlanta 1996. Á
sama tíma var unnið að því að
afla tekna til þess að hópurinn
gæti undirbúið sig sem best og
náð hámarksárangri.
í fréttatilkynningu kemur fram
að Sveinn Áki Lúðvíksson, for-
maður íþróttasambands fatlaðra,
sem undirritaði samninginn fyrir
hönd sambandsins, sagði við þetta
tækifæri að undirbúningur vegna
þátttöku íslands í Sydney árið
2000 væri þegar hafinn. Fyrir
dyrum stæði þátttaka í mörgum
stórum verkefnum á næstunni og
því sé stuðningur Osta- og smjör-
sölunnar sf. ómetanlegur við fatl-
aða íþróttamenn sem með lang-
tímamarkmiði búi sig undir þátt-
töku í Ólympíumóti fatlaðra árið
2000.
Óskar H. Gunnarsson, forstjóri
Osta- og smjörsölunnar sf., sagði
eftir undirritun samningsins að
árangur fatlaðra íþróttamanna á
síðustu árum væri hvatning öllum
landsmönnum því hann sýndi svo
ekki yrði um villst hverju sterkur
vilji og ástundun geti fengið áork-
að.
Samningur Osta- og smjörsöl-
unnar sf. og Iþróttasambands fatl-
aðra gildir fram yfir Ólympíumót
fatlaðra í Sydney árið 2000.
Gengið á milli
áningarstaða
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
gengur á milli áningarstaða fornra
og nýrra miðvikudagskvöldið 7.
maí.
Farið verður frá Hafnarhúsinu
kl. 20 og með Almenningsvögnum
suður að Nesti í Fossvogi. Einnig
er hægt að mæta þar kl. 20.30
en sjálf gangan hefst við Tjaldhól
sem var nálægt vesturenda göngu-
brúarinnar yfír Kringlumýrar-
braut. Gengið verður eftir stofn-
stígnum um Svartaskóg og inn
Fossvogsdalinn og yfir á fornleið-
ina yfir Elliðaárnar að Ártúni og
upp Reiðskarð að Árbæ, gömlu
áningastöðunum. Frá Árbæ verður
farið kl. 21.30 yfir á stofnstíginn
og upp Elliðaárdalinn og að nýja
áningastaðnum við Helluvatn. Þar
lýkur þessum áfanga.
Sætaferðir verða til baka að
Árbæ, Tjaldhóli og Hafnarhúsinu.
Allir velkomnir.
♦ ♦ ♦
Fyrirlestur
um handverk
KRISTIN Boström, landsráðu-
nautur í heimilisiðnaði fyrir börn
í Svíþjóð, flytur í vikunni fyrir-
lestra um uppeldislegt gildi hand-
verks fyrir börn og unglinga.
Fyrirlestrarnir verða haldnir í
Dyngheimum á Akureyri, mið-
vikudaginn 7. maí kl. 20 og í
Norræna húsinu í Reykjavík laug-
ardaginn 10. maí kl. 14. Allir eru
velkomnir á fundina.
Kristin hefur starfað sem ráðu-
nautur frá 1992 og stýrt mörgum
námskeiðum, m.a. norrænu nám-
skeiði fyrir unglinga. Hún hefur
kynnt þjóðlegar hefðir í heimilis-
iðnaði í Svíþjóð.
VINNINGSHAFINN Elvar Orn
Jónsson ásamt móður sinni
Guðnýju Arnardóttur og Elíasi
Þorvarðarsyni frá Lýsi hf.
Tveggja ára
ferðalangur
DREGIÐ var í Frískamínleik Lýsis
hf. 22. apríl sl. Allir þeir sem keyptu
flösku af frískamíni á tímabilinu
25. febrúar til 10. apríl áttu þess
kost að senda inn þátttökumiða.
Vinningurinn var 100.000 kr.
ferðaúttekt í leiguflugi að eigin
vali hjá Úrval Útsýn. Vinninginn
hreppti tæplega tveggja ára snáði,
Elvar Örn Jónsson, til heimilis að
Veghúsum 1.
-----»--♦-♦--
Skagfirðinga-
félagið býður til
kaffisamsætis
SKAGFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík og nágrenni býður öldn-
um Skagfirðingum og mökum þeirra
upp á kaffí og súkkulaði fímmtudag-
inn 8. maí í félagsheimilinu Drang-
ey, Stakkahlíð 17.
Húsið opnað kl. 14.30. Söngur
og gamanmál verða til skemmtunar.
OUTPUT
herrasandalar
Tegund: 3265
Litir: Svartir/brúnir
Stæröir: 40-46
Skák & mát
Verð: 3.995,- SérUga þœgikg”'
Ath: Mikið úrval afléttum skóm fyrir sumarið
rp^tsendumsamdægurs
Toppskórinn
v/lngólfstorg • v/Veltusund • S. 552 1212
Fylgstu með einvíginu: http//www.nyherji.is
K A S P A R 0
D I M M
Vissir þ'U aá JOimm
sem þjanar æ lleiri tý
hín pv 1717.1 71S/SDd
tejrlmhjmn n Í?
! Unix tnlva
landi?
NÝHERJI
RS/6000 1 ;