Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 17
VIÐSKIPTI
RAFN B. Rafnsson, framkvæmdastjóri GKS og Sigurður Helga-
son forsijóri Flugleiða handsala samning fyrirtækjanna.
Flugleiðir
kaupa vinnu-
stöðvar frá GKS
FÍS stefnir heil-
brigðisráðherra
VSK-víxl-
ar seldir
fyrir 4,5
milljarða
LÁNASÝSLA ríkisins tók til-
boðum í svokallaða VSK-víxla
til 95 daga fyrir um 4.500
milljónir króna í útboði sem
fram fór á föstudag. Útboði
þessu var einkum beint til
stærri fjárfesta svo sem
banka, sparisjóða og verð-
bréfafyrirtækja.
Alls bárust 11 tilboð í þessa
ríkisvíxla að fjárhæð 7.150
milljónir króna. Þar af var
Seðlabanka íslands með 600
milljóna króna tilboð miðað við
meðalverð samþykktra til-
boða. Meðalávöxtun útboðsins
var 7,08% og var það í sam-
ræmi við ávöxtunarkröfu á
Verðbréfaþingi á föstudag. í
útboði í byijun apríl var ávöxt-
unarkrafan 7,17% og hefur því
lækkað um 9 punkta.
Fundur um
bætta sam-
keppnisstöðu
VERKFRÆÐINGAFÉLAG
íslands efnir til fundar í dag,
miðvikudaginn 7. maí kl. 12.
í Verkfræðingahúsinu Engja-
teig 9. Fjallað verður um til-
lögu Útflutningsnefndar VFÍ
um breytingar á skattalögum
til að bæta samkeppnisstöðu
íslands svo sem við útflutning
á tækniþekkingu.
Útflutningsnefnd VFÍ hefur
að undanförnu skoðað ýmsar
hliðar á því hvernig bæta megi
samkeppnisstöðu íslenskra
fyrirtækja í útflutningi og
skapa þeim svipuð vaxtarskil-
yrði og gerist meðal sam-
keppnislanda. Nefndin fékk
Endurskoðunarmiðstöðina
Coopers og Lybrand sér til
aðstoðar til að kanna þessi
mál í nágrannalöndunum og
gera tillögur um breytingar á
íslenskum skattalögum með
það að markmiði að efla út-
flutning á tækniþekkingu.
Á fundinum mun Útflutn-
ingsnefndin með aðstoð sér-
fræðinga Coopers og Lybrand
kynna skýrslu nefndarinnar
og gera grein fyrir tillögum
sínum.
Ráðstefna
Tölvutækni-
félags Islands
TÖLVUTÆKNIFÉLAG ís-
lands heldur sína árlegu ráð-
stefnu þann 9. maí nk. kl.
9-17 á Hótel Loftleiðum. Að
þessu sinni verður þema ráð-
stefnunnar „Hönnun og fram-
kvæmdir, samþáttun upplýs-
ingaferla í byggingariðnaði
með notkun byggingartækni".
í frétt frá félaginu kemur
fram að meðal fyrirlesara
verða dr. Ziga Turk, Robert
Amor og Karl-Johan Serén.
Þeir eru allir þekktir fyrirlesar-
ar á alþjóðlegum ráðstefnum
og eru virkir þátttakendur í
alþjóðlegu samstarfi á sviði
upplýsingatækni. Auk þess að
taka þátt í helstu verkefnum
styrktum af Evrópusamband-
inu á þessu sviði. Einnig verða
6 innlendir fyrirlesarar á ráð-
stefnunni.
Skráning fer fram hjá Rann-
sóknarstofnun byggingariðn-
aðarins í síma 567 6000, fax
567 8811 og netfang ttfi@ra-
bygg.is
FLUGLEIÐIR hafa gert þjónustu-
samning við GKS ehf. um kaup á
allt að 150 vinnustöðvum vegna end-
urnýjunar á húsgagnakosti í aðal-
stöðvum fyrirtækisins í Reykjavík.
Samningurinn kveður jafnframt á um
heilsuverndarráðgjöf GKS með það
að markmiði fræða starfsmenn og
auka skilning þeirra á þeim þáttum
sem valdið geta álagssjúkdómum.
Álagssjúkdómar meðal skrifstofu-
manna eru algengir hér á landi sem
annars staðar og stafa þeir oftast
af rangri líkamsbeitingu og ónógri
aðlögun vinnuaðstöðu að þörfum
hvers og eins starfsmanns. Hjá GKS
starfa sérfræðingar um heilsufræði
og hafa þeir útbúið sérstakt kynn-
ingarefni sem er sérsniðið að þeim
þáttum sem hafa áhrif á heilsu og
vellíðan skrifstofufólks, að því er
segir í frétt frá GKS.
Samningur Flugleiða og GKS er
til tveggja ára og nemur andvirði
hans 25 milljónum króna. Húsgögn
í skrifstofum fyrirtækisins verða
endurnýjuð í áföngum á samnings-
tímanum og nýju húsgögnin aðlöguð
þörfum hvers og eins í samráði við
einstaka starfsmenn.
FÉLAG íslenskra stórkaupmanna
hefur stefnt heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, Ingibjörgu
Pálmadóttur, vegna breytinga á
lyfjaverði og verður stefnan vænt-
aníega þingfest hinn 15. maí nk.
í desember sl. var innflytjendum
lylja tilkynnt að lyfjaverðsnefnd
hefði samþykkt breytingar á há-
marksverði lyfja frá og með 1. jan-
úar 1997. Breytingar fela í sér að
öll lyf með kostnaðarverð undir eitt
þúsund krónum skuli hækka um
1,77% en lyf með hærra kostnaðar-
verð en þijú þúsund krónur skuli
lækka um 2,65%.
Samkvæmt bréfi sem stjóm lyfja-
hóps FÍS sendi heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra í desember sl.
bendir hún á að samkvæmt lögum
eru það lyfjainnflytjendur, -framleið-
endur og umboðsmenn þeirra sem
skulu sækja um allar verðbreytingar
á lyfseðilsskyldum lyíjum. „Stjórn-
inni er ekki kunnugt að almennt
hafi verið sótt um heimild til lækkun-
ar á lyfjum."
TÖLVUVERSLANIR ACO og
Upplýsingatækni voru sameinaðar
um síðustu mánaðarmót og hefur
verslun Upplýsingatækni verið lok-
að og starfsemin sameinuð undir
merkjum ACO í Skipholti 17.
í verslun Upplýsingatækni hefur
verið á boðstólum úrval tölvu-
búnaðar og prentara frá Hewlett-
Packard sem hér eftir mun fást í
Stjórn lyfjahóps FÍS bendir einnig
á í bréfinu að lækkun á verði lyfja sé
í raun höfnun á því verði sem skráð
er og að samkvæmt tilskipun ESB
beri Iögbæru yfirvaldi að færa rök
fyrir höfnun sinni og gera viðkom-
andi grein fyrir þeim lagaúrræðum
sem hann getur nýtt sér sem og
þann frest sem hann hefur til þess.
Gegn þessu ákvæði telur stjórn lyfja-
hópsins að hafi verið brotið.
Að sögn Baldvins Hafsteinssonar,
héraðsdómslögmanns, er félagið
ósátt við að lyfjaverðsnefnd geti ein-
hliða tekið lyfjaverðlagningu til end-
urskoðunar á þennan hátt. „I stefn-
unni áskiljum við okkur rétt til að
leita til Évrópudómstólsins um að
hann gefi leiðbeinandi álit um hvort
þessi lög og framkvæmd þeirra
standist tilskipun ESB sem Isiand
hefur gengist undir með samningn-
um um Evrópska efnahagssvæðið.
Ef málið fer til Evrópudómstólsins
þá verður þetta eitt af fyrstu málun-
um þar sem beðið verður um álit
af þessu tagi.
verslun ACO. Með þessari samein-
ingu er enn styrkari stoðum rennt
undir þá stefnu ACO hf. að bjóða
viðskiptavinum sínum heildar-
lausnir í tölvumálum, að því er
segir í frétt.
ACO hf. áætlar að opna í ágúst
verslun að Ármúla 7 undir nafninu
ACO-Upplýsingatækni með nýju
sniði og breyttum áherslum.
línuskautar
Upplýsingar um
stólinn
(undirvagninn);
Hraði, rásfesta og
öryggi.
Tvöfaldar ABEC 1
leggur í hverju dekki
tryggja að línuskaut-
inn rennur hratt og
örugglega.
72 mm dekk undir
fullorðins og bama.
Gerð úr sterkri
gúmmíblöndu, sjá til
þess að línuskautinn
er rásfastur við flestar
aðstæður.
Hægt er að breyta
afstöðu á dekkjunum
í miðjunni til að
auðvelda beygjur
(street hockey).
BaUER
hnéhlífar.
Verð kr. 1.990.
BBUEB F2/V2
Fáðu þér ömggan strax!
Stærðir 33-46.
Verð kr. 9.990.
B3UEH vara-/aukahlutir:
Bremsukubbar x 2 kr. 690.
ABEC 1 hjólaleggur S stk. kr. 1.990.
72 mm dekk x 4 kr. 2.490.
Smellur m/öllum festingum
kr. 1.990.
Street hockey vörur t.d.
markmannssett, kylfur, hjálmar,
street hockey puck o.fl.
B3UEB
olnbogahlífar.
Verð kr. 1.990.
FXl
Mjúkur og stöðugur.
Stærðir 38-47.
Verðkr. 14.990.
B3UEFS
úlnliðshlífar.
Verðkr. 1.990.
BBUEB HXl
Street-hockey skauti.
Stærðir 41-47.
Verðkr. 17.990.
Frísport, Laugavegi Sportkringlan, KHngiunni íþróttabúðin, Borgartúni.
K-Sport, Keflavík. SpOrtVCT, Akureyri. TopptnCnn Og SpOtt, Akureyri.
Heilsurækt.Sauðárkróki. HjÓlabær.Seifossi. Hafðu samband og fáðu upplýsingar.
Við erum helstu BBUEB búðirnar og þjónustum þig.
ACO og Upplýsinga-
tækni sameinast