Morgunblaðið - 07.05.1997, Side 18

Morgunblaðið - 07.05.1997, Side 18
ei « 18 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997_____________________________________________________________MORGUNBLAÐID ERLENT Chirac lætur til sín taka í kosningabaráttunni í Frakklandi Lýsir yfir stuðningi við sti órnarflokkana París. Reuter. Skipað að breyta hlið- arstýrum Washington. Reuter. BANDARÍSKA flugmála- stjórnin (FAA) hefur gefið flugfélögum, sem eiga og reka. Boeing-737 þotur, fyrirmæli um að lagfæra ótraustan bún- að í hliðarstýrum þeirra. Fyrirmæli sín gaf FAA út í kjölfar tilmæla sérfræðinga, sem endurskoðuðu hönnun 737-flugvélanna í framhaldi af tveimur slysum sem urðu með þeim hætti, að þotur fóru skyndilega inn í stjórnlausa veltu og steyptust til jarðar. Ótilgreindur hagsmunaðili lagði til að stofnunin fjarlægði setningu úr fyrirmælum sínum þess eðlis að verið væri að „lagfæra vissa hönnunargalla" en FAA neitaði að verða við því. Þvert á móti sagði í yfirlýs- ingu FAA, að fyrirmælin lytu að „ótraustu ástandi" sem yrði að leiðrétta. Væri stofnunin þar af leiðandi því ósammála, að með endurbótunum væri einungis verið að gera örugga flugvél öruggari. Breytingarnar á hliðarstýr- unum felast í því að hreyfibún- aður 2.675 Boeing-737 flug- véla um heim allan verður endurbættur. Áætlað er að kostnaður geti numið allt að 16.800 dollurum á flugvél, jafnvirði tæpra 12 milljóna króna. Óánægð með Kohl ÞRJÁTÍU ástralskir stuðnings- menn Vísindaspekikirkjunnar efndu til mótmæla við Sydney- óperuna í gær er Helmut Kohl kanslari Þýskalands kom þar við í fjögurra daga opinberri heim- sókn sinni til Ástralíu. Kohl hefur neitað að leggja blessun sína yfir starfsemi sértrúarsafnaðarins í Þýskalandi og sagði mótmæla- fólkið það jafngilda mannrétt- indabroti. EZER Weizman, forseti ísraels, sagði að loknum fundi sínum og Yassers Arafats, leiðtoga sjálf- stjórnarsvæða Palestínumanna, að Arafat hefði fallist á að hefja að nýju samvinnu við ísraela í öryggis- málum, eftir sjö vikna hlé sem orð- ið hefur á friðarumleitunum vegna ákvörðunar ísraela um að leyfa landnemabyggðir í Austur-Jerúsal- em. Arafat sagði hins vegar að ekkert samkomulag hefði náðst á fundinum og að Palestínumenn myndu ekki fallast á slíka fundi nema Dennis Ross, fulltrúi Banda- ríkjanna, sem miðlar málum í deilu ríkjanna, væri viðstaddur. Palestínumenn höfðu leitað til Weizmans og beðið hann um að fá Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra ísraels, til að sýna sveigjan- leika í viðræðum. Skömmu áður en fundur Weiz- mans og Arafats hófst í Erez, neit- aði Hassan, krónprins Jórdaníu, að JACQUES Chirac, forseti Frakk- lands, hefur ákveðið að freista þess að blása lífi í kosningabaráttu stjórnarflokkanna og leiðtogar vinstriflokkanna sögðust í gær von- góðir um að þeir færu með sigur af hólmi í þingkosningunum 25. maí og 1. júní. Talsmenn forsetans staðfestu að hann hefði skrifað grein, sem yrði birt í 14 svæðisbundnum dagblöð- um í dag, til að lýsa yfir stuðningi við stjórn Alains Juppe forsætisráð- herra. Sósíalistar hæddust að íhlutun forsetans og fögnuðu skoðanakönn- unum, sem benda til þess að vinstri- flokkarnir hafi unnið upp forskot stjórnarflokkanna. Lionel Jospin, leiðtogi sósíalista, sagði að fylgi bandalaganna væri orðið hnífjafnt og stuðningurinn við vinstriflokk- vera viðstaddur minningarathöfn um sjö ísraelskar stúlkur sem jórd- anskur hermaður myrti í mars. Bar prinsinn við deilum við ísraela um aðgang að vatni. Þess í stað átti Hassan fund með Yossi Beilin úr ísraelska Verkamannaflokknum. Dauðadómur fyrir sölu á landi Til átaka kom í gær er ísraelska lögreglan flutti hóp landnema úr skýli sem þeir höfðu reist ólöglega á Vesturbakkanum. Slösuðust nokkur börn í átökunum og tæplega tuttugu landnemar voru handtekn- ir. Flokkur heittrúaðra gyðinga hótaði í gær að láta af stuðningi sínum við ríkisstjórn Netanyahus, endurtækju slíkir atburðir sig. Þá tilkynntu palestínsk yfírvöld að hver sá sem seldi ísraelum land undir landnemabyggðir í gegnum „ólöglega" miðlara, ætti yfir höfði sér dauðadóm, enda væri slíkt föð- urlandssvik. anna færi enn vaxandi. „Ef Juppe hefur óskað eftir að- stoð Chirac merkir það að kosninga- baráttan gengur ekki mjög vel,“ sagði Daniel Vaillant, næstvalda- mesti maður Sósíalistaflokksins. Flestir vilja að Chirac starfi með sósíalistum Nokkrir þingmenn sögðu að Chirac þyrfti að útskýra betur hvers vegna hann ákvað að boða til kosn- inga tæpum 10 mánuðum áður en kjörtímabilinu átti að ljúka. Vinstri- flokkarnir hafa sakað forsetann um að hafa flýtt kosningunum til að hægriflokkamir gætu knúið fram óvinsælar sparnaðaraðgerðir til að Frakkar gætu uppfyllt skilyrði fyrir aðild að Efnahags- og myntbanda- lagi Evrópusambandsins, EMU, ár- ið 1999 eða til að koma í veg fyrir UMFERÐARTEPPA er í háloft- unum í Evrópu og bitnar það æ meir á flugfarþegum sem þola stöðugt meiri seinkun og oftar. Karl-Heinz Neumeister, fram- kvæmdasljóri samtaka evrópskra áætlunarfjugfélaga (AEA), segir ástæðuna vera þá að vöxtur flug- stjórnarkerfisins hafi ekki verið í samræmi við aukningu flug- starfseminnar. Afkastageta flugstjórnarmið- stöðvanna 49 í Evrópu, sem stjórna farþegaflugi í háloftun- um, er sögð sprungin. Flugferð- um hefur fjölgað um 100% á 10 árum og hafa þær fjórfaldast á síðastliðnum 20 árum. Með sama áframhaldi er gert ráð fyrir að umsvifin tvöfaldist á næstu 9-14 árum. Það þykir því afar aðkal- landi að ráða hið snarasta bót á ástandi flugstjórnarmála í álf- unni. Mest eru vandræðin á hin- um þéttbýla þríhyrningi sem af- markast af London, Frankfurt og París. Ástandið bitnar á farþegum og flugfélögum. í fyrra voru flug- að ný spillingarmál gætu skaðað stjórnina. Chirac var kjörinn til sjö ára 1995 og honum er ætlað að halda sig utan við flokkapólitíkina, þótt forset- ar landsins hafí oft reynt að beita áhrifum sínum til að styrkja stöðu bandamanna sinna í þingkosningum. Hann tekur þó áhættu með því að lýsa yfir stuðningi við stjórnarflokk- ana því staða hans gæti orðið veik næstu fimm árin ef kjósendur hunsa áskoranir hans og andstæðingar hans komast til valda. Franska vikublaðið L’Evenement du Jeudi birti í gær skoðanakönnun sem bendir til þess að 55% Frakka telji að Chirac ætti ekki að segja af sér ef vinstriflokkarnir færu með sigur af hólmi. 33% aðspurðra sögð- ust vilja að hann færi frá ef stjórn- arflokkarnir byðu ósigur. seinkanir 50% fleiri en tveimur árum áður. Næstum því fimmtu hverri flugvél, eða 18,5%, seink- aði um meira en 15 mínútur, sam- kvæmt upplýsingum AEA. Útreikningar Flugmálastofn- unar Evrópu (ECAC) benda til þess að seinkanirnar kosti evr- ópsku flugfélögin um 100 millj- arða króna á ári og er þá álits- hnekkir, sem flugfélögin bíða í augum notendanna, ekki metinn til fjár. Enginn hefur reynt að meta Ijón farþega af seinkunun- um en þaðjiemur milljónum klukkustunda þegar á heildina er litið. „Vandinn er ekki sá að Ioft- rýmið sé yfirfullt af flugvélum, heldur sá að umferðarstjórnin er óskilvirk," segir Neumeister í samtali við blaðið Aftenposten í Noregi. Að hans mati standa menn frammi fyrir því að annað hvort verður að stöðva frekari vöxt og viðgang flugsins, t.d. með ofursköttun og miðstýringu, eða stokka upp og stórbæta flug- sljórnarkerfið. 2.700 Alb- anir flutt- ir heim STJÓRNVÖLD á Ítalíu sögðu í gær að 2.712 albanskir flóttamenn hefðu verið sendir aftur til Albaníu, þar af 614 á síðustu 10 dögum. Þetta er tæpur fimmtungur allra þeirra Albana sem flúið hafa til Ítalíu frá því óeirðir ollu glundroða í Albaníu í mars. Italska þingið hefur samþykkt að leyfa Albönum að vera á Ítalíu í þijá mánuði hafi þeir haft gilda ástæðu til að flýja, en öðrum, SVo sem glæpa- mönnum og fólki sem sækist aðeins eftir betri lífskjörum, yrði vísað úr landi þegar í stað. Banda of hrumur fyrir réttarhöld DÓMSTÓLL í Malaví úr- skurðaði í gær að Kamuzu Banda, sem stjórnaði landinu með harðri hendi í þijá ára- tugi, væri of gamall og veikur til að geta komið fyrir rétt vegna ásakana um ijársvik. Dómstóllinn hafnaði réttar- höldum að sakborningnum fjarstöddum á þeirri forsendu að það bryti í bága við stjórn- arskrárbundinn rétt hans til sanngjarnra réttarhalda. Tal- ið er að Banda sé 96 ára gam- all. Heston vara- forseti NRA BANDARÍSKI leikarinn Charlton Heston var kjörinn varaforseti NRA, áhrifamik- illa samtaka bandarískra byssueigenda, á mánudag. Heston, sem er 72 ára, vann nauman sigur á Neal Knox, sitjandi varaforseta, sem tók þátt í harðri valdabaráttu inn- an stjórnar samtakanna undanfarnar vikur. Kinkel fer til Sarajevo KLAUS Kinkel, utanríkisráð- herra Þýskalands, fer til Sarajevo á morgun til að sam- hæfa áætlanir um að senda bosníska flóttamenn aftur til heimalandsins. Áætlanirnar hafa verið gagnrýndar fyrir að vera skipulagslausar, mót- sagnakenndar og stundum ómannúðlegar. Þjóðveijar tóku á móti 320.000 flótta- mönnum frá Bosníu vegna stríðsins 1992-95. Norðmenn selji hvalspikið HÆGRIMAÐURINN Svein Ludvigsen, formaður við- skiptanefndar norska þings- ins, sagði í gær að Norðmenn ættu að hefja útflutning á hvalspiki að nýju. Hvalveiði- vertíðin hófst í Noregi á föstu- dag og leyft verður að veiða 525 hrefnur. 400 tonn af óseldu hvalspiki frá sjðustu vertíðum eru enn í geymslum í Norður-Noregi. ■ JPéPL*- Reuter Fundur Weizmans og Arafats Osammála um niðurstöðuna Erez, Jerúsalem. Reuter. Umferðarteppa í háioftum Evrópu Fimmtu hverri þotu seink- arum a.m.k. 15 mínútur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.