Morgunblaðið - 07.05.1997, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVIK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kvittað fyrir
móttöku
handrita
SIÐASTA meginsending íslensku
handritanna kom með danska
varðskipinu Vædderen í gær. Kai
Rasch Larsen skipherra afhenti
Stefáni Karlssyni forstöðumanni
Árnastofnunar handritin og sést
sá síðarnefndi kvitta fyrir mót-
töku þeirra.
■ Grettis saga/21
— Tilrauna-
veiðum við
Falklands-
eyjar hætt
ENGEY RE 1 er hætt fískveiðum
við Falklandseyjar og er nú á leið-
inni til Islands. Þar með er til-
raunaveiðum íslenskra aðila við
eyjamar lokið, í bili a.m.k.
Utgerðin hófst um áramótin og
var fyrirtækið Island Fisheries
Holdings Ltd. stofnað um þær þar
_j»syðra. Að því standa Grandi hf.,
Kristján Guðmundsson hf. á Rifí,
JBG Falklands Ltd. og Sæblóm
ehf. Fyrirtækið keypti línuskipið
Tjald II SH 370 og leigði frysti-
togarann Engey RE 1 til verkefn-
isins. Tjaldur var notaður til veiða
á djúpsjávarfíski en væntingar
manna um aflabrögð gengu ekki
eftir og var veiðum því hætt í
apríl og skipið selt til fyrri eiganda.
Engey stundaði smokkfískveiðar
við eyjarnar en þar hafa vonir
manna einnig brugðist og er skip-
ið nýhætt veiðum og lagt af stað
heim.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Granda hf. og stjómarformaður Is-
~7rland Fisheries Holdings Ltd., seg-
ir að kannað verði gaumgæfílega
hvort rétt sé að hefja veiðar við
Falklandseyjar að nýju. Verði nið-
urstaðan sú hefjist þær þó ekki
fyrr en í byrjun næsta árs.
Stærðfræði-
prdfið birt
í heild
SAMRÆMDA prófíð í stærðfræði,
sem mjög hefur verið rætt um að
undanfómu, er birt í heild í
Morgunblaðinu í dag. Réttar
lausnir við prófínu verða birtar í
blaðinu á næstunni.
■ Samræmt lokapróf/26-27
Unnið að samningum lánardrottna um yfírtöku eigna Fáfnis
Stefnt að því að
rekstur geti hafist
STJÓRN Byggðastofnunar veitti í
gær forstjóra stofnunarinnar um-
boð til að semja við stærstu lán-
ardrottna Fáfnis hf. á Þingeyri
um að leysa til sín frystihús, fiski-
mjölsverksmiðju og fleiri eignir
íyrirtækisins.
Tilgangurinn er að halda eign-
unum saman og selja þær eða
leigja til þess að fiskvinnsla geti
hafíst þar af alvöru á nýjan leik en
nú era níu mánuðir frá því vinnsl-
an stöðvaðist.
Fyrir stjóm Byggðastofnunar
vora lögð drög að samkomulagi
lánardrottna um yfirtöku eigna
Fáfnis hf. Unnið er að samningum
lánardrottna um yfírtöku frysti-
húss Fáfnis og fleiri eigna en eft-
ir er að semja innbyrðis og við
stjórn Fáfnis. Sigurður Kristjáns-
son, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Dýrfirðinga og framkvæmdastjóri
Fáfnis, segir að viðbrögð stjórnar
Fáfnis fari eftir efni tilboðs
Byggðastofnunar, þau verði já-
kvæð ef fyrirtækið komist sóma-
samlega frá málinu.
78 manns atvinnulausir
í gær var 71 íbúi Þingeyrar
skráður atvinnulaus, samkvæmt
upplýsingum Bergþóru Annas-
dóttur á skrifstofu Isafjarðarbæj-
ar á Þingeyri, og sjö til viðbótar
voru að ljúka tímabundnum störfí
um við fískpökkun hjá Fáfni. I
dag eru því 78 atvinnulausir en í
allan vetur hafa 68-78 íbúar stað-
arins verið atvinnulausir.
■ Þungbær bið/30
Morgunblaðið/RAX
Deilt á
vikursölu
Aðal-
verktaka
ÍSLENSKIR Aðalverktakar voru
harðlega gagnrýndir á Alþingi í gær
vegna meintra óeðlilegra undirboða
á vikri á Þýskalandsmarkaði.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra og nokkrir þingmenn Sunn-
lendinga sögðu fyrirtækið hafa beitt
því fyrir sig á óeðlilegan hátt að rík-
ið væri meirihlutaeigandi í fyrirtæk-
inu til að vinna traust kaupenda.
Með þessum aðferðum hefði það
reynt að sölsa undir sig markaðinn
úr höndum tveggja íyrirtækja, Jarð-
efnaiðnaðar hf. og Vikurvara hf. sem
vinna vikur á Heklusvæðinu.
Dótturfyrirtæki íslenskra aðal-
verktaka, Lava hf., hyggst vinna vik-
ur á Snæfellsnesi en hefm' enn ekki
fengið úthlutað vinnsluleyfi. Iðnað-
an-áðheiTa sagði að utanríkisráð-
herra hefði þegar séð ástæðu til að
gera athugasemdir við markaðs-
starfsemi Lava hf. í Þýskalandi, en
hún er í höndum fyrirtækisins GER,
sem er í eigu Lava og Armannsfells.
Stefán Friðfinnsson, forstjóri ís-
lenskra aðalverktaka, sagði í gær-
kvöldi að það væri fyrirtækið Nes-
vikur, sem væri að selja birgðir af
vikiá og væri ekki með neina náma-
vinnslu á sínum vegum sem stendur.
Verðið sem fengist fyrir vikur nú
væri hærra en fengist hefði í fyrra
og gæði vikurs Nesvikurs og Heklu-
vikurs væra ekki sambærileg.
■ Óeðlileg/6
♦ ♦ ♦
Sandi mok-
að úr Vík-
artindi
UNNIÐ var að því í gær að moka
sandi úr einni lest Víkartinds með
beltagröfu. Neðst í lestinni eru 18
sfðustu gámarnir sem enn eru í
skipinu og þegar sandurinn hefur
verið hreinsaður ofan af verða
gámarnir hífðir í land. Skipið er
rækilega skorðað og allt að 10
metra breið sandfjara hefur
myndast við stjórnborðshlið þess.
Samkomulag um innlimun Schengen í Evrópusambandið í augsýn
Gert ráð fyrir njgum við-
ræðum við Island og Noreg
SAMNINGAMENN á ríkjaráðstefnu Evrópu-
sambandsins hafa færzt nær samkomulagi um að
Schengen-samningurinn um afnám vegabréfaeft-
irlits á landamærum verði innlimaður í stofnsátt-
mála ESB. í tillögu Hollands um þetta efni, sem
rædd var á samningafundi í Brassel í gærmorg-
un, er gert ráð fyrir að teknar verði upp viðræð-
ur við Island og Noreg um gerð sérstaks sam-
komulags um aðild landanna að breyttu Schengen-
samstarfi. Gert er ráð fyrir að áfram verði byggt
á samstarfssamningunum, sem ísland og Noreg-
ur gerðu við Schengen-ríkin í desember síðastliðn-
um.
í tillögu Hollands, sem nú fer með forystu í
ESB, er gert ráð fyrir að Bretland og írland verði
undanþegin ákvæðum um vegabréfasamstarf, í
samræmi við væntanleg samningsákvæði um
„sveigjanlega samrunaþróun“. Reuters-fréttastof-
an hefur eftir embættismönnum í Brussel að Doug
Henderson, nýr Evrópumálaráðherra Bretlands,
hafi greint frá því að Bretar muni láta af andstöðu
sinni við innlimun Schengen í ESB.
Samkomulag innihaldi ákvæði
um fjárhagslegt framlag
I formála hollenzku tillögunnar, sem Morgun-
blaðið hefur undir höndum, segir að taka verði til-
lit til þess að æskilegt sé að koma á „sérstöku
sambandi" við ísland og Noreg, en bæði ríkin séu
reiðubúin til að taka á sig skuldbindingar
Schengen-samstarfsins og hafi undirritað sam-
starfssamninga þar um í desember síðastliðnum.
Þá segir í drögum þeim að samningstexta, sem
er að finna í tillögunni, að ísland og Noregur skuli
hafa aukaaðild að framkvæmd reglna Schengen og
frekari þróun þeirra. Ráðherraráð ESB skuli gera
við ísland og Noreg sérstakt samkomulag um
„viðeigandi ráðstafanir“ í því skyni og byggja þar
á samstarfssamningunum. Þessir samningar eru
taldir upp í viðauka við tillöguna sem hluti af
reglusafni Schengen. Tekið er fram að samkomu-
lagið skuli innihalda ákvæði um fjárhagslegt fram-
lag Islands og Noregs til breytts Schengen-sam-
starfs. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
getur innlimun Schengen í ESB þýtt lægri
greiðslur Islands til samstarfsins en ella, þar sem
í ESB eru framlög aðildarríkja miðuð við virðis-
aukaskattstofn í viðkomandi ríki, en í núverandi
Schengen-samstarfí greiða öll aðildarríki svipaða
upphæð.
Ekki er ljóst af texta tillögunnar hvort
Schengen-samstarfið muni að hluta eða öllu leyti
falla undir svokallaða fyrstu stoð Evrópusam-
bandsins og þar með lögsögu yfirþjóðlegra stofn-
ana ESB, t.d. framkvæmdastjórnarinnar, Evrópu-
þingsins og dómstólsins. Yerði það raunin er talið
að erfiðara verði fyrir Island og Noreg að sætta
sig við innlimun samstarfsins í ESB en ef það
verður áfram hefðbundið milliríkjasamstarf í
þriðju stoð sambandsins.