Morgunblaðið - 14.05.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 9
Maí-dagar
14. maí -17. maí.
í Sissu tískuhúsi
mið.-fim.-fös.-lau.
^,
I Utskriftardragtir
frá Mille K. í fyrsta
1 skipti á íslandi. ,
Dagskrá:
Húsið opnað kl. 19:00.
Guðmundur Hallvarðsson,
formaður sjómannadagsráðs,
setur hófið.
Kyrmnir kvöldsins verður:
Þorgeir Ástvaldsson.
Fjöldi glæsilegra
skemmtiatríða:
Kvöldverðartónar:
Haukur Heiðar Ingólfsson.
Söngsystur.
Braggablús: Glæsileg söngbók
Magnúsar Eiríkssonar.
Stórhljómsveit Gurmars
Þórðarsonar.
Sniglabandið
leikurfyrir dansi til kl. 03:00.
Verð: Kr. 4.900 fyrir manninn.
jtíatseSill
XarrýlöguS austurlensk fiskisúpa.
Jieilstdktur lambavöcivi
meðjylltum jarðeplum, smjörsteiktu
gmnmeti. otj Madeira piparsósu.
SúkklaMjúpud pera og sérrí-ís.
Songsystur
"sr
♦ r
t Söngvararnir í Braggablús
Sniglabandið
MIÐASALA OG
BORÐAPANTANIR
ALLA DAGA
KL. 13-17.
SÍMI 568 7111.
HQTEL IfflMD
FRÉTTIR
UOcOJUe,
Ný sending
Strets gallabuxur. Margir litir.
J2r
u v e r s 1 u n
Rauðarárstíg 1, sími 561-5077
ísland hefur ekki lokið lögfestingu 64 tilskipana ESB
83,7% tilskipana lög-
leidd á fullnægjandi hátt
ÍSLAND hefur ekki sett í lög með
fullnægjandi hætti sextíu og fjórar
tilskipanir Evrópusambandsins,
sem tekið hafa gildi hér á landi
samkvæmt samningnum um Evr-
ópskt efnahagssvæði. Þetta kemur
fram í ársskýrslu Eftirlitsstofnunar
EFTA (ESA) fyrir árið 1996. ís-
lenzk stjórnvöld standa sig heldur
verr en norsk í lögfestingu EES-
gerða.
í ársskýrslu ESA kemur fram
að ísland hafi lögfest að fullu 83,7%
af þeim tilskipunum, sem því ber
samkvæmt EES-samningnum.
Þetta hlutfall er 89,9% í Noregi og
79,3% í Liechtenstein. Á það ber
að líta að Liectenstein varð ekki
aðili að EES fyrr en 1. maí 1995
en samningurinn tók gildi í byijun
árs 1994.
Sé hins vegar litið á hlutfall
þeirra tilskipana, sem hafa verið
lögfestar a.m.k. að hluta, er það
96,7% á íslandi, 97,1% í Noregi
og 95,1% í Lieehtenstein. í þessum
tölum eru teknar með tilskipanir,
sem t.d. hafa verið sett lög um,
en setningu reglugerða er ekki lok-
ið.
Rökstuddu áliti vegna þriggja
tilskipana enn ósvarað
Miðað við stöðuna um síðustu
áramót hefur ísland ekki lögleitt
33 tilskipanir ESB og 31 tilskipun
til viðbótar hefur ekki verið lögfest
með fullnægjandi hætti. Oftast
vantar þá reglugerðir með viðkom-
andi löggjöf. ESA hefur sent ís-
landi óformlegar athugasemdir
vegna 17 af tilskipununum, sem
um ræðir, formlega tilkynningu
vegna 33 tilskipana og rökstutt álit
vegna þriggja.
Rökstutt álit er efsta stig athuga-
semda stofnunarinnar og bregðist
aðildarríki ekki við slíku áliti er við-
komandi mál sent til EFTA-dóm-
stólsins. Slíku áliti er ósvarað í
tveimur málum; annars vegar
vegna tveggja tilskipana um erfða-
breyttar örverur og hins vegar
vegna tilskipunar um upplýsinga-
skyldu atvinnurekenda.
Úrbætur á næstu dögum og
vikum
Magnús Jóhannesson, ráðuneyt-
isstjóri í umhverfisráðuneytinu,
segir að lög hafi verið sett um nýt-
ingu erfðabreyttra öivera, en reglu-
gerðina vanti. Sérstök ráðgjafar-
nefnd hafi verið sett á laggirnar
samkvæmt lögunum og megi búast
við að hún ljúki umfjöllun um drög
að reglugerð á næstu dögum.
í upplýsingaskyldu atvinnurek-
enda felst að vinnuveitanda er skylt,
er hann ræður mann í vinnu, að
skýra honum frá samningsskilmál-
um og ráðningarfyrirkomulagi. Sig-
ríður Lillý Baldursdóttir, skrifstofu-
stjóri í félagsmálaráðuneytinu, seg-
ir að sá kostur hafi verið tekinn
fyrir þremur árum að beina þeim
tilmælum til aðila vinnumarkaðar-
ins að þeir semji um þetta atriði
sín á milli, en slíkt er heimilt sam-
kvæmt tilskipuninni. Fyrsti kjara-
samningurinn með ákvæðum þessa
efnis hafi verið undirritaður 10.
apríl í fyrra og síðan hafi félög og
samtök á vinnumarkaði bætzt við
eitt af öðru. Fáeinir aðilar eigi eftir
að ganga frá samningum um upp-
lýsingaskylduna. Sigríður Lillý seg-
ist gera ráð fyrir að málinu ljúki á
næstu vikum.
20% afsláttur
fram að helgi.
Fimmtud. 15. maí
opið til kl. 22.00.
tí&kuhú&\
Hverfiegötu 52, eími 5625110
ENDURSKIPULAGNING SPARISKÍRTEINA RÍKISSJOÐS
TILKYNNINB TIL ÞEIRRA SEM EIGA SPARISKIRTEINI
í GULU OG RAUÐU FLOKKUNUM
Þeir sem enn eiga eftir að skipta gömlu spariskírteinunum yfir í markflokka eru hvattir til
að gera það sem fyrst og tryggja sér þannig markflokka til 5 eða 8 ára á markaðskjörum.
Nú þegar hafa fjölmargir skipt yfir í markflokka í tengslum við endurskipulagningu spariskírteina
sem kynnt hefur verið að undanförnu.
MARKFLOKKAR njóta daglegrar viðskiptavaktar, sem
tryggir bestu fáanlegu markaðskjör fyrir kaupendur
og seljendur skírteinanna á hverjum tíma.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
Hér til hliðar er tafla yfir hluta þeirra flokka
spariskírteina, sem nú eru til endurfjármögnunar
í markflokka, en þessir flokkar koma til lokainnlausnar
á næstu mánuðum.
Komdu með gömlu skírteinin til Lánasýslu ríkisins
og við aðstoðum þig við skiptin. Það borgar sig að
skipta strax yfir í MARKFLOKKA.
Eftirfarandi gulir og rauðir flokkar spariskírteina
koma til lokainnlausnar á næstu mánuðum:
Lokagjalddagi Flokkur
1 12.05.1997 SP1984 III
|Wá 01. 07. 1997 SP1986 II4A
10. 07. 1997 SP1989 II8Ð
10. 07. 1997 SP1985 IA
10. 07. 1997 SP1985 1B
10. 07. 1997 SP1986 I3A
1 10.07.1997 SP1987 I2A
10. 07. 1997 SP1987 I4A
10. 09. 1997 SP1977 II
10. 10. 1997 SP1987 II6A
UTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ASKRIFT
VJS / XIQJ 1103