Morgunblaðið - 14.05.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 11
FRÉTTIR
Frumvarp undirbúið um breytingu á lögum frá 1928 um friðun Þingvalla
Afsláttur
Gísla Einarssyni oddvita Bisk-
upstungnahrepps fínnst tillaga Þing-
vallanefndar ótímabær og á skakk
og skjön við aðra vinnu. „Skipulags-
tillögu um miðhálendi Islands er ein-
mitt verið að leggja fram og í henni
er gert ráð fyrir vatnsverndarsvæði
sunnan og vestan í Langjökli," segir
Gísli.
„Það var eins og Þingvallanefnd-
armenn vissu ekki um vinnuna á bak
við skipulag miðhálendisins og því
kom tillaga þeirra um að leggja veru-
legan hluta Þingvallasveitar, Gríms-
nesshrepps, Laugadalshrepps og
Biskupstungna undir Þingvallanefnd
verulega á óvart. Það fellur ekki í
góðan jarðveg.
Tillögurnar um stjórnsýslu á há-
lendinu og skipulag miðhálendis
gera ráð fyrir að sveitarfélögin fari
með stjórnsýsluna, eins og bygg-
ingamálefni og leyfisveitingar. Málið
yrði því flóknara ef eitt stjórnsýslu-
stigið enn, sem væri Þingvalianefnd,
bættist við,“ segir Gísli sem á sæti
í hálendisnefndinni.
Efni fundarins, sem haldinn var
7. apríl, kom flatt upp á marga, að
sögn Gísla, en niðurstaðan var að
staldra við og bíða eftir frumvarpinu
um skipulag miðhálendisins. Sátt var
um að fara sér hægt.
Böðvar Pálsson oddviti Gríms-
nesshrepps segir að margar spurn-
ingar vakni vegna friðlýsingar
vatnasviðs Þingvallavatns, ef það
svæði falli að mestu leyti undir þjóð-
garðinn e.t.v. frá Grafningi og norð-
ur, meðal annars um réttinn til bygg-
inga og framkvæmda, en einnig um
landareign, þótt ríkið eigi flestar
jarðirnar.
Grímsnesingar hafa undir höndum
101 árs gamalt konungsbréf um yfir-
ráð sín yfir Skjaldbreiði, en þeir létu
Kaldárhöfða í skiptum fyrir hana.
„Mér finnst að Þingvallanefnd ætti
að hafa íjárráð og taka lönd eign-
Sátt um frið-
un en áhöld
um stjórn
Friðlýsing vatnasviðs Þingvallavatns upp á
Langjökul snertir stjórnsýslu í fjórum sveitar-
félögum. Gunnar Hersveinn ræddi við fram-
kvæmdastjóra Þingvallanefndar og oddvita
hreppanna um friðunartillöguna.
ÞINGVALLANEFND hefur kynnt
hreppsnefnd Þingvallahrepps, og
oddvitum Grímsness-, Laugardals-,
Biskupstungna- og Grafningshrepps
drög að reglum um verndun vatna-
sviðs Þingvallavatns. Sigurður Odds-
son framkvæmdastjóri nefndarinnar
segir að ætlunin sé að ræða áfram
hvar línurnar verði dregnar og stærð
þjóðgarðsins við heimamenn.
„Tillagan er að friða svæðið frá
suðurhluta Þingvallavatns, og þaðan
til norðurs og upp í Langjökul," seg-
ir Sigurður Oddsson. „En nýjar bor-
anir austan Kálfstinda sem gerðar
voru á síðasta ári sýndu að vatna-
svið Þingvallavatns nær lengra aust-
ur en áður var talið.“
Tryggva Gunnarssyni lögfræðingi
hefur verið falið af Þingvallanefnd
að semja frumvarp um breytingu á
lögum frá 1928 um friðun Þingvalla.
I vor eru fyrirhugaðar boranir á
Langjökli til að kanna frekar streymi
grunnvatns frá jöklinum niður í
Þingvallavatn.
Beðið verður eftir þeim niðurstöð-
um og lína vatnasviðsins svo dregin
frá Hlöðufelli í samræmi við það
norður upp í jökulinn. „Þegar laga-
textinn verður tilbúinn mun Þing-
vallanefnd kynna málið nánar," seg-
ir Sigurður.
Ótímabær tillaga vegna
frumvarps um miðhálendið
arnárni," segir Böðvar. „í hugum
manna eru afréttimir hluti af sveitar-
félaginu, þótt við þurfum ekki að
nýta þá til beitar, og margir óttast
því að við töpum landinu." Böðvar
segir að ekki megi veikja byggðina
og leggur til að bændur í kringum
Þingvallavatn verði gerðir að land-
vörðum í kjölfar friðunarinnar.
Ragnar Jónsson oddviti Þingvalla-
hrepps segir að friðlýsing vatnasviðs
Þingvalla hefði átt að vera á svæðis-
skipulagi hreppana frá 1996 en sam-
komulag ekki náðst um hana.
Mestallur Þingvallahreppur er á
vatnasviði Þmgvallavatns, og segir
Ragnar að sveitarstjórnin yrði eins
og óþörf ef sækja þyrfti um leyfi til
Þingvallanefndar fyrir öllum fram-
aldraðra
í flugií
uppnámi
ÓLAFUR Jónsson, formaður Lands-
sambands aldraðra, segir að Flugleið-
ir séu hættar að framkvæma samning
við sambandið sem meðal annars fól
í sér 20% afslátt til félagsmanna af
flugferðum til borga í Evrópu þar sem
Flugleiðir hafa áætlanir auk 10%
afsláttar af flugi til Bandaríkjanna.
Ólafur segir að láðst hafí að ganga
eftir því að endurnýja samninginn við
Flugleiðir, sem rann út 1. maí sl., en
sér hefði þótt skemmtilegra að vita
að til stæði að slíta samningnum.
Nærri 13.000 manns eru í 45 fé-
lögum aldraðra innan Landssam-
bandsins. „Við munum leita eftir því
að samningurinn verði tekinn upp á
ný. Eg fæ líklega viðtal við yfirmenn
hjá Flugíeiðum í næstu viku um þetta
mál. Við erum með landsfund um
næstu mánaðamót og ég hef verið í
miklum önnum undanfarið að und-
irbúa hann. Það er kannski ástæðan
fyrir því að ég hef vanrækt að ganga
eftir því að samningurinn við Flug-
leiðir yrði endurnýjaður,“ sagði Ólaf-
ur.
Hann segir að félagsmenn hafi
notfært sér þennan afslátt með flugi
Flugleiða. „Einkum verð ég var við
að eldra fólk sem á afkomendur í
námi í Evrópu hefur nýtt sér afslátt-
inn þegar það heimsækir sitt fólk.
Okkur hefur þótt mjög gott að hafa
þennan afslátt," sagði Ólafur.
í tilefni 5 ára afmælis Hyundai á íslandi, höfum
við undanfarið selt Hyundai Elantra með
||verulegum afmælisafslætti.
Hafið samband sem fyrst og tryggiö ykkur fallegan
bíl á góðu verði.
Það eru örfáir bílar eftir.
Elantra Wagon, skutbíllinn í Hyundai fjölskyldunni.
ÆJbzMldt>ZjúL
Vél: • 1.6 lítra rúmmál
• 16 ventla
• tölvustýrð innspýting
• 116hestöfl
Ríkulegur staðalbúnaður ÁRMÚLA 13, REYKJAVÍK, SÍMI: 568 1200 - BEINN SÍMI: 553 1236
<@>
HYUnDRI
til framtíðar
Tillaga að vatnavernd
við Þingvallavatn
LANGJÖKULL
Botnsheiði
Hv«l£örSur
KjÖlur
Botnssúlur
g
r-»
, i Búrfell
\
r>*
Reyðarvatn /
/
iTr/.
fKvícindis-
/ reil
/
SUIUJ j
Skjaldbreiður
Árraanns-
fell
HlöðufeU
f/
/* |
/
Haga-
vatn
Miðdals
TILLAGA Þingvallanefndar um friðlýsingu vatnasviðs. Þjóð-
garðurinn gæti byrjað við Grafning og þaðan norður.
kvæmdum. „Það kom ekki skýrt fram
hjá nefndinni," sagði Ragnar, ,hvern-
ig hlutverk hennar yrði skilgreint í
nýjum lögum, hversu víðtækt það
yrði eða hvort það myndi ef til vill
stangast á við sveitarstjórnarlögin."
Þórir Þorgeirsson oddviti Laug-
ardalshrepps reiknar með að skiptar
skoðanir verði meðal heimamanna
um tillögu Þingvallanefndar. „Hins-
vegar líst mér persónulega vel á
hana,“ segir hann, „ég tel að svæðið
verði í öruggum höndum Þingvalla-
nefndar."