Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Slysavarnaátak Slysavarnafélags Islands, Landhelgisgæslunnar og Pósts og síma
Morgunblaðið/Þorkell
HALLDÓR Almarsson, yfirleiðbeinandi í Slysavarnaskóla sjó-
manna, sýnir réttu handtökin við að klæða sig í björgunarvestið.
Allir í
björg-
unar-
vestin!
ÞAÐ er lífsnauðsynlegt að nota
björgunarvesti þegar farið er út
á bát - og það er ekki síður líf-
snauðsynlegt að þau séu í góðu
lagi og fólk noti þau rétt. Al-
menningi gefst kostur á að koma
með björgunarvesti sín til skoð-
unar i 29 sundlaugum víða um
land í kvöld milli kl. 18 og 21,
þar sem björgunarsveitamenn og
slysavarnafólk frá Slysavarnafé-
lagi íslands munu gefa góð ráð
og leiðbeina um rétta notkun
vestanna. Einnig verður fólki
boðið að prófa vestin í sundlaug-
unum og sérstakir sundjakkar
fyrir börn verða kynntir. Ókeyp-
is er í sundlaugarnar á þessum
tíma fyrir þá sem koma með
björgunarvesti til skoðunar.
Á fréttamannafundi sem hald-
inn var um borð í skólaskipinu
Sæbjörgu í gær kynntu kennarar
Slysavarnaskóla sjómanna rétta
notkun björgunarvesta og for-
svarsmenn Slysavarnafélags Is-
lands sögðu frá átakinu „Skoðum
björgunarvestin", sem er sameig-
inlegt slysavarnaátak SVFI,
Landhelgisgæslunnar og Pósts
og síma, en yfirstjórn leitar og
björgunar á hafinu og við strend-
ur landsins er í höndum þeirra.
Tilgangur átaksins er að sögn
Gunnars Tómassonar, forseta
Slysavarnafélags Islands, að
vekja athygli almennings á mikil-
vægi björgunarvesta og réttri
notkun þeirra, auk þess að minna
á að reglulega þarf að kanna
hvort flot vestanna virkar eins
og til er ætlast. Reglan er ein-
föld; hver sá sem fer út á sjó eða
vatn á að vera í björgunarvesti
og hann á að nota það rétt. Sama
hversu gott veðrið er þegar farið
er af stað, þá ber undantekning-
arlaust að virða þessa reglu, því
að aðstæður geta breyst fyrr en
varir og slysin gera ekki boð á
undan sér.
Björgunarvestin seldust upp
Þetta er í annað sinn sem átak
á borð við þetta er gert. Það fór
af stað sem tilraunaverkefni á
fimm stöðum á landinu í júlí á
síðasta sumri. Viðtökurnar voru
að sögn Gunnars svo góðar að
öll björgunarvesti í landinu seld-
ust upp í kjölfarið. Kvaðst hann
gera ráð fyrir að seljendur væru
við öllu búnir nú og hefðu birgt,
sig vel upp af vestum.
Að mörgu er að hyggja þegar
farið er í björgunarvesti. Á því
eru oftast nær margar ólar og
smellur sem festa þarf eftir
kúnstarinnar reglum. Halldór
Almarsson, yfirleiðbeinandi í
Slysavarnaskóla sjómanna, sýndi
fréttamönnum réttu handtökin
og brýndi fyrir þeim að rennilás-
ar yrðu að vera í lagi, ólar óslitn-
ar og saumar heilir. Þá þyrftu
vesti að hæfa stærð notenda en
þau fást í ýmsum stærðum. Vest-
unum verður að halda hreinum
en sem dæmi má nefna að oliu-
blettir eyðileggja efnið í þeim og
floteiginleika þeirra. Halldór
sagði mikilvægt að allar ólar
væru spenntar, þar með talin
svokölluð klofól, sem á að koma
í veg fyrir að maður detti niður
úr vestinu, t.d. við hátt fall niður
í sjó.
Björgunarvesti jafnsjálfsagt
öryggistæki og bílbelti
Esther Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri SVFÍ, sagði að í
raun ætti það að vera jafnsjálf-
sagður hlutur að klæða sig í
björgunarvesti og að spenna á
sig bílbelti. Hún benti á að mörg-
um hefði þótt bílbeltin óþægileg
í fyrstu en nú þætti flestum sjálf-
sagt að nota þau.
Einnig kom fram á fundinum
að viða um land hefðu slysa-
varnadeildir komið fyrir björg-
unarvestum við bryggjur og væri
það mikið öryggisatriði fyrir
börn sem gjarnan una sér löng-
um stundum á bryggjunni og
dorga.
Ókeypis í sund fyrir þá sem
koma með vesti
Boðið verður upp á skoðun á
björgunarvestum í sundlaugum á
eftirtöldum stöðum í kvöld kl.
18 til 21: Borgarnesi, Húsafelli í
Hálsahreppi, Grundarfirði,
Stykkishólmi, Patreksfirði, Þing-
eyri, Flateyri, Bolungarvík,
ísafirði, Sauðárkróki, Siglufirði,
Olafsfirði, Dalvík, Akureyri,
Húsavík, Egilsstöðum, Neskaup-
stað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði,
Höfn, Vestmannaeyjum, Selfossi,
Reykholti í Biskupstungum,
Grindavík, Sandgerði, Garði,
Mosfellsbæ og Laugardalslaug-
inni í Reykjavík. Allir þeir sem
koma á ofantalda sundstaði í
kvöld með björgunarvesti til
skoðunar fá frítt í sund.
Frysti-
húsa- og-
bygging-
arvinna
hættulítil
FÉLAGSMÁLANEFND Alþingis
leggur til nokkrar breytingar á frum-
varpi félagsmálaráðherra um aðbún-
að, hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stöðum en með frumvarpinu á að
lögfesta tilskipun Evrópusambands-
ins_ um vinnu barna og unglinga.
í nefndaráliti félagsmálanefndar
er tekið sérstaklega fram að ákvæði
frumvarpsins, sem kveður á um að
óheimilt sé að ráða ungmenni til
vinnu sem stofnað geti heilsu þeirra
í hættu vegna mikils kulda, hita,
hávaða eða titrings, skuli skýrð svo
að t.d. öll aimenn vinna ungmenna
í frystihúsum og byggingarvinna
geti ekki talist vinna sem felur í sér
hættu fyrir heilsu ungmenna. Er
lagt til að orðalagi ákvæðisins verði
breytt þannig að óheimilt sé að ráða
ungmenni til vinnu sem felur í sér
hættu fyrir heilsu þeirra vegna
óvenju mikils kulda, hita, hávaða eða
titrings.
Gerðu fyrirvara
Sex af níu nefndarmönnum, úr
stjórnarflokkunum og stjórnarand-
stöðu, skrifa undir nefndarálitið með
fyrirvara. Við aðra umræðu um
frumvarpið sl. mánudag kom fram
að einn nefndarmanna, Magnús
Stefánsson Framsóknarflokki, taldi
hættu á að með Iögfestingu frum-
varpsins yrðu lagðar of miklar höml-
ur gegn nauðsynlegri atvinnuþátt-
töku barna og ungmenna, sem væri
þeim nauðsynleg. Bryndís Hlöðvers-
dóttir, þingflokki Alþýðubandalags
og óháðra, og Rannveig Guðmunds-
dóttir, þingflokki jafnaðarmanna,
voru á öndverðri skoðun og gagn-
rýndu m.a. þann fyrirvara í nefnd-
arálitinu að almenn vinna í frystihús-
um og byggingarvinna gætu ekki
falið í sér hættu fyrir heilsu ung-
menna og töldu þær þann fyrirvara
ekki standast
Aukavagnar til
taks framvegis
Skemmdir unnar á strætisvögnum
eftir tónleika í Laugardalshöll
UNGLINGAR fylltu vagna
Strætisvagna Reykjavíkur að
loknum tónleikum rokksveitar-
innar Skunk Anansie í Laugar-
dalshöll sl. laugardagskvöld.
Nokkur skemmdarverk voru
framin í vögnunum.
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri
SVR, segir að ekki hafi verið
gripið til aukavagna þar sem
láðst hafi að tilkynna SVR um
tónleikana.
Lilja sagðist skilja það að
menn gleymdu að tilkynna SVR
um tónleika sem þessa, en að
hún myndi óska eftir að það
yrði gert í framtíðinni. Laugar-
dalshöll hafi verið þéttsetin ungu
fólki og sumir nokkuð hátt
stemmdir að tónleikunum lokn-
um. „Þarna streyma allir út úr
Laugardalshöll og allir vagnar
sem aka um Suðurlandsbraut
fyllastj" sagði hún. „Vagn sem
fór í Ártúnsstöð og í Grafarvog
fylltist alveg og þar var mikill
gleðskapur, en það sem gerðist
var að hann fór úr böndunum
hjá hópnum og þau rifu upp loftl-
úgu í þakinu án þess að vagn-
stjórinn yrði var við að hún færi
af. Þegar vagninn kom í Ártúns-
stöð áttaði vagnstjórinn sig á
þessu og hafði samband við lög-
regluna. Einhveijir sem voru í
vagninum sögðu að menn hefðu
verið komnir upp á þakið á með-
an vagninn var enn á ferð.“
Að sögn Ingvars Þórðarsonar,
eins tónleikahaldara, var sótt um
leyfi fyrir tónleikana til lögreglu
og voru þeir haldnir í samstarfi
við íþrótta- og tómstundaráð.
„Það má vera að einhverju megi
vísa á okkur og að við hefðum
átt að láta SVR vita en við gerð-
um ekki ráð fyrir öðru en að
þeir vissu um þessa tónleika jafn
mikið og þeir voru auglýstir,"
sagði hann.
Flestir til fyrirmyndar
Benti Ingvar á að 99% ungl-
inganna hefðu hagað sér mjög
vel og að þau sem sóttu tónleik-
ana í Laugardalshöll hafi hagað
sér óaðfinnanlega. Beðið stillt í
röð fyrir utan og að þrátt fyrir
mikla leit hafi fundist óvenju
lítið magn af áfengi. „Þau voru
til fyrirmyndar í allri hegðun
og gætu fullorðnir lært margt
af framkomu þeirra," sagði Ing-
var.
Fríhafnarverslun á Keflavíkurflugvelli rædd á Alþingi
Meira en hundrað
störf eru í hættu
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson,
Þingflokki jafnaðarmanna, segir að
50 af 130 starfsmönnum Flugstöðv-
ar Leifs Eiríkssonar verði sagt upp
störfum ef tillögur nefndar á vegum
utanríkisráðherra um einkavæðingu
hluta fríhafnarverslunarinnar ná
fram að ganga. Einnig séu störf
tollvarða í hættu ef vopnaleit verði
færð til einkaaðila.
Guðmundur gagnrýnir tillögur um
að verslunarsvæði Islensks markað-
ar verði minnkað um helming og
segir að það verði til þess að erlend-
ur varningur flæði yfir á kostnað
hins íslenska. Af þessum ástæðum
séu 50-60 störf í íslenskum iðnaði
í hættu. Þetta kom fram í utandag-
skrárumræðum á Alþingi í gær.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sakaði Guðmunda Árna um
að þyrla upp moldviðri til að skapa
óvissu meðal starfsfólks flugstöðvar-
innar. Stefnt væri að því að auka
umsvif verslunarinnar á Keflavíkur-
flugvelli sem myndi fjölga störfum.
Skuldir Flugstöðvarinnar næmu 4,3
milljörðum og hefðu aukist um 430
milljónir króna frá 1990. „Ef háttv-
irtur þingmaður heldur að það muni
tryggja störf til langframa að reka
þessa starfsemi með bullandi tapi
Pólitískt mold-
viðri, segja
stjórnarliðar
og skuldasöfnun, þá er það mikill
misskilningur." Hann líkti stefnu
Guðmundar Árna við ríkisrekstrar-
og þjóðnýtingarstefnu eins og hún
var í stefnuskrá Alþýðuflokks fyrir
60 árum.
Ráðherrann benti á að þeir sem
tækju á leigu verslunarsvæði sem
tekið yrði af Islenskum markaði væru
skyldaðir til að hafa íslenskar vörur
til helminga að minnsta kosti. Einnig
væri gert ráð fyrir að auka úrval af
íslenskum vörum, til dæmis sæl-
gæti, í Fríhöfninni.
Engin tekjuaukning við
einkavæðingu
Guðmundur Árni sagðist hafa litla
trú á því að einkavæðing hluta frí-
hafnarverslunar leiddi til tekjuaukn-
ingar, enda hefði Fríhöfnin verið
gullkista fyrir ríkissjóð og tekjur af
henni vaxið ár frá ári. Fleiri stjórnar-
andstöðuþingmenn úr Reykjanes-
kjördæmi tóícu undir álit hans._
Kristín Halldórsdóttir, Kvenna-
lista, gagnrýndi að ekki hefði verið
hugað að afleiðingum breytinganna
fyrir starfsmenn og að vakinn væri
hjá þeim uggur með óljósum hug-
myndum um breytingar.
Ögmundur Jónasson, Þingflokki
jafnaðarmanna, benti á að rekstur
fríhafnarverslunar hefði skilað ríkis-
sjóði miklum tekjum og einmitt af
þessum sökum vildi ríkisstjórnir.
einkavæða. „Af velgengni er pen-
ingalykt. Verslunarráðið finnur hana
og gerir þess vegna kröfu um að
milliliðum í Fríhöfninni verði fjölgað
svo það komist í gullkistuna."
Berlínarmúrinn í Leifsstöð
fallinn
Olafur Örn Haraldsson, Fram-
sóknarflokki, sagði að „Berlínarmúr-
inn“ væri fallinn í Flugstöðinni og
eðlilegu rekstrarumhverfi væri loks
komið á. Hann sakaði Guðmund
Árna um að reyna að koma pólitísku
höggi á utanríkisráðherra sem væri
að reyna að vinna tímamótaverk til
að bjarga Flugstöðinni.
Kristján Pálsson, Sjálfstæðis-
flokki, gagnrýndi að starfsmönnum
hefðu ekki verið kynntar hugmynd-
irnar fyrr og haft við þá samráð.