Morgunblaðið - 14.05.1997, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Flugleiðir
ogFN
atryja
ÁFRÝJAÐ hefur verið til áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála skilyrðum
sem samkeppnisráð setti vegna
samruna Flugfélags Norðurlands
og innanlandsflugs Flugleiða.
Forráðamenn Flugleiða og FN
ákváðu fyrir nokkru að áfrýja mál-
inu enda una þeir ekki ýmsum skil-
yrðum sem samkeppnisráð setti
fyrir samrunanum og rekstri Flug-
félags íslands. Voru það einkum
skilyrði um stjórnarsetu og breyt-
ingar á áætlunum sem þeim þóttu
erfið.
Undirbúningur hefur staðið frá
því fljótlega eftir að skilyrðin voru
birt félögunum fyrir mánuði. Áfrýj-
unarnefndin hefur sex vikur til að
komast að niðurstöðu. Ráðgert er
að Flugfélag íslands hefji starfsemi
1. júní.
Morgunblaðið/Þorkell
FJOLMENNI var á innkauparáðstefnu Ríkiskaupa og stjórnar opinberra
innkaupa á Hótel Loftleiðum í gær.
Innkauparáðstefna Ríkiskaupa og stjórnar opinberra innkaupa
Opinber innkaup námu
45,5 milljörðum 1996
Á RÚMLEGA tuttugu ára tímabili, eða frá olíu-
kreppuárinu 1973 til ársins 1996, jókst lands-
framleiðsla á íslandi á föstu verðlagi um 95%
en opinber starfsemi um 178%. Engin önnur
atvinnustarfsemi jókst viðlíka á þessu tímabili
nema umsvif oginberra veitustofnana sem juk-
ust um 190%. „Á sama tímabili jókst byggingar-
starfsemi um 4%, iðnaðarframleiðsla um 63%
og fiskiðnaður um 72%. Það skiptir okkur öll
miklu máli að opinber rekstur sé sem hagkvæm-
astur. Við getum haft á því mismunandi skoðan-
ir hvort þróun síðasta áratugar sé heppileg og
hvort við værum ekki betur sett í dag ef iðnaðar-
framleiðslan til dæmis hefði aukist um 180% en
opinber starfsemi um 60% en ekki öfugt. Það
er nefnilega þannig að verðmætasköpunin í fyrir-
tækjunum ræður mestu um það hversu mikið
við höfum til skiptanna."
Þetta kom fram í erindi Sveins Hannessonar,
framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, á inn-
kauparáðstefnu Ríkiskaupa og stjórnar opin-
berra innkaupa í gær á Hótel Loftleiðum.
Að sögn Sveins námu heildarinnkaup opin-
berra aðila hér á landi á vöru og þjónustu á
síðasta ári 45,5 milljörðum. Hlutur ríkisins var
þá 23,6 milljat'ðar eða tæp 48%. Hlutur sveitarfé-
laga var um 15,5 milijarðar en aðrir opinberir
aðilar keyptu inn fyrir u.þ.b. 9,6 milljarða.
„Landsframleiðslan á síðasta ári var um 486
milljarðar þannig að opinber innkaup hafa þá
numið 10,2% af landsframleiðslu."
Innlendir framleiðendur oft útilokaðir
Sveinn segir að oft hafi hagsmunir innlendra
framleiðenda ekki verið ofarlega á blaði við
' undirbúning og ákvarðanir um opinber innkaup.
Hann segir að oft hafi útboðsskilmálar, útboðs-
frestir og aðrir skilmálar, að þarflausu, oft útilok-
að innlenda framleiðendur frá því að bjóða sína
vöru og þjónustu. Nefndi Sveinn dæmi af útboð-
um Vegagerðar ríkisins á lagningu vega sem
að hans sögn er yfirleitt boðin út að vori og þá
mörg verk á stuttum tíma sem á að vera lokið
að hausti í stað þess að bjóða verkin fyrr út.
Auk þess tók Sveinn sem dæmi aðfangadeild
ÁTVR sem hefur umsjón með innkaupum á bjór.
„Ég fullyrði að þetta er best rekna heildsala á
landinu. Því hún þarf ekki nema 1,4% álagn-
ingu. Þessi heildsala sér síðan um að flytja inn
til landsins og dreifa bjór í samkeppni við inn-
lenda framleiðendur. Sökum stærðarinnar er
ÁTVR auðvitað með mun hagstæðari flutnings-
gjöld en innlendir framleiðendur. Þetta er, að
mínu mati að minnsta kosti, fráleit niðurrifsstarf-
semi. Ríkið ætti vitaskuld að kaupa bjór af heild-
sölum og innlendum framleiðendum á jafnréttis-
grundvelli. Það er víðast hvar þannig að innlend-
ir bjórframleiðendur eru allsráðandi á heima-
markaði sínum og ég held að minnkandi mark-
aðshlutdeild innlendra framleiðenda hér stafi
örugglega ekki síst af því að ríkið heldur áfram
þessari óþörfu starfsemi."
Fram kom í máii Sveins að innkaup opinberra
aðila séu dreifð og ósamræmd, þá sérstaklega
hjá sveitarfélögum. Sem að hans sögn eru illu
heilli á engan hátt bundin af útboðsstefnu ríkis-
ins. „Almennt má segja að það vanti mikið á
að fagmannlega sé staðið að innkaupum opin-
berra aðila sem vonlegt er þegar þessi mál eru
í höndum húsvarða, hreppstjóra og það sem
verst er, þegar skólanefndirnar með hönnuði í
broddi fylkingar standa fyrir innkaupum.
Opinberum innkaupum hefur ekki að neinu
ráði verið beitt í atvinnu- eða byggðastefnu.
Inngrip stjórnmálamanna hafa oftast verið af
því tagi að ákveða að taka skuli tilboði frá öðr-
um en lægstbjóðanda án rökstuðnings eða semja
um innkaup án útboðs. Slík inngrip hafa yfir-
leitt ekki byggst á öðru en klíkuskap til sveit-
unga, kjósenda, ættingja, vina eða samheija í
pólitík. Auðvitað getur þetta allt farið saman
og þá hefur sóðaskapurinn orðið umtalsverður.
Þessi inngrip eiga hins vegar ekkert skylt við
atvinnu- og byggðastefnu. Vinnubrögð af þessu
tagi mega gjarna víkja fyrir almennum reglum
til að tryggja eðlilega samkeppni," segir fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Morgunblaðið/Þorkell
JÚLÍUS S. Olafsson, forstjóri Ríkiskaupa og Einar Gylfason, fram-
kvæmdastjóri EG-skrifstofubúnaðar skrifuðu undir samninginn.
Samið um skrifstofubúnað
RÍKISKAUP og EG-skrifstofu-
búnaður ehf. hafa undirritað
rammasamning um kaup ríkis-
fyrirtækja á skrifstofu- og fund-
arhúsgögnum auk taflna. Ríkis-
kaup gerði samningin fyrir hönd
300 ríkisfyrirtækja og gildir
hann í tvö ár að því er segir í
fréttatiikynningu frá EG-skrif-
stofubúnaði.
EG-skrifstofubúnaður er eins
árs gamalt fyrirtæki sem leggur
áherslu á að þjóna fyrirtækjum
og stofnunum. Þjónustan felst í
að aðstoða kaupandann við val á
húsbúnaði, hann sé tilbúinn til
notkunar og skili notandanum
þægilegri vinnuaðstöðu, segir
ennfremur í fréttatilkynning-
unni.
Fyrirtæki kynnt er-
lendum fjárfestum
Erlendir fyrirlesarar leiðbeina
SEX íslensk hugbúnaðarfyrirtæki
eru þátttakendur í samstarfsverk-
efninu „Venture Market Iceland“
sem er ætlað til kynningar á ís-
landi og íslenskum fyrirtækjum
fyrir erlenda áhættufjárfesta.
Að verkefninu standa Útflutn-
ingsráð íslands, Fjárfestingar-
skrifstofa íslands, Iðnþróunar-
sjóður, Evrópusambandið OZ-Int-
eractive og íslensk verðbréfafyrir-
tæki. Að sögn Guðnýjar Káradótt-
ur, markaðsstjóra hjá Útflutn-
ingsráði og umsjónarmanns verk-
efnisins, verður hugbúnaðarfyrir-
tækjunum sex sem taka þátt,
Gagnalind, Hugbúnaði, Hug,
Hugviti, Margmiðlun og Netverki,
veitt aðstoð við gerð viðskiptaá-
ætlunar og fær hvert fyrirtæki
ráðunaut frá innlendum verð-
bréfafyrirtækjum sér til aðstoðar.
„Haldnir verða fimm vinnu-
fundir fram á haust þar sem er-
lendir fyrirlesarar sem eru sér-
fræðingar á sviði áhættufjár-
mögnunar og við gerð viðskipta-
áætlana fyrir hugbúnaðarfyrir-
tæki munu koma og leiðbeina ís-
lensku fyrirtækjunum.
5. september verður síðan hald-
ið fjárfestingarþing hér á landi
sem nefnist „Venture Market Ice-
land“. Þangað koma erlendir
áhættufjárfestar og íslenskum
fyrirtækjum verður gefinn kostur
á að kynna áætlanir sínar fyrir
þeim.“
Guðný segir að í nóvember muni
tvö til þrjú af fyrirtækjunum taka
þátt í INFINITE’97, sem er fjár-
festingarþing Evrópusambandsins,
í Brussel í nóvember nk. „En mark-
mið verkefnisins er að þijú fyrir-
tæki fái fulla fjármögnun áforma
sinna frá erlendum fjárfestum."
Innherja-
viðskipti
Vulkan
könnuð
Frankfurt. Reuter.
HAFIN er frumrannsókn
eftirlitsnefndar verðbréfavið-
skipta í Þýzkalandi, BAWe, á
meintum innheijaviðskiptum
með hlutabréf í hinni gjald-
þrota skipasmíðastöð Bremer
Vulkan AG.
BAWe gerir lítið úr frétt
blaðs um að nafngreindur
maður sæti rannsókn. „Við
getum ekki útilokað neitt á
þessu stigi, en rannsóknin er
á frumstigi," sagði talsmaður
BAWe, Júrgen Oberfrank.
„Of snemmt er að nefna
nöfn.“
Borgin Bremen ábyrgðist
flest lán Vulkans og hefur
átt mestan þátt í tilraunum
til að leysa vanda skipasmíða-
stöðvarinnar.
Nýr áhugivaknaði
Oberfrank sagði að rann-
sóknin tæki til tímabils fyrir
28. apríl þegar nokkur þýzk
blöð sögðu að tvö stórfyrir-
tæki - sem reyndust vera
Veba AG og stálframleiðand-
inn Thyssen AG - hefðu hug
á að kaupa Vulkan.
Fyrirtækin báru fréttina til
baka og það vakti nýjan
áhuga á hlutabréfum Vulk-
ans, sem enn er verzlað með
af því að fyrirtækið er ennþá
opinberlega skráð.
Gengi bréfa í Vulkan rúm-
lega þrefaldaðist í apríllok og
hækkaði úr 2,60 mörkum 23.
apríl í 9,90 mörk 28. apríl.
Nafnvirði hlutabréfanna er
50 mörk og þau seldust á
5,80 mörk 13. maí.
BAWe kannar sem stendur
skjöl um viðskipti í Bremer
Vulkan í april og hefur ekki
ákveðið hvort færa skuli
rannsóknina á næsta stig að
sögn Oberfranks. Þá yrði
haft beint samband við Bre-
mer Vulkan eða aðra ein-
staklinga tengda málinu að
hans sögn. Hann viðurkenndi
að líklega mundi flækja rann-
sóknina að í raun og veru er
fyrirtækið ekki lengur til sem
venjulegt fyrirtæki vegna
þess að það varð gjaldþrota
í maí 1996.
Hlutabréf
lækka um
1,6%
HLUTABRÉF héldu áfram
að lækka í verði í gær og
varð lækkun Þingvísitölu sú
mesta á einum degi frá ára-
mótum eða 1,6%. Mest lækk-
un varð á hlutabréfum í Þor-
móði ramma eða 9,6%, en
jafnframt lækkuðu bréf í
Síldarvinnslunni um 7% og
Islandsbanka um 6,8%.
Þessar verðhækkanir má
rekja til aukins framboðs
bréfa í kjölfar mikilla verð-
hækkana undanfarið og
minnkandi eftirspurnar.
Samtals voru seld bréf fyr-
ir um 85 milljónir á Verð-
bréfaþingi og Opna tilboðs-
markaðnuin í gær. Mesl við-
skipti urðu með bréf í íslands-
banka og Jarðborana, 10
milljónir í hvoru félagi.
peningamarkaður/