Morgunblaðið - 14.05.1997, Qupperneq 21
r
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ1997 21
ERLEIMT
Vildi
koma af
stað upp-
þoti
LYKILVITNIÐ í réttarhöldun-
um yfir Timothy McVeigh, sem
ákærður er fyrir mesta hryðju-
verk sem unnið hefur verið í
sögu Bandaríkjanna, greindi
réttinum frá því í fyrradag að
vinur hans fyrrverandi hefði
ætlað sér að koma af stað alls-
hetjaruppþoti með sprengjutil-
ræðinu í Oklahoma, sem varð
168 manns að bana. Að sögn
vitnisins, Michael Fortier, var
það sannfæring McVeighs að
allir embættismenn ríkisins
ættu dauðann skilið. Sumir
væru persónulega sekir en aðr-
ir þátttakendur í almættiskerfi
hins illa. Fortier hefur þegar
játað að hafa þekkt tii áætlana
um sprengjutilræðið og hafa
þagað um þessa vitnesku sína.
Getur Fortier átt von á allt að
23 ára fangelsisdómi fyrir.
Vextir verða
að hækka
HÆKKA þarf vexti enn frekar
til að halda verðbólgu í skefj-
um, sagði í yfirlýsingu breska
seðlabankans í gær. Eitt fyrsta
verk Gordons Browns, fjár-
málaráðherra í stjórn Verka-
mannaflokksins, var að hækka
vexti úr 6 í 6 74% og færa
ákvarðanir í vaxtamálum til
bankans.
Hefja varnar-
samstarf aftur
SAMKOMULAG náðist á fundi
Johns Shalikashvilis, yf-
irmanns bandaríska herráðsins,
og kínverskra yfirvalda að
Bandaríkin og Kína hefji aftur
samstarf á sviði varnarmála,
sem legið hefur niðri frá því
mótmæli kínverskra lýðræðis-
sinna voru brotin á bak aftur
í júní 1989. Shalikashvili er
æðsti maður bandaríska her-
aflans sem heimsækir Kína frá
1983.
Bretar aftur í
UNESCO
BRESKA stjórnin hefur ákveð-
ið að Bretland taki aftur sæti
hjá Menningar, mennta- og vís-
indastofnun Sameinuðu þjóð-
anna (UNESCO) eftir 12 ára
fjarveru.
Sprengjutil-
ræði í Peking
HEIMAGERÐ sprengja sprakk
í gær í Zhongsan-garði í vest-
urhluta Forboðnu borgarinnar
í Peking með þeim afleiðingum
að einn maður a.m.k. beið bana.
Er þetta þriðja tilræði sinnar
tegundar í borginni á tveimur
mánuðum sem fregnir fara af.
Flugu of lágt
INDVERSK yfirvöld sögðu
flugmenn Iljúshínþotu frá Kaz-
akstan bera ábyrgð á flug-
árekstrinum við 747-þotu frá
Saudi-Arabíu við Nýju Delhí
12. nóvember sl. er 349 manns
biðu bana. Hefðu þeir farið
langt niður fyrir leyfiiega flug-
hæð. Einnig mætti kenna
slæmum fjarskiptum við kaz-
akhstönsku flugmennina.
Hneykslismál í Suður-Kóreu
Neyðist Kim til að
fórna syninum?
Seoul. Reuter.
ALLT bendir nú til þess að Kim
Young-sam, forseti Suður-Kóreu,
neyðist til að fórna syni sínum til
að bjarga eigin skinni í hneykslis-
málum, sem hafa skekið landið
undanfarna mánuði og æ fleiri
fyrirtæki og stjórnmálamenn
flækst í. Sonur Kims hefur verið
sakaður um spillingu og á yfir
höfði sér fangavist.
„Krónprinsinn"
Hafa stjórnmálaskýrendur á
orði að reyni forsetinn að koma í
veg fyrir handtöku sonarins, kunni
það að reynast honum sjálfum
verst. Reynt hefur verið að tengja
forsetann spillingarmálunum og
þrátt fyrir að hann neiti öllum
sakargiftum, getur vel farið svo
að hann hrökklist frá völdum, áður
en kjörtímabil hans er á enda.
Þegar Kim Young-sam tók við
embætti forseta, sá hann sig til-
neyddan að leggja eftirlætisiðju
sína á hilluna, golf. Þá hefur hann
hætt að skokka og sagt skilið við
marga af gömlum og grónum vin-
um, allt til að falla inn í hina aust-
urlensku ímynd leiðtogans.
Nú verður hann líklega að fórna
syninum, sem átti einna stærstan
hlut í kosningasigri föður síns árið
1992 og hlaut fljótlega viður-
nefndið „krónprinsinn“. Kjörtíma-
bil Kims rennur út í febrúar og
kosningareglur kveða á um að
hann geti ekki sóst eftir endur-
kjöri.
„Krónprinsinn“ Kim Hyun-chul,
sem er 38 ára, hefur verið sakaður
um að tengjast helsta hneykslis-
málinu, sem er gífurlegar lánveit-
ingar til stálframleiðanda sem
varð gjaldþrota. Þá eru hann og
faðir hans sakaðir um að hafa fjár-
magnað kosningabaráttu Kims
eldri með mútufé.
Fórnarlamb spillingar
Vindi hneykslis- og spillingar-
málin enn frekar upp á sig en
orðið er, kann svo að fara að for-
setinn nái ekki einu sinni að sitja
síðasta hálfa árið í embætti. Mað-
urinn, sem komst til valda fyrir
fimm árum, með því að heita að
ráðast gegn spillingunni sem
gegnsýrt hefur suður-kóreskt
samfélag, verður ef til vill eitt
fórnarlambanna.
Ferdafatnadurinn
i sumar
Fullar búðir af spennandi sumarvörum!
Hettupeysa kr. 5.985.'
Bolur kr. 1.990.'
verð frá kr. 3.450.
Peysa kr. 5.990.
Buxur kr. 4.950.
<&>Columbia
“ Sportswear Company*
Sportswear Company*
Kemurtil íslands í næstu viku!
HREYSTI
VERSIANIR
Laugavegi 51,2 hæð - S. 551-7717 - Skeifunni 19 - S.568-1717
‘^—sportvömtfiiís
Fosshálsi 1 - Sfmi 577-5858 - Fax 577-5801