Morgunblaðið - 14.05.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 25
MEGINHUGMYND tillögu Arkitektar, Ögmundur Skarphéðins-
son byggir á fráhvarfi frá hefðbundnu sýningarrými; gestir
ferðast frá aðalinngangi að sýningarsvæðum um skábraut sem
tengir saman efri og neðri hæðir hússins, líkt og landgangur
tengir saman bryggju og bát.
og vinnustofur Grafíkfélagsins eru
á jarðhæð, í norðurálmu Hafnar-
hússins.
Að lokum segir í lýsingu Studio
Granda: „Sérstaða Hafnarhússins
er ekki fólgin í fögrum húshliðum,
né góðum hlutföllum, heldur í
hversdagslegu og hrjúfu yfirbragði,
sem nær mestum styrk í portinu.
Reynt er að varðveita þessa eigin-
leika Hafnarhússins og leyfa anda
vinnuumhverfisins, sem áður ríkti
í húsinu að lifa áfram í samneyti
við nýjan kjarna Listasafns Reykja-
víkur. Þessi kjarni eða holrúm
byggir á minningu úr fortíðinni, en
vísar veginn inn í framtíðina. í út-
færslu hússins er gætt hógværðar,
í formi og ímynd, jarnt sem í efni
og litum, svo umgjörð hússins verði
kyrrlátur bakgrunnur fyrir vett-
vang listarinnar."
Tengsl við miðbæinn
Tillaga Teiknistofunnar Skóla-
vörðustíg 28 sf. lagði rnikla áherslu
á tengingu safnsins við miðbæinn.
Reynt er að tengja umferðarsvæði
miðbæjarins, torgin og gönguleið-
irnar í miðbænum saman að safninu
og þar með einnig hafnarsvæðinu.
Lögð er áhersla á að mynda sam-
fellt vistlegt umhverfi milli miðbæj-
arins og hafnarsvæðisins um Lista-
(safns)torgið, eins og segir í lýs-
ingu, en torg þetta er aððkomutorg
safnsins á milli Hafnarhússins og
Tollstöðvarinnar. Þetta samhengi
er undirstrikað í hönnun og frá-
gangi gatna og torga þar sem
umferð gangandi er gert hærra
undir höfði en annars. Svæði þessi
myndu verða hellulögð, áhersla lögð
á gróður og rólegt og aðlaðandi
yfirbragð. Veitingastaðir með borð
utandyra á góðum dögum og þar
sem aðstæður leyfa, listaverk sem
vekja athygli og leiða menn að
markinu.
Fjölnota miðgarður
Tillaga Teiknistofunnar Tröð
gerir ráð fyrir tveimur jafnréttháum
aðkomuleiðum um núverandi port-
hlið á austur- og vesturgafli húss-
ins. Aðalinngangar safnsins eru inn
í miðgarð Hafnarhússins. Miðgarð-
urinn hefur tvíþættan tilgang, ann-
ars vegai' er hann forstofa safnsins
og hins vegar er hann innirými sem
er hluti gönguleiðar miðborgarinn-
ar. Miðgarður er fjölnotarými sem
hefur margþætta notkunarmögu-
leika, til dæmis má nýta hann fyrir
óformlegar uppákomur og sýningar
og þar er gott rými fyrir fjölmennar
opnanir.
Gert er ráð fyrir að þak verði
byggt milli annarrar og þriðju hæð-
ar. Sporöskjulagaðir þakgluggar
veita dagsbiitu niður í miðrýmið.
Þegar dagsbirtunnar nýtur ekki
kemur birtan frá útilömpum sem
eru staðsettir ofan á þakinu. Frá
þriðju hæð er gengið út á þakið.
Lagt er til að látlaust og kröft-
ugt yfirbragð Hafnarhússins verði
varðveitt.
Nú tegund sýningaraðstöðu
í tillögu Arkitektar, Ögmundur
Skarphéðinsson er Ieitast við að
þróa nýja tegund sýningaraðstöðu,
til mótvægis við þá einhæfu tegund
sýninganýmis sem byggð hefur
verið upp í borginni á undanförnum
árum. Leitað er fyrirmynda í nán-
asta umhverfi Hafnarhússins, til
hafnarinnar þar sem frjölbreytnin
ræður ríkjum og heillandi snertiflet-
ir hins þekkta og þess ókunna blasa
daglega við augum, eins og segir í
lýsingu. Rík áhersla er lögð á mögu-
leika hússins til að þróast í takt við
breytta tíma og bent á mikilvægi
þess að ekki verði litið á hönnun
þess nú sem endanlega lausn; heini-
sókn í safnið á að vera upplifun
laus við allan hátíðleika.
Lagt er til að aðalinngangurinn
verði á suðurhlið hússins. Megin-
hugmynd tillögunnar byggir á frá-
hvarfi frá hefðbundnu sýningar-
rými; gestir ferðast frá aðalinn-
gangi að sýningarsvæðum um ská-
braut sem tengir saman efri og
neðri hæðir hússins, líkt og land-
gangur tengir saman bryggju og
bát. Skábrautin er jafnframt hugs-
uð sem sýningarrými en af henni
opnast möguleikar til að upplifa list
frá ólíku sjónarhorni, sjá hana rísa
eða hníga eftir atvikum, eins og
segir í lýsingu.
Ekki eru gerðar tillögur um nein-
ar róttækar útlitsbreytingar á hús-
inu og þung áhersla lögð á að um-
ferðarflæði um poitið í miðju þess
verði fijálst og óhindrað en því
ekki lokað á nokkurn hátt.
Lýst eftir
frum-
myndum
í UNDIRBÚNINGI er sýning, sem
verður í Norræna húsinu í sumar,
á myndlýsingum sem íslenskir
myndlistarmenn hafa unnið fyrir
útgáfur íslendingasagna.
Er sýningin unnin í samvinnu við
Norræna húsið og Listasafn Is-
lands. Meðal mynda, sem verða til
sýnis, eru frumgerðar myndlýsingar
þeirra Þorvalds Skúlasonar og
Gunnlaugs Schevings við Brennu-
Njáls sögu og Grettis sögu, sem
Helgafell gaf út árið 1945 og 1946.
I þessum útgáfum eru samtals rúm-
lega hundrað myndir eftir þá Þor-
vald og Gunnlaug auk Snorra Arin-
bjarnar, en fáar frummyndanna
hafa komið í leitirnar enn sem kom-
ið er.
Þar sem ætla má að eitthvert
magn þessara mynda sé til í einka-
eign, vilja aðstandendur sýningar-
innar koma á framfæri ósk um að
þeir, sem kunna að eiga umræddar
frummyndir, hafi samband við
Listasafn íslands.
-----» ♦ ♦-----
Gestakvöld
Sólons
FIMM ár eru nú síðan veitingahús-
ið Sólon Islandus byrjaði að standa
fyrir reglubundnum djasskvöldum
og af því tilefni verður sú breyt-
ing, að hefðbundin djasskvöld
verða eftir sem áður fyrsta þriðju-
dagskvöld hvers mánaðar, en á
hverju miðvikudagskvöldi verður
svokallað gestakvöld í Sölvasal
Sólons.
Sölvasalur er nýinnréttaður sal-
ur á annarri hæð Sólons, sem starf-
ræktur er í samvinnu við Islensku
óperuna. í Sölvasal vet'ða á hvetju
miðvikudgsk völdi dj asstónlistar-
kvöld, þar sent Tríó Ólafs Stephen-
sen leikur og sérstakur gestur
kemur í heimsókn og leikur með
eða án tríósins, eftir því sem hent-
ar.
Fyrsta gestakvöldið verður í
kvöld, miðvikudag. Þá leikur Tríó
Ólafs Stephensen, þeir Tómas R.
Einarsson, bassaleikari, Guðmund-
ur R. Einarsson, trommuleikari og
Ólafur á píanó. Gestur kvöldsins
verður Óskar Guðjónsson, saxa-
fónleikari. Óskar, sem leikur með
Mezzoforte, er _ nýútskrifaður úr
tónlistarskóla FÍH.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og
standa til miðnættis.
KitchenAid
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
50 ára frábær reynsla.
/sjp Einar Farestveit&Co.hf.
| Borgartúni 28 * 562 2901 og 562 2900 j
VEIÐIHUS
ZÆ í Borgarjtrði
Borgarfjörður á sér merka og langa sögu
tengda laxveiði. Laugardaginn 17. maí bjóða
Borgfirðingar almenningi að skoða veiðihús
við nokkrar helstu laxveiðiár í héraðinu. Húsin
verða opin almenningi þann dag frá kl. 13:00
til 18:00 - leiðsögumenn verða í húsunum.
Verið velkomin.
Veiðihúsið Fossás
stendur við Grímsá.
Húsið var tekið í
notkun árið 1973 og
þykir mjög sérstakt í
Húsið er í Andakílshreppi, um 8 km norð-
austur af Hvanneyri, beygt inn af vegi nr. 52.
Veiðihúsið Lundur
stendur við Hítará
um 30 km vestan
við Borgarnes.
er Ólafsvíkurvegur
(nr. 54). Húsið var upprunalega byggt af
Jóhannesi Jósefssyni (Hótel Borg) upp úr 1940.
í því er safn merkra muna.
Veiðihúsið við Langá
stendur við Ólafs-
víkurveg (nr. 54)
um 6 km vestan
Borgarnes. Húsið er elsta
veiðihús landsins, byggt 1884. Húsið var á
fyrri hluta aldarinnar í eigu breskra auðmanna.
Veiðihúsið við
Norðurá er glæsi-
legt hús og stendur
þar sem útsýni er
tilkomumikið. Beygt
er til hægri af vegi nr. 1 um 3 km fyrir
norðan Munaðarnes.
f Veiðihúsið við Þverá
1 stendur á árbakkan-
X
| um þar sem útsýni
1 er mjög fallegt. Það
| var byggt snemma á
§ tugnum og endurnýjað fyrir nokkrum árum.
2 Beygt er af þjóðvegi nr. 1 við verslunina Baulu,
1 inn á veg 50 (Stafholtstungur). Beygt þaðan
t-í inn á veg 522 (Þverárhlíð). Ekið inn á veg 524
og fram hjá bænum Helgavatni.
SÉRTILBOÐ
Eftirtaldir aðilar veita sértilboð á gistingu um
hvítasunnuhelgina:
■ Farfuglaheimilið Golfskálanum Hamri, s: 437 1040
■ Ferðaþj. bænda, Bjargi, Borgarnesi, s: 437 1925
■ Ferðaþj. bænda, Fljótstungu, Hvítársíðu, s: 4351198
■ Mótel Venus, Hafnarskógi, s: 437 2345
Markaðsráð Borgarness