Morgunblaðið - 14.05.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
______________________________________MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 35
AÐSENDAR GREIIMAR
Slys á Kvíslar-
veituvatni
„Skoðum björgunarvestin“
slysavarnaátak SVFÍ, Gæslunnar
og Pósts og síma
UM NOKKURRA ára
skeið höfum við þrír vin-
ir farið til veiða inn á
hálendið á haustin. Sá
sem einu sinni verður
snortinn ,af öræfakyrrð
og fegurð óbyggðanna
leitar þangað aftur og
aftur. Haustið 1996
höfðum við vinirnir
ákveðið að fara til neta-
veiða á Kvíslarveitu-
vatn. Brottfarardagur-
inn rann upp þokufullur
og þungbúinn, sem sagt
hið ákjósanlegasta
veiðiveður. En þótt loft
væri þungbúið ríkti eng-
inn drungi hjá okkur
félögunum, við sungum við raust og
nokkrar stökur flugu milli manna
bæði í gamni og alvöru.
Já, það var sannarlega veiði-
glampi í augum og veiðihugur í
mönnum. Þegar á leiðarenda var
komið og menn höfðu tekið sér ból-
festu í veiðihúsinu var komið að
stóru stundinni; nú skyldi haldið til
veiða. Ekki virtist fiskurinn vaða í
torfum í vatninu, skolgráu og kulda-
legu, en við hófum að leggja netið
Hugur minn snerist
um fjölskyldu mína og
lífshlaup mitt, segir
Björgúlfur Þorvarð-
arson, og ég bað heitt
og innilega til Guðs.
og vonuðum hið besta. En skjótt
skipast veður í lofti - og slysin gera
ekki boð á undan sér.
Enn í dag geri ég mér ekki grein
fyrir því hvað raunverulega gerðist
- hitt veit ég að skyndilega hvolfdi
bátnum og ég fann ískalt vatnið
umlykja mig. Ég saup hveljur og
fann hvernig jökulvatnið fyllti vit
mín.
Sjálfsbjargarhvötin er manninum
í blóð borin svo að ég tók að fálma
út í loftið og busla, en það var erf-
itt þar eð föt mín gegnblotnuðu og
stígvélin fylltust af vatni. Ég var
kiæddur í „föðurland", lopapeysu,
með ullarlambhúshettu á höfði, í
hlífðarfötum, frá 66° norður og utan
yfir þeim var ég í björgunarvesti. Á
fótunum hafði ég stígvél. Ég buslaði
þarna og fálmaði að því er mér
fannst í óratíma, þó það hafi senni-
lega ekki verið nema 1-2 mínútur.
Allt í einu rak ég höndina í eitthvað
áþreifanlegt og þegar ég áttaði mig
betur sá ég að þetta var önnur árin.
Ég man að ég greip hana eins og
drukknandi maður hálmstrá - sem
mátti nú til sanns vegar færa.
Fljótlega hvarf mér allt tímaskyn
og hugur minn snerist um ljölskyldu
mína og lífshlaup mitt og ég bað
heitt og innilega til Guðs um styrk
í þessari raun.
Það sem næst gerðist hef ég eftir
félögum mínum, því sjálfur var ég
meðvitundarlaus.
Eftir um hálfrar stundar volk í
jökulvatninu, bar mig
að landi í vík einni. Þar
lá ég á bakinu með
háls og höfuð í vatns-
borðinu og ískalt vatn-
ið gutlaði um höfuðið.
Þá kom lambhúshettan
úr íslensku ullinni til
bjargar, því að hún
hélt hita að höfðinu og
varnaði frekari kæl-
ingu. Sá okkar félag-
anna, sem ekki fór út
á bátnum hafði verið
við veiðar á öðrum
stað, en þegar hann tók
að lengja eftir okkur
hinum og fór að athuga
málið, sá hann hvar
báturinn maraði á hvolfi úti á vatn-
inu, en okkur sá hann hvergi.
Hann hringdi þá strax í bróður
sinn, sem hafði verið formaður
björgunarsveitar til fleirþára. Sá brá
við skjótt, hringdi í SVFÍ og bað um
að þyrlan yrði send inn að Kvíslar-
veituvatni, því að þar hefði orðið
slys.
Síðan gerðist allt hratt og án
minnar vitundar. Félagar mínir
fundu mig og þyrlan kom aðvífandi
og flutti mig á sjúkrahús í Reykja-
vík. Þegar þangað kom var líkams-
hiti minn kominn niður fyrir 29° á C.
Þegar ég nú lít til baka og hugsa
um þennan atburð sem nær hafði
kostað mig lífið áttaði ég mig á
nauðsyn þess að klæðast í föt úr
íslenskri ull, þegar farið er í hálend-
isferðir. Einnig skildi ég nauðsyn
þess að vera í björgunarvesti í vatna-
ferðum og fara aldrei út í bát eða
vatnsfall án þess að vera í slíku
vesti ystu fata. Enginn vafi er í
mínurn huga að þessi fatnaður sem
ég nefndi hér á undan varð lífgjafi
minn. Auk þess má ekki gleyma
þætti trúarinnar og styrk bænarinn-
ar. Það hjálpaði mér örugglega.
Að lokum þetta:
Gefðu ávallt í góðri trú
gjafir, ei hugs’ um borgun.
Lifðu alla tíð eins og þú
ættir að deyja á morgun
og:
Fyrst skaltu klæðast í fótin hlý
fmnst mér það kostur hinn besti.
Lágmark að vera svo líka í
löggiltu björgunarvesti.
Höfundur er kennarí við Grunnskólann
á Hellu ogbóndi á Hrafntóftum.
Björgúlfur
Þorvarðarson
Til varnar
sjóbirtingnum
HAFBEITARLAX
aftur í Hellisá er stór
fyrirsögn í Morgun-
blaðinu í dag, 15. apríl
1997. Sagt er að land-
búnaðarráðuneytið
hafi á nýjan leik gefið
leyfi fyrir því að flytja
hafbeitarlaxa til slepp-
ingar í ánni. Hér er um
stórfrétt að ræða og
því ekki óeðlilegt að
staldrað sé aðeins við
og málin skoðuð nánar.
Hellisá er á Síðu-
mannaafrétti í Skaft-
árhreppi. Hún er ekki
laxgeng af þeim nátt-
úrulegu ástæðum að
neðan hennar eru ófiskgengir foss-
ar. En jafnvel þótt jarðfræðileg
skilyrði til laxagengdar væru fyrir
hendi myndi eigi að síður af nátt-
úrulegum ástæðum enginn lax
ganga í Hellisá. Ástæða þess er val
náttúrunnar á lífríki því sem þrifist
fær á ákveðnum svæðum. Þetta val
er okkur mönnum oft lítt skiljanlegt
og því mikil ástæða að fara varlega
sé á annað borð farið að grípa fram
fyrir hendur náttúrunnar um valið.
Lax hefur af einhveijum ástæðum
ekki þrifist á vatnasvæði Skaftár.
Aftur á móti hefur þar ágætlega
þrifist urriðategund sem Skaftfell-
ingar nefna sjóbirting. Sjóbirtingur-
inn skaftfellski er um margt sér-
stakur og getur vafalaust, rétt eins
og urriðinn í Soginu, kallast sér-
stakur stofn. Hann vex hægt og
nær miklu hærri aldri en laxinn.
Hann gengur oft til sjávar og byij-
ar ekki hrygningu fyrr
en nokkurra ára gam-
all er. getur síðan
gengið endurtekið í
árnar árum saman til
hrygningar. Það segir
sig því sjálft að vegna
hins langa vaxtar- og
þroskatíma er sjóbirt-
ingurinn viðkvæmari
fyrir ofveiði en laxinn.
Sjóbirtingurinn þykir
afar góður matfiskur.
Hann getur náð mikilli
stærð en ekki er óal-
gengt að hann nái
10-20 punda þyngd.
í fyrrnefndri grein
er einnig sagt frá svo-
kallaðri vorveiði á sjóbirtingi en hún
hefur verið afar umdeild. Þarna er
Furðulegast af öllu, ef
satt er, segir Haukur
Valdimarsson, er að
umhverfisráðherra skuli
veita leyfi til svo hættu-
legra tilrauna á náttúru
íslands.
verið að veiða sjóbirtinginn í þann
mund sem hann er að búa sig til
ferðar til sjávar þangað sem hann
heldur til fæðuöflunar eftir vetrar-
langa dvöl í ánni. í ána gengur
hann síðan eftir mitt sumar og langt
fram á haust til hrygningar og vetr-
Haukur
Valdimarsson
ardvalar. Á þeim tíma er hann
skemmtilegur að fást við af veiði-
mönnum og hreinasta lostæti. Ekki
hef ég trú á að veiði á hoplöxum á
vorin þætti til frásagnar þótt þar *
væri auðvitað um sambærilegan
veiðiskap að ræða.
Talið er að sjóbirtingurinn sé
jafnvel enn viðkvæmari en laxinn
fyrir pestum eins og kýlapest. Það
var því ekki óeðlilegt að mikill ugg-
ur gripi um sig fyrir 2 árum þegai-
í ljós kom að hafbeitarlax sem flutt-
ur hafði verið úr Kollafirði í Hellisá
væri sýktur af kýlapest. Hellisá ef
mjög ofarlega á vatnasvæði Skaftáf
og rennsli þaðan dreifist því á allt
vatnasvæðið. Gerð var misheppnuð
tilraun til að hreinsa fiskinn úf ■
ánni og síðan hafa menn beðið í
ofvæni en sem betur fer fer ekki
enn neinum sögum af kýlaveikum
sjóbirtingum. Varla eru þó öll kurl
komin til grafar enn.
Það kemur því mjög á óvart að
leyfi til flutninga á hafbeitarlaxi í
Hellisá hafi verið gefið á nýjan leik.
Þetta sýnist ótrúlega óskynsamleg
ráðstöfun og fyrir þeirri fullyrðingu
eru tvær ástæður eins og reynt er
að færa rök fyrir hér að framan. í
fyrsta lagi er óskynsamlegt að grípa
þannig fram fyrir hendur náttúr-
unnar með tegundaval á svæðinu.
Nær væri að hlúa að þeim tegund-
um sem fyrir eru og náttúran hefur
sjálf valið og þróað á þúsundum
ára. í öðru lagi sýnist það mikil
ögrun við náttúruna að hafa ekki
látið sér að kenningu verða slysið
fyrir tveimur árum þegar alvarlegur
fisksjúkdómur var beinlínis fluttur
inn á svæðið. Og furðulegast af
öllu, ef satt er, að sá maður sem
gegnir nú stöðu umhverfisráðherra
skuli veita leyfi til svo hættulegra
tilrauna á náttúru íslands.
Höfundur er læknir og
áhugamaður um sjóbirtingsveiði ^
og náttúruvernd.
TÖLVUHASKOLIVERZLUNARSKOLAISLANDS
SYNING HUGBUNAÐARVERKF.FNA
Dagana 15. og 16. maí kynna nemendur Iokaverkefni sem þeir hafa unnið að
undanfarna mánuði í samstarfi við ýmis fyrirtæki. Sýningin fer fram í hátíðarsal
Verzlunarskólans, Ofanleiti 1. Hún er öllum opin og gestum er frjálst að vera
viðstaddir þær kynningar sem vekja áhuga. Hver kynning tekur um 50 mínútur.
[
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
9.00 íslandsblik. Vefsíður sem gefa kost á leit í bókasafni Náttúrurfræðistofnunar ásamt aðgangi
að ýmsum upplýsingum. Forrit fyrir viðhald á vefsíðunum og upplýsingakerfi fyrir starfsmenn
NI á innraneti.
10.00 Hafspum. Fyrirspumir á vefnum urn mat á stofnstærðum og aflatölur fisktegunda. Upplýsingamar
eru byggðar á samandregnum gögnum Hafrannsóknarstofnunar í vöruhúsi gagna.
11.00 Gægir. HTML-ritþór fyrir gagnatengdar vefsíður og sýniforrit sem gefur notendum kost á að
skoða gögn á töfluformi eða í vefsjá.
13.00 Sparta. Upplýsingakerfi á vefnum um úrslit leikja, stöður í deildum og fleira byggt á gagnasafni
íslenskra getrauna. Hægt að skoða getraunaseðil vikunnar, slá inn eigin seðil og fylgjast með
úrslitum jafnóðum og mörk eru skoruð.
14.00 Bílalán. Vefsíður sem auðvelda samskipti bflasala og tryggingafélaga þegar viðskiptamaður
tekur lán vegna bflaviðskipta.
15.00 Baukur. Klasakerfi í Java sem auðveldar forritumm að búa til þjónustuforrit sem vinna með
lifandi gögn til birtingar á veraldarvef intemetsins.
[
FOSTUDAGUR 16. MAI 1997
10.00 Laxnes. Pöntunarkerfi fyrir hestaferðir hjá hestaleigunni Laxnesi. Skrifað í Borland
Delphi 2.0 fyrir Windows.
11.00 Target. Gerð og samræming söluáætlana byggð á raungögnum um sölu fyrri tímabila. Skrifað
í Borland C++ Builder fyrir Windows.
13.00 Servir. Þónustukerfi fyrir þjóna og kokka á stærri veitingahúsunr sem tengist kassakerfi frá
Hugbúnaði hf. Skrifað í Borland Delphi 2.0 fyrir Windows.
14.00 Marel. Kerfi sem geymir upplýsingar um menntun og þekkingu starfsmanna ásamt hópun
þeirra í þekkingarlið. Skrifað í Lotus Notes.
15.00 Gaumur. Framsetning upplýsinga um umferð og ástand í símstöðvakerfum Pósts og síma.
Hluti af eftirlitskerfi símstöðvadeildar. Skrifað í Powerbuilder 5.0 fyrir Windows.