Morgunblaðið - 14.05.1997, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 45
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
KRAKKARNIR í 7-R í Grandaskóla.
Söfnuðu
skóladóti fyrir
börn í Bosníu
NEMENDUR 7-R í Grandaskóla
hafa nú lokið við söfnun á skóla-
dóti fyrir börn í Bosníu sem þeir
hófu í febrúar sl. í samvinnu við
Mæðrastyrksnefnd Rauða kross-
ins.
Verkefni þetta var unnið í
sjálfboðavinnu í tengslum við
námsefnið Tilveran (Lion’s Qu-
est). Fólk brást vel við óskum
nemenda og safnaðist töluvert
af skóladóti sem nemendur af-
hentu Mæðrastyrksnefnd 7. maí
sl.
AFRAKSTUR söfnunarinnar var afhentur
Mæðrastyrksnefnd Rauða krossins.
Raðganga
fráSel-
tjarnarnesi
í Heiðmörk
MEÐAL margra gönguferðamögu-
leika á afmælisári Ferðafélags ís-
lands í ár er raðganga í 'ö áföngum
er farin er um útivistarsvæði
höfuðborgarinnar m.a. um göngu-
stíga er liggja frá Selljarnarnesi
upp í Ferðafélagsreitinn í Heið-
mörk.
Annar áfangi raðgöngunnar
verður farinn í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 14. maí, kl. 20 oger brott-
för frá Mörkinni 6 og BSÍ, austan-
megin, og er einnig hægt að mæta
í gönguna við Suðurnes á Seltjarn-
arnesi. Kvöldgangan er farin með-
fram Skerjafirði út í Nauthólsvík
m.a. framhjá gömlu vörunum,
Sveinsstaða-, Grímsstaða- og
Austurvör. Fuglalíf er mikið á
þessum tíma.
Öllum er velkomið að vera með.
FRÁ Gullsmíðaverkstæði
Hansíuu á Laugavegi 20b.
Ný verslun með
skartgripi
NÝLEGA opnaði Hansína Jensdótt-
ir, gullsmiður, sitt eigið verkstæði
og verslun á Laugavegi 20b, Klapp-
arstígsmegin. Hún selur eingöngu
sína eigin hönnun og er þekkt fyrir
sérstakan stíl í skartgripagerð, segir
í fréttatilkynningu.
Í Listahorni verslunarinnar eru
Magnús Kjartansson, Jón Axel og
Valgarður Gunnarsson með myndir
til sölu. Verslunin er opin virka daga
frá kl. 10-18 og laugardaga kl.
10-16.
Gengið á milli
fjarða
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer
í miðvikudagskvöldgöngu sinni, 14.
maí, í gönguferð frá Kollafirði yfir
gamla Seltjarnarnesið suður í
Skeijafjörð. Gengin verður fornleið
og ný leið til baka.
Mæting er við Hafnarhúsið kl. 20.
Gangan hefst við Bólvirkið bak við
Gamla bryggjuhúsið og þaðan verð-
ur farið yfir Skildinganesmela suð-
ur að Austui-vör í Skeijafirði. Þar
verður val um að fara með SVR
til baka eða ganga með Strand-
stígnum og um Háskólahverfið og
með Tjörninni niður á höfn. Allir
velkomnir.
Skólaslit í
Félagsbíói
TÓNLISTARSKÓLANUM í Kefla-
vík verður slitið fimmtudaginn 22.
maí kl. 17.00 í Félagsbíói. Athöfnin
verður með venjubundnum hætti,
tónleikar og afhending prófskír-
teina. Allir nemendur skólans eru
hvattir til þess að mæta.
Styrkir úr
Þróunarsjóði
leikskóla
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum
til þróunarverkefna í leikskólum
úr Þróunarsjóði leikskóla fyrir
árið 1997. Með þróunarverkefnum
er átt við nýjungar, tilraunir og
nýbreytni í uppeldisstarfi. Alls
bárust 17 umsóknir um styrki úr
sjóðnum samtals að fjárhæð
11.600.000 kr. Samtals var út-
hlutað nú 2.550.000 kr. til 7 þró-
unarverkefna.
Eftirtalin verkefni hafa fengið
styrk úr Þróunarsjóði leikskóla
1997: Leikskólarnir Krógaból,
Akureyri og Bjarnahús, Húsavík,
500 þúsund kr. til verkefnisins
Foreldrasamstarf á aðlögunar-
tíma. Leikskólinn Norðurberg,
Hafnarfirði, 500 þúsund kr. til
verkefnisins Endurvinnsla - End-
urnýting. Leikskólinn Tjarnarsel,
Keflavík, 500 þúsund kr. til verk-
efnisins Vettvangsferðir um nán-
asta umhverfi skólans. Leikskól-
arnir Óskaland og Undraland,
Hveragerði, 400 þúsund kr. til
verkefnisins Tónlist í leikskóla.
Leikskólinn Mánabrekka, Sel-
tjarnarnesi, 300 þúsund kr. í verk-
efnið Aðlögun barna, tölvuforrit.
Leikskólinn Sketjakot, Reykjavík,
200 þúsund kr. til verkefnisins
Leikskóli til framtíðar og Leik-
skólinn Kjarrið i Garðabæ fékk
úthlutað 150 þúsund kr. til að
vinna handrit að bók um landa-
fræðiverkefnið Ferðalag Palla.
Hjólabretta-
svæði í Hafnar-
firði
HJÓLABRETTASVÆÐI verður
opnað við Haukahúsið i Hafnar-
firði miðvikudaginn 14. maí. Af
þessu tilefni stendur Æskulýðsráð
Hafnarfjarðar fyrir grillveislu, úti-
tónleikum og hjólabrettakeppni.
Hátíðin hefst kl. 17 og verður
bytjað á því að grilla pylsur.
Hljómsveitin Nuance kynnir nýj-
asta frumsamda lagið og spilar
eldri lög, einnig leikur EST 7000.
Hjólabrettakeppni verður haldin
og fær sigurvegarinn verðlaun.
Aðgangur og þátttaka er öllum
heirnil og svæðið verður opið fyrir
almenning í allt sumar.
7 umsækjendur
um stöðu að-
stoðarprests
SJÖ umsóknir bárust um stöðu
aðstoðarprests í Garðaprestakalli,
Kjalarnesprófastsdæmi, en um-
sóknarfrestui' rann út 7. maí sl.
Utnsækjendur eru: Anna Sig-
ríður Pálsdóttir, guðfræðingur,
Bára Friðriksdóttir, guðfræðing-
ur, sr. Bjarni Þór Bjarnason, Guð-
munda Inga Gunnarsdóttir, guð-
fræðingur, Jón Ármann Gíslason,
guðfræðingur, Sigurður Grétar
Helgason, guðfræðingur og Svein-
björn R. Einarsson, guðfræðingur.
Poppmessa í
Hafnarfirði
HALÐÍN verður poppmessa í*
Hafnarljarðarkirkju fimmtudaginn
15. mai. Þetta er fyrsta poppmessa
sumarsins en stefnt verður að einni
slíkri mánaðarlega í surnar, segir
í fréttatilkynningu.
Hljómsveitina skipa hafnfirskir
tónlistarmenn og Örn Arnarson
leiðir hópinn eins og hann hefur
gert á liðnum vetri. Eftir popp-
messuna selur ÆSKÓ, æskulýðs-
félag Hafnarfjarðarkirkju, kaffi-
veitingar og kynnir starfsemi sína.
Prestur er sr. Þórhallur Heimis-
son.
Fyrirlestur um
beinþroska
murtu og
dvergbleikju
GUÐNI Magnús Eiríksson MS-
nemi flytur fyrirlestur á vegurn
Líffræðistofnunar Háskólans
föstudaginn 16. maí kl. 12.20 á
Grensásvegi 12, stofu G6. Fyrir-
lesturinn nefnir hann: Beinþroskun
hjá afkvæntum murtu og dverg-
bleikju.
í fréttatilkynningu segir: „í
Þingvailavatni er að finna fjögur
mismunandi afbrigði bleikju,
dvergbleikju, kuðungableikju,
murtu og sílableikju. Þau er ólík
bæði í útliti og lifnaðarháttum, lifa
á ólíkri fæðu ntjög snemma í þrosk-
un. Tilraun var framkvæmd þar
sem gerðir voru hreinir og blandað-
ir æxlunat'krossar rnilli murtu og
dvergbleikju og útlitsþættir mældir
á kviðpokastigi. Bein bytja að
myndast fljótlega eftir klak og
hefur beinþroskun afkvæmanna
verið til sérstakrar skoðunar.
Fyrstu niðurstöður úr tilrauninni
verða kynntar."
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
eftir framsögu verða umræður um
efni hans.
Kynning’ar-
fundur um svif-
drekaflug
KYNNINGARFUNDUR vegna
bytjendanámskeiðs í svifdrekaflugi
verður haldinn að Grund, félags-
heimili svifdrekamanna, föstu-
dagskvöldið 16. maí kl. 20.
■ Á STJÓRNARFUNDI Geð-
hjálpar 12. maí 1997 var sam-
þykkt að taka undir kröfur sem
fram hafa kornið í fjölmiðlum frá
samtökum og einstaklingum þess
efnis að fullar tryggingabætur
öryrkja verði ekki lægri en lægstu
laun, eða 70.000 kr. á samnings:
tímabili almennra launþega. í
fréttatilkynningu minnir Geð-
hjálp á að margir veikjast áður
en þeir hafa unnið sér inn rétt-
indi í lífeyrissjóðum og verða því
að lifa eingöngu á tryggingabót-
um.
LEIÐRÉTT
Engihjalli
ÞAU mistök urðu í myndatexta á
bls. 2 í blaðinu í gær að tnyndin
var sögð tekin í Engjaseli í
Reykjavík. Hið rétta er að það
voru íbúat' við Engihjalla í Kópa-
vogi sem voru að gera sér daga-
mun.
Nafnabrengl
í myndatexta
MEÐ grein í sunnudagsblaði um
kvikmyndir Vilhjálms og Ósvalds
Knudsen er birt mynd úr einni af
kvikmyndunum unt fólk. Á mynd-
inni er Jón Stefánsson listmálari
og ltans fólk, en ekki listmálarinn
Ásgrímur Jónsson eins og sagt er
í myndatexta. Er beðist velvirðing-
ar á þesstim mistökum.
Brehgluð vísa
í VJÐTALJ við Jóhönnu Björns-
dóttur á Y’trá-Fjalii sl. sunnudág
brenglaðist vísa úr Gránuvísum
Páls Ólafssonar. Rétt er vísan
svona:
Mylur svellin kraftakná,
klaka gellur flísin,
hvellir, smellir heyrast þá,
er hófar skella á ísinn.
Þá misritaðist fyrsta línan í vísu
Ketils Indriðasonar í upphafi við-
talsins en á að vera á þessa leið:
Þó göngum við þröngan og grýttan stig
Velvirðingar er beðist á mistök-
unum.