Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 2
i
2 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997
Strákamir
vekja
hrifningu
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik mætir Japönum í
fyrsta leik heimsmeistaramóts-
ins í Kumamoto í Japan í fyrra-
málið. í gær heimsótti íslenska
liðið Kita-háskólann í Kuma-
moto, en nemendur skólans eru
stuðningsmenn íslenska liðsins í
keppninni. Þar tóku 1.600 nem-
endur skólans, 103 kennarar og
hljómsveit á móti liðinu og það
þakkaði fyrir sig með því að
krjúpa á sviði hátíðarsalar skól-
ans og taka svokallaða bylgju
og syngja Kátir voru karlar fyr-
ir viðstadda. Julian Róbert Dur-
anona vakti mikla athygli á
meðal Japananna og vildi skóla-
stjórinn gjarnan láta mynda sig
með honum enda ekki á hveijum
degi sem hann hittir mann sem
er rúmlega hálfum metra hærri.
Þegar þeir félagar voru sestir
niður fyrir myndatökuna ásamt
hluta liðsins og kennurum læddi
skólastjórinn hendi sinni í lófa
Duranona eins og sést.
■ HM í handknattleik/Cl-C3
Árásin á Vegas
Sá fjórði
í gæslu
Rannsóknarlögreglan hefur
handtekið fjórða manninn í
tengslum við rannsókn á lík-
amsárás á skemmtistaðnum
Vegas, sem leiddi til dauða 26
ára gamals manns.
Þrír menn voru handteknir á
þriðjudag og úrskurðaðir í
þriggja vikna gæsluvarðhald,
en rannsóknarlögreglan hafði
farið fram á 44 daga varðhald.
Rannsóknarlögreglan fór í gær
fram á gæsluvarðhald yfir
fjórða manninum, jafnlengi og
hinir þrír sitja inni, eða til 4.
júní og féllst Héraðsdómur
Reykjavíkur á það.
Hörður Jóhannesson, yfir-
lögregluþjónn RLR, kvaðst
ekki vilja tjá sig að svo stöddu
um hvort mennirnir hefðu játað
verknaðinn, en sagði að málin
myndu skýrast betur við nánari
yfirheyrslur og skýrslutöku af
vitnum.
Virkja á
borholu í
Bláfjöllum
BLÁFJALLANEFND og Vatnsveita
Reykjavíkur hafa komist að sam-
komulagi um að Vatnsveitan hefji í
sumar framkvæmdir við að virkja
borholu í Bláfjallalandi. Úr henni
verður köldu vatni veitt beint í skfða-
skála Bláfjalla og þriggja íþróttafé-
laga í BláQallalandi.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar veitustofnana, sagði á fundi
borgarstjórnar í gær að sérstök
vatnsveita fyrir Bláfjallasvæðið
muni gerbreyta aðstöðu í skíðaskál-
unum þar. Minnti hann á að hingað
til hafi þurft að aka vatni í tönkum
í skálana. Segir hann að vatnsveitan
verði ekki aðeins hagkvæm heldur
muni brunavarnir enn fremur eflast.
Framkvæmdir hefjast í júlí og
hefur stjórn veitustofnana samþykkt
að veita Bláfjallanefnd lán til að
standa straum af kostnaði, um 8-10
millj. kr. Stefnt er að því að lánið
verði endurgreitt á fimm árum.
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Einar Falur
Illa viðrar á kyndil-
hlaup UMFÍ
Enginn
ræður við
náttúru-
öflin
VEÐRIÐ hefur sett strik í reikning-
inn hjá félögum í Ungmennafélagi
íslands sem eru á hlaupum um land-
ið með logandi kyndil í tilefni af
Ólympíuleikum smáþjóða sem fram |
fara hér á landi 3.-7. júní næstkom- ,
andi. Hlaupið hófst 1. maí í Reykja-
vík og þaðan var hlaupið austur um 1
áleiðis hringinn í kringum landið
en áætlað er að hlaupinu ljúki á
sama stað 31. maí.
Brynhildur Barðadóttir, verkefn-
isstjóri kyndilhlaupsins, var stödd á
Húsavík ásamt hlaupafólki með
kyndilinn þegar Morgunblaðið náði
sambandi við hana í gær en til stóð
að halda hlaupinu áfram þaðan í )
morgun. „Við lentum í mjög slæmu j
veðri á norðausturhorninu og það j
voru nokkrar leiðir sem við þurftum '
hreinlega að sleppa, eins og til
dæmis Melrakkasléttan en þar var
blindbylur," sagði hún, en bætti við
að nú væri komið fínt veður á Húsa-
vík og hún vonaðist til að það héld-
ist þannig áfram.
Slokknar á kyndlinum
vlð og við |
„Mér skilst reyndar að það sé j
ennþá mjög mikill snjór í kringum í
Dalvík og Lágheiðin ófær en við
vonum það besta og reynum að
halda áætlun.“ Brynhildur sagði
það vissulega vera leiðinlegt þegar
slokknaði á kyndlinum en við því
væri ekkert að gera, aðalatriðið
væri að kyndillinn kæmi á staðina.
Það væri alltaf slökkt á kyndlinum
á nóttunni, þannig að þó að slokkn- L
aði á honum við og við þá væri F
ekki hundrað í hættunni. „Það ræð- 1
ur víst enginn við náttúruöflin," |
sagði Brynhildur að lokum.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um hækkun bóta almannatrygginga
og sérstakar aðgerðir til að draga úr jaðaráhrifum
Kaupmáttaraukning bóta-:
þega 8-10% á þessu ári
Morgunblaðið/Kristinn
FIMM ráðherrar kynntu ákvörðun ríkisstjórnarinnar í gær.
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að
bætur almannatrygginga hækki um
4% frá 1. mars síðastliðnum að telja,
en bæturnar voru hækkaðar um 2%
um síðustu áramót þótt þá lægju
ekki fyrir ákvarðanir um hveijar
yrðu lyktir kjarasamninga. Nemur
hækkunin á þessu ári því 6% og
er hún í takt við þær launahækkan-
ir sem almennt hefur verið samið
um í kjarasamningum, að sögn ráð-
herra ríkisstjórnarinnár.
Ríkisstjórnin hefur jafnframt
ákveðið að bæturnar hækki um 4%
1. janúar á næsta ári og 3,65% 1.
janúar 1999, eða jafnmikið og laun
samkvæmt almennum kjarasamn-
ingum. Atvinnuleysisbætur hækka
að sama skapi um 13,8% á tímabil-
inu.
Aðgerðir til að draga úr
jaðaráhrifum
Jafnframt hefur ríkisstjómin
ákveðið aðgerðir til að draga úr
jaðaráhrifum innan almannatrygg-
ingakerfisins og ná þær jafnt til
ellilífeyrisþega og örorkulífeyris-
þega. Þannig hækka viðmiðunar-
mörk vegna frekari uppbótar á líf-
eyri, svokallað frítekjumark, úr
80.000 krónum í 85.800 kr. á mán-
uði. Heimilisuppbót hækkar úr
8.872 kr. á mánuði í 12.480 kr.,
eða um 3.608 kr., en hækkun heim-
ilisuppbótarinnar kemur í stað nið-
urfellingar afnotagjalds útvarps og
fastagjalds síma. Jafnframt þessu
mun Ríkisútvarpið veita öllum líf-
eyrisþegum 20% afslátt á greiðslu
afnotagjalds útvarps, og þannig
munu um 14 þúsund lífeyrisþegar
sem nú greiða full afnotagjöld fá
20% afslátt.
Þá hefur verið ákveðið að félags-
leg fjárhagsaðstoð frá sveitarfélög-
um muni ekki skerða bætur al-
mannatrygginga frá og með 1. sept-
ember næstkomandi, en um 850
lífeyrisþegar njóta nú þessarar að-
stoðar sveitarfélaga.
Heildarkostnaður ríkisins
1.630 miiyónir á þessu ári
Að sögn Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra mun kostnaður ríkis-
sjóðs vegna hækkunar bóta al-
mannatrygginga á þessu ári nema
um 1.200 milljónum króna og heild-
arkostnaður við að draga úr jaðar-
áhrifum er áætlaður um 430 millj-
ónir króna. Þannig mun heildar- |.
kostnaður ríkissjóðs vegna þessara k
aðgerða verða samtals um 1.630 ?
milljónir króna á árinu. *
Fram kom í máli forsætisráð-
herra á fundi í gær, þar sem ríkis-
stjórnin kynnti þessar ákvarðanir
sínar, að Þjóðhagsstofnun hefði
metið meðalhækkun launa 5,5-6%
á þessu ári þegar allt væri talið.
Sjálf grunnkaupshækkunin nemur
4,7%, hækkun lægstu launa jafn- .
gildir um 0,4% og aðrir liðir saman- |
lagt 0,3-0,4%. Með hliðsjón af |
þessu hefði verið ákveðið að bætur
almannatrygginga hækki um 4% *
frá 1. mars síðastliðnum til viðbót-
ar 2% hækkuninni um síðustu ára-
mót.
Sagði forsætisráðherra að ef
verðbólga héldist um 2% á ári þýddu
ofangreindar aðgerðir ríkisstjórnar-
innar 8-10% kaupmáttaraukningu
fyrir bótaþega. Hann sagði að ekki l
yrði gripið til niðurskurðar í ríkisút- 9
gjöldum til að mæta þeim kostnaði p
sem þessum aðgerðum fylgir heldur k
kölluðu þær á enn frekara aðhald
í ríkisfjármálum. .