Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYIMDBÖND/KVIKMYIMDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP FOSTUDAGSMYIMDIR SJONVARPSSTOÐVANIMA Sjónvarpið ►20.30 Kanadíska fjöl- skyldumyndin Indíánadrengurinn (The Spirit Rider, 1993) er mér ókunn og finnst ekki í handbókum. Þar seg- ir frá titilpersónunni sem þarf að sætta sig við uppruna sinn þegar hann sest að á vemdarsvæði. Leik- stjórinn heitir Michael Scott en með- al leikenda er sá ágæti indíáni Gra- ham Greene (Dancing With Wolves). Sjónvarpið ►23.00 Um síðustu helgi gafst færi á að sjá snilldar- handrit Roberts Towne Chinatown í leikstjórn Romans Polanski. Towne hefur sjálfur spreytt sig á leikstjórn en ekki sýnt þar sömu snilldartakta. Ein slík tilraun er Armur laganna (Tequila Sunrise, 1988). Þarstillir handritshöfundurinn Towne upp býsna margræðu samskiptamunstri milli dópsalans Mels Gibson, sem vill byija nýtt líf, æskuvinar hans, löggunnar Kurts Russell, og konunn- ar fögru í miðjunni, Michelle Pfeiff- er. Lengi framan af er þetta fín róm- antísk spennumynd en því miður leyfir Towne handritshöfundur Towne leikstjóra að sprengja sál- fræðilegt víravirki handritsins upp með hávaða og látum og rútínuhasar í seinni hlutanum. ★ ★ 1/2 Stöð 2 ►13.00 og 1.10 Rangeygð- ur en fráneygur rýnir Peter Falk sem löggan Columbo í sakamál sem teng- ist honum sjálfum í Hvfl í friði, frú Columbo (Rest In Peace Mrs. Col- umbo, 1990). Helen Shaver leikur hættulega konu í því sambandi. Ekki nema miðlungafþreying, eins og aðr- ar í syrpunni. ★ ★ Stöð2 ►20.55 - Sjá umfjöllun í ramma. Stöð2 ►23.10 Sönn sagafráþví fyrr á öldinni um samskipti fanga og ungs lögfræðings sem saman beijast fyrir réttlæti í hinu illræmda Alcatrazfangelsi er kjarninn í Að yfirlögðu ráði (Murderln TheFirst, 1995). Þetta er töluvert áhrifamikið og aflmikið drama, þökk sé leik Kevins Bacon, Christians Slater og Garys Oldman. Marc Rocco leikstjóri sýnir tilþrif en stundum einum of; myndstíllinn dregur fullmikla at- hygli að sjálfum sér. ★ ★ 1/2 Geif I uf ru m kvöðu 11 þroskast VINSÆLDIR bandaríska geiflu- gdnistans Jims Carrey nú um stundir minna á að lærimeistari hans Jerry Lewis gekk aldrei jafnlangt i að ofbjóða áhorfendum sínum enda náði hann aldrei jafn miklum vinsældum. Ergó: Áhorfendur vilja láta ofbjóða sér. Ekki þar fyrir að Jerry Lewis náði miklum vinsældum á 6. og 7. áratugnum, fyrst í samstarfi við Dean Martin og síðan sem eigin geifluherra, bæði sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur. Fróðlegt væri að sjá hvernig þessar gömlu geiflukómedíur hafa elst en svo mik- ið er víst að franskir kvikmynda- fræðingar líta margir á Jerry Lewis sem einn merkasta grinista aldarinn- ar, sem afhjúpi Ameríku með þeim hætti að Ameríkanar sjálfir fatti það ekki. Jerry Lewis, sem nýlega varð 71 árs, átti ekki alltaf auðvelt upp- dráttar í heimalandi sínu eftir að vinsældir hans hnignuðu um 1970. En í seinni tíð hefur hann aflað sér virðingar á ný, ekki síst eftir að hann sýndi einkar hófstilltan og næmlegan leik í meistaraverki Martins Scorsese The King Of Comedy (1983). Svipuð hefur frammistaða hans verið síðan í óvenjulegum myndum útlendra leikstjóra á borð við Arizona Dreaminge ftir Emir Kusturica (1993) og svo Vitlaus bein (Funny Bones, 1995, Stöð 2 ►20.55) eftir breska leikstjórann Peter Chelsom. Þar er Lewis í aukahlutverki en stelur samt hverri senu sem faðir misheppnaðs grínista er flýr skugga hans til að leita að rótum sínum í Blackpool á Englandi. Þetta er undirfurðuleg mynd og ef ekki kæmi til fáránleg hliðarsaga um franska smyglara væri hún lítil perla. Takið eftir breska grínistanum Lee Evans; hann skilur mann eins og Jim Carrey eftir með allt á hælunum. ★ ★ 1/2 Sýn ^21.00 Stjómandi The To- night Show, grínistinn Jay Leno í hlutverki löggu frá Detroit sem þarf að starfa með japönskum starfsbróð- ur (Noriyuki „Pat“ Morita) við máls- rannsókn, er það forvitnilegasta við grínhasarmyndina Löggurnar (CoII- ision Course, 1989). Maltin segir þetta meinlausa afþreyingu og gefur ★ ★ og Martin og Potter fara heldur neðar og gefa ★ ★ (af fimm mögu- legum). Leikstjóri Lewis Teague. Sýn ►23.25 Geimveran (NotOf ThisEarth, 7906) erendurgerð fyr- ir sjónvarp á gömlum vísindahasar eftir Roger Corman (1957). Þar seg- ir frá geimveru einni sem leitar til jarðar að lækningu á farsótt sem geisar í heimabyggð hennar. Engum sögum fer af útkomunni en í aðal- hlutverkum eru Michael York og Parker Stevenson. Árni Þórarinsson. Samheldnir bræður KVIKMYNDALEIKARINN Aidan Quinn ætlar að vinna með bræðrum sínum tveimur að sinni næstu mynd. Paul Quinn skrifar handritið og leikstýrir en Declan Quinn sér um kvikmyndatökuna. Paul hefur ekki leikstýrt kvikmynd áður en hann ^ hefur starfað sem leikstjóri í leikhúsum á Irlandi. Declan hefur unnið við kvikmyndatöku á myndum eins og „Leaving Las Vegas“ og „Kama Sutra“. Mynd bræðranna ber titilinn „This is My Father“ og eiga upptökur að hefjast í júní í Montreal en hluti myndarinnar verður tekinn upp í Dublin. Sag- an er á rómantísku nótunum en auk Aidan leika James Caan, John Cusack og Stephen Rea í mynd- inni. Rea vann seinast með Aidan í írsku myndinni „Michael Collins". NÆSTA kvikmynd leikarans Aidan Quinn verður fjölskyldufyrirtæki. PIERCE Brosnan og Linda Hamilton reyna að forða sér undan eldgosi í „Dante’s Peak“. Ognir eldfjalla útskýrðar Eldgos eru vinsælt við- fangsefni í kvikmyndum um þessar mundir. Anna Sveinbjarnar- dóttir skoðaði töivu- geisladisk sem á að auka skilning okkar og þekk- ingu á þessu fyrirbæri. MARKAÐSSETNING kvikmynda verður æ flóknari. Það er ekki nóg að koma myndinni í bíóhús og aug- lýsa í fjölmiðlum heldur er reynt að ná til áhorfenda með alls kyns sölu- varningi. Algengt dæmi er að setja kvikmyndatónlistina á geisladisk, eða setja leikfígúrur eða dót tengt persón- um myndarinnar á markaðinn. Síð- asta viðbótin er tölvugeisladiskar. „Dante’s Peak: The Inside Story & Educational Guide“ er einn slíkur. Kvikmyndin „Dante’s Peak“ er stórslysamynd um hörmungar sem dynja á smábænum Dante’s Peak þegar eldflal) í nágrenninu gýs öllum að óvörum. Á geisladisknum er saga myndarinnar sögð, og hægt er að horfa á kynningarstubb og upptökur frá tökum myndarinnar. Einnig eru á disknum upplýsingar og myndefni um eldflöll, jarðskjálfta, jarðskorpu- hreyfingar, og hveri. Að auki er orð- skýringarlisti og ýmis verkefni sem hægt er að leysa. Myndir, kort og fréttamyndir sem tengjast íslandi er að finna í þessari umfjöllun um eldgos og jarðhræring- ar. Tvær fréttamyndir frá gosinu í Heimaey, og ein fréttamynd frá gos- inu í Vatnajökli á síðasta ári, og flóð- inu sem fylgdi í kjölfarið, eru á diskn- um. Við getum því verið ánægð með að útiendingarnir muna eftir okkur í þessu samhengi. Landkynning og allt það! Reyndar eru fréttamyndirnar frá Islandi með betra myndefni á disknum því það verður að segjast að myndirn- ar eru margar hverjar mjög hráar og ofureinfaldar. Maður fær helst á til- fmninguna að efnið fyrir diskinn hafi verið tekið saman í hendingskasti og skellt á hann í miklum flýti til þess að koma honum á markaðinn áður en „Dante’s Peak“ dytti úr bíó. Fyrir fólk sem býr íjarri eldfjöllum og sprungum á jarðskorpunni eru tíndar til nokkrar skrýringar á því hvers vegna búið er nálægt eða ofan á slíkum svæðum. Jarðhiti, fijósamur jarðvegur, og ferðamannaiðnaður út- skýrir hvers vegna þijóskast er við á stöðum eins og íslandi. í framhaldi af þessu eru óinnvígðir hvattir til þess að setja sig í spor íslendinga og skrifa ritgerð annars vegar um ástæð- ur þess að maður kýs að búa á eyj- unni, eða hins vegar ástæðurnar bak við ákvörðunina um að flytja brott frá þessum lífshættulega stað. EIN af skýringarmyndunum á „Dante’s Peak: the Inside Story & Educational Guide“. HANDBOLTI HEIMSMEISTARAKEPPNI 'HeimsmeistaE4aafslát+wi4 á Samumi Japanski veitingastaðurinn, Samurai, sýnir stuðning við íslenska landsliðið í handbolta með sérstökum keppnisafslætti í tilefni af HM í handbolta í Japan dagana 17. maí til 2. júní. Notum tækifærið og kynnumst japanskri matargerðarlist á eina japanska veitingastaðnum á íslandi sem eingöngu framreiðir japanska rétti. ýV\egI íslenskw víkingappvip sigpa í keimalaKvdi japanska samúpæja! JAPANSKUR VEITINGASTAÐUR Ingólfsstræti 1A, Reykjavík, s. 551 7776 beint á móti íslensku óperunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.