Morgunblaðið - 16.05.1997, Side 20

Morgunblaðið - 16.05.1997, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Morgunblaðið/Sigurgeir KAP VE 4, sem áður hét Hersir ÁR, fékk „andlitslyftingu" í flot- kvínni í Hafnarfirði áður en það sigldi til heimahafnar í Eyjum. Kap er nú á síidveiðum ásamt fjölda annarra nótaveiðiskipa. Vinnslustöðin kaupir Hersi af Ljósavík Loðnukvótinn fylgdi með í skipt- um fyrir rækju VINNSLUSTÖÐIN hf. hefur keypt fjölveiðiskipið Hersi ÁR af Ljósavík hf. í Þorlákshöfn og hyggst gera það út á síld- og loðnuveiðar, en jafnframt er möguleiki á að útbúa það á troll- veiðar. Loðnukvóti Ljósavíkur, um 1,98% af heildarloðnukvótanum eða um fjórtán þúsund tonn, fylgdi með í kaupunum, en á móti fékk Ljósavík rækjukvóta frá Vinnslu- stöðinni, um 600 tonn. Skipið, sem nú hefur hlotið r.ýtt nafn, Kap VE 4, var byggt sem fjölveiðiskip í Póllandi árið 1987 og er þar af leiðandi eitt nýjasta nótaveiðiskip flotans. Það var á fyrstu árunum gert út á nót og hét þá Jón Finnsson RE og keypti Ljósavík skipið af Gfsla Jóhannessyni, sem lét smíða það á sínum tíma fyrir sig. Ljósavík hefur hinsvegar alfarið gert skipið út á rækjuveiðar. Allt er falt ef rétt er boðið „Það hefur gengið alveg ein- staklega vel á þetta skip. Við höf- um alltaf gert það út á rækju og í þessi tvö ár og þrjá mánuði sem við höfum gert það út hefur skip- ið fiskað fyrir litlar 855 milljónir króna. Það hefur gengið afspyrnu vel miðað við mannfjölda um borð,“ sagði Steingrímur Erlings- son, útgerðarstjóri Ljósavíkur hf. í Þorlákshöfn, í samtali við Verið. Inntur eftir því hvers vegna skipið hafi verið til sölu í ljósi velgengn- innar, svaraði Steingrímur: „Skip- ið var í reynd ekki til sölu, en þegar rétt er boðið, er allt falt. Er það ekki?“ Að öðru leyti vildi hann ekki gefa upp söluverð skips- ins. „Nú er svo mikil uppsveifla í uppsjávarfiski að það er verið að koma öllum þeim skipum, sem hafa þann búnað að geta verið á nót, á nót. Vinnslustöðin bauð rétt og fékk skipið þó fleiri hafi borið víurnar í það. Margir vildu fá, en færri komust að.“ Bætum örugglega við rækjutogara Að sögn Steingríms er Ljósavík nú að leita að öðru skipi til kaups í stað Hersis, en fyrir er fyrirtæk- ið með tvö önnur rækjufrystiskip í rekstri, Gissur ÁR 2 og Gissur ÁR 6. „Það verður örugglega bætt við þriðja skipinu í staðinn fyrir Hersi. Við erum að leita að rækju- togara, álíka stórum og Hersir var, en hann bar um 800 tonn. Við höfum enn ekki fundið rétta skipið þó segja megi að ýmislegt sé í deiglunni, bæði hérlendis og erlendis." Uppistaða kvótans er bundin í rælyu Skip Ljósavíkur fóru til úthafs- veiða á Flæmska hattinn í fyrra, en Steingrímur á ekki von á að af því verði í ár. „Við hefðum eflaust getað fengið aukakvóta á Flæmingjagrunni, en Ljósavík er hinsvegar mjög sterkt fyrirtæki í kvóta hér heima og Dhornbankinn sýnist mér vera að stefna í mjög gott ár. Ég held að einungis Sam- herji eigi meiri rækjukvóta en við, en Ljósavík er með um fjögur þús- und tonna þorskígildiskvóta, þar af er 80-85% rækja,“ segir Stein- grímur. Mest af iðnaðarrækjunni hefur verið seld til Básafells á ísafirði og önnur frystirækja hefur verið seld beint á markaði erlendis í gegnum íspóla hf. Tvö skip á söluskrá Kap, sem verið hefur í eigu Vinnslustöðvarinnar, heitir nú Kap II, en tvö skip í hennar eigu, Jón yídalín og Sindri, eru á söluskrá. Olafur Einarsson verður skipstjóri á hinum nýja Kap, en sá sem var skipstjóri á skipinu á meðan það var í eigu Ljósavíkur er Gissur Baldursson. Netarallið ÞORSTEINN Pálsson, sjávarút- vegsráðherra, segir þær athuganir, sem gerðar eru í netaralli Hafrann- sóknastofnunar það nýjar af nálinni að þær séu ekki enn orðnar stór hluti af gagnagrunni stofnunarinn- ar og því verði ekki tekið verulegt tillit til þeirra í stofnstærðarmati. Hafrannsóknastofnun mun þann 26. maí nk. kynna tillögur sínar fyrir næsta fiskveiðiár. er of ungt Ráðherra segir að eftir því sem netarallið verði framkvæmt oftar vegi það þyngra í heildarmatinu. Netarallið fór fram í fyrsta skipti í fyrra og varð heildarafli netaralls- ins í ár um 20% meiri en á síðasta ári. Afli jókst á öllum svæðum að undanskilinni Meðallandsbugt, en aflaleysið þar er rakið til jökulfram- burðar úr Skeiðará. Sáttasemjarinn Dennis Ross hittir fulltrúa ísraels og PLO Israelar ánægðir en fulltrúar PLO ekki Jerúsalem. Reuter. ÍSRAELAR voru ánægðir með síð- ustu heimsókn bandaríska sátta- semjarans Dennis Ross til Mið- austurlanda en fulltrúar Palestínu- manna (PLO) sögðu hana hafa verið mislukkaða með öllu. Ross hélt í fyrrakvöld þriggja stunda fund með Saeb Erekat, sem fer með sveitarstjórnarmál í sjálf- stjórn Palestínumanna, Nabil Shaath, skipulagsmálaráðherra PLO, Yitzhak Mordechai, yfir- manni ísraelskra landvarna og Yitzhak Molcho, nánum ráðgjafa Benjamins Netanyahu forsætis- ráðherra. Fundurinn fór fram á heimili bandaríska sendiherrans í ísrael. Ross átti fund með Net- anyahu í gær og ráð var fyrir gert að hann hitti Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í dag. Miðað við yfirlýsingar beggja aðila að fundi loknum var eins og fulltrúar PLO og ísraels hefðu ekki komið af sama fundi. „Þessi sendiför Dennis Ross var misheppnuð. Bandaríkjamenn verða að skuldbinda ísraela til að standa við það sem þeir hafa skrif- að undir,“ sagði Erekat. „Ég held að á þessum fundi hafi verið lagð- ur grundvöllur að frekari viðræð- um. Samningar aðila hefjast auðvit- að á ný, það er beggja hagur,“ sagði Netanyahu. Arafat var ekki sömu skoðunar. „Því miður varð lítill árangur af þessum fundi, engar ákvarðanir teknar, eini ár- angurinn var að fundurinn skyldi haldinn,“ sagði hann. PLO hefur krafist þess að ísra- elar hætti byggingarframkvæmd- um í austurhluta Jerúsalem áður en þeir setjast aftur niður með ísraelum. Utanríkisráðherra ísra- ela, David Levy, mun í dag eiga fund í Washington með Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um deilumál ísra- ela og PLO. Með vistir og vara- hluti til Mír Canaveralhöfða. Reuter. GEIMFERJUNNI Atlantis var skotið á braut um jörðu í gær til níu daga leiðangurs. Tilgangur ferðarinnar er einkum að fara með vistir og varahluti til rúss- nesku geimstöðvarinnar Mír. Um borð í Atlantis er sjö manna áhöfn og hefur samsetn- ing hennar aldrei verið jafn al- þjóðleg. Auk Bandaríkjamanna eru í áhöfninni rússnesk kona, Frakki, Breti og Perúbúi auk geimfara sem er af kínverskum innflytjendum kominn. Annar flugmanna ferjunnar er Eileen Collins, sem árið 1985 varð fyrst bandarískra kvenna til þess að fljúga geimferju. Rússneska kon- an, Elena Kondakova, dvaldist á sínum tíma 169 daga um borð í Mír á árunum 1994-95. Það tekur Atlantis um tvo sól- arhringa að komast til móts við Mír. Dönsk móðir fær barn sitt í hendur í New York Málið sagt árekstur tveggja menningarheima New York. Reuter. DANSKA leikkonan Annette Sor- ensen fékk fjórtán mánaða dóttur sína, Liv, í hendur á miðvikudag, en þá hafði barnið verið í fóstri í fjóra daga. Telja lögreglan og dóm- stólar að hún hafi sýnt vítavert gáleysi er hún skildi barnið eftir í vagni fyrir utan veitingastað sem hún sat á. Meðal þeirra sem hafa blandast í málið eru borgarstjórinn í New York og forsetafrúin en málið þykir sígilt dæmi um árekst- ur tveggja menningarheima. Sorensen fékk barnið í hendur í dönsku sjómannakirkjunni í Bro- oklyn og munu móðir og barn dvelja þar, þar til mál móðurinnar hafa verið til lykta leidd fyrir dómstólum. Sorensen kemur fyrir rétt nk. mánudag, en hún og barnsfaðirinn voru sökuð um óspektir á almanna- færi er þau reyndu að koma í veg fyrir að lögreglan tæki barnið. Þá verður einnig tekið fyrir mál á hendur þeim fyrir að stefna öryggi barnsins í voða, og verður þá tekin ákvörðun um forræði barnsins. Málið hefur vakið mikla athygli I Bandaríkjunum og þar voru á miðvikudagskvöld sýndar myndir Reuter Annette Sorensen kyssir dóttur sína, Liv. af endurfundum mæðgnanna á öll- um stærstu sjónvarpsstöðvunum, auk þess sem fréttamenn frá Spáni, Svíþjóð, Bretlandi og að sjálfsögðu Danmörku voru á staðn- um. Þá hafa verið sýnd myndbrot af Hillary Clinton forsetafrú í Kaupmannahöfn, þar sem hún vek- ur athygli á því að Danir skilji börn sín eftir í barnavögnum fyrir utan verslanir og hefur orð á því hversu gott það væri ef allir byggju við svo mikið öryggi að geta þetta. Bandarískir fjölmiðlar hafa dregið upp þá mynd af móðurinni að gjörðir hennar í stórborginni hafi verið einfeldningslegar og barnalegar. Þá hefur málið orðið til að ýta undir þá mynd af Dönum að þeir séu friðsöm þjóð þar sem glæpir séu fátíðir og almenningur óttist ekki náungann. Sér sendi- herra Dana í Bandaríkjunum ástæðu til að fagna því, í samtali við Jyllands-Posten. í lagi að vera „of varkár“ Talsmenn barnaverndareftirlits benda á að barninu hafi verið kalt og fleiri en einn vegfarandi hafi bent foreldrunum á það. Foreldr- arnir hafi hins vegar þverskallast við að taka barnið úr vagninum og inn á veitingastaðinn. Sorensen hafi ekki getað séð vagninn úr sæti sínu, hún hafi orðið að standa upp til að sjá hann. Þá hefur Robert Giuliani, borg- arstjóri New York-borgar, blandað sér í málið og varið gjörðir lögregl- unnar. „Þeir gerðu það rétta í stöð- unni. Það getur verið að þeir hafi verið of varkárir en það er í lagi,“ sagði Giuliani.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.