Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ANNA Líndal „Ódauðleg fegurð".
„Hluti úr lífi“
MYNPLIST
Gallerí Ingólfsstræti 8
BLÖNDUÐ TÆKNI
Anna Líndal. Opið fimmtudaga-
sunndaga kl. 14-18, aðgangur
ókeypis. Til 25. maí.
SÝNING Önnu Líndal saman-
stendur af tveimur verkum. Annars
vegar af stækkaðri ljósmynd af
henni að taka mittismál sitt og
hefur titilinn „28 tommur“. Hins
vegar er samsett ljósmyndaverk
sem nefnist „ódauðleg fegurð“. Þar
notar Anna ljósmyndamiðilinn til
að skrásetja þá þjónustu sem hún
kaupir sér á snyrtistofum, í húð-
hreinsun, hand- og fótsnyrtingu,
vaxmeðferð, hársnyrtingu, förðun
og þar til hún er komin í íburðar-
mikinn kjól. Myndefnið er sett fram
með raunsæisblæ og eru hvít bród-
eruð handklæði báðum megin við
verkið til að leggja áherslu á það.
Hin kvenlega ímynd hefur verið
áberandi í menningu vestræns þjóð-
félags. Kvenleiki og kvenlegt innsæi
hafa verið í hávegum haft og sagt
til um hvemig konur eigi að líta
út og koma fram. Markaðssetningu
tískunnar er einnig að finna hvar-
vetna og er þannig reynt að við-
halda fyrirmyndinni.
Anna undirstrikar í verki sínu
hvers krafist hefur verið af konum
hvað fullkomnun á útliti þeirra varð-
ar og er ádeila á þá hugmyndafræði
sem hefur verið ríkjandi og kallar
sífellt upp yfirborðslega mynd af
konum. Síðustu áratugi hafa mynd-
listarkonur í auknum mæli fjallað
um málefni kvenna með ýmsu móti
og meðal þeirra hafa bandarísku lis-
takonumar Cindy Sherman og Bar-
bara Kruger notað ljósmyndamiðil-
inn á ólíkan hátt í verkum sínum.
Verk Önnu fjalla um hversdags-
lega hluti á áþreifanlegan og oft
skondinn hátt og ættu því að vekja
umræður um þá staðreynd að í
nútímaþjóðfélagi er ekki lengur
þörf á hinni fastmótuðu kvenímynd.
Hulda Agústsdóttir
USTAKOKKAR li Jjf
OG DÁSAMIEGUR MATUR I
(TILEFN115 ÁRA AFMÆLIS OKKAR:
Kvöld og helgar-
tilboð
allan maímánuð
Hefurdu boðið
fjölskyldunni út að borða nýlega?
Viö erum á besta
staö í bænum.
POTTURINN
OG
PflNI
Góö aðstaöa í bama-
horninu.
BRflUTfiRHOLTI 22
SÍMI 551-1690
Ástin og
fordómarnir
KVIKMYNPIR
Stjörnubíó
EINNAR NÆTUR GAM-
AN„FOOLSRUSH IN“
★ ★ Vi
Aðalhlutverk: Matthew Perry, Salma
Hayek. Jill Clayburgh. TriStar. 1996.
RÓMANTÍSKA gamanmyndin
Einnar nætur gaman tekst að koma
nokkuð á óvart með hófstilltri og
lúnkinni lýsingu á ungu pari af ólík-
um uppruna, sem ruglar saman
reytunum í gleðiborginni Las Veg-
as. í Hollywood er löng hefð fyrir
rómantískum gamanmyndum.
Blómatími þeirra stóð um miðja
öldina en þær hafa orðið mjög áber-
andi hin síðari ár enda markaður
fyrir þær breiður og mikill meðal X
kynslóðarinnar, sem oftar en ekki
leikur aðalhlutverkin í þeim. Einnar
nætur gaman sker sig úr að því
leyti að hún fjallar af nokkurri al-
vöru um par af ólíkum kynþáttum
og vandamálin sem því fylgja. Hún
er ekki eins formleg og „Guess
Who’s Coming to Dinner?“ en
vandamálin eru merkilegt nokk
mörg hin sömu.
Góðhjartað uppakríli af austur-
ströndinni bamar mexíkanska feg-
urðardis eftir einnar nætur gaman
og þremur mánuðum seinna bankar
hún uppá hjá honum með gleðifrétt-
irnar. Hann gerir það sem allir heið-
arlegir menn mundu gera, fríkar
út, en þegar hann hefur jafnað sig
kynnist hann stórfjölskyldu hennar
og fýrr en varir er hann orðinn
kvæntur maður mjög gegn vilja
föður stúlkunnar.
Uppinn er leikinn af viðkunnan-
legum leikara að nafni Matthew
Perry og gerir hann margt gott
með sinn afslappaða húmor. Eink-
anlega eru viðskipti hans við fimm
bræður stúlkunnar og fyrrum kær-
asta velheppnuð kómedía. Perry
gætir þess að áhorfendur treysti
alla tíð almennri skynsemi persón-
unnar og vinnur þá á sitt band með
sinni hæglátu framkomu. Og af því
hann er næstum því dauðyfli passar
Salma Hayek ágætlega við hann
sem blóðheit og ögrandi mexíkósk
kona, þótt hún eigi það til að of-
leika.
Margt snjallt er að finna í handrit-
inu þegar kemur að deilumálum eins
og kaþólsku og mótmælendatrú,
gagnkvæmum kynþáttafordómum
milli hvítra Bandaríkjamanna og
Mexíkana og ýmislegu öðru varð-
andi ólíkan bakgrunn aðalpersón-
anna tveggja. Ekkert af því er veru-
lega djúphugsað en handritið kemur
boðskapnum til skila á einfaldan og
gamansaman hátt. Og út á það
ganga rómantísku gamanmyndim-
ar, einfeldni og gamansemi.
Arnaldur Indriðason
RÚRÍ. Fjórir metrar, tuttugu metrar.
Afstæða
MYNPLIST
Tuttugu fermetrar,
Vesturgata 1Oa
kjallari
INNSETNING, BLÖNDUÐ
TÆKNI
RÚRI
Opið miðvikudaga - sunnudaga kl.15-
18 til 18. maí. Aðgangur ókeypis
VERK Rúríar „Afstæða" er röð
rúmfræðiforma í fjórum hlutum.
Tónleikar í
Nýja tónlistar-
skólanum
TÓNLEIKAR hjóðfæranemenda í
4.-8. stigi verða á morgun, laugar-
dag kl. 14. Þar leikur Ingólfur Jó-
hannesson á píanó.
Próftónleikar verða þriðjudaginn
20. maí kl. 20. Þá syngja Asthildur
E. Bemharðdóttir og Ólafur Sveins-
son.
Miðvikudaginn 21. maí kl. 18
verða hljómsveitar- og próftónleikar.
Þar koma fram Dagný Tryggvadótt-
ir og Elísabet Þórðardóttir. Einnig
koma fram tveir einleikarar með
hljómveitinni.
Tveir ferningar, sem mynda par;
ferhyrningur; þríhyrningur og
hringbogi eru gerðir úr mælieining-
um sem mynda formgerð þeirra.
Mælieiningar sem fara í gerð ytri
sniða segja til um lengd þeirra.
Samtals er sýningin sextíu og fjórir
metrar.
Afstaða milli grunnformanna
eru borin saman innbyrðis. Jafn-
framt hefur verið tekið mið af
grunnflatarmáli rýmisins við gerð
þeirra.
í sýningarskrá er tiltekin ná-
kvæm metralengd hvers forms. í
henni er einnig gefín hugmynd um
hvernig túlka má sýninguna út frá
ljóðrænni mælivídd: „Afstæða
Fjærstæða Hliðstæða Samstæða
Andstæða." Hér er byggt á stefnu
póststrúktúralisma. Mótsagnir sem
felast í sundurliðun lesháttar valda
því að áhorfandinn á erfitt með
skilja merkingu verksins. Mælingar
sem byggðar eru á staðreyndum
virðast nú afstæðar. Tölur þeirra
segja til um hlutfallslega nákvæma
niðurstöðu en ekki endanlega niður-
stöðu.
Inntak verksins felst í því að
láta áhorfandann skynja hvar
mörkin milli efnislega og ljóðræna
þáttarins liggja. Þar með minnir
Rúrí á með sýningu sinni að ekkert
er algilt.
Hulda Ágústsdóttir
Sparistell-
ið tekið
niður
NÝSTÁRLEG samsýning tólf
listamanna, postulín, var opnuð
í Hafnarborg laugardaginn 19.
apríl. Þeir sem taka þátt í sýn-
ingunni eru Elínrós Eyjólfs-
dóttir, Guðjón Bjamason, Helgi
Þorgils Friðjónsson, Hulda Há-
kon, Jón Óskar Hafsteinsson,
Kristján Guðmundsson, Ólöf
Norðdal, Ragnheiður Ragnars-
dóttir, Steingrímur Eyfjörð,
Tumi Magnússon og Vignir
Jóhannsson.
Sýningunni lýkur mánudag-
inn 19. maí. I Sverrissal er
sýning á verkum úr eigu safns-
ins.
„Börnin
sýna“
LISTSÝNINGU leikskóla-
barna á Akranesi sem verið
hefur í Listasetrinu Kirkju-
hvoli, Akranesi, lýkur sunnu-
daginn 18. maí.
Á sýningunni eru margs-
konar listaverk sem er afrakst-
ur vetrarstarfs barna á leik-
skólunum á Akranesi. Börnin
em á aldrinum 2-6 ára og
stunda list sína á leikskólunum
Bakkaseli, Vallarseli, Akra-
seli, Garðaseli og Heiðarborg
á Akranesi.
Listasetrið er opið daglega
frá kl. 15-18.
Vortónleikar
Tónskóla
Eddu Borg
TÓNSKÓLI Eddu Borg heldur
vortónleika í Seljakirkju á
morgun, laugardag kl. 13,
14.30 og 16, þar sem nemend-
ur skólans koma fram. Fram
koma m.a. forskólanemendur
sem leika á blokkflautur og
syngja, lúðrasveit skólans,
strengjasamspil, harmoníku-
hópur og ein- og samleikur.
Skólaslit fara fram í Selja-
kirkju þriðjudaginn 27. maí
kl. 18.
DYRFJÖLL verða ni.a. á
sýningu Birgis Schioth í
Hafnarfirði.
Birgir Sehioth
opnar mynd-
listarsýningu
BIRGIR Schioth opnar sýn-
ingu á verkum sínum á morg-
un, laugardag, í Fjarðarnesti,
Bæjarhrauni 4, Hafnarfirði.
Flest verk Birgis í Fjarðar-
nesti eru pastelmyndir.
Skartgripir -
sýningarlok
SÝNING Elísabetar Ásberg í
galleríi Handverks & hönnun-
ar, Amtmannsstíg 1 lýkur nú
um helgina. Elísabet Ásberg
hefur verið með sýningu á
skartgripum gerðum úr silf-
urvír, steinum, fjörugleri o.fl.
Galleríið er opið á laugardag
frá kl. 12-20 og annan í hvíta-
sunnu frá kl. 14-20.