Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ1997 25
LISTIR
Morgunblaðið Albert
SÖNG Samkórs Fáskrúðsfjarðar var vel tekið af áheyrendum.
Vortónleikar í Skrúð
Fáskrúðsfjörður. Morgunblaðið.
Samkór Fáskrúðsfjarðar hélt
vortónleika í Félagsheimilinu
Skrúð sunnudaginn 11. maí,
undir sljórn Eyjólfs Ólafssonar,
sem jafnframt er undirleikari
kórsins.
í kórnum eru 11 konur og
átta karlar, sem hófu að syngja
saman í vetur.
Á dagskrá voru 18 lög auk
syrpu af rússneskum lögum.
Kórinn frumflutti lag eftir
sljórnandann við ljóðið Fá-
skrúðsfjörður eftir Jórunni
Bjarnadóttur, fyrrum húsreyju
í Lækjarhvoli. Einsöngvari með
kórnum var Páll Gunnarsson
sem söng tvö Iög.
I hléi á tónleikunum lék Anna
Lilja Karlsdóttir tvö lög á
trompet en hún er kennari við
Tónskólann. Kórnum var vel
tekið af áheyrendum og varð
hann að endurtaka nokkur lög.
Nýjar bækur
• „STOCHASTIC Processes
and Random Vibrations: Theory
and prací/ce “eftir Júlíus Sólnes,
prófessor við verkfræðideild Há-
skóla íslands, er
komin út. Bókin
er skrifuð á
ensku og er að
mestu leyti
stærðfræðileg
umfjöllun um til-
viljunarkennd
ferli og sveiflu-
hreyfingar og
byggir á áralöngum rannsóknum
og athugunum höfundar á eðli jarð-
skjálftahreyfinga og vindálags á
byggingarmannvirki. Mörg raun-
hæf verkefni og dæmi eru með í
texta bókarinnar, þar sem höfundur
kemur m.a. inn á jarðskjálftahönn-
un stórbygginga í Mexíkóborg. í
bókinni er einnig fjallað um þreytu-
brot í byggingarefnum af völdum
titrings, F'ouriergreiningu og undir-
stöðuatriði merkjafræði og áhættu-
greiningu á jarðskjálftavá svo dæmi
séu tekin.
Útgefandi erJohn Wiley&Sons
sem ereitt stærsta vísindabókafor-
lag heims. Bókin er 432 síður og
verður henni dreift á alþjóðlegum
markaði.
Kristján Jóns-
son sýnir í Vest-
mannaeyjum
í VESTMANNAEYJUM hefur skap-
ast sú hefð um hvítasunnuhelgina
að halda menningarhátíðina Dagur
lita og tóna og er þá einum myndlist-
armanni jafnan boðið að sýna auk
þess sem jasstónleikar eru haldnir.
í ár var myndlistarmanninum
Kristjáni Jónssyni boðið að sýna
verk sín og er sýningin í sal Akóg-
es, en það eru félagsmenn innan
vébanda Akóges sem standa að sýn-
ingunni. Kristján sýnir 14 málverk
sem mörg hver hafa tilvísun til Eyj-
anna, segir í kynningu.
------♦ ♦ ♦-----
Lagt á borð
fyrir tvo
LISTAMAÐUR maímánaðar í gall-
eríi Smíðar og skart, Skólavörðustíg
16A, er Guðbjörg Káradóttir.
Guðbjörg hefur lagt á borð fyrir
tvo og er með sýningu á matar- og
kaffistelli og öllum fylgihlutum þess.
Sýningin stendur til 1. júní og er
opin á verslunartíma frá kl. 11-18
virka daga og 11-14 laugardaga.
Kirkja o g kirkjuskrúð
í Þjóðminjasafninu
Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDEGI Norð-
manna laugardaginn 17. maí,
verður opnuð í Þjóðminjasafni ís-
lands, kl. 14, sýningin Kirkja og
kirkjuskrúð, miðaldakirkjan í
Noregi og á íslandi, samstæður
og andstæður.
Á sýningunni verða valdir
kirkjumunir frá miðöldum úr
Þjóðminjasafni og sambærilegir
gripur úr norskum söfnum. Tveir
íslenskir gripir koma úr Þjóð-
minjasafni Dana í Kaupmanna-
höfn sem þar hafa verið vistaðir
hátt á aðra öld og fáir Islending-
ar hafa séð. Annar er sá Grundar-
stóllinn sem Danir héldu eftir
1930 en hitt er helgiskrín frá
Keldum.
Til sýnis verða líkön af norskum
stafkirkjum frá miðöldum og ný-
smíðað líkan af íslenskri miðalda-
dómkirkju en dómkirkjurnar í
Skálholti og á Hólum voru stærstu
timburhús á þeim tíma í norðan-
verðri Evrópu. Þá verður endur-
gerð í fullri stærð lítil kirkja eins
og þær munu hafa tíðkast í sveit-
um hér á landi í upphafi kristni.
Sýningin er unnin fyrir fjárveit-
ingu úr norsk-íslenskum menn-
ingarsjóði sem stofnaður var af
Norðmönnum 1994 í tilefni af 50
ára afmæli íslenska lýðveldisins.
Að henni hafa unnið íslenskir og
norskir miðaldasérfræðingar,
arkitektar og smiðir, og í tengsl-
um við sýninguna verður gefin
út bók á þrem tungumálum með
greinum um ýmislegt tengt sýn-
ingunni, auk þess sem í henni
verður sýningarskrá.
KIRKJUSMÍÐ í Þjóðminjasafninu. Unnið að endurgerð lítillar
kirkju, eins og þær munu hafa tíðkast í sveitum hér á landi í
upphafi kristni.
TVEIR íslenskir gripir koma úr Þjóðminjasafni Dana í Kaup-
mannahöfn sem þar hafa verið vistaðir hátt á aðra öld og fáir
íslendingar hafa séð. Annar er sá Grundarstóllinn sem Danir
héldu eftir 1930 en hitt er helgiskrín frá Keldum.
Augað
sem sér
„LOCUS OCULI“, Augað sem sér,
var yfírskrift samsýningar átta lista-
manna frá Danmörku, Finnlandi og
íslandi, haldin í Seinajoen Taidehalli,
Finnlandi, dagana 4.-27. apríl sl.
„Sýningunni var, í gi-ófum drátt-
um, ætlað að lýsa skyldleika og mis-
mun í norrænum byggðum andstætt
öðrum hluta veraldarinnar," segir í
kynningu.
íslendingurinn Magdalena Mar-
grét Kjartansdóttir fór ásamt Lars
Munde, dönskum grafíklistamanni,
til að setja upp sýninguna í Seinájo-
en. Magdalena sýndi 20 verk unnin
VERK eftir Magdalenu
Margréti.
í dúkristu og með blandaðri tækni.
Seinájoen er 35.000 manna borg
og prýða hana byggingar Alvars
Aaltos; kirkja, bókasafn, leikhús,
sönghöll og borgarráðsbyggingar
reistar í miðri borginni.
Samsýningunni var vel tekið og
birtust margar í finnskum blöðum.
Tvær sýningar
á Stokkseyri
ELFAR Guðni opnar myndlistar-
sýningu í Gimli og á kaffihúsinu
Við fjöruborðið á Stokkseyri, á
morgun, laugardag kl. 14.
Á sýningunni á Gimli eru myr.d-
ir málaðar með olíu á striga, mas-
onít og olíupastel. Einnig verða á
sýningunni sjávarmyndir úr
Borgarfirði. Við fjöruborðið eru
sýndar olíumyndir málaðar á sér-
stakan pappír.
Sýningunum lýkur 1. júní.
Gimli er opið um helgar frá kl.
14-22 og virka daga frá kl.
17-22.
<5g> TOYOTA