Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Atvinnulaus maður fór á biðlista eftir hjartaaðgerð Á rétt á bótum vegna tímabundinnar örorku Lundúnaferðir Stöðvar 2 Búið að selja 2.500 farseðla UM 2.500 farseðlar til Lund- úna með flugfélaginu Atlanta hafa verið seldir áskrifendum Stöðvar 2 á 9.900 kr. hjá Sam- vinnuferðum-Landsýn. Ferð- irnar standa til boða þeim áskrifendum sem halda áfram áskrift í sumar og þeim sem kaupa nýja áskrift til a.m.k. þriggja mánaða. Að sögn Helga Jóhannsson- ar forstjóra Samvinnuferða- Landsýnar eru um 4.600 sæti boðin áskrifendum Stöðvar 2 í 17 ferðum allt til loka sept- ember. Sagði Helgi að eftir- spurnin hefði verið það mikil að erfitt hefði verið að anna henni og allar símalínur hjá ferðaskrifstofunni verið rauð- glóandi. „Það er útlit fyrir að flest sætin verði seld þegar kemur undir lok vikunnar," sagði Helgi. AÐSTOÐARMAÐUR heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kveðst draga í efa að dæmi það sem Ásta R. Jóhannesdóttir nefndi í almenn- um stjórnmálaumræðum á Alþingi í fyrrakvöld, um atvinnulausan mann sem veikist og fer þar með á sjúkradagpeninga meðan hann er á biðlista eftir hjartaaðgerð, standist. Sjúkradagpeningar eru 582 kr. á dag eða 18.042 kr. á mánuði og við þá upphæð bætast 158 kr. á dag með hverju barni undir átján ára aldri sem viðkomandi er með á framfæri. í nefndu tilviki væri mað- urinn, sem hefur eitt barn á fram- færi, því með alls 22.940 kr., sé miðað við 31 dag í mánuði. Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður ráðherra, segist í sjálfu sér ekki geta borið á móti þessum útreikn- ingi en telur að maðurinn eigi rétt á greiðslum vegna svokallaðrar tímabundinnar örorku meðan hann bíður eftir aðgerðinni. Meðan á læknismeðferð stendur ætti hann að fá sjúkradagpeninga en þegar að endurhæfingu eftir aðgerðina kemur ætti hann að fá endurhæf- ingarlífeyri. Verktökum skylt að greiða í lífeyrissjóð Auk þess telur Þórir það nánast útilokað að maðurinn þurfi að bíða jafnlengi eftir hjartaaðgerðinni og Ásta heldur fram. Þórir bendir á að ástæðan fyrir því að hann fellur út af atvinnuleysisbótum hljóti að vera sú að hann er óvinnufær og sé hann óvinnufær vegna veikinda sinna hljóti meðferð hans að verða hraðað. „Annars er erfitt að segja til um þetta þar sem maður þekkir ekki aðstæður þessa einstaklings," segir Þórir og kveðst því ekki geta nefnt neinar upphæðir þeirra bóta sem hann _ætti rétt á. í máli Ástu kom fram að um- ræddur einstaklingur hefði unnið sem verktaki og ætti því ekki annan rétt en í almannatryggingakerfinu, en hefði hann verið launþegi hefði hann haldið launum sínum í ein- hvern tíma og getað leitað til sjúkrasjóðs verkalýðsfélags síns. Þórir bendir á að veikindi séu hluti af því sem verktakar verði að taka með í reikninginn og vekur athygli á því að það sé lagaskylda á verk: tökum að greiða í lífeyrissjóð. í raun séu sjúkradagpeningarnir hugsaðir sem viðbót við þann veik- indarétt sem menn eiga hjá vinnu- veitanda sínum samkvæmt kjara- samningum og þann rétt sem þeir ávinna sér með því að vera í stéttar- féiögum. Bein út- sending undirbúin UNDIRBÚNINGUR útsending- ar á þættinum Good Morning America var í fullum gangi við Bláa lónið þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kom þar við í gær en kl. 11 í dag hefst bein útsending þaðan og frá Austur- velli í Reykjavík til Bandaríkj- anna, þar sem gert er ráð fyrir að um 23 milljónir áhorfenda sjái þáttinn. Yfirvöld ferðamála áætla að þetta sé eitt stærsta tækifæri sem boðist hefur til kynningar á Islandi, atvinnu, menningu og útflutningsvörum í Banda- ríkjunum. Þættinum er ætlað að gefa fjölbreytta mynd af landi og þjóð og meðal þess sem sýnt verður er íslenski hestur- inn, íslensk glíma, hönnun, tíska og jarðsaga landsins. Þátturinn verður sýndur beint í Ríkissjónvarpinu og hefst útsendingin kl. 11. Menntamálaráðuneytið semur við RUM Fimm ára verk- samningur um samræmd próf UNNIÐ er að gerð fimm ára verk- samnings milli menntamálaráðu- neytis og Rannsóknarstofnunar uppeldis- og menntamála um framkvæmd samræmdra prófa. Samningurinn tekur til samn- ingar prófanna, framkvæmdar og úrvinnslu og er þar kveðið á um ákveðið vinnuferli til að tryggja áreiðanleika og réttmæti próf- 160 sækja um ríkisborgararétt RÚMLEGA 160 manns hafa sótt um íslenskan ríkisborgararétt til Alþingis og hefur allsheijarnefnd samþykkt 97 umsóknir. Umsækjendur sem uppfylla kröf- ur nefndarinnar eru frá 33 löndum og fimm heimsálfum. Pólveijar eru flestir, eða tólf talsins, en Sovét- menn og Filippseyingar einum færri. anna. Þetta kom fram í máli Björns Bjarnasonar menntamála- ráðherra við utandagskrárumræð- ur á Alþingi um framkvæmd sam- ræmdra prófa sem fram fóru í gær. Ráðherrann sagði að með þeim áherslum sem lagðar yrðu í verk- samningnum mætti komast hjá þeim erfiðleikum sem orðið hefðu á undanförnum árum í fram- kvæmd samræmdra prófa. Nokkrir þingmenn lýstu áhyggjum sínum vegna þeirra deilna og óánægju sem samræmt stærðfræðipróf hefur valdið. Þeir sögðu að þær breytingar á sam- ræmdu prófunum sem gerðar hefðu verið kölluðu á faglegri vinnubrögð og vandaðra námsmat en tíðkast hefði. Þeir bentu á að áhersla á samræmdu greinarnar hefði aukist á kostnað annarra greina, til dæmis list- og verk- greina og félagsgreina og vöruðu við þeirri þróun. Morgunblaðið/RAX Bætur vegiia ijóns á fiskí og sjókvíum VATRYGGINGAFELAGI Islands hefur verið gert að greiða Hafbeit- arstöðinni Kleifum rúmar 23 millj- ónir króna, auk vaxta frá 1992, í bætur vegna stórfellds tjóns sem varð á eldisfiski og sjókvíum. Mál- ið fór fyrir dómstóla þar sem ágreiningur var um hvort trygg- ingar hefðu verið í gildi. Hafbeitarstöðin keypti fiskinn og kvíarnar á nauðungaruppboði, en Fellalax var fyrri eigandi. Fella- lax var með tryggingasamning við Vátryggingafélagið Skandia, sem VÍS keypti síðar. Töldu eigendur Hafbeitarstöðvarinnar að með kaupunum á eigum Fellalax hefðu þeir gengið inn í öll réttindi félags- ins, þar á meðal tryggingasamn- inga. Hæstiréttur var sammála þessu tryggingafélagið hefði samþykkt greiðslu frá Hafbeitarstöðinni vegna skuldaskila Fellalax. Samþykkti tryggingu í reynd Hæstiréttur benti á, að þrátt fyrir að vátryggingarskírteini hafi verið útrunnið, þá hafi trygginga- félaginu ekki getað dulist að Haf- beitarstöðin liti svo á að trygging- in væri í gildi, enda hafí aðilar rætt um framtíðartryggingu. Tryggingafélaginu hafi einnig mátt vera ljóst að veðhafar stæðu í þeirri trú. Þegar litið væri til samskipta aðila og þeirra miklu hagsmuna, sem'í húfi voru, hafi tryggingafélagið orðið að láta það skýrt í ljós við Hafbeitarstöðina, vildi það ekki að tryggingin væri í gildi, en það hafi tryggingafélag- ið ekki gert. Beri að líta svo á að tryggingafélagið hafi í reynd sam- þykkt framlengingu fiskeldis- tryggingar til áramóta og hún því verið í gildi þegar tjónið varð 16. desember 1992. Andlát RÍKHARÐ ÖRN JÓNSSON RÍKHARÐ Örn Jóns- son, fyrrum skipstjóri og síðar framkvæmda- stjóri, Reykjabraut 4, Þorlákshöfn, lést á Landsspítalanum 15. maí sl. á 73. aldursári. Ríkharð lauk skip- stjórnarprófi frá Stýri- mannaskólanum 1951. Hann starfaði lengi hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, fyrst sem stýrimaður og síð- ast skipstjóri á Hamra- fellinu. Hann hóf störf sem fram- kvæmdastjóri Meitilsins hf. 1967- 1977 og tók þá við framkvæmda- stjórn Kirkjusands hf. og síðar hjá Útvegs- mannafélagi sam- vinnumanna og sat þar í ýmsum stjórnum. Ríkharð var fyrsti forseti Kiwanisklúbbs- ins Ölvers í Þorláks- höfn og hefur starfað mikið að kiwanisstörf- um fyrir þann klúbb og einnig kiwanishreyf- inguna á íslandi. Eftirlifandi eigin- kona hans er Anja Jónsson. Ríkharð átti sex dætur og einn son.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.