Morgunblaðið - 16.05.1997, Page 16

Morgunblaðið - 16.05.1997, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Sig. Fannar LÖGREGLAN skoðaði ástand hjóla og börnin fengu afhenta nýja hjálma á hjólreiðadeginum sem fram fór á Selfossi á dögunum. Hjólreiðadagur á Selfossi Hjálmar skipta höfuðmáli Selfossi - Síðastliðinn laugardag fór fram á Selfossi hjóla- og hjálmadagur. Aðstandendur hjóla- og hjálmadagsins voru Björgunarsveitin Tryggvi, Lög- reglan í Árnessýslu, Kiwanisklúb- burinn Búrfell, Selfossi, og for- eldrafélög Sandvíkur- og Sól- valjaskóla. Á hjóla- og hjálmadeginum komu börnin í heimsókn í hús Björgunarsveitarinnar Tryggva þar sem lögreglan skoðaði ástand hjóla þeirra og Kiwanisklúbbur- inn Búrfell gaf börnum fæddum 1990 hjálma og sérútbúnar veifur til þess að hengja á hjólin sín. ÖII þau börn sem tóku þátt í hjóla- og hjálmadeginum fengu sérstök viðurkenningarskjöl ásamt skoð- unarvottun frá lögreglunni. Þátttakan var mjög góð hjá yngstu börnunum og voru að- standendur ánægðir með hvernig til tókst. Reynslunni ríkari fóru börnin í beinni röð út að Sandvík- urskóla þar sem allir fengu ís og viðurkenningar. Fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunar- heimili í Hveragerði Hveragerði - Fyrsta skóflustung- an að nýju hjúkrunarheimili fyrir Dvalarheimilið Ás í Hveragerði var tekin á uppstigningardag. Athöfnin hófst með ávarpi Guðrúnar Birnu Gísladóttur, forstjóra Grundar, þar sem hún kynnti aðdraganda að stofnun hjúkrunarheimilisins. Það var síðan frú Helga Björnsdóttir, stjórnarformaður Grundar, sem formlega hóf framkvæmdir við bygginguna með því að taka fyrstu skóflustunguna að húsinu, sem standa mun við Hverahlíð. Hjúkrunarheimilið, sem verður á tveimur hæðum, mun hýsa hjúkrunardeild með allri aðstöðu fyrir 26 manns. Húsið, sem verður um 1.500 fm, mun einnig hýsa ýmsa þjónustu sem nýtist öllu heimilisfólki í Ási, svo sem aðstöðu fyrir hjúkrunarfræðing og lækni, sjúkraþjálfun og fleira. Einnig mun allt skrifstofuhald dvalarheimilisins færast í hina riýju byggingu. Það er fyrirtækið Ásvélar ehf. sem sér um framkvæmdir við uppgröft, en fyrirhugað er að taka hjúkrunar- rýmið í notkun síðari hluta árs 1998. Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir JÚLÍUS Rafnsson, framkvæmdastjóri Grundar, Guðrún Birna Gísladóttir, forstjóri Grundar, frú Helga Björnsdóttir, stjórnar- formaður Grundar og Gísli Páll Pálsson, framkvæmdastjóri Áss, að lokinni fyrstu skóflustungunni. Tæpar 13 milljónir í gijótvörn Vogum - Ellert Skúlason hf. hefur hafið framkvæmdir við að grjót- veija norðurgarð Vogahafnar. Pétur Jóhannesson, hafnarstjóri Hafnarsamlags Suðurnesja segir að Ellert Skúlason hf. hafi átt lægsta tilboðið í verkið í útboði eða 12,9 milljónir króna. Kostnaðar- áætlun Hafnarmálaskrifstofu var 19,5 milljónir. Verkinu á að vera lokið fyrir 1. ágúst nk. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson FRAMKVÆMDIR eru nú hafnar við að grjótverja norðurgarð Vogahafnar. Skóflu- stunga að grunnskóla Vogum - Snæbjörn Reynisson, skólastjóri Stóru-Vogaskóla, tók fyrstu skóflustunguna að nýrri við- byggingu skólans nýlega. Samtímis hófust framkvæmdir við jarðvinnu. Viðbyggingin verður rúmiega 700 fm og með henni stækkar húsnæði skólans um rúm- lega helming. Um næstu áramót er ráðgert að taka hið nýja hús- næði í notkun. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson SNÆBJÖRN Reynisson tók fyrstu skóflustunguna. Morgunblaðið/Sig. KNATTSPYRNUMENN á Selfossi í hvíldarstöðu eftir erfiða ruslatínslu í Háfsfjöru. Fannar imJ í Háfsfjöru Selfossi - Knattspyrnumenn frá Selfossi fjölmenntu á dögunum niður í Háfsfjöru og var tilgangur- inn að tína rusl. Ymsir hópar og félagasamtök hafa gert sér ferð á Háfsfjöru til þess að leggja verk- taka lið við að tína rusl sem safn- ast hefur á land í kjölfar strands Víkartinds. Verkið hefur sóst vel og hafa hóparnir verið hörkuduglegir við tínsluna. Strákarnir frá Selfossi voru ánægðir með hvernig til hafði takist þennan dag, enda voru veðurguðirnir mildir og sól skein í heiði. Þeir sögðu þetta reyndar talsvert erfitt en þegar stór hópur safnast saman þá er verkið léttara. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir HENNING Olsen, frá danska sendiráðinu, Olav Mykle Burst, frá norska sendiráðinu, Jane Wills, fulltrúi breska, banda- riska og þýska sendiráðsins, Þórður Jónsson, Ríkharður Magnússon, Hreinn Sigmarsson og Isak Ólafsson. Vinir Stríðsára- safnsins stofna félag á Reyðarfirði Reyðarfirði - Vinir Stríðsára- safnsins á Reyðarfirði hélau stofnfund 8. maí sl. í Félags- lundi og er fyrirmyndin sótt til „Friends of the Imperial War museum" í London. Áð stofnun- inni stóðu nokkrir áhugamenn um varðveislu muna, mvnda og minninga frá stríðsárunum og þeir nutu liðveislu Reyðar- fjarðarhrepps. Um 20 manns mættu á stofn- fundinn og þar af gerðust 12 stofnfélagar. Nokkrir félagar gátu ekki komist til fundarins nú en fyrir þá er ekki öll nótt úti því hægt er að gerast stofnfélagi til 8. maí á næsta ári. Sérstakir heiðursgestir eru: Michael Hane, fyrrverandi sendiherra Breta á Islandi og sendiherrar Breta, Bandaríkj- anna, Dana, Norðmanna og Þjóðverja auk ræðismanns Kanada á Islandi. Á fundinum afhentu fulltrúar sendiráðanna safninu að gjöf þjóðfána og þjóðsöng hvers lands. Fleiri góðar gjafir bárust safninu við þetta tækifæri. Blómsveigur lagður í stjórn félagsins voru kosn- ir: Þórður Jónsson, fulltrúi í útlendingaeftirlitinu, Friðrik G. Gunnarsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í lögreglunni í Reykjavík og Hreinn Sigmars- son, alþjóðaráðgjafi hjá At- vinnuþróunarfélagi Áustur- lands. Eftir hádegisverð var farið í kirkjugarðinn og lagður blóm- sveigur að leiðum hermanna. Síðan var farið í skoðunarferð og skoðaðar minjar frá stríðs- árunum. Hinir erlendu gestir luku lofsorði á heimamenn fyrir það Grettistak sem þeim þótti okkar litla sveitarfélag hafa lyft.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.