Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.05.1997, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Björn Gestsson fæddist á Ver- mundarstöðum í Ólafsfirði 2. maí 1918. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð 6. maí síðast- liðinn. Þegar hann var mánaðargam- all fluttu foreldrar hans, Sigrún Júl- íusdóttir og Gestur Vilhjálmsson, að Bakkagerði í Svarfaðardal, þar sem þau bjuggu all- an sinn búskap. Björn var næstelstur fimm systkina, þau eru: Hlif, býr i Reykjavík, Ríkarður í Bakka- gerði, nú látinn, Jóhanna Mar- ía á Seltjarnarnesi og Kristín á Dalvík. Björn kvæntist 27. nóvember 1943 eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði Magnúsdóttur, fædd 14. mars 1923 á Björgum í Hörgárdal. Þau eignuðust fimm börn. 1) Magnús, fæddur 16. apríl 1944, k.h. Fanney Margrét Þórðar- dóttir. 2) Gestur, fæddur 3. desember 1945, k.h. Ingibjörg Kjartansdóttir. 3) Sigrún, fædd 1. mars 1952, dáin 8. janúar 1953. 4) Sig- rún Lára, fædd 23. júlí 1954, m.h. Jón Aðalsteinsson, 5) Kristín, fædd 8. júní 1964. Barnabörnin eru ellefu og barnabarnabörnin eru orðin sex. Björn var bóndi á Björgum frá 1947 til 1984, en þau hjónin fluttu þaðan til Akureyrar 1988. Útför Björns fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. blíður og góður maður, en alltaf stutt í grín og glens hjá honum. Það var ekki ósjaldan sem sagt var heima: „eigum við ekki að skreppa í Björg?“ og haldið var af stað og tóku þau Sigga móðursystir mín og Björn á móti okkur eins og höfðingjum. Oft fékk ég að gista og man ég að þegar ég byrjaði í skóla, þá þótti mér það verst hvað það var bind- andi, því þá gat ég ekki farið í Björg eða austur í Reyki, þar sem hin móðursystir mín bjó og gist þegar mig lysti. Það var alltaf fjölmennt við eld- húsborðið á Björgum og allir áttu sín sæti og Björn við endann á borð- inu. Alltaf var gaman að hlusta og heyra sögurnar hans og létta stríðni með tilheyrandi „orðsprokum". Það fór ekki framhjá neinum hvað hann unni fjölskyldu sinni. Það er mér minnisstætt að hann sagði allt- af: „Sigríður mín“ með sérstakri áherslu og blíðu. Ég man að ég hugsaði sem barn „Birni þykir rosa- lega vænt um Siggu“. Elsku Sigga, Krístín, Sigrún, Gestur og Magnús og íjölskyldur. Þið eigið minningu um góðan fjöl- skylduföður sem unni ykkur öllum og öllum leið vel í návist hans. Blessuð sé minning Björns. Svandís. BJORN GESTSSON Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðar kraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir iáttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Elsku Björn mágur! Loksins er kallið komið. Nú líður þér vonandi vel. Ég vil þakka þér öll þín gæði, frá því fyrsta að ég kynntist þér. Þegar ég var um tíu ára aldur komstu að vinna hjá pabba og mömmu á Björgum. Seinna gift- ust þið Sigga systir. Allir tóku þér heils hugar í fjölskyldunni, enda varst þú mörgum mannkostum bú- inn. Lundbetri mann var vart hægt að finna, og kom það sér oft vel í um 30 ára félagsbúskap á Björgum. Þótt þú gengir í gegnum allskyns erfiðleika, heilsuleysi á unga aldri og ýmsar raunir, þá gastu alltaf verið með spaug og létt gaman til að iífga upp á sálina hjá þeim sem þú umgekkst. Fyrir um það bil áratug greindist þú með parkinssonssjúkdóm. Þá brá manni heldur í brún að sjá þig missa ört þína fyrri hæfileika. Þegar þú hefur losnað úr sjúkdómsfjötrunum verður þér vonandi létt um sporin í nýjum heimkynnum. Ég votta þér Sigga mín og fjöl- skyldunni allri, innilega samúð, en vona að þið getið ornað ykkur við minningarnar um frábæran fjöl- skylduföður. Far þú í friði vinur, hjartans þakk- ir fyrir mig og mína fjölskyldu. Margrét mágkona. Mágur minn, Björn Gestsson frá Björgum, andaðist þann 6. maí síð- astliðinn eftir langt og erfitt veik- indastríð. Þegar sólin er komin hátt á loft, jörðin að lifna og fyrstu sprot- ar tijánna að byija að þrútna þá hlýtur að vera líkn fyrir gamlan mann, sem þrotinn er að kröftum, að loka augunum í hinsta sinn og komast í Ijósið og birtuna hinum megin. Björn var mikill mannkostamaður. Hann hafði tamið sér óendanlegt langlundargeð, sást sjaldan skifta skapi og reyndi ávallt að miðla mál- um ef svo bar undir. Hann var barn- góður. Er óhætt að segja að hann vildi láta öllum líða vel, sem hann hafði í sinni umsjá, bæði mönnum og málleysingjum. Hann var mikill fjölskyldufaðir og alltaf var stutt í glaðværðina og glettin og skemmti- leg tilsvör. Það er gaman að láta hugann reika til áranna þegar við systur vorum enn í föðurhúsum. Pabbi hafði ráðið til sín kaupamann, ungan bú- fræðing, Björn Gestsson frá Bakka- gerði í Svarfaðardal. Hann varð strax hvers manns hugljúfi. Um haustið var hann heitbundinn Sigríði systur minni og þau giftu sig 27.11. 1943 og eignuðust 5 börn. Síðan hafa þau búið í ástríku hjónabandi og stutt hvort annað í gegnum súrt og sætt. Björn varð strax einn af fjölskyld- unni. Hann reyndist okkur systrum sem besti bróðir og foreldrum okkar var hann afar góður, enda bjuggu þau félagsbúi á meðan foreldrar okkar voru við búskap. Oft var glatt á hjalla þegar fjölskyldurnar komu saman hjá Siggu og Birni. Mikil gestrisni ríkti hjá þeim hjónum og átti hann þar stóran hlut að máli. Sjúkdómssaga hans er búin að vera ströng og þjáningamikil. Hann barðist við tvo illvíga sjúkdóma. Berklana sem ungur maður og síðan Parkisonsveikina á efri árum. Þessi fátæklegu orð eru þakkar- orð mín og íjölskyldu minnar til þessa góða manns, fyrir alla hans hlýju og vináttu í gegnum árin. Við biðjum guð að blessa fjölskyldu hans. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Pálína. Nú þegar Björn á Björgum er lát- inn, fljúga ýmsar minningar í gegn- um hugann. Hann var einstaklega Nú hefur hann elskulegur afi minn kvatt þetta jarðlíf og sálin hans loksins fengið frelsi á ný. Mik- ið er gott að vita til þess að nú getur þú farið að glettast á ný og segja sögur. En á sama tíma er sorgin og söknuðurinn mikill, því við höfum misst svo mikið. Minning- arnar um þig eru margar og allar svo yndislegar, það sem þú gast alltaf verið þolinmóður og góður við okkur barnabörnin, alltaf fengum við að „skottast" með þér, í fjósinu, fjárhúsunum, við girðingavinnu, heyskap og svo auðvitað smölun. Þær voru ótal sögurnar sem þú sagðir okkur af alls konar fólki, og öll ævintýrin eins og um hana Bú- kollu, og bræðurna nafna þína Ein- björn, Tvíbjörn, Þríbjörn, þar var aðalgamanið fólgið í því að sjá hvort þér tækist að fara með síðustu rull- una án þess að fipast, svo Jilóstu þínum dillandi hlátri í lokin. Ósjald- an sungum við saman lög eins og „Ég fer líka í sveit“ eða „Rúgbrauð með ijóma á“. Já, alltaf virtist þú líka hafa tíma til að hlusta á það sem lá manni á RAGNHEIÐUR ÁSGRÍMSDÓTTIR + Ragnheiður Ás- grímsdóttir fæddist í Reykjavík 30. september 1919. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavikur 9. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru N. Ragnheiður Oddsdóttir, f. 20.8. 1891^ d. 4.8. 1970, og Ásgrímur Guð- jónsson, tollvörður, f. 27.7. 1892, d. 26.1. 1980. Bræður Ragnheiðar eru Guðjón Ó. Ásgríms- son, kvæntur Svanlaugu Magn- úsdóttur, og Arnbjörn Ásgríms- son, kvæntur Kristínu Guð- varðardóttur. Ragnheiður giftist Sigurði Sigurðssyni, málarameistara, 27.7. 1943, d. 12.4. 1982. Ragn- heiður og Sigurður eignuðust þrjú börn: 1) Asgrímur, f. 26.1. 1944, d. 21.10. 1973, var kvænt- ur Kristínu Árnadóttur, f. 5.8. 1949. Dætur þeirra eru Aðal- í dag, föstudaginn 16. maí, verður elskuleg amma mín, Ragnheiður Ásgrímsdóttir, jarðsungin. Það er undarlegt að kveðjustundin skuli runnin upp. Ég hafði í ein- feldni minni gert ráð fyrir því að amma myndi verða miklu lengur með okkur. Það var fyrst í byrjun heiður, f. 24.11. 1965, og Ragnheið- ur, f. 2.12. 1967. 2) Sigurður Sævar, f. 12.3. 1948, kvæntur Guðfinnu Agnars- dóttur, f. 19.5. 1953, synir þeirra eru Ás- grímur, f. 3.3. 1980, og Styrmir, f. 11.12. 1989. 3) Björg Ragn- heiður, f. 7.9. 1951, gift Þorkeli Helga- syni, f. 11.12. 1950, börn þeirra eru: Sigurður Ragnar, f. 27.8. 1972, Ragn- heiður Kristín, f. 22.4. 1975, og Arnar Kristinn, f. 19.5. 1983. Sigurður og Ragnheiður stofnsettu Málarabúðina á Vesturgötu 21 árið 1954, síðar Rúllugerðina sf., og starfaði hún þar ásamt börnum sínum og fjölskyldum þeirra fram á þetta ár. Útför Ragnheiðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. þessa árs sem það kom í ljós að amma var haldin banvænum sjúk- dómi og það hefur verið erfitt að sjá heilsu hennar hraka svo hratt. En nú er þjáningum hennar lokið og hún hefur fengið hvíld. Amma var fædd í vesturhænum í Reykajvík og bjó þar alla sína tíð. hjarta og þótt þú værir orðinn veik- ur síðustu árin, lagðir þú alltaf mik- ið kapp á að fylgjast með því sem við vorum að gera. Þegar ég hafði verið heilt ár í Bandaríkjunum, þá veit ég að þú fylgdist með mér allan tímann því þegar ég hitti þig eftir að ég kom heim varstu alveg með það á hreinu hvar ég hafði verið og hafðir ýmsar spurningar um þetta fjarlæga land. Elsku, afi við munum öll geyma minninguna um þig í hjarta okkar. Elsku amma, þinn missir er mik- ili, megi góður Guð styrkja okkur öll. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin bjðrt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði' er frá. (V. Briem.) Þín, Hanna Berglind. Það er víðsýnt af hlaðinu á Bakka- gerði í Svarfaðardal. Byggðin á Austurkjálkanum blasir við augum, allt frá Ytra-Hvarfi að Skáldalæk út undir sjó. Skíðadalurinn opnast til suðurs og Stóllinn, fjallpíramítinn mikli fyrir miðjum dal, sem ætti að vera í skjaldarmerki Svarfdælinga, hefur álíka seiðmagn og Snæfell- sjökull. Árið 1919 hófu ung hjón, Gestur Vilhjálmsson frá Bakka og Sigrún Júlíusdóttir frá Syðra-Garðshorni, búskap í Bakkagerði og þar áttu þau eftir að búa farsælu búi í tæp sex- tíu ár. Þau eignuðust fimm börn: Hlíf, Björn, Ríkharð, Jóhönnu Maríu og Kristínu. Aðal Bakkagerðisfjöl- skyldunnar var eindrægni og iðju- semi og hlutu systkinin þann arf í heimanmund. Sigrún í Bakkagerði var frænka okkar systkinanna í Syðra-Garðshorni og samgangur mikill á milli flölskyldnanna á bæj- unum. Systkinahóparnir á þeim voru jafnstórir og nokkuð jafnaldra. Björn hlaut skólagöngu sína í Grundarskóla hjá Þórarni kennara á Tjörn, síðan hjá Pétri Finnbogasyni frá Hítardal og Stefáni Bjarman í Unglingaskóla Svarfdæla, sem þá Mínar fyrstu minningar um ömmu og afa eru tengdar heimili þeirra á Tómasarhga. Þangað komum við systurnar oft til þeirra þegar við vorum börn og þá þótti mjög vin- sælt að fá að gista um helgar og láta ömmu þá stjana við sig. Þegar ég var svo á fyrsta ári í Verslunarskólanum árið 1981 bjuggum við systurnar hjá ömmu og afa _á Tómasarhaganum í heilan vetur. Ég veit að það voru töluverð viðbrigði fyrir ömmu að vera allt í einu með tvo unglinga á heimilinu. Hún var að hugsa um að við mynd- um nú örugglega læra heima, mæta í skólann á réttum tíma, borða og síðast en ekki síst að mæta ekki of seint heim á kvöldin. Þessi tími var líka mjög skemmtilegur og amma hafði áhuga á því sem við vorum að gera. Hún kynntist vinum okkar og hafði gaman af því að vera innan um ungd; fólk. Amma fylgdist alltaf mjög vel með og aldrei fannst mér hún vera gömul kona. Hún náði alltaf að vera í takt við tíðarandann og það var hægt að spjalla við hana um ailt milli himins og jarðar. Hún var mik- il barnakona og þær eru ófáar stund- irnar sem hún hefur varið með barnabörnunum sínum á undanförn- um árum. Amma var mikil fjöl- skyldumanneskja og það má með sanni segja að líf hennar hafi snúist um afa, börnin þeirra, barnabörnin og nú síðast langömmubörnin. •Þegar ég eignaðist strákana mína tók amma mikinn þátt í því með mér. Hún fylgdist náið með öllum framförum hjá þeim og ef veikindi voru hringdi hún daglega til að at- huga ástandið á heimilinu. Amma sá líka til þess að aldrei vantaði var haldinn á Bakka. Hann stundaði nám í Hólaskóia og varð búfræðing- ur þaðan árið 1941. Björn var félags- lyndur og vinsæll og tók virkan þátt í félagsskap unga fólksins í sveitinni. Krossmessumorguninn 1939 kom ég út á hlað heima og sá þar kom- inn Björn frænda, sem nú var ráðinn kaupamaður hjá okkur um sumarið. Hugsaði ég gott til þeirra samvista og varð heldur ekki fyrir vonbrigð- um. Björn var ljúflyndur og skemmtilegur, talaði vandað mál og seinmæltur nokkuð; fumlaus og vandvirkur. Honum var gefinn sá eiginleiki að kunna að sjá hina spaugilegu fleti á tilverunni gleggra en margur annar og veitti oft sam- ferðamönnunum hlut í þeirri náðar- gáfu, því hann sagði vel frá. Guð- mundur ráðunautur Steindórsson hefur sagt mér að þegar hann var kaupamaður eitt sumar hjá Birni og Sigríði frænku sinni, þá búandi hjón- um á Björgum í Hörgárdal, hafi Björn tíðum sagt kímilegar sögur yfir hádegisverðinum, helst utan úr Svarfaðardal og að það hafi verið svo vart og skart að hann hafi nokk- urn tímann sagt sömu söguna tvisv- ar liðlangt sumarið. Björn var vel giftur. Eftirlifandi kona hans, Sigríður Magnúsdóttir, er frá Björgum í Hörgárdal, dóttir hjónanna Magnúsar Sigurðarsonar, lengi bónda þar og vegaverkstjóra, og Láru húsfreyju Guðmundsdóttur. Þau Björn og Sigríður fóru að búa á Björgum árið 1947 og reistu sér vandað og fallegt einbýlishús. Þau ráku þar stórt og arðsamt bú, aðal- lega kúabú, til ársins 1987 er þau fluttu til Akureyrar. Allmörg fyrstu árin bjuggu þau í tvíbýli við eldri hjónin. Alltaf var gott og notalegt að koma í Björg, þar var mikil gest- risni. Bjargabændur fylgdust vel með nýjungum í búskap. Á sjötta ára- tugnum reistu þeir t.d. eitt fyrsta hjarðfjós (lausagöngufjós) á landinu, og þótti viðburður á sínum tíma. Björn veiktist af berklum á miðj- um aldri og afleiðingar þess háðu honum alla tíð síðan þó að hann stundaði búskapinn eftir sem áður af alúð og skyldurækni. Birni og Sigríði varð fjögurra barna auðið. Síðustu æviárin var Björn mjög þrot- inn að heilsu. Ég kveð þennan ágæta frænda minn með þökk fyrir samfylgdina. Við Þuríður vottum Sigríði og öðrum ástvinum hans innilega samúð. Minningin um hann lifir og vermir. Júlíus J. Daníelsson. vettlinga eða sokka á langömmu- drengina, enda var hún algjör snill- ingur í að pijóna ungbarnasokka. Ég minnist þess nú að sl. haust sagði ég við hana að nú þyrfti ég að fara að læra að prjóna svona sokka. Amma sagði við mig þá, að það væri nú algjör óþarfi strax, því hún myndi nú sjá um þetta næstu árin. En nú er kveðjustundin svo óvænt runnin upp og þakka ég ömmu allt sem hún hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Aðalheiður. Elsku amma mín. Nú ertu búin að kveðja okkur og farin til afa og Ásgríms. Alveg eins og í draumnum sem mig dreymdi og ég hvísiaði í eyra þér ekki alls fyrir löngu. Ég mun aldrei gleyma öllum þeim góðu stundum sem við sátum saman í eldhúsinu þínu og ræddum um lífið og tilveruna. Þú hafðir alltaf sterkar skoðanir, amma, og ekki vorum við nú alltaf sammála. En það var alltaf gott að tala við þig því þú varst svo góð kona. Ég man líka hvað það var nota- legt þegar við fórum þijár saman út að borða síðasta sumar, ég, þú og mamma. Ég er fegin að búa að þeirri minningu. En þú verður að skilja það, amma, að mér finnst svo sárt að þurfa að kveðja þig. Sárt að hugsa til þess að hafa þig ekki lengur hjá mér, eyða ekki öðrum jólum með þér, sjá þig ekki aftur fyrr en hjá Guði. Ég kveð þig nú, elsku amma mín, full niinninga um yndislea konu og ömmu. Þín, Ragnheiður Kristín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.