Morgunblaðið - 16.05.1997, Side 40

Morgunblaðið - 16.05.1997, Side 40
.40 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BENEDIKT RAGNAR BENEDIKTSSON + Benedikt Ragnar Benediktsson fæddist í Skálholt- svík í Hrútafirði hinn 29. janúar 1921. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans 10. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Benedikt Ingimundarson frá Staðarhóli í Saurbæ, f. 1888, d. 1922, og r Lilja Magnúsdóttir frá Miðhúsum, Jóns- sonar í Skálholtsvík, f. 1893, d.1986. Síð- ari eiginmaður hennar var Aðal- steinn Jakobsson, bóndi á Neðri- Brunná í Saurbæ, og gekk hann Benedikt í föður stað. Systkini Benedikts: 1) Emma, f. 1916, d. 1952, húsfreyja í Ás- garði í Dölum og fyrri eiginkona Ásgeirs alþm. Bjarnasonar, þau áttu tvó syni, 2) María, f. 1919, húsfreyja, eiginkona Jóhanns Hjálmarssonar bónda, sem er látinn, þau bjuggu lengst á Ljó- salandi í Skagafirði, þau áttu átta syni, 3) Haraldur, f. 1923, iðnaðarmaður í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Elíadóttur, þau eiga fjögur börn, 4) Ingi- björg Aðalsteinsdóttir, f. 1926, húsmóðir, gift Guðlaugi Sæ- mundssyni, bifreiðasljóra í Reykjavík, þau eiga fjóra syni, 5) Guðborg Aðalsteinsdóttir, f. 1933, húsfreyja, gift Eyþóri Ein- arssyni bónda, sem er látinn, þau bjuggu lengst á Kaldaðarnesi, þau áttu sjö börn. Benedikt kvæntist 10. júlí 1948 Bryn- hildi Skeggjadóttur. Foreldrar hennar voru Vilborg Magn- úsdóttir frá Hvalsá, síðar húsfreyja að Hvammi í Dölum, og Skeggi Samúelsson frá Miðdalsgröf á Ströndum, bústjóri á kúabúi Isfirðinga, járnsmiður á Isafirði og síðar í Reykjavík. Þau voru ekki gift og átti Vilborg Magnús Sturlaugs- son en Skeggi Ragnheiði Jóns- dóttur frá Kollafjarðarnesi. Bæði lifðu mörg síðari æviár sín í Reylq'avík. Benedikt og Brynhildur eign- uðust þrjú börn. Þau eru: 1) Sig- rún, f. 1949, sjúkraþjálfari í Reykjavík, gift Gísla Einarssyni yfirlækni, þau eiga tvö börn, Ásu Björk, f.1979, og Einar Örn, f. 1983, 2) Lilja, f.1950, starfsmað- ur Listasafns Islands, búsett á Seltjarnarnesi, gift Sigurði Vil- bergssyni raftækni, þau eiga þrjú börn, Benedikt, f. 1972, Arnar, f. 1975, og Hildi, f. 1981, 3) Benedikt Einar, f. 1958, tölv- unarfræðingur í Reykjavík, kvæntur Þórnýju Öldu Krisljáns- dóttur sjúkraliða, þau eiga þijár dætur, Berglindi Evu, f. 1982, og tvíburana Ásdísi og Auði, f. 1984. Utför Benedikts fer fram frá Grensáskirkju, í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. - Látinn er í Reykjavík tengdafaðir minn, Benedikt Ragnar Benedikts- son, fyrrum leigubifreiðastjóri og síð- ar starfsmaður Olíufélagsins hf., Esso. Að leiðarlokum er mér bæði ljúft og skylt að minnast þessa einstak- lega ljúfa og grandvara manns sem ekki í neinu efni mátti vamm sitt vita. Benedikt var fæddur í Skálholts- vík á Ströndum 29. janúar 1921 og var hann því 76 ára gamall er hann lést. Benedikt missti föður sinn hálfs annars árs að aldri og var hann skírð- ur yfir kistu hans en móðir hans gekk þá með Harald, yngri bróður hans. Eldri voru systurnar Emma og María. Lilja móðir Benedikts bjó áfram í Skálholtsvík hjá ættmennum sínurn til ársins 1925 en þá gerðist hún bústýra hjá Aðalsteini Jakobs- syni, bónda á Neðri-Brunná í Saurbæ. Fóru með henni börnin Emma, Benedikt og Haraldur en dóttirin María fór í fóstur að Ospaks- eyri í Bitru. Lilja giftist síðar Aðal- steini og gekk hann Benedikt og systkinum hans öðrum en Maríu í föður stað. Þau Lilja og Aðalsteinn áttu síðan dæturnar Ingibjörgu og Guðborgu. Ólst Benedikt upp að Neðri-Brunná og gekk hann í skóla í heimasveit og síðar í Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafirði. Vann hann, eins og þá tíðkaðist, við ýmis sveita- störf þar tii hann fluttist til Reykja- _vvíkur 1945 er Lilja og Aðalsteinn brugðu búi á Neðri-Brunná og fluttu til_ Emmu dóttur sinnar sem þá bjó í Ásgarði í Dölum. Þá hafði Benedikt að vísu unnið tímabundið m.a. við lagningu Reykjavíkurflugvallar næstu árin á undan. Eftir komuna til Reykjavíkur hóf Benedikt störf hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni og starfaði hann hjá því fyrirtæki til 1952 að hann hóf rekstur leigubifreiðar hjá BSR. Stundaði hann það starf til ársins 1974 en hóf þá störf hjá Olíufélaginu hf, ESSO. Hjá Olíufélaginu vann Benedikt síðan tii starfsloka 1993, þá 72 ára gamall. Ég tel mér óhætt að fullyrða að Benedikt rækti öll þau störf er hann tók að sér af einstakri samviskusemi og trúmennsku, þessi fornu giidi sem honum höfðu verið innrætt og í bióð borin sveik hann aldrei. Af flestu eða öllu því sem Benedikt hefur sagt j». mér frá gegnum árin get ég dregið þá ályktun að hér fór maður sem alltaf var áhugasamur um sögu, ör- lög manna og mannlegt eðii, hann var sögumaður með ágætum og hafði skemmtilega kímnigáfu. Margar skemmtilegar sögur átti hann í fórum sínum, ekki síst frá bílstjóraárunum, sögur um mannlegt eðli og breysk- leika sem hann varð vitni að úr bíl- stjórasætinu. Alltaf var þó frásögn Benedikts full skilnings og hlýju og aldrei sagði hann sögur sínar mönn- um til hnjóðs eða minnkunar. Bene- dikt var sannarlega margfróður og víðlesinn, sérstaklega hafði hann áhuga á samtímasögunni. Kynslóð hans þykir mér einhver sú merkileg- asta í sögu lands okkar og hann var sannarlega góður fulltrúi þeirrar kynslóðar. Fæddur í landi fátæktar og fá- breytni í atvinnuháttum var Benedikt alinn upp við einstaklega kröpp kjör eins og nærri má geta af frásögninni um fyrstu ár hans hér að framan. Hann og kynslóð hans gátu vart vit- að annað en að hennar biðu svipaðar aðstæður og ríkt höfðu kynslóð fram af kynslóð í landinu. Næstu tvær kynslóðir á undan bjuggu meira að segja að nokkru leyti við krappari kjör en oft áður vegna þess að fram- an af nítjándu öldinni hafði árferði verið með betra móti, fólki hafði fjölgað meir en um langa hríð og jarðnæði varð af skornum skammti. Þetta varð til þess að menn leituðu fram á afdali sem ekki höfðu áður verið byggðir og brutu þar nýtt land. Svo var einmitt um afa Benedikts í móðurætt sem bjó í Miðhúsum á Víkurdal, fram af Skálholtsvík. Síð- ari hluti aldarinnar varð hins vegar fimbulkaldur og var ís landfastur á Norðurlandi flest ár áttunda og níunda áratugarins með þeim afleið- ingum að lífsskilyrði versnuðu til muna og stórfelldur landflótti varð til Vesturheims. Benedikt fæddist í lok þessa erfiða tímabils og á upp- vaxtarárum hans glímdi þjóð hans auk þess við afleiðingar heimskrepp- unnar miklu á fjórða áratug þessarar aldar. Þær geysilegu þjóðfélagsbreyting- ar sem heimsstyijöldin síðari hafði í för með sér urðu að ýmsu leyti um- fangsmeiri á íslandi en í mörgum öðrum löndum. Fólkið af kynslóð Benedikts var rifið upp með rótum úr þeim jarðvegi sem það spratt úr og því bókstaflega kastað suður á mölina, eins og kallað var. Þekkt er, að mölin er hijóstrugri jarðvegur en moldin og víst er að margir áttu erf- itt með að festa rætur á nýjan leik. Furðu mörgum tókst þó að fóta sig í umrótinu og sannfærður er ég um að þolgæði og seigla sú sem alda- langt harðræði hafði innprentað ís- lendingum gerði þeim kleift að halda rósemd og jafnvægi á þeim tímum gjörbreytinga sem fóru í hönd er Benedikt og hans kynslóð voru að komast til manns. Samt fínnst mér stundum eins og munur sé á sonum og dætrum hinna ýmsu byggðarlaga. Þannig virðist fullkomið æðruleysi gagnkvæmt hveiju því sem að hönd- um bar hafa einkennt t.d. marga Hornstrendinga en Saurbæingurinn Benedikt bar alltaf nokkurn beig til vetrarins og skammdegisins og myrkrið var honum alltaf meinilla við. Hið þreifandi myrkur tunglskins- lausrar vetrarnætur í sveit skilja ekki kynslóðir nútímans. Einhvern veginn fannst mér alltaf sem Bene- dikt væri viðbúinn því að vetrarfóðr- in dygðu ekki til vors og best væri því að vera við öllu búinn. Hann tefldi því aldrei í tvísýnu í lífi sínu, enda hefði það átt illa við hann að lenda á vonarvöl. Fáa eða enga hef ég þekkt sem vissi betri skil en hann á sögu síðari heimsstyijaldarinnar, þess hild- arleiks sem svo mikil áhrif hafði á líf Benedikts, tengdaföður míns. Hin eðlislæga fróðleiksfýsn hans nýttist honum hér vel. Greinilega hafði hann tekið fádæma vel eftir fréttum sam- tímans af orustum og pólitískri þrá- skák forystumanna stríðsþjóðanna og af atburðunum hafði hann dregið sínar ályktanir um ætlan og vilja stríðsherranna og fannst mér oft gaman að heyra hann lýsa skoðun sinni á herkænsku eða mistökum hinna ýmsu herforingja styijaldar- innar. Hinn einlægi áhugi og forvitni Benedikts á öllu nýju og framandi kom glögglega í ljós er hann fór utan í fyrsta sinn, en þá kom meðal annars í minn hlut það ánægjulega hlutverk að sýna honum merk mann- virki, héruð, borgir og bæi. Mér er minnisstætt hversu einlæga og barnslega gieði hann sýndi í hrifn- ingu yfir öllu merkilegu sem hann sá og kannaði og mér varð þá skyndi- iega einnig ljós sú staðreynd að ferðalög, sjónvarp, kvikmyndir og fjarskiptatækni nútímans hafa rænt okkur nútímafólk þessari innilegu uppgötvunargleði sem okkur er í raun í blóð borin. Engum kemur nú neitt á óvart lengur, jafnvel börnin okkar hafa séð allt og ef ekki, þá má bara leigja sér spólu og kanna málið. í annarri ferð Benedikts til útlanda tókst að fá leyfi til þess að skoða flugstöð herflugvéla og Bene- dikt, margfróðum um herflugvélar, herskip, tæki og tól þótti ekki ónýtt að geta sagt svila sínum hjá Land- helgisgæzlunni að hann hefði fengið að setjast í sæti flugmanns fullbúinn- ar nýtísku orustuflugvélar. Þessi fölskvalausa, jákvæða forvitni, þekk- ingarleit og gleði Benedikts yfir öllu stórkostlegu í tilverunni fannst mér ávallt hans helsta og besta einkenni. Benedikt var lengst af heilsu- hraustur maður, hann var grannvax- inn, vel á sig kominn og léttur á sér. Honum veittist létt að hlaupa á fjöll til að njóta útsýnis og fegurðar landsins er hann var á ferð og gerði hann það gjarna. Síðasta árið fann hann í vaxandi mæli fyrir hjartveiki sem gerði honum erfitt fyrir að lok- um og það ásamt öðru heilsuieysi varð til þess að mjög var af Bene- dikt dregið síðustu vikurnar. Gerði hann raunar sínum nánustu ljóst að heilsuleysið ætti illa við hann og tel ég mér óhætt að segja að Benedikt hafi kvatt þennan heim sáttur við guð og menn. Að leiðarlokum er margs að minn- ast og margt að þakka. Þegar á fyrsta fundi okkar Benedikts tók hann mér einstaklega vel og aldrei fann ég annað en hlýju og velvild streyma frá honum. Þannig var það alla tíð, þrátt fyrir aldursmun okkar tók hann mér alltaf sem jafningja enda þótt mig skorti auðvitað þá lífs- reynsiu sem hann hafði umfram mig. Segja má að einkunnarorð lífs Benedikts R Benediktssonar hafi verið „hægt og hljótt". Þannig var líf hans og þannig kvaddi hann þenn- an heim. Hann skilaði sannarlega sínu, án fyrirgangs eða hávaða. Eng- um manni tróð hann um tær, öllum ætiaði hann vel. Við hentum gaman að því að ætla að ganga saman yfir hina nýju Gils^arðarbrú fullbúna ásamt nokkrum gömlum Saurbæing- um, fyrrum sumarstrákum og bar- áttumönnum um það mál. Af því verður ekki en viss er ég um að Benedikt verður með þeim okkar sem fá að fara þá för. Hvað við ætluðum að borða með guðaveigunum við þá athöfn er í góðu samræmi við fína kímnigáfu Benedikts en það geymum við fyrir okkur. Um leið og ég þakka tengdaföður mínum samfylgdina vil ég senda Brynhildi tengdamóður minni, börnum hennar, tengdabörn- um og barnabörnum hlýjar samúð- arkveðjur og óska henni guðs bless- unar um ókomna tíð. Gísli Einarsson. Mig langar í örfáum orðum að minnast hans afa míns. Hann Benedikt afi er látinn. Hann var góður maður. Ég minnist hans mest sumarið 1994 þegar við fórum í sumarbústaðarferðina. Þegar ég, pabbi, mamma og Einar bróðir, afi og amma komu með okkur í sumar- bústað. Það var voða gaman. Það var oft mikið fjör þegar fjölskyldan hennar mömmu minnar kom saman í jólaboð í Safamýri 48. Nú verður tómlegt hjá henni mömmu minni. Þín, Ása Björk Gísladóttir. Við heimför Benedikts vinar míns og svila frá þessari jörð sem við þekkjum, er mér efst í huga þakk- læti fyrir að fá að hafa kynnst honum og átt að vini í 45 ár. Benedikt átti eitt viðkvæmasta hjarta sem hefur slegið í bijósti nokk- urs manns og átti oft erfitt með til- finningar sínar ef sorg eða gleði bar á góma. Á þeim árum er hann stundaði akstur spurði ég hann eitt sinn hvort hann væri ekki þreyttur eftir langan vinnudag. Ég kann ráð við því, svar- aði hann. Þá set ég klassíska plötu á fóninn, heyrnartækin á höfuðið og leggst upp í sófa, en sjötta sinfónía Beethovens er í sérstöku uppáhaldi. Að vísu sofna ég stundum út frá hljómlistinni, en þreytan hverfur og ég endurnærist. Þetta dæmi segir nokkuð mikið um mann sem tileinkaði sér fegurð- ina til betra lífs og þetta sagði hann mér á sinn látlausa hátt, en stór orð voru ekki til í hans orðabók. Benedikt var hamingjusamur í sínu einkalífi og Binna hans, börnin þeirra, barnabörn og tengdabörn voru honum allt og aldrei fékk hann nógsamlega þakkað þá gæfu, sem hann hafði orðið aðnjótandi. Hann átti góða konu og fjölskyldu sem endurgalt alla hans ástúð og umhyggju. Nú er löngu sjúkdómsstríði lokið og svili minn kominn í þann heim sem okkur er öllum búinn og það er mín trú og vissa að á himnum ríki sá friður og heilbrigði sem trú okkar og vitund þráir. í dag er því jafnframt hægt að gleðjast yfir vistaskiptum vinar sem fékk að lifa hér á jörð í mörg ham- ingjusöm ár ásamt sínum ástvinum. Skilningur okkar er svo takmark- aður, en vonin og trúin er það ljós sem lýsir og það ljós slokknar aldrei. Þessi orð, sem hér eru rituð, eru jafnframt orð konu minnar, sem þakkar áratuga vináttu Benedikts og óskum við honum heilla í ríki Drottins. Við biðjum góðan Guð að varð- veita Binnu og alla fjölskyldu eins besta drengs sem við höfum kynnst. Grétar Marteinsson. Senn er vor, um Breiðafjörð. í dag er þar vor, þótt tímatal á dagatali bendi okkur á að komið sé sumar. Vor á Breiðafirði á engan sinn líka á landi hér, þessi alda- gamla matarkista þeirra sem við fjörðinn hafa búið, þeir einir skynja hvenær vorið við Breiðafjörð er kom- ið, það er margradda hljóð ofar skeij- um og eyjum, lætur vel í eyrum bú- andans og linnir ekki meðan sól er á lofti, hljóðnar um náttmál þar til sólris verður aftur, þá hefst aftur sami vorboðinn, kliðurinn sem allir við fjörðinn bíða eftir og vita sem er að þá er stutt í sumar. Ég kenni mig betur við, þá þessi heimur er kvaddur að allt sé hér í dýrðarljóma, að hauður og haf skarti sínu fegursta. Vorið við Breiðafjörð minnir mig á skaphöfn mannsins sem við kveðj- um hér í dag, Benedikt Benedikts- son, sem fæddur var í Strandasýslu en uppalinn við Breiðaflörð, nánar tiltekið á Neðri-Brunná. Þar óx hann upp við venjuleg bústörf, sem geta verið og eru göfgandi hveiju manns- barni. Lífsferill hans var að mestum hluta leigubílaakstur á BSR. Þar kom sér vel prúðmennskan og hógværðin sem hann hafði í ríkum mæli. Samt var hann ávallt glaður og viðræðu- góður hvort var innan eða utan síns hóps. Svo ég vitni til ættfræðinnar kem- ur þar til að faðir Benedikts var Dalamaður, en móðir hans úr Strandasýslu. Hún var systir Ragn- heiðar á Fremi-Brekku, en hún og maður hennar Magnús Ingimundar- son áttu helminginn í Kvartettinum Leikbræðrum, þá Torfa og Ástvald. Þriðja systirin var Guðný Magnús- dóttir kona séra Jóns Brandssonar, prófasts á Kollafjarðarnesi. Bróðir þeirra, Jón Magnússon, bjó fyrst á Kirkjubóli, síðan í Skálhoit- svík. Sönggyðjan virðist með sprota sín- um hafa snortið þessa ætt, því utan þeirra sem í Leikbræðrum voru var Magnús frá Kollaijarðarnesi lands- frægur tónlistarmaður, sonur þeirra Guðnýjar og séra Jóns. Það hefur löngum verið talið að umhverfið móti manninn þar sem hann elst upp. Mér kæmi ekki á óvart þótt Saurbærinn í Dalasýslu uppfóðr- aði gott fólk svo fagurt sem þar er um að líta. Há fjöll, mikið og slétt undirlendi, landslag skeifumyndað með opnu til vesturs þar sem Gils- fjörður og Breiðafjörður renna sam- an í eitt. Ég minnist þess að á uppvaxtar- árum Benedikts var fagurt mannlíf í Dölum, þá var margt fólk á hveijum bæ og gróska allsráðandi. Fullorðið fólk í dag minnist ættstöðva sinna með brosi á vör. Einmitt þá urðu viss tengsl milli Neðri-Brunnár og Hvamms í Dölum, þegar Brynhildur frænka mín frá Hvammi batt lífs- tryggð við Benedikt úr Saurbænum. Þar hallaðist ekki á með prúð- mennskuna sem um leið börnin hafa tekið í arf. Brynhildur mín! Ég votta þér mína innilegustu samúð, svo og börnunum og fjölskyldum þeirra. Ekki kæmi mér það á óvart þegar til baka er litið að þau Binna og Bensi hafi átt sínar mestu sælustund- ir undir Dalanna sól. Sigurgeir Magnússon. Ég vaknaði snemma morguns hinn 10. maí síðastliðinn, sól skein í heiði og vorkoman leyndi sér ekki lengur. I ljósi hennar leiðum við ógjarnan hugann að því að skammt er milli iífs og dauða. Þennan bjarta vor- morgun hvarflaði ekki að mér að nokkuð gæti raskað þessari vorgleði og birtu. En skyndilega um hádegis- bil sortnaði af skýjum er mér var færð sú frétt að æskuvinur, frændi og jafnaldri, Benedikt Benediktsson, væri látinn. Svo samofin eru bernsku- og æskuár okkar Bensa frænda að ég get ekki látið hjá líða að minnast hans með nokkrum orðum. Ég rek ekki æviferil hans með dagsetningum og ártölum en minning æskuáranna er áleitnust við þessi tímamót. Við ólumst upp í sömu sveit, Saur- bæjarhreppi í Dölum. Þar bjuggu systur tvær, hvor á sínum bænum: Lilja Magnúsdóttir, móðir Benedikts, á Neðri-Brunná, og Ragnheiður, móðir mín, á Fremri-Brekku. Mjög kært var á milli þeirra systra og þær um margt ákaflega líkar, bæði í út- liti og innri gerð. Samgangur var því mikill á milli bæjanna, Brekku og Brunnár. Á Brekku vorum við aðeins tveir bræður en á Brunná fimm systkin, tveir bræður og þijár systur, en fjórða systirin ólst upp annars staðar. Þessi fimm barna hópur á Brunná og við bræður tveir á Brekku urðum strax í bernsku sem einn systkinahópur þótt á milli bæj- anna væri um klukkutíma gangur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.