Morgunblaðið - 05.06.1997, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Vísindamenn finna ný jarðhitasvæði á hafsbotni fyrir norðan land
Hverastrýta á
hafsbotni á við
12 hæða blokk
LEIÐANGUR þýskra, kanadískra
og Islenskra vísindamanna hefur
leitt í ljós ný jarðhitasvæði á hafs-
botni fyrir norðan Ísland. í Eyjafirði
kom í ljós hverastrýta á hafsbotni,
tæpir 30 metrar á hæð eða sem
nemur 12 hæða blokk. Þetta er í
fyrsta skipti sem slíkt náttúrufyrir-
bæri finnst hér við land og í raun
er mönnum ekki kunnugt um önnur
slík í heiminum. Ekki er talið ólík-
legt að strýtur sem þessa megi finna
á fleiri stöðum hér við land.
Jakob K. Kristjánsson, dósent
við Háskóla íslands og forstöðu-
maður líftæknideildar Iðntækni-
stofnunar, var meðal leiðangurs-
manna. Að hans sögn höfðu menn
lengi vitað af einhveiju uppstreymi
á ákveðnum svæðum í Eyjafirðin-
um og meðal sjómanna gengur
svæðið sem kannað var undir nafn-
inu „Hverinn" og kemur fram sem
strókur á dýptarmælum. Það kom
mönnum hins vegar í opna skjöldu,
þar sem um lághitasvæði er að
ræða, að þar skyldi ekki einungis
finnast hver heldur hár bergstand-
ur, sem byrjar á 63 metra dýpi og
teygir sig í lóðréttri oddmjórri spíru
upp á 34 metra dýpi.
Séríslenskt
náttúrufyrirbrigði
Fyrirbrigði sem þetta mun vera
séríslenskt en óstaðfestar fregnir
herma að nokkurra metra spírur
hafí fundist í sjónum við Nýja-Sjá-
land. Það tekur bergstandana þús-
undir ára að myndast og verða
þeir til vegna kísilútfellinga þegar
heitt ferskvatnið streymir út um
keilulaga bergstand og rennur upp
með honum til yfirborðsins.
„Það hafa allir gert ráð fyrir
hingað til að þetta væri eingöngu
uppstreymi sem að menn væru að
sjá á dýptarmælinum. Það hefur
ekki hvarflað að neinum manni að
þama væri oddhvass turn sem
væri svona hár,“ segir Jakob. Eyja-
fjörðurinn er straumlítið svæði sem
bendir til að þar séu kjörskilyrði
til strýtumyndana og er sennilegt
að það leynist fieiri svæði, sem
þessi í firðinum þó erfitt sé að stað-
setja þau.
Jarðhitafundur á svæðunum í
kringum Grímsey og Kolbeinsey
kom leiðangursmönnum ekki eins
á óvart og svæðið í Eyjafirðinum,
þar sem um þekkt háhitasvæði er
að ræða og Kolbeinseyjarhryggur-
inn er mjög eld- og skjálftavirkur.
Mjög erfitt er að kafa svo djúpt
og farið var á kafbátnum JAGO
sem getur kafað niður á 400 metra
dýpi og er útbúinn sérstökum bún-
aði til nákvæmrar sýnatöku.
Jarðhiti í sjó
staðfestur
Uppgötvanir sem þessar teljast
þó alltaf til stórviðburða í jarðhita-
rannsóknum og hefur jarðhiti við
Grímsey aldrei fengist staðfestur
áður. Við Grímsey fannst nýtt og
kraftmikið jarðhitasvæði á 380-400
metra dýpi. Svæðin eru tvö og er
annað þeirra mjög víðáttumikið,
um 100 metra breitt og 200-300
metra langt og afar kröftugt. Þar
mátti sjá hóla myndaða af útfell-
ingu úr hveravatni og upp af þeim
standa allt að 1,5 metra háir
strompar, þar sem jarðhitavökvinn
spýtist út af miklum krafti.
Skammt sunnan Kolbeinseyjar
fannst jarðhitasvæði árið 1974 á
um 100 metra dýpi. Þessi leiðangur
leiddi í ljós nokkur kröftug út-
streymisop og fjallstindar voru
greinilegir á hafsbotni.
• •
Oryggi enn
ábótavant
við mörk og
stökkdýnur
í KÖNNUN á öryggi sem náði til
40 íþróttahúsa í Reykjavík kom í
ljós að af 32 mörkum voru marka-
festingar í ólagi í sex tilfellum og
af 29 stökkdýnum (trampólínum)
voru 12 í ólagi.
í samanburði við svipaða könn-
un, sem gerð var fyrir tveimur
árum, er Ijóst að ástand hefur batn-
að og hafa umsjónarmenn íþrótta-
valla sýnt útsjónarsemi við að festa
mörk og fundið á þvi einfaldar
lausnir.
Af 32 mörkum í íþróttahúsum
voru 26 í lagi en 6 í ólagi og af
29 trampólínum voru 17 í lagi en
12 í ólagi. Allir hjólavagnar, en
þeir eru 25, voru í lagi og allar
markafestingar á 15 útivöllum voru
i lagi. Sjúkrakassar voru í góðu
lagi og hvergi þótti ástæða til að
gera athugasemd vegna hluta sem
sköguðu út úr veggjum.
Könnunin var unnin af heil-
brigðissviði Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur að höfðu samráði við
Hollustuvernd ríkisins og Slysa-
varnafélag íslands.
-----• ♦ ♦-----
Gengið til samn-
inga um Fáfni
eftir helgi
STEFNT er að því að ganga til
samninga við Eyþór Haraldsson,
framkvæmdastjóra fisksölufyrir-
tækisins Norfisk hf. í Reykjavík,
og Ketil Helgason, eiganda Bolfisks
hf. í Bolungarvík, um kaup þeirra
á eignum Fáfnis hf. á Þingeyri.
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, segir að stefnt
sé að því að ganga frá þessu máli
nk. mánudag með því að kaupend-
ur greiði útborgun og leggi fram
ábyrgðir fyrir kaupverðinu.
Fiskveiðasjóður, Landsbanki ís-
lands og Byggðastofnun auglýstu
til sölu þær eignir Fáfnis hf. sem
stofnanirnar yfirtóku á Þingeyri.
Tilboð barst frá Katli og Eyþóri
og var þeim gert gagntilboð. Guð-
mundur vildi ekki gefa upp kaup-
verðið.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SKIPTAR skoðanir um ágæti sameiningar við Reykjavík komu fram á borgarafundi á Kjalarnesi
í gærkvöldi. Hér ræðir Pétur Friðriksson oddviti við sveitunga sína í kaffihléi.
Borgarafundur á Kjalarnesi um sameiningu við Reykjavík
Viðhaldsfé án samein-
ingar 2 millj. næstu ár
VERÐI ekki af sameiningu Reykja-
víkurborgar og Kjalarneshrepps
mun stöðnun ríkja í hreppnum
næstu árin vegna slæmrar fjárhags-
stöðu. Þetta kom fram í máli Kol-
brúnar Jónsdóttur, sem átti sæti í
viðræðunefnd um sameiningu fyrir
hönd Kjalnesinga, á borgarafundi í
Fólkvangi í gærkvöldi.
í máli Kolbrúnar kom fram að í
nýrri fjárhagsáætlun Kjalarnes-
hrepps væri eingöngu gert ráð fyr-
ir tveimur milljónum króna í við-
haldskostnað á ári næstu sex til sjö
árin. Með sameiningu væri hins
vegar stuðlað að eðlilegri þróun í
hreppnum og í henni fælist hagræð-
ing fyrir báða aðila.
Fólksfjölgun gæti snúið
dæminu við
Fjölmenni var á kynningarfund-
inum, um 100 manns. Skiptar skoð-
anir voru um ágæti sameiningar
við Reykjavík. Pétur Þórðarson,
fyrrverandi sveitarstjóri, talaði
gegn sameiningu og minnti á að
þótt skuldir hreppsins væru nú um
300 milljónir væru eignir hans einn-
ig talsverðar, eftirspurn eftir lóðum
væri að aukast, íbúum fjölgaði um
2% á ári hveiju og ef því héldi áfram
gæti hreppurinn fljótt riáð sér upp
úr skuldasúpunni þótt bið yrði á
framkvæmdum.
Pétur lagði áherslu á að menn
yrðu að þekkja sína sveitarstjórn
og hún sömuleiðis að þekkja að-
stæður hreppsbúa. Fjarlægðin yrði
of mikil með sameiningunni.
Kolbrún Jónsdóttir benti á að litl-
ar tölur í Reykjavík væru stórar
tölur fyrir Kjalnesinga. Til dæmis
myndu þær tvær milljónir sem fyr-
irhugaðar væru í viðhald á leik-
skóla koma börnunum í hreppnum
til góða. „Þetta getum við ekki
gert fyrir fé hreppsins fyrr en eftir
langan tíma. Hreppurinn hefur
þurft að neita íbúum um ýmsa þjón-
ustu, sem þykir sjálfsögð í Reykja-
vík, einfaldlega vegna þess að hann
hefur ekki staðið undir henni.“
Sigþór Magnússon skólastjóri tók
undir orð Kolbrúnar og sagði ljóst
að fyrirhugaðar framkvæmdir
kæmu ekki til nema af sameiningu
yrði. Staðreyndin væri sú að vandi
sveitarfélagsins væri mikill. „Það
þarf kjark til að horfa til framtíðar
og segja: Þetta vil ég börnum mín-
um best,“ sagði Sigþór. Hann benti
á að þegar Kjalnesingar hefðu áður
hafnað sameiningu hefðu þeir ekki
haft neina samningsstöðu. Reyndin
væri önnur nú, eins og niðurstaða
samninganna við Reykjavík sýndi.
Fundarmenn voru bjartsýnir
framtíðina, á hvorri skoðuninni sem
þeir voru, og kom fram hjá mörgum
að Hvalfjarðargöngin myndu von-
andi blása nýju lífi í byggðarlagið.
Engin fangageymsla
á Hólmavík
Ekið 200
km með
bílþjófa
LÖGREGLAN á Hólmavík stöðvaði
góðkunningja lögreglunnar á bifreið
skammt norðan við Borðeyri í Hrúta-
fírði í fyrrinótt eftir að tilkynning
hafði borizt um grunsamlegar
mannaferðir í þorpinu. Við leit fund-
ust fíkniefni í bílnum. Ekki gátu
ferðamennirnir gefið skýringar á því
hvar þeir hefðu fengið bifreiðina og
taldi lögregla málið þurfa frekari
rannsóknar við.
Mennirnir voru handteknir en þar
sem ekki er fangageymsla á Hólma-
vík varð að aka með þá 200 kíló-
metra leið á Blönduós til að unnt
væri að rannsaka málið. Þar eyddu
lögreglumenn frá Hólmavik gærdeg-
inum við yfirheyrslur.
í ljós kom að bílnum hafði verið
stolið á bílasölu í Reykjavík og voru
mennirnir í innbrotsleiðangri nyrðra.
Eftir að málið taldist upplýst óku
lögreglumennirnir aftur 200 kíló-
metra til síns heima.
-----♦ ♦ ♦------
Hrikti í stoð-
um stúku
Valsmanna
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kvatt út í gær að Hlíðarenda þar sem
áhorfendastúka knattspyrnufélags-
ins Vals var við það að fjúka um koll
í sterkum norðanvindi.
Slökkviliðsmenn festu skástífur á
stúkuna og komu í veg fyrir að hún
félli. Það voru brunaverðir í Reykja-
vík sem byggðu stúkuna upphaflega
í fjáröflunarskyni fyrir félag sitt og
það kom í þeirra hlut að bjarga henni
í rokinu.
Meðal brunavarða sem unnu við
verkið í gær var Pétur Arnþórsson,
sem leikur með meistaraflokki Fram
í knattspyrnu, en Fram á eftir að
mæta Val í keppni á Hlíðarenda
fyrir framan stúkuna með nýju ská-
stífunum.
♦ ♦■■♦-----
RLR kærir
úrskurð
Héraðsdóms
FJÓRIR menn sem setið hafa í
gæsluvarðhaldi síðan 14. maí sl.
vegna hörkulegrar árásar á ungan
mann á skemmtistaðnum Vegas, sem
hafði þær afleiðingar að maðurinn
lést, voru í gær látnir lausir úr haldi.
RLR hafði gert kröfu um fram-
lengingu gæsluvarðhalds yfir tveim-
ur þeirra en Héraðsdómur Reykja-
víkur hafnaði þeirri kröfu. Krafa
RLR byggðist á því að málið væri
alvarlegs eðlis og að það væru al-
mannahagsmunir að halda mönn-
unum inni þar til málið væri til lykta
leitt. Úrskurður Héraðsdóms hefur
að sögn Harðar Jóhannessonar, yfir-
lögregluþjóns hjá RLR, verið kærður
til Hæstaréttar.
-----♦ ♦ ♦------
Hálka á heiðum
mætir farþeg*-
um Norrænu
SNJÓR féll í fjöll á Austurlandi í gær
og var mikil hálka á Fjarðarheiði.
Lögreglan á Egilsstöðum hefur
áhyggjur af þessu ástandi þar sem
von er á feijunni Norrænu í fyi'sta
sinn á þessu sumri til Seyðisíjarðar
í dag. Með feijunni koma um 5
ferðamenn, margir þeirra a eigin
bílum sem vart eru búnir til vetrar-
aksturs á íslenskum heiðum.