Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Mikil hitasveifla á Norður- og Austurlandi
Dæmdir
fyrir lönd-
un fram-
hjá vigt
ÚTGERÐARMAÐUR og bílstjóri í
Þorlákshöfn hafa verið sektaðir í
Héraðsdómi Suðurlands fyrir brot
gegn lögum um umgengni við nytja-
stofna sjávar.
Eftirlitsmenn Fiskistofu stóðu
mennina að ólöglegri löndun um 7
tonna af óslægðum þorski í júní í
fyrra. Hafði aflanum verið landað
úr Arnari ÁR og ekið að fiskverkun
Auðbjargar ehf. í Þorlákshöfn en
ekki vigtaður á hafnarvog, sam-
kvæmt reglum um vigtun sjávarafla.
í yfirheyrslum sögðust fram-
kvæmdastjóri Auðbjargar ehf., sem
jafnframt er útgerðarmaður Arnars
ÁR, og bílstjórinn það hafa verið
ætlun sína að koma um það bil
tveimur tonnum framhjá vigt, að
skipun þess fyrrnefnda. Skipstjóri
Arnars ÁR hefur hins vegar neitað
því að hann hafi haft vitneskju um
þessa fyrirætlan og var því sýknaður
af öllum kröfum. Bílstjórinn var
dæmdur til að greiða 200.000 króna
sekt eða sæta ella varðhaldi í 30
daga. Útgerðarmaðurinn var dæmd-
ur til að greiða 800.000 krónur í
sekt eða sitja 80 daga í varðhaldi.
♦ ♦ «----
Bílstjórar í
Sleipni boða
verkfall
FÉLAGSMENN Bifreiðastjóra-
félagsins Sleipnis samþykktu á fé-
lagsfundi á þriðjudagskvöld að boða
til verkfalls frá og með fimmtudeg-
inum 12. júní næstkomandi. Var
verkfallsboðunin samþykkt með
82,5% greiddra atkvæða.
Milli 150 og 160 félagsmenn eru
í Sleipni og segir Óskar Stefánsson
verkfallið koma til með að hafa áhrif
á akstur sérleyfisbíla og hópferðir á
höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi,
austur í sveitir og um Suðurland,
Snæfellsnes, við Akureyri og til
Mývatns.
Hátt í vika er síðan síðasti samn-
ingafundur var haldinn og sagði
Óskar að viðræðum hefði ekki verið
slitið en sagði báða aðila vera að
fara yfír stöðuna. Hann kvaðst vera
í sambandi við vinnuveitendur og
býst við fundi strax eftir næstu helgi.
REYKJAVÍKURBORG bárust alls
60 athugasemdir við 25 atriðum í
tillögu að nýju aðalskipulagi en fresti
til að gera athugasemdir lauk síðast-
liðinn föstudag. Fjórar athugasemdir
bárust frá nágrannabæjum, Vega-
gerð og Náttúruvemd ríkisins en
flest athugasemdabréfín, 46 talsins,
eru frá einstaklingum og snerta
gatna- og umferðarmál á alls 10
stöðum í borginni.
Við kynningu aðalskipulags borg-
arinnar 1990 bárust 12 athuga-
semdabréf en 26 bréf vegna aðal-
skipulagstillögunnar árið 1984.
Tengingu Ægisíðu við
Suðurgötu mótmælt
Meðal athugasemdanna 60 sem
nú eru til meðferðar hjá borgar-
skipulagi Reykjavíkur eru mótmæli
88 foreldra í foreldrafélagi leikskól-
ans Sæborgar við fyrirhugaðri fram-
lengingu Ægisíðu til austurs að
Suðurgötu neðan við leikskólann.
Stjórn hverfissamtaka Litla-Skeija-
fjarðar mótmælti sömu framkvæmd,
þ.e. tengingu Ægisíðu við Þorragötu
ÓHÆTT er að segja að máltæk-
ið skjótt skipast veður í lofti eigi
vel við norðanlands. Akur-
eyringar sem horfðu á hitamæl-
inn á Ráðhústorgi á þriðjudag
sýna 26 gráðu hita settu stutt-
buxurnar aftur inn í skáp í gær,
en þá var kalsaveður, norðan-
„VIÐ VORUM búin að vara fólk á
tjaldstæðinu við þessari hita-
sveiflu svo það fékk enginn áfall
eftir að hafa lagst til svefns í
hitabrælu en vaknað upp við frost-
mark. Ein kona flúði reyndar á
hótel,“ segir Illugi Már Jónsson
leiðsögumaður í Mývatnssveit en
mikil hitasveifla var í fyrrinótt á
Norður- og Austurlandi.
Veðurstofan spáir áfram köldu
veðri fram yfir helgi. „Ég get
ekki mælt með neinum ákveðnum
útilegustað fyrir helgina. Ég held
það verði einfaldlega of kalt fyrir
allar útilegur," segir Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur um
helgarveðrið.
Mesta sveiflan mældist á Akur-
eyri en klukkan 18 á þriðjudag
mældist hitinn 24 gráður en tólf
timum seinna var hitastigið komið
niður í 2,4 gráður. Hitastigið á
Raufarhöfn féll einnig mikið þessa
sömu nótt eða um 19,6 stig. Þriðju-
dagurinn var dæmigerður „besti
og íbúi við Ægisíðu mótmælti einnig
tengingu Ægisíðu frá gatnamótum
við Starhaga að Suðurgötu en þaðan
gerir skipulagstillagan ráð fyrir
tengingu götunnar um Þorragötu
að flugvallarsvæðinu og síðan við
Njarðargötu.
Þessi tenging hefur verið inni á
fyrri aðalskipulagstillögum borgar-
innar, að sögn Bjarna Reynarssonar,
aðstoðarskipulagssstjóra í Reykja-
vík.
Þrír aðilar undirrita tvö athuga-
semdabréf vegna umferðarþunga við
Miklubraut og fyrirhugaðs neð-
anjarðarstokks.
Auk undirskriftarlista 1.734 íbúa
í Seljahverfi sendu 32 einstaklingar
í hverfinu sérstakar athugasemdir
við ofanbyggðarveginn.
2.204 íbúar í Voga- og Langholts-
hverfum kröfðust þess á undirskrift-
arlista að Álfheimum, Holtavegi og
Skeiðarvogi milli Sæbrautar og Suð-
urlandsbrautar verði breytt úr tengi-
brautum ! safngötur og að fyrirhug-
aðri staðsetningu Ósabrautar verði
breytt, auk þess sem kennararáð
Skjótt skipast
veður í lofti
gjóla og vottur af snjókomu.
Krakkarnir sem starfa hjá Um-
dagur sumarsins" á Norðaustur-
og Austurlandi á meðan gærdag-
urinn var með köldustu júnídögum
sem verða.
Sérstakt samspil
hæðar og lægðar
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu íslands má rekja þess-
ar hitabreytingar til einstaks sam-
spils hæðar og lægðar. Öflugt
háþrýstisvæði kom frá suðaustri
af Bretlandi. Loftið sem hæðin bar
með sér var óvenju hlýtt sem sást
best á því að á þriðjudag fór hiti
dagsins víða í 22 til 25 stig á Norð-
ur- og Austurlandi, mest 25,5 stig
á Ejgilsstöðum.
A sama tíma var ískalt loft að
safnast saman við austurströnd
Grænlands. Hæðin hélt hinsvegar
kalda loftinu í skefjum og vamaði
því að það fengi útrás suður á
bóginn. í fyrrakvöld hélt svo hæð-
in áfram ferð sinni vestur í átt að
Suður-Grænlandi og þá gat kalda
Vogaskóla og stjórn Sjálfsbjargar
gerðu athugasemdir sama efnis.
25 mótmæla
Geldinganesi
Aðrar athugasemdir varðandi
umferðarskipulag eru m.a. þess eðlis
að 28 íbúar við Stakkhamra og Vest-
hverfisdeild Akureyrarbæjar
sáu að ekki þýddi annað en taka
fram vetrarfatnaðinn að nýju
þar sem þau voru að hreinsa til
í tijábeðum við Glerárgötu. Á
myndinn má sjá þær Alís, Sól-
veigu og Aðalbjörgu kappklædd-
araðstörfum.
loftið haldið óhindrað áfram ferð
sinni suður á bóginn. Það sem
skipti hins vegar sköpum var við
Vestfirði myndaðist dálítil lægð á
mörkum þessa misheita loftmassa.
Um leið og hæðin fór vestur, dýpk-
aði litla lægðin og barst til austn-
orðausturs og hjálpaði hún við það
að beina þessu ískalda heimskauta-
lofti til landsins.
Ekki einsdæmi
Að sögn Einars Sveinbjörnsson-
ar, veðurfræðings hjá Veðurstofu
íslands, þá er atburðarás sem
þessi fátíð en alls ekkert eins-
dæmi. Hið svokallaða Hákonar-
hret í apríl 1963 kom einmitt I
kjölfar svipaðs samspils hæðar og
lægðar. I því hreti frysti og fór
það illa með gróður.
Björgvin Steinsson, forstöðu-
maður Lystigarðsins á Akureyri,
segir að ekki þurfi að hafa áhyggj-
ur af gróðri svo lengi sem ekki
fijósi.
urfold mótmæla tengingu við Sunda-
braut á mótum Strandvegar og
Borgarvegar, einn aðili í Seljahverfi
mótmælir tengingu frá Kópavogi inn
á Skógarsel, stjórn húsfélags við
Kleppsveg mótmælir umferðar-
þunga á Sæbraut og íbúi í Rima-
hverfí vill að Langarima verði lokað
öðrum en strætisvögnum og bréf
barst með mótmælum við umferð
við Háaleitisbraut.
Þá má nefna að 25 íbúar í Húsa-,
Folda- og Engjahverfi hafa sent inn
bréf með mótmælum landnýtingar í
skipulagi á Geldinganesi.
Bjarni Reynarsson, aðstoðar-
skipulagsstjóri í Reykjavík, sagði að
á mánudag verði athugasemdirnar
lagðar fyrir fund skipulagsnefndar
ásamt drögum að umsögnum en
nefndin íjallar einnig um skipulagið
og athugasemdir á tveimur fundum
í júní. Þar með er ráðgert að umfjöll-
un nefndarinnar ljúki og það verði
sent borgarráði og komi síðan fyrir
tvo fundi borgarstjórnar ! sumar.
Væntanlega verði það sent skipu-
lagsstjórn í byijun ágúst.
Refsirétt-
amefnd
skipuð
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað refsiréttarnefnd til að vera
ráðuneytinu til ráðgjafar á því rétt-
arsviði og annast endurskoðun
refsilaga.
Nánar tiltekið eru föst verkefni
nefndarinnar að fylgjast með rétt-
arþróun á sviði refsiréttar, þar með
talin ákvörðun viðurlaga vegna mis-
munandi afbrota, og gera tillögur
um breytingar á almennum hegn-
ingarlögum og ákvæðum sérrefsi-
laga eftir því sem ástæða þykir til.
Einnig hefur ráðherra falið nefnd-
inni að kanna sértaklega hvort
ástæða sé til að breyta ákvæðum
almennra hegningarlaga um lík-
amsmeiðingar og ákvæðum refsi-
laga um ávana- og fíkniefnabrot.
í refsiréttarnefnd eiga sæti Bene-
dikt Bogason, skrifstofustjóri í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
sem jafnframt er formaður nefndar-
innar, Atli Gíslason, hæstaréttar-
lögmaður, Davíð Þór Björgvinsson,
prófessor, Ingibjörg Benediktsdótt-
ir, héraðsdómari og Þorsteinn A.
Jónsson, forstjóri Fangelsismála-
stofnunar ríkisins. Ritari nefndar-
innar er Ragnheiður Harðardóttir,
deildarstjóri í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu.
♦ ♦ ♦--
Andlát
HELGA
KRABBE
LÁTIN er í Viborg í Danmörku
Helga Krabbe, löggiltur skjalaþýð-
andi og dómtúlkur. Hún var á 93.
aldursári. Helga flutti burt af Is-
landi árið 1933 en hélt ævinlega
tryggð við ættjörðina. í desember
síðastliðnum gaf hún tæplega hálfa
milljón króna til vegagerðar á
Skeiðarársandi eftir að jökulhlaupið
mikla rauf samgöngur um sandinn.
Helga Krabbe fæddist í Kaup-
mannahöfn 25. ágúst árið 1904.
Hún var dóttir hjónanna Thorvalds
Krabbe, fýrrum landsverkfræðings
og vita- og hafnarmálastjóra, og
Sigríðar Þorvaldsdóttur. Hún bjó á
íslandi með foreldrum sínum fram-
an af ævi og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1924.
Hún var síðasti eftirlifandi stúdent-
inn úr sínum árgangi.
Helga flutti til Danmerkur árið
1933. Hún var löggiltur skjalaþýð-
andi og dómtúlkur og starfaði m.a.
! sendiráði íslands um tíma. Þá
fékkst hún við málakennslu allt
fram undir það síðasta.
Fyrri maður Helgu var Helge
Gad, lektor ! Ábenrá. Þau skildu.
Seinni maður hennar var Ole Widd-
ing sendikennari. Þau skildu fyrir
allmörgum árum. Helga átti þUu
börn, tíu barnabörn og tíu barna-
barnaböm.
Gjöf Helgu Krabbe til íslendinga
varð kveikjan að greinaflokki Em-
ars Laxness um Krabbefjölskylduna )
en fyrsta greinin birtist í Lesbók |
Morgunblaðsins síðastliðinn laugar- |
dag. Fleiri greinar munu birtast
næstu laugardaga.
60 athugasemdir gerðar við
aðalskipulag borgarinnar
Úr blíðu niður í nísting
skulda á 12 tímum