Morgunblaðið - 05.06.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 13
Morgunblaðið/Kristján
DAVÍÐ Rúnar Gunnarsson, Haukur Grettisson og Sigurður Rún-
ar Marinósson í hljóðveri Frostrásarinnar.
Utvarpa allan
sólarhringinn
SUMARÚTVARP Frostrásarinnar
hófst formlega 1. júní síðastliðinn
en þetta er í fyrsta sinn sem útvarp-
að er að sumarlagi. Eins og nafnið
gefur til kynna hafa aðstandendur
útvarpsstöðvarinnar einkum verið á
ferðinni að vetrarlagi.
„Við ætlum að útvarpa allan sólar-
hringinn í allt sumar,“ segja þeir
Davíð Rúnar Gunnarsson og Haukur
Grettisson sem standa að Frostrás-
inni ásamt Sigurði Rúnari Marinós-
syni og Magnúsi Magnússyni.
Frostrásin er til húsa á 3. hæð við
Ráðhústorg 1 og ætlar útvarpsstöðin
að taka virkan þátt í efla mannlíf á
torginu. „Við verðum með tónleika
á torginu, fáum vinsælar hljómsveit-
ir til að spila þar og ætlum að efna
til einhvers konar torgarteitis einu
sinni í mánuði með margs konar
uppákomum, hljómsveitum, grilli og
útimarkaði svo eitthvað sé nefnt,“
segja Davíð Rúnar og Haukur.
Útsendingar Frostrásarinnar nást
á Akureyri og í næsta nágrenni og
er tíðnin FM 98,7. Heimasíða Frost-
rásarinnar er http://www.nett.is/
frostrasin. í gegnum hana er m.a.
hægt að koma kveðjum á framfæri.
Garðsláttuvélar
Reykjavík: Ármúla 11 - Simi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka -Sími 461-1070
| ÞÓR HF
Reykjavík - Akureyri
Píanótón-
leikar í
Akureyrar-
kirkju
UNGUR píanóleikari, Árni Heimir
Ingólfsson, heldur píanótónleika í
safnaðarheimili Ákureyrarkirkju
fimmtudagskvöldið 5. júní kl. 20.30.
Á efnisskránni verða verk eftir J.S.
Bach, Olivier Messiaen og Richard
Wagner. Auk þess flytur Arni Heim-
ir nýtt verk eftir Atla Heimi Sveins-
son, sem nefnist Agnus Dei, og var
samið sérstaklega fyrir þessa tón-
leika. Þetta verður í fyrsta sinn sem
nýja verkið er flutt á Islandi, en tón-
leikarnir verða endurteknir á höfuð-
borgarsvæðinu um næstu helgi.
Arni Heimir stundaði píanónám
hjá Erlu Stefánsdóttur og Jónasi
Ingimundarsyni, og útskrifaðist af
tónlistarbraut Menntaskólans við
Hamrahlíð vorið 1993. Hann hefur
síðan stundað nám hjá prófessor
Lydiu Frumkin við Oberlin-tónlistar-
háskólann í Bandaríkjunum, og hefur
nýlokið B.Mus-námi í píanóleik og
tónvísindum við þann skóla. Þá fékk
hann sérstök verðlaun tónvísinda-
deildarinnar fyrir lokaritgerð sína,
sem fjallaði um orgelkonsert Jóns
Leifs. Hann hefur auk þess hlotið
margar aðrar viðurkenningar, meðal
annars verðlaun sem heiðursfélag
bandarískra tónlistarmanna, Pi
Kappa Lambda, veitir nemendum
fyrir framúrskarandi tónlistarhæfi-
leika, og styrk úr Thors Thors-sjóðn-
um fyrir komandi skólaár. I haust
mun Árni Heimir hefja doktorsnám
í tónvísindum við Harvard-háskóla.
----------» 4 4----
Krabbameinsf élag
Akureyrar og
nágrennis
Heilsuhlaup
í kvöld
HEILSUHLAUP Krabbameinsfé-
lags Akureyrar og nágrennis verður
á fjórum stöðum í Eyjafirði í kvöld,
og hefst það kl. 19.
Á Akureyri verður hlaupið í
Kjamaskógi, í Ólafsfírði hefst hlaup-
ið við Gagnfræðaskólann, á Grenvík
við kaupfélagið og í Hrísey hefst
hlauþið við sundlaugina. Á Dalvík
verður hlaupið næstkomandi laugar-
dag, 7. júní, og hefst kl. 12 við sund-
laugina. Skráning hefst klukkustund
fyrir hlaup. Upphitun hefst kl. 18.45
á þeim stöðum þar sem hlaupið verð-
ur í kvöld. í tengslum við hlaupið á
Akureyri verður boðið upp á strætis-
vagnaferð fólki að kostnaðarlausu
frá Ráðhústorgi kl. 18.30 í Kjarna-
skóg og til baka að hlaupi loknu.
Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis hefur efnt til heilsu-
hlaups síðastliðin átta ár. Allur
ferðamáti er leyfilegur, þátttöku-
gjald er ekkert og að hlaupi loknu
verður boðið upp á drykki í boði
Frissa fríska.
Á dögunum var hlaupið í Gríms-
ey og tóku 30 manns þátt.
10 Flauelsblóm
ikf 199,-
fimmtudag til sunnudags
6 Fiölærar plöntur
(að eigin vali)
kr
20 Stjúpur
likú1
■