Morgunblaðið - 05.06.1997, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Tvær víddir
tvísýn“
MYNPLIST
Nýlistasafnið
MÁLVERK
Birgir Snæbjörn Birgisson, Sigtrygg-
ur Bjarni Baldvinsson. Opið alla daga
frá kl. 14-18. Lokað mánudaga. Til
8. júní. Aðgangur ókeypis.
ÁTT hafa sér stað drjúgar
breytingar og uppstokkanir á hús-
næði Nýlistasafnsins, sem vísar
til framfara og eykur möguleika
á sveigjanlegri framkvæmdum.
Tveir nýir salir hafa verið opnað-
ir, og hafa fengið nafnið Bjarti
salur, þar sem áður var skrifstofa,
og Svarti salur sem eykur á mögu-
leika fyrir tæknileg verk og inn-
setningar í myrkri. Þó eru þær
viðhorfsbreytingar ánægjulegast-
ar, að horfið hefur verið frá ein-
stefnu fyrri ára og hugtakið sam-
tímalist tekið til endurskoðunar.
Um leið verða menn samstiga
þeirri almennu skilgreiningu hug-
taksins sem rýnirinn hefur endur-
tekið vísað til á liðnum árum. Að
samtímalist teljist öll lifandi og
frjó myndsköpun frá styijaldar-
lokum 1945. Einskorðast alls ekki
við neina hreintrúarstefnu né af-
markað svið eins og fámennur
hópur einangrunarsinna og
marsipanmarxísta hefur hingað
til álitið hér á útskerinu. Kannski
gerist þetta nokkuð seint, því eins
og annars staðar á Norðurlöndum,
hafa hin þröngu stefnumörk fælt
listunnendur á burt, gvo víðast
hvar hafa salirnir og listaverkin
verið í skeggræðum við sig sjálf
á almennum sýningartíma, hversu
áhugaverðar sem þær hafa annars
verið. Það er langt síðan rýnirinn
hefur séð jafn mikið af málaralist
í sölum safnsins og prýðir þá um
þessar mundir. Málaralist sem er
laus við að eltast við erlendar
skammtímastefnur og leitar ein-
ungis inn á við í sjálfan myndflöt-
inn og grunnmál hans. Og eins
og iðulega gerist í slíkum tilvikum,
finnur skoðandinn jafn mikið og
helst meira af ferskum nústraum-
um í vinnubrögðunum og þegar
gerendurnir eru í nokkurs konar
launalausri þegnskylduvinnu hjá
innlendum og útlendum bendiprik-
um. Við lifum á tímum uppstokk-
unar allra sjónrænna gilda, og er
svo er komið verður að álíta það
hreina íhaldssemi að halda fram
einni stefnu, öllum æðri og rétt-
hærri. Þetta virðast jafnaldrarnir
tveir frá Akureyri gera sér grein
fyrir og fara því sínar eigin leiðir
í málverkinu, þótt þeir séu sér
mjög meðvitandi um list dagsins
og um leið fortíðar eins og op-
inská skrif þeirra í sýningarskrá
eru til vitnis um. Báðir eru þeir
fæddir 1966 og skólaganga þeirra
afar samstiga, stúdentar af mynd-
listarbraut Menntaskólans á Ak-
ureyri 1986 og eftir eitt ár við
Myndlistarskólann þar í bæ innrit-
uðust þeir í MHÍ, þar sem Sig-
tryggur nam við málunardeild en
Bjarni í grafíkdeild. Báðir hafa
farið hægt af stað og er þetta
þeirra stærsta framtak til þessa á
vettvanginum, og þó hafa menn
fylgst vel með þeim og myndir
þeirra ratað á söfn. Birgir Snæ-
björn gengur út frá sakleysinu í
málverkum sínum, en þó því sak-
leysi sem menn skilgreina helst
með setningu Balzacs „Sakleysið,
síst má án þess vera, en.“ Dúkar
Birgis eru nefnilega á köflum
hlaðnir erótík, þó með afar sak-
lausu yfirbragði, og mjög á skjön
við athafnirnar á þeim. Þar kemur
þetta margfræga og afdrifaríka
„en“ inn í hina tvíræðu skilgrein-
ingu. Birgir málar í afar ljósum
og viðkvæmum litatónum, svo að
á stundum rétt greinir í hið hlut-
vakta á myndfletinum og því þurfa
dúkarnir sérstaka birtu og um-
hverfi til að njóta sín til fulls. Það
gera þær því miður sjaldnast á
hinum hvítmáluðu veggjum Ný-
listasafsins, og reynir óþarflega
mikið á skoðandann ef hann á
annað borð vill ná sambandi við
þær. Hér hefði þurft að koma til
sérstök innsetning á svipuðum
nótum og hjá Kristínu Gunnlaugs-
dóttir, þó frekar í heitum milli-
grænum tónum, sem eru svo al-
gengir í listhúsum jrtra. Ekki vant-
- Gœðavara
(
Gjafavara — malar og kaffístell.
Allir verðílokkar. ^
: VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heiinsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versatc.
Lóttu ekki minnihóttar lýti
verað að stóru vandamóli.
MARBERT
ANTI - COUPEROSE EFFECT:
Sérstök meðferð sem vinnur
gegn roða og hóræðasliti.
Með reglulegri notkun
styrkjost héræðarnar
og húðin fær eðlilegan
litarhótt.
ANTI - COUPEROSE EFFECI
skilar undraverðum órongri.
Kynning i Evitu, í Kringlunni i
dag og ó föstudag.
Glæsilegur kaupauki.
SIGTRYGGUR Bjarni Baldvinsson: Lauf, olía á léreft, 1996.
ar þó að afar vel
málaðar myndir séu á
staðnum og hér vísa
ég helst til tveggja;
„Drengur að klifra"
(1997) og „Hvít
rotta“ (1996). Og
þrátt fyrir að sjálf
rottan sé allt annað
en geðsleg er málun-
arhátturinn þrunginn
fegurð, hreinleika og
sakleysi. - Sigtrygg-
ur Bjarni á fátt sam-
eiginlegt með félaga
sínum annað en þá
sérstöku fágun í
vinnubrögðunum sem
er kennimark beggja.
Það er afar jafn og
rólegur stígandi í
verkum hans, og að
því leyti eru vinnu-
brögðin gædd meira
öryggi, skilur hér á
milli náms í grafík og
málun. Myndefnin
eru líka fjölþættari,
þótt hann takmarki
sig við þröngt svið og
BIRGIR Snæbjörn Birgisson: Drengur að
klifra, olía á léreft, 1997.
byggi á nokkurs konar kerfi end-
urtekinna smáatriða. Er þó alls
óhræddur við að fólk flokki vinnu-
brögðin undir skreyti. Allt mál-
verk er að vissu marki skreyti, en
það er allt annar handleggur að
vera í bland við innri lífæðar
grunnflatarins en yfirborðið eitt.
Athygli vekja málverk sem sam-
hverft jafnvægi einkennir, og há-
mark þess kemur greiniiegast
fram í myndinni „Lauf“ (1996),
sem er framúrskarandi vel máluð.
Sigtryggur er trúr hinu hreina
sjálfhverfa málverki og skilur að
listin er annað og meira en flipp,
skemmtun og dægrastytting. Fyr-
ir slíka skiptir myndefnið minna
máli en útfærslan, sjálf blóðrík
lifunin að baki pensilstrokanna.
Sýning þeirra félaga er afar skýrt
dæmi um unga málara á þroska-
braut sem flýta sér hægt og láta
ekki glepjast af stundarfyrirbær-
um á listavettvangi.
Bragi Ásgeirsson
Lit-
brigði
efna
MYNPLIST
Tuttugu fcrmetr-
ar, Vcsturgötu
lOa kjallari
INNSETNING
TUMIMAGNÚSSON
Opið miðvikudaga-sunnudaga
kl. 15-18018. júní. Aðgangur
ókeypis.
HVAÐ getur verið líkt með
hafragraut og heróíni eða
hæsnaskít og handsápu ann-
að en lítill litbrigðamunur og
sameiginlegur upphafsstafur.
í innsetningu Tuma eru fjórir
litafletir sem standa fyrir til-
tekin heiti. Tumi vinnur með
allt rýmið og eru litafletirnir
gerðir með málningarsprautu
beint á veggina. Blæbrigði
lita fyrrnefndra heita eru bor-
in saman innbyrðis þar sem
tveir fletir mætast í sitthvoru
horni rýmisins. Hér er ekki
um tilviljanakennda litanotk-
un að ræða, heldur blandar
Tumi lit sem líkist mest upp-
runalegu efni. Heiti litaflet-
ana sem hann gerir afhjúpa
þá samstundis og myndlík-
ingin verður tákn um ákveðið
efni. Stórir fletirnir eru úðað-
ir með venjulegri veggmáln-
ingu til þess að þeir dreifist
vel og samlagist rýminu.
Samtóna litir efnanna virðast
renna saman þar sem þeir
mætast en eru aðskildir hver
á sínum vegg.
Veggmálverkin eru loft-
kennd í rýminu, litir þeirra
eru skýrastir þar sem fletir
mætast en fjara síðan smám
saman út og samlagast hvít-
um lit veggjana. Framsetn-
ing málverkana sem Tumi
vinnur í innsetningu sinni er
nálgun við litbrigði ólíkra
efna. Hann framkallar efnin
á veggi rýmisins með máln-
ingu sem áhorfandinn leitast
síðan við að kalla fram í huga
sér.
Hulda Ágústsdóttir
Byrjað í
Maí ‘97
September ‘97
HAWAIIPACIFIC UNIVERSITY
Nám í U.6.A.
♦ ALÞJÓÐLEGT YFIRBRAGÐ: Nemcndur frá öllum 50 fylkjum Dandaríkjanna og 90 öðrum löndum.
♦ EINSTAKLINGURINN í FYRIRRÚMI: Meðalfjöldt í bekk er 22
♦ AKADEMÍSK NÁMSKRA: Valið úr meira en 40 aðalnámsgreinum.
4 NÁMSKRÁÐUR: MBA, MSIS, MA
♦ HLUTASTARF: Möguleiki á launuðu hlutastarfi, einskonar starfsþjálfun í viðkomandi fagi.
HPU inntökukröfur:
♦ Fyrir Bachelor- gráðu: „High Scool“ gráða, stúdentspróf eða sambærileg menntun.
♦ Fyrir Master-gráðu: Bachelor-gráða eða sambærileg frá viðurkenndum háskóla í
ýmsum greinum.
KYNNINGARFUNDUR & GLÆRUR SÝNJ4AR
þriðjudctginn 25- tnars 1997 k.L 19, á Hvantmi á Graná Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38, sími 568 9000.
Rétt val á
cedri menntun
í U.S.A.
VIÐTÖL
við Stephen Wright samkvæmt pönlun, miðvikudaginn 26. mars
1997frá kL 15-21 ci Grand Hótel Reykjavík.
Enginn aðgangseyrir. Foreldrar og nemendur velkomnir.
HAWAIIPACIFIC UNIVERSITY
1164 Bishop Street, Honotulu, Hawaii 96813, U.S.A.
Sími 00 1 808544 0238. Fax 00 1 808 544 1136
E-maiV admissions@hpu.edu Heimasíða: http://wivw.hpu.edu