Morgunblaðið - 05.06.1997, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 43
MINNINGAR
SIGURJON
JÚNÍUSSON
■4- Sigurjón Jú-
' níusson fæddist
í Sandgerði 23.
september 1964.
Hann lést á heimili
sínu í Sandgerði 1.
janúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Hvalsnes-
kirkju 10. janúar.
Mig langar að minn-
ast hans Sigga sem ég
bjó með í rúm fjögur
ár. Við keyptum okkar
fyrstu íbúð saman í
Njarðvíkunum, litla
hlýlega íbúð.
Eftir stutta sambúð fæddist sól-
argeislinn okkar, hann Stefán litli,
sem var Sigga líf og yndi. Stefán
leit alltaf upp til pabba síns og gat
varla beðið eftir að fara til hans
og rúnta niður að bryggju og skoða
bátana sem pabbi hafði verið að
vinna í og hlusta á góða músík og
fá sér svo ís, og svona mætti lengi
telja.
Siggi var léttlyndur og afar stríð-
inn, svo ekki á hann Stefán langt
að sækja það, jafn stríðinn og glett-
inn eins og pabbi sinn.
Við Siggi áttum margar góðar
stundir saman. Þótt
við hefðum slitið sam-
vistum vorum við góðir
vinir og gátum alltaf
komist að samkomu-
lagi við erfiðar aðstæð-
ur.
Elsku Siggi, mig
langar að þakka þér
fyrir yndislegan son og
allar góðu stundirnar
sem við áttum öll sam-
an. Við munum ávallt
sakna þín, en minning-
arnar lifa í hjörtum
okkar allra. Eg bið
góðan Guð að geyma
þig og varðveita, og bið ég fyrir
ijölskyldu þinni að góður Guð gefi
þeim öllum styrk í þessari hörmu-
legu sorg og söknuði. Guð veri með
ykkur.
Gegnum Jesú helgast hjarta
í himininn upp ég líta má,
Guðs míns ástar birtu bjarta
bæði fæ ég að reyna og sjá,
Hryggðar myrkrið sorgar svarta
sálu minni hverfur þá.
(H. Pétursson)
Kveðja,
Ásta Rán og fjölskylda í
Bandaríkjunum.
RAGNAR
SKARPHÉÐINN
JÓHANNSSON
+ Ragnar Skarphéðinn Jó-
■ hannsson fæddist í Reykja-
vík 2. október 1993. Hann lést
af slysförum á Barðaströnd 20.
maí siðastliðinn og fór útför
hans fram frá Bijánslækjar-
kirkju 28. maí.
Bilið miili lífs og dauða er oft
stutt. Dökk sorgarský eru ekki
lengi að hrannast upp á himni þar
sem áður ríkti vor, sól og ham-
ingja. Þegar fréttin um hið hörmu-
lega umferðarslys er varð Ragnari
litla Skarphéðni, syni vinafólks
okkar Jóhanns og Halldóru á
Bijánslæk, að aldurtila aðeins
tæpra fjögurra ára gömlum, vor-
um við öll sem lömuð og áttum
erfitt með að trúa því að þessir
hlutir hefðu raunverulega gerst.
Hvernig má það vera að slíkur
harmur skuli lagður á herðar svo
ungra og lífsglaðra foreldra, bróð-
ur og frændfólks. Sú hugsun sæk-
ir að hver sé tilgangurinn með
þessu öllu saman og hvers vegna
lítið, nýkveikt lífsljós er slökkt svo
snögglega og fyrirvaralaust. Fátt
er um svör, enda vitum við sem
mannheima byggjum harla lítið og
fátt um það og munum seint skilja
þá lífsgátu. Ragnar litli var ákveð-
inn snáði og atorkusamur sem lýsti
sér best í lýsingu föður hans sem
sagði mér að sá stutti hafi aldrei
ferðast á gönguhraða heldur ávallt
hlaupið allra sinna ferða, enda
krafturinn og dugnaðurinn með
eindæmum. Hann var jafnframt
óvenju greindarlegur og skýr mið-
að við sinn unga aldur og mann-
vænlegur í alla staði. Ekki er mér
grunlaust um að nafni hans og
afi, Ragnar eldri, hafi lagt þar
gjörva hönd á plóg og miðlað arfi
reynslunnar í formi ljóða og sagna
til litla vinar síns, enda eyddu þeir
félagar oft löngum stundum sam-
an og spjölluðu þá mikið. Rósa
amma var heldur aldrei langt und-
an enda vegurinn að heiman yfir
til afa og ömmu aðeins um einar
dyr sem ávallt voru opnar litlum
manni. Aldrei verður með nokkru
móti fyllt það skarð sem rofið hef-
ur verið í hina ungu, glaðværu og
lífsglöðu fjölskyldu, sem með
dugnaði sínum, atorku og bjart-
sýni á framtíðina hefur byggt fal-
legt heimili þar sem hláturinn skip-
ar öndvegi og ávallt er gott að
koma. Ykkar bíður það erfiða hlut-
skipti, kæru vinir, að hjálpa hvert
öðru að horfa til framtíðar því líf-
ið heldur áfram hvað sem tautar
og raular. Harmur ykkar er mik-
ill, elsku Jói, Hadda og Markús,
svo mikill að enginn getur skilið
hann til fulls nema sá er sjálfur
hefur mátt reyna.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei taiar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.)
Megi allar góðar vættir vera ykk-
ur styrkur í sorginni.
Sigurður, Margrét og börn,
Patreksfirði.
ÞORARINN
GRÍMSSON
+ Þórarinn Gríms-
son fæddist í
Vestmannaeyjum 31.
desember 1924.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 28.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Jónina Guðrún
Isleifsdóttir og
Grímur Th. Gríms-
son. Þórarinn átti
eina alsystur, Þó-
reyju ísleifu Doyle,
og þrjú hálfsystkini,
Theodóru, Hilmar
og Ólaf Grímsbörn.
Þórarinn var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Erla Guð-
jónsdóttir. Þau skildu. Með
henni átti hann tvö börn, Theó-
dóru Jónu og Guðjón Þór.
Seinni kona hans var Ása Guð-
rún Jónsdóttir. Þau skildu. Sam-
býliskona hans síðustu ár var
Margrét Magnúsdóttir.
Útför Þórarins fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 10.30.
Guð gefi mér æðruleysi
til þess að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
(AA-bænin.)
Fallinn er frá góður vinur og fé-
lagi minn, Þórarinn Grímsson, öðru
nafni Doddi, eins og hann var kallað-
ur. Þrátt fyrir þá vissu að öllu lífí
fylgi dauði, erum við sjaldnast viðbú-
in endalokunum, þessu var ég ekki
viðbúinn, þótt ég vissi að hveiju
stefndi, því nokkrum dögum áður
hafði ég heimsótt hann. Það voni
mér mikil vonbrigði, þegar hringt
var í mig til Eyja, þar sem ég var
í nokkra daga og mér sagt að Doddi
væri allur, því næsta dag ætlaði ég
til Reykjavíkur og hlakkaði mikið til
að hitta Dodda vin minn. Ég var
með svo miklar og góðar kveðjur til
hans frá vinum okkar í Eyjum, en
það fer margt öðruvísi en ætlað er.
Það var fyrir mörgum árum, já
mörgum árum, sem kynni okkar
hófust, við þá búsettir í Vestmanna-
eyjum. Doddi starfaði þá hjá Hrað-
frystistöð Vestmannaeyja en ég við
mötuneyti. Mér er það ógleymanlegt
hvað Doddi var alltaf fínn þegar
hann mætti í mat, það var eins og
hann væri að fara á ball, þótt hann
væri að vinna í fiski. Doddi var alla
tíð einstakt snyrtimenni.
Það er margs að minnast frá þess-
um árum okkar í Eyjum og ekki síð-
Útileiktæki og
busllaugar
Vönduð útileiktæki
frá V-Þýskalandi,
stoðir 45 mm, lökkuð stálrör.
Ein róla kr. 6.900, stgr. kr. 6.555.
Tvær rólur kr. 9.500,
stgr. kr. 9.025.
Róla og vegaróla (mynd)
kr. 12.200,
stgr. kr. 11.590.
m
& m
Busllaug, sterkur dúkur á stálgrind.
Sæti, viðgerðarsett og botnloki.
Stór laug, 122x244 kr. 10.900.
stgr. kr. 10.355.
Lítil 122x188, kr. 5.400,
stgr. kr 5.130.
Símar: 553 5320
568 8860
Ármúla 40
tin stærsta sportvoruverslun landsins
Verslunin
ur eftir að við hjónin
fluttum til Reykjavíkur
og fram á þann dag,
þegar hann kvaddi,
hann var alltaf samur
við sig. Ef við fórum
ekki í heimsókn hvor
til annars, eftir að kon-
an mín dó, þá höfðum
við símasamband
nokkum veginn dag-
lega. Mér fannst mikið
vanta að kvöldi ef
Doddi hafði ekki hringt
og þá hringdi ég.
Við félagarnir og
vinimir frá Eyjum eig-
um svo margs að minnast frá heim-
sóknum hver til annars, sögumar
sem sagðar vom og við Doddi rifjuð-
um upp, þegar við ræddum saman.
Mér fannst mjög gott að rifja þær
upp, þegar Dodda leið illa upp á síð-
kastið, hann lyftist allur upp við
þær. Þessar sögur eigum við öll með
okkur sem lifum hann.
Síðustu starfsár Dodda vora hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna í Reykja-
vík, þar eins og annars staðar undi
hann sér vel, þar kom snyrtimennsk-
an hans að góðum notum, því varð
ég vitni að, er ég heimsótti hann
þangað, allir hlutir á sínum stað, en
Doddi varð að hætta vinnu vegna
veikinda í baki og það var honum
erfítt að þurfa að hætta allri vinnu.
Síðastliðin 17 ár var Doddi í sam-
búð með Margréti Magnúsdóttur,
mikilli sæmdarkonu, í Bogahlíð 13 í
Reykjavík, og var yndislegt að koma
í heimsókn til þeirra, að sjá og hlusta
hvað þeim leið vel saman, enda hafði
Doddi vinur minn oft á orði við mig
hvar hann væri staddur hefði hann
ekki kynnst Margréti. Þetta var ynd-
islegt tímabil, sem gaf mér svo mik-
ið, sem ég get aldrei- fullþakkað.
Það er sárt að horfa á eftir góðum
vini og félaga, sem ætlaði að eiga
gott ævikvöld með henni Margréti
sinni, en þá brast heilsan. Hann hafði
fengið ólæknandi sjúkdóm, sem varð
honum að falli.
Nú, þegar að leiðarlokum er kom- '
ið, langar mig að þakka þér allar
góðu stundirnar sem við áttum sam-
an, þakka tryggð þína við íjölskyldu
mína, sem við munum geyma í minn-
ingunni um þig, kæri vinur.
Ég sendi Margréti, börnum hans,
systur og íjölskyldum þeirra, mínar
einlægustu samúðarkveðjur.
Kæri vinur, far þú í friði. Hafðu
þökk fyrir allt.
Ólafur Runólfsson.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Fjölskyldan.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin er aftamjóð,
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stef.)
Elsku amma Magga, hugur okkar
er hjá þér á þessum erfiðu tímum.
Við samhryggjumst þér. $■
María og Hrefna María,
Davíð, Brynhildur, Eva
Björk og Þorgeir Bjarki.
FASTEIGNASALA
® 55 10090
SKIPHOLTl 50B, 2. hæð t.v.
- HOLL -
engum líkur
Fálkagata - laus fyrir þig!
Vorum að fá í sölu alveg stórglæsilega 68 fm 2ja herb. íbúð á
1. hæð, steinsnar frá Háskólanum. Gengið er beint út á hellu-
lagða verönd mót suðri. Já, hér verður aldeilis gott að grilla í
sumar...! Áhv. 3,0 millj. Verð 5,9 millj. Tilvísunarnr. 2878.
Þingholtin - Mýmisvegur
Vorum að fá í sölu hörkuskemmtilega 90 fm íbúð á 2. hæð í
virðulegu steinhúsi. Á þessum frábæra stað. Hátt til lofts og
vítt til veggja. Góðar suðursvalir. Fallegir gluggar. Áhv.
byggingarsjlán 3,5 millj. Verð 9,3 millj. Hringdu strax því að
þessi selst í dag! 3115.
Ástún - Kópavogur
Afar vönduð 64 fm 2ja herb. íbúð á 3. hæð. Virkilega fallegar
innréttingar. Parket og flísar. Frábært útsýni og stutt í útivist-
arparadísina í Fossvogsdalnum. Skipti á stærri íbúð óskast.
Áhv. 2,2 millj. Verð 6,1 millj.
Bárugata
Á þessum frábæra stað, í hjarta Vesturbæjar, vorum við að fá í
sölu einstaklega fallega 63 fm 2ja herb. kjallaraíbúð í litlu fjöl-
býli með sérinngangi. Merbau-parket. Glæsileg eign. Verð 4,5
millj. 2404.
—
Jörð á Austurlandi - Utivistarparadís
Spennandi 280 hektara jörð sem liggur að sjó, skammt frá
Djúpavogi. (búðarhús er ca 80 fm og í góðu ástandi. Tilvalið
tækifæri fyrir félagasamtök eða einstaklinga. Allar upplýsingar
veitir Ágúst á Hóli.