Morgunblaðið - 05.06.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 45
ferðinni, þá lifum við í anda þess,
sem Júlíus hefði viljað. Þó vinátta
okkar hafi skapast við sérstakar
aðstæður vona ég að hún haldist
um ókomna tíð. Því vil ég taka mér
í munn orð viturs manns: „Gætið
vináttunnar og hlýrra minninga.
Ekkert er fegurra á jörðinni, engin
huggun betri í jarðnesku lífi.“ Að
lokum vil ég bera innilegar samúð-
arkveðjur til ykkar frá samstarfs-
fólki mínu með þakklæti fyrir hlýjan
hug í okkar garð.
Erla Sigtryggsdóttir.
Þegar ég frétti það að Júlíus,
vinnufélagi okkar og vinur, væri
látinn var erfitt að trúa því. Hann
sem búinn var að ganga í gegnum
svo mikla erfiðieika, bæði vegna
veikinda og slysa. En hvers vegna
nú? Við því fáum við engin svör.
Þegar ég hóf störf sem fram-
kvæmdastjóri Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum og Sorpeyðing-
arstöð Suðurnesja var Júlíus starfs-
maður Heilbrigðiseftirlits Suður-
nesja. Urðum við strax góðir félag-
ar og vinir. Hlýjan, glettnin og
íþróttaáhuginn leyndu sér ekki á
kaffistofunni.
Árið 1990 vantaði okkur mann
til að hafa umsjón með útivinnu hjá
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja og
þegar kom í ljós að Júlíus hafði
áhuga að breyta til var ég ekki í
minnsta vafa að þar væri kominn
réttur maður í starfið. Hann starf-
aði fyrir okkur alla tíð síðan, og
ávann sér virðingu og vináttu okkar
allra sem störfuðum með honum.
Hann var hugmyndaríkur, en þó
um leið raunsær og áhugasamur
um alla starfsemi Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja. Margar af hans góðu
hugmyndum eiga eftir að nýtast
okkur um ókominn ár. Hann átti
ekki hvað minnstan þátt í þeirri
uppbyggingu, og auknu snyrti-
mennsku sem orðin er í Sorpeyðing-
arstöðinni og á mótun umhverfis
hennar á undanförnum árum. Hann
var vakinn og sofinn yfir rekstri,
velferð og framtíðaráformum
Stöðvarinnar. Það var okkur því
mikið áfall þegar hann slasaðist
alvarlega við vinnu sína í janúar á
síðast liðnu ári, þegar nánast klippt-
ist af honum hægri höndin. Hann
hafði löngu áður misst fjóra fingur
vinstri handar og var því fötlunin
nóg, þótt ekki kæmi meira til. Með
ótrúlegu viljaþreki og bjartsýni
tókst honum að ná nokkrum bata.
Þegar hann kom og bauð mér í
„krók“ og síðan prufutúr á nýja
jeppanum sínum ætlaði ég varla að
trúa að hann gæti notað höndina
og hvað þá að hann æki sjálfur!
Eftir að hann var að kom til starfa
aftur, nú á útmánuðum, okkur öll-
um til mikillar ánægju, fylgdi hon-
um ávallt sama bjartsýnin og áður
og hið jákvæða viðhorf til allra
hluta. Hann var ávallt hress og
ótrúlega bjartsýnn.
I gegnum tíðina áttum við Júlíus
oft ánægjulegt spjall að loknu dags-
verki um hin ýmsu málefni. Fjöl-
skyldan var honum mjög mikils virði.
Fjölskyldan, íþróttir og ferðalög voru
oftast umræðuefnin okkar fyrir utan
vinnuna. Ég vissi að utanlandsför
hafði verið áætluð í sumar og einnig
var fímmtugsafmælið framundan í
ágúst. Hann hefði einnig átt 20 ára
starfsafmæli á vegum SSS í haust.
Til alls þessa hafði hann hlakkað.
En svo gerast hlutir sem við skiljum
ekki, þó kannski sé þetta allt saman
ákveðið fyrirfram. Kannski vissi
hann meira en við.
Við hjá Sorpeyðingarstöð Suður-
nesja og á skrifstofu Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum sökn-
um góðs félaga og vinar og munum
minnast hans af hlýhug.
Elsku Hafrún, börn, tengdabörn
og barnabörn, ykkar söknuður er
mestur, en við eigum öll minningu
um elskulegan ástvin og góðan
dreng. Megi góður Guð styrkja ykk-
ur í hinni miklu sorg.
Guðjón Guðmundsson.
• Fleiri minningargreinar um
Júlíus Sævar Baldvinsson bíða
birtingar ogmunu birtast í blað-
inu næstu daga.
ELIN ÞORDIS
GÍSLADÓTTIR
+ Elín Þórdís
Gísladóttir
fæddist í Reykjavík
hinn 2. ágúst 1935.
Hún lést á heimili
sinu hinn 24. mai
síðastliðinn, tæp-
lega 62 ára að aldri.
Foreldrar hennar
voru Gísli Gíslason,
f. 3. október 1913,
d. 16. maí 1996 og
Jóhanna Bjarna-
dóttir, f. 31. desem-
ber 1898, d. 31.
október 1996. Þór-
dís ólst upp í Viðey
sín fyrstu æviár, en fluttist með
fjölskyldunni til Reykjavíkur
árið 1939. Þórdís átti tvö systk-
ini, þau Kjartan Steinólfsson,
eiginkona hans er Sigríður Þor-
láksdóttir, og Guðrúnu Pálínu,
eiginmaður hennar Eyþór Jóns-
son.
Eiginmaður Þórdísar var
Sveinn Anton Stefánsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður, f. 16.
júlí 1932, d. 12. febrúar 1981.
Þeim varð sjö barna auðið. Þau
eru: 1) Gísli Stefán, f. 19. maí
1955, eiginkona hans er Kristín
Guðjónsdóttir og á hann þrjú
böm af fyrra hjónabandi. 2)
Ólöf, f. 17. apríl 1959, eigin-
maður hennar er Jón Ragnar
Jörundsson og eiga þau þrjú
börn. 3) Jóhanna f.
28. desember 1960,
og á hún tvö börn.
4) Sveinbjörg Þor-
dís, f. 13. april
1963, sambýlismað-
ur hennar er Snorri
Örn Hilmarsson og
eiga þau tvö börn.
5) Hafdís, f. 18.
desember 1964,
sambýlismaður
hennar er Magnús
Arinbjarnarson og
eiga þau fjögur
börn. 6) Sveinn
Anton, f. 8. janúar
1968, sambýliskona hans er
Selma Guðbjörnsdóttir og eiga
þau eitt barn. 7) Guðrún Svava,
f. 8. júní 1973, sambýlismaður
hennar er Kristján Vigfús Jó-
hannesson og eiga þau eitt
barn.
Þórdis stundaði nám í Aust-
urbæjarskóla og lauk þaðan
fullnaðarprófi. Eftir að Þórdís
og Sveinn stofnuðu heimili sitt
starfaði hún sem húsmóðir, auk
þess sem hún sinnti útgerð
þeirra.
Árið 1984 hóf Þórdís störf í
Verzlunarbankanum og starf-
aði hún þar til ársins 1990.
Útför Þórdísar fer fram frá
Háteigskirkju í dag, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem
gleymist eigi
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig).
Elsku heimsins besta mamma.
Ég átti ekki von á því, elsku
mamma mín, að ég ætti eftir að
standa í þessum erfiðu sporum sem
ég og við systkinin stöndum í í dag
og skrifa til þín mína hinstu kveðju
og kveðja þig í hinsta sinn.
Þessi kveðja er svo ótímabær og
svo óskaplega erfið að maður neit-
ar að þetta skuli geta gerst. Að
kona á besta aldri í blóma lífsins
skuli hrifin á brott svo skyndilega
er okkur öllum sem eftir stöndum
svo óskaplega erfitt að skilja. En
við trúum því að æðri máttarvöld
ætli þér annað hlutverk á öðrum
stað með pabba og öllum þeim sem
þú elskaðir líka.
Ég þakka af öllu hjarta svo inni-
lega fyrir hvern þann dag sem ég
fékk að eiga og njóta með þér, og
umfram allt að hafa fengið að eiga
þig. að.
Ég vil þakka þér af öllu mínu
hjarta svo innilega fyrir fuilt hjarta
af svo yndislegum minningum sem
þú skilur eftir hjá mér eftir allt of
stutta dvöl hjá okkur. Og munu
allar þessar minningar ylja mér um
hjartaræturnar og fylgja mér um
ókomna tíð. Þú varst mér og henni
Tinnu minni svo afskaplega góð,
og alltaf varst þú tilbúin að hjálpa
mér og öllum öðrum sem á þér
þurftu að halda. Aldrei máttir þú
vita til þess að kraftar þínir væru
vannýttir á einhveijum stöðum, ef
það var „Slökkviliðskaffi", afmæli
eða einhveijir sérstakir dagar
framundan brást það ekki að
annaðhvort varst þú mætt á staðinn
með uppbrettar ermar til að hjálpa
til við bakstur og ýmislegt fleira
eða þá að þú töfraðir fram þitt allra
besta góðgæti í eldhúsinu heima
og mættir með það á staðinn. Og
þetta voru þær allra bestu kræsing-
ar sem maður nokkurn tímann gat
fengið þótt víða væri leitað, svo
maður tali nú ekki um þann allra
besta mömmumat sem þú bjóst til.
Elsku mamma mín, þær voru
yndislegar stundirnar sem við
Tinna fengum að eiga með þér,
hvort sem það voru ferðirnar niður
að Tjörn að gefa öndunum og rölt
í bænum á eftir eða gönguferðirnar
í garðinum okkar með tilheyrandi
hlaupum á eftir henni Tinnu og
frásögnum þínum um það sem þú
hafðir að geyma um þann stað.
Eða bara allar ferðirnar okkar í
bæinn til að skoða og hafa gaman
af, og að ógleymdum öllu góðu
stundunum á yndislegu heimili þínu
sem var svo fallegt og bar svo
mikil merki um þá snyrtikonu og
hannyrðasnilling sem þú varst og
það verður mikill söknuður að geta
ekki átt þig og þetta víst eins og
maður hefði vonað. Og á heimili
þínu sást þú af þinni alkunnu snilld
vel fyrir því að við fengjum aðeins
það besta sem þú gast gefið okk-
ur, þetta voru svo sannarlega
stundir sem gáfu okkur svo óskap-
lega mikið og ég vona að þær hafi
gefið þér það sama og þær gáfu
okkur Tinnu.
Og það var svo gaman að sjá
þig á ættarmótinu síðasta sumar.
Þú skemmtir þér svo vel og þú
hafðir það svo skemmtilegt að það
var hrein unun að fylgjast með
þér, og til að kóróna allt tókst þú
þátt í pokahlaupinu þar sem þú
stóðst þig eins og hetja. Já, þetta
var skemmtilegur tími sem við
fengum að eiga með þér og við
vorum öll svo ánægð að geta átt
þetta mót með þér.
Elsku mamma, það var svo gott
að sjá þig rétt eftir að Tinna kom
í heiminn. Þú varst svo ánægð með
að fá eitt barnabarn í viðbót í stóra
hópinn þinn, og að koma heim til
þín nokkrum dögum seinna var svo
gott. Þú varst búin að gera allt svo
fínt og flott að það var svo yndis-
lega gott að koma heim til þín. Og
ég er glöð yfir að hafa átt svo
góðan dag með þér nú í byrjun
maí þegar ég fékk þig til að koma
með mér í sónarinn og það þótti
þér alveg meiriháttar. Ég er svo
glöð yfir því að þú, mín heimsins
besta mamma og vinkona, hafir
átt þessa stund með mér. Þetta var
og verður mér eitt það dýrmætasta
um ókomna tíð.
Þú varst henni Tinnu minni
heimsins besta amma Dísa og hún
þakkar þér allar stundirnar sem
þið áttuð saman, og alltaf gat hún
leitað til þín þegar bæði vel og illa
stóð á. Þú varst henni og okkur
öllum til taks og við eigum eftir
að sakna þín sárt.
Elsku mamma mín, hefði ég vit-
að hvað morgundagurinn bar í
skauti sér þegar ég og Tinna
kvöddum þig um kvöldið þegar við
föðmuðumst og kysstumst bless og
hún sagðist „elska fíg“ eins og hún
ein segir, þá hefði ég aldrei leyft
þér að fara. Ég hefði gert allt sem
í mínu mannlega valdi stóð til að
geta átt með þér fleiri daga, fleiri
vikur og fleiri ár en ég vissi ekki
neitt, máttarvöldin voru sterkari í
þetta skiptið. Hefði ég bara vitað
það, elsku mamma mín.
Elsku mamma mín, ef ég fengi
einhverju ráðið þá vildi ég helst af
öllu aldrei þurfa að kveðja þig með
þessari kveðju sem ég kveð þig í
dag. En ég kveð þig með svo mikl-
um söknuði og sorg í hjarta og þín
á eftir að vera sárt saknað af okk-
ur öllum. Ég er því ævinlega þakk-
lát að þú hafir fætt mig í þennan
heim og verið mamma mín og veitt
mér alla þína ást og umhyggju frá
fyrsta degi, kennt mér það sem ég
kann um lífið í dag, stutt mig í
gegnum súrt og sætt og umfram
allt verið til. Þetta eru stórir hlutir
að þakka en þú svo sannarlega
gafst þá alla skilyrðislaust og af
öllu hjarta. Ég er svo þakklát fyrir
að þú hafir gefið mér svo stóran
hluta af þér eins og þú gerðir.
Elsku mamma mín, ég þakka
þér enn og aftur af öllu mínu hjarta
fyrir að hafa verið mín heimsins
besta mamma, amma og vinkona.
Hafðu þökk fyrir allt, elsku besta
mamma mín. Ég elska þig.
Þín
Svava.
„Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá aftur huga þinn, og
þú munt sjá, að þú grætur vegna
þess sem var gleði þín,“ (Kahlil
Gibran).
I örfáum orðum langar mig að
kveðja tengdamóður mína og
þakka henni fyrir ljúfar og góðar
samverustundir. Eftir eril vinnu-
dagsins á heimleið, var oft gott
að setjast aðeins niður yfir kaffi-
bolla hjá Dísu og spjalla um heima
og geima. Oftar en ekki kom ekki
annað til greina en vera fram yfir
kvöldmat. Hún var frábær í matar-
gerð og bakstri og voru fiskiboll-
urnar hennar engu líkar.
Hún var alltaf boðin og búin að
hjálpa í einu og öllu og á ég henni
kærar þakkir fyrir alla hjálp og
stuðning í brúðkaupi okkar Gísla
fyrir tæpu ári og í fermingu sonar-
dóttur og nöfnu, Elínar Þórdísar,
um páskana.
Helst vildi hún hafa alla fjöl-
skylduna í kringum sig í einu og
voru barnabörnin henni afar kær.
Við vorum flest samankomin hjá
henni á jóladag og á ættarmóti
síðastliðið sumar og var þá mikið
líf og fjör.
Söknuðurinn er mikill þegar
kallið kemur svona óvænt en minn-
ingin um góða konu, móður og
ömmu mun lifa áfram í hjörtum
okkar og veita okkur styrk. Bless-
uð sé minning hennar.
Kristín.
Ég ætla með þessum fáu orðum
að kveðja Elínu Þórdísi tengda-
móður mína sem er látin. Ég kom
í fjölskylduna fyrir tæplega tíu
árum. Það brást aldrei þegar við
komum í heimsókn til Dísu að hún
var strax komin inn í eldhús til
að finna eitthvað handa okkur að
borða, og tala ég nú ekki um
heimsins bestu fiskibollurnar sem
henni var einni lagið að matreiða.
Ég er svo þakklát að sonur minn,
Sveinn Anton, hafði fengið tæki-
færi að kynnast ömmu sinni þótt
aðeins hefði verið í sjö mánuði.
Hún var í miklu uppáhaldi hjá
bamabörnunum og hændust þau
mjög að fallega gullhringnum með
rauða steininum og hálsmeninu
sem hún bar ávallt. Sveinn Anton,
sonur minn, átti margar góðar
stundir með henni og mun ég að-
stoða hann að halda í minningarn-
ar um ömmu Dísu.
Enn í dag er ég ekki búin að
átta mig á því að hún Dísa sé far-
in frá okkur. Ég hugsa svo oft um
að þetta sé bara draumur sem ég
vakna brátt af, en innst inni veit
ég að svo er ekki.
Kæra Dísa, ég kveð þig með ^
söknuði, blessuð sé minning þín.
Elsku Svenni, Gísli, Óla, Jóa,
Sveina, Haddý og Svava, ég bið
góðan Guð að gefa ykkur styrk á
þessari sorgarstundu.
Selma og Sveinn Anton
yngri.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau, er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið mesta gafst þú hveiju sinni. **
Þinn traustur faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gætir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma kæra,
nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá,
í hljóðri sorg, og ástarþakkir færa.
(Ingibj. Sig.)
Elsku hjartans besta amma Dísa.
Ég vil þakka þér af öllu mínu hjarta
fyrir að hafa verið svona yndislega
góð amma Dísa og verið til fyrir
mig. Alltaf gat ég leitað til þín
hvort sem vel eða illa stóð á og
alltaf vildir þú hjálpa mér. Og það
var alltaf svo gaman að dansa með
þér dansana okkar. ^*
Ég sakna þín mjög mikið og
gönguferðirnar eiga eftir að vera
mjög einmanalegar án þín, en ég
veit að mamma og pabbi eiga eftir
að hjálpa mér að muna allar fallegu
og góðu minningarnar sem ég á
um þig.
Sofðu rótt hjá Svenna afa, elsku
amma mín, og ég kveð þig með
mínum orðum sem ég kvaddi þig
með í síðasta sinn „ég elska fíg“.
Þín
Tinna Osp. ”**
Þegar ég heyrði það þá
trúði ég því ekki.
Þegar mér var sagt það þá
trúði ég því ekki.
Þegar ég sá þig þá
trúði ég því.
Þá varst þú dáin,
þú varst amma mín,
þú varst amma Dísa mín.
En nú ert þú engillinn minn
sem ég get talað við i
bænum mínum.
Þitt bamabarn og alnafna.
Elín Þórdís Gísladóttir.
Kæra Dísa.
Mig langar að skrifa örfáar línur
til að kveðja þig og þakka þér fyr-
ir samverustundirnar í gegnum
árin.
Sem barn kom ég fyrst í Holta-
gerðið og kynnist þér og fjölskyld-
unni þinni. I gegnum tíðina hef ég
átt ófáar stundir þar og síðan á
Ásbrautinni eftir að þú fluttirþang-
að. Ætíð fékk ég góðar móttökur
þótt þú hefðir alltaf næg verkefni _
enda með stóra fjölskyldu. '
í barnahópnum þínum eignaðist
ég yndislega vinkonu, Jóhönnu, og
hjartkæra mágkonu, Ölu, en einnig
aðra kæra vini og kunningja.
Það er erfítt að hugsa til þess
að ég sé búin að hitta þig í síðasta
sinn og eigi aldrei eftir að sjá þig
framar. Ég veit að sorgin er djúp
hjá barnahópnum þínum því brott-
hvarf þitt hefur skilið eftir sig skarð
sem enginn getur fyllt.
Með tímanum verður sorgin von-
andi ekki eins sár og við getum^.
öll yljað okkur við kærar minningar
um þig og samverustundirnar með
þér.
Kæru systkini, makar og börn.
Megi kærleikurinn og samheldni
ykkar vera ykkur styrkur í sorg-
inni.
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Ykkar vinkona, w
Sóley Gyða.