Morgunblaðið - 05.06.1997, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 05.06.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 47 HAFSTEINN JÓNSSON + Hafsteinn Jónsson fæddist í Vík í Mýrdal 23. mars 1931. Hann lést 13. april siðast- liðinn og fór útför hans fram í kyrrþey 18. apríl. Hafsteinn var skaftfellskur í báð- ar ættir, í marga ættliði. Hann var þó hvorki líkur vötnunum sem þar flandra um sanda né briminu við ströndina. Ekki heldur þeim eldi sem þar liggur undir ísfeldi. Hann var likari þögulum hömrunum og dröngunum, hvort sem þeir rísa úr sandi eða sævi, í umhverfi mótuðu af þessum höfuðskepnum, eldinum og vatninu. „Hann var efnilegastur minna barna þegar hann fæddist," sagði amma svo oft. „Hann bar af öðrum börnum að þroska og líkamlegu afgervi." Þetta sögðu líka frænk- urnar og vinkonurnar. En svo kipptu örlaganornirnar í þræðina. Hafsteinn varð fárveikur og vart hugað líf. Hann fékk heila- himnubólgu. Hann sigraði þó í þeirri orrustu, en það var annað barn sem reis af sjúkrabeðnum. Það var barn sem þurfti mikla umönnun, enda lögðust foreldrarnir á eitt og hlúðu að honum af mikilli fórnfýsi. Eink- um hvíldi þetta á herðum ömmu minnar. Bjó Hafsteinn hjá henni nær alla sína ævi, eða þar til hún var komin á tíræðisaldur. Voru þau tvö ein saman í heimili síðustu tvo áratugina eða þar til að hún fór á dvalarheimili fyrir aldraða, Drop- laugarstaði. Eftir það bjó hann einn í íbúðinni þar sem hann hafði átt heima næstum í fjóra áratugi. Amma var hans leiðarljós alla hans ævi, einnig eftir að hún var komin á Droplaugarstaði. Hann missti mikið þegar hún dó. Kannski allt. Og þó. Hún lifði áfram í hans hugarheimi. Hann talaði oft um hana, en hann sagði aldrei „þegar mamma dó“, heldur „þegar hún fór“. Hún virtist ekki hafa farið langt, var eins og hún væri áfram nálæg honum, eða að þau mundu hittast fljótlega aftur. Kannski gerðist það tveimur og hálfu ári síðar þegar hann sjálfur lést. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, eins og ég held að hann sjálfur hefði helst kosið. Þar sem ég ólst upp hjá ömmu frá blautu barnsbeini var ég í stöð- ugu nábýli við Hafstein, raunar al- veg þar til ég lauk námi og stofn- aði sjálfur heimili. Ég minnist hans frá þessum tíma sem hægláts, til- litssams manns sem var ákaflega hlédrægur. Þegar gesti bar að garði og menn sögðu sögur hver í kapp við annan, sat Hafsteinn þögull og hlustaði og lagði sjaldan neitt til málanna. Þannig seytluðu inn i huga hans þessar arfsagnir íjöl- skyldunnar sem voru svo oft rifjað- ar upp. Hann lifði líka sínu eigin lífi sem varð uppspretta frekari Skilafrest- ur minn- ingar- greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. sagna þótt lífsgæðin hefðu ekki alltaf verið fjölbreytt. Þannig mynd- aðist heimsmynd hans sem virtist einfaldari og fábreyttari en okkar hinna, en í samræmi við nægjusamt líf hans. Heimur með krappa sjónar- rönd. Eins og drangur sem reis upp úr hugardjúpum sem við vissum svo lítið um. Hafsteinn stökk ekki hæð sína í öllum herklæðum. Hann tók ekki heldur stór hliðarspor. En það gerðu hinsvegar stundum hrannirnar sem á honum buldu, en hann haggaðist ei. Þótt hann stæði þannig föstum fótum á sinni undirstöðu gat hann tekið stór skref aftur á bak, til for- tíðar. Þannig hugsa ég raunar líka nú þegar ég lít til baka og horfi á frumbernsku hans og hugleiði hvernig ævi hans hefði getað orðið: Þá verður drangurinn að eyju, eyjan að nesi og nesið að fjalli megin- lands. Þá er eins og að drangarnir í Vík í Mýrdal, þar sem Hafsteinn fæddist, fái líf, gangi aftur og verði að Reynisfjalli. Þannig fæddist hann inn í þennan heim eins og fjall, en óblíð náttúruöfl, sjúkdómur, gerði hann að drangi. En eins og Reynisdrangar eru höfuðprýði kauptúnsins í Vík, varð drengurinn augasteinn foreldra sinna. I skjóli Reynisfjalls og foreldra sinna ólst hann upp til 8 ára ald- urs, síðan fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur og frá fermingaraldri var Laugarnesið og Laugardalurinn hans heimaslóð. Þessi tvö svæði mynduðu kjarna ættjarðar hans. Þótt harn færi sjaldan áfram hrað- eða stórstígur átti hann sér framtíðarsýn, drauma sem hann dreymdi oft, en urðu alltof sjaldan að veruleika. Drauma rætta í fortíð- inni, þegar hann horfði fram á veg- inn var líkara að hann liti í spegil og horfði þannig í raun, um öxl. Það gerum við kannski öll, en hann sgði það meira en aðrir. Hann minntist oft hringferðar um landið sem hann fór með ömmu þjóðhátíðarárið 1974. Þá ferð fór hann á bílnum sínum, Volgunni, með myndavél, tjald og fleiri ferða- tæki. Fyrsti áfangi ferðarinnar var Vík í Mýrdal. Annar áfangi var Svínafell í Öræfum, þar sem amma fæddist. Tók vænn hluti fjölskyld- unnar þátt í þessari ferð þangað. Og Hafsteinn tók margar myndir, myndir sem hann festi á filmu og í minni. Mér er minnisstætt hve stoltur hann var þegar hann sýndi fjölskyldunni litskyggnur sínar á tjaldi á afmælisdaginn sinn tæplega ári síðar. Þar voru margir saman komnir sem tóku þátt í þessari ferð. Síðar fór hann aðra hringferð með ömmu og fleiri myndir bættust við. Síðustu ár ævi sinnar átti hann sér þann draum að endurtaka mynda- sýninguna sem átti að gefa fyllri mynd af þessum stutta, en mikil- væga kafla lífsferils hans með þeim nýju litskyggnum sem bæst höfðu við safn hans. Af því varð aldrei. Kannski blasir við honum nú, stærra og fegurra draumaland, land sem ekki er á tjaldinu og ekki í speglinum. Land, sem er enginn draumur. Eins og traustir drangar eiga að vera, var Hafsteinn staðfastur og oftast óhagganlegur. Hann var líka ljúfur og hlýr eins og þegar hafið er spegilslétt við Reynisdranga. Oft brá fyrir kímniglampa í auga, eins og sólargeisla á bárum sjávar. Hann breyttist lítt þótt brimaði. Þá birtist ytri veðrahamur fremur en innri ólga. Sjávarlöður, en engin tár. Smám saman, án þss að nokkur tæki eftir, máðist brott mólitað hrungjarnt yfirborð drangsins. Þá birtist blárri, harðari og eilítið hvassari kjarni. Sumir kalla þetta þroska. Hann varð ekki eins hlé- drægur og áður. Nú gekk hann í sjó fram, og þá var eins og hafald- an stæði kyrr. Hann fékk málið. Það var ekki bergmál. Nú var kom- inn tími til að bera nafn með rentu. Æsku- og gelgjuskeiði Hafsteins var loks lokið. En, ellin -tekin við. Eins náin og samskipti okkar Hafsteins voru fyrr á árum þegar ég var barn og unglingur, urðu þau ekki jafn náin síðar þótt mörg bönd sem þá voru bundin slitnuðu aldrei. Leiðir skildu, sýn okkar fram á veginn var ólík eins og gengur. Þegar liorft er til baka blasir þó sama myndin við okkur báðum. Mynd sem hann ræddi mjög mikið um, spegilmynd framtíðarsýnar hans. Þetta var spegill sem ég hafði ekki þolinmæði til að horfa jafnmik- ið á og hann, þótt ég geri það kannski nú í þessari minningar- grein. Þegar Hafsteinn var ungur sat hann og hiustaði á „speglasjón- ir“ annarra. Þegar árin liðu þróað- ist smám saman hans eigin sýn, sýn með þröngu sjónarhorni, en oft mikilli dýpt. Hann hafði öðlast sinn þroska, þótt hægt hafi farið. Nú var röðin komin að honum að tjá sína lífsreynslu. Þessi fyrrum hægl- áti, hlédrægi og tillitssami maður gat á slíkum stundum breyst í and- stæðu sína og vildi í ákafa segja sínar sögur. Sögur sem alltof fáir höfðu þolinmæði til að hlusta á, enn einu sinni. Þannig var oft tillitssemi okkar hinna gagnvart Hafsteini. Honum sárnaði þetta oft, miklu oftar en nokkurn grunaði. Hann lét fyrrum lítið á því bera, en síðari árin leyndi hann gremju sinni síð- ur. Hann var ekki aðeins útskrifað- ur úr skóla lífsins, hann var líka orðinn fulltrúi öldungadeildarinnar í fjölskyldunni. Hans tími var kom- inn. Þótt Hafsteinn hafi staðið eins og klettur í lífsins ólgusjó var ævi hans líka eins og sú sama höfuð- skepna, eins og vatnið. Þannig er það kannski með líf okkar allra. Þegar við horfum til baka, til æsku- áranna, eru minningarnar stundum eins og smádropar, dögg á krónu- blaði sóleyjar, stundum tár, stund- um skúr. Ur þessu safnast smá lækjarsprænur sem oft glitra á milli stráa í sólinni eða skoppa stein af steini. Þessar sprænur verða svo að lækjum, sem renna saman og mynda ár, sem geta flæmst um sanda, kvíslast og myndað flóknar fléttur. Sennilega gerist eitthvað svipað í barnshuganum þegar skynjun og hugmyndir barnsins eru að móta boðleiðir í mjúkan leir heil- ans, sem síðan á eftir að harðna og verða að klöpp. Smám saman fækkar farvegunum en þeir dýpka og að lokum rennur þetta vatn á haf út um einn ós. Þessar ár í huga Hafsteins voru kannski ekki marg- ar, en farvegirnir voru djúpir, eins og maður fann oft að hugur hans var. Hugsun hans flæmdist ekki um neina aura, heldur streymdi oftast lygn eins og Volga til þess Kaspíahafs, sem bíður okkar allra. Síðustu árin, jafnvel áratugina, rann þessi á þó lengst af í þröngu, en djúpu gljúfri sem við sáum ekki alltaf til botns í. Ég held að sólin hafi ekki heldur alltaf náð að skína þangað niður. Það voru ekki marg- ar stjörnur himinsins sem spegluðu sig í vatnsfletinum. Það var ekki heldur nauðsynlegt að hafa margar leiðarstjörnur. Sú sanna, hin fagra og eina góða, móðir hans, skein niður á vatnsflötinn. Hún gekk ætíð á gljúfurbarminum meðan hún lifði. í gljúfrinu voru líka fossar og flúðir. Það vissu fáir nema þegar staðið var nærri börmunum, en það gerði hún amma. Ég gægðist sjald- an þangað niður, þótt ég kannaðist vel við niðinn, bæði sem uppeldis- bróðir Hafsteins og nú síðari árin, sem læknir. Ég vissi líka að stutt var í feigðarósinn. En nú er síðasti fossinn að baki. Mér finnst þegar ég rita þetta sem ég standi á sléttunni ofan gljúfurs- ins og horfi til strandar þar sem ég veit að ósinn bíður. Lengra hand- an hans, þar sem himinn og haf renna saman, sé ég drang sem er að hverfa sjónum mínum út í móð- una. Sannkallaðan hafstein. Hafsteinn var drengur góður. Þessi drangur mun standa sem Pétursey í sandflákum huga míns innan um kvíslar og þurra farvegi. Far vel, frændi. Sigurður V. Sigurjónsson. + Sæunn Jónsdótt- ir fæddist á Hofi í Vesturdal 23. októ- ber 1924. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands á Selfossi 28. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Guðmunds- son og Soffía Jóns- dóttir. Tvær systur hennar, Gestheiður og Guðrún, lifa, en látnir eru Jón og Jónatan og hálfsyst- ir hennar Ingibjörg. Hinn 25. júlí 1944 giftist Sæunn Eyþóri Gíslasyni og bjuggu þau lengst af í Vesturhlíð í Skagafirði en flutt- ust suður 1965. Börn þeirra eru María, f. 14.5. 1944, Birna Guð- björg, f. 30.5. 1946, maki Bragi Sveinsson og eiga þau fjögur börn, Gísli, f. 20.4. 1950, maki Sigrún Þor- varðardóttir og eiga þau fjögur börn en eitt barn átti Gísli áður, Guðrún Ingibjörg, f. 11.1. ’54, og á hún tvö börn með Gesti Hólm Krist- inssyni, og eitt barn með Herði Sigmundssyni, Kári Ómar, f. 23.8. ’58, maki Pamela VVright og eiga þau þrjú börn, Jón Hörður, f. 16.3. ’67, maki Heiða Guðmundsdóttir og eiga þau eitt barn. Útför Sæunnar fór fram frá Áskirkju 4. júní. Þegar komið er yfir miðjan ald- ur kemur það ekki lengur á óvart að samferðamenn kveðji. Það kom heldur ekki á óvart að móðursyst- ir mín Sæunn Jónsdóttir væri lát- in. Ég vissi óljóst af því að hún hefði verið að berja í nestið um tíma og viðskilnaður því fyrirsjá- anlegur áður en langt um liði. Samt er það svo, að það er ekki fyrr en dauðinn kveður dyra að minningarnar þyrpast að, minn- ingar sem spanna hálfa öld. Víst man ég þessa móðursystur mína í hálfa öld. Ég man árin á Krókn- um og hve gott var að koma til þeirra hjóna Eyþórs og hennar á neðstu hæðina í „Rússlandi” þar sem einu sinni var fjós í þessu elsta ljölbýlishúsi á Króknum. Ég man meira að segja hvað til var af- barnabókum og elstu dætur þeirra áttu. Síðar á ævinni hefi ég ekki sett mig úr færi að kaupa eintök af þessum bókum ef þau hafa boð- ist, sem sjaldan gerist, því þessar bækur voru oftast lesnar upp til agna af okkur sem vorum börn upp úr síðari heimsstyijöldinni. En fyrst og síðast man ég Ijúf- iyndi hennar og hve vel hún tók okkur sem vorum börn. Sama gilti eftir að þau hjón voru flutt fram í Vesturhlíð og barnahópurinn þeirra stækkaði. Alitaf var okkur tekið vel og aldrei býsnast yfir leikjum og ærslum. Þau komu líka oft til okkar þegar farið var á Krókinn. Heimili foreldra minna var á margan hátt miðstöð ætt- ingja sem lögðu þangað ieið sína. Stundum var stoppað í nokkra daga eins og þegar nýr einstakl- ingur hafði séð dagsins ljós á sjúkrahúsinu á Króknum. Síðan var haldið á ný fram í Vesturdal, sem enn er í huganum dalur allra dala. Þar mátti átta sig á veður- fari morgundagsins eftir því hvernig roða sló á tinda og þar var Hofsáin sem gat verið viðsjár- verð, en geymdi líka spegilfagra fiska. Ég held að það hafi líka verið Unna sem sagði mér fyrst hvar helst væri fisk að fá. Þó veit ég ekki til að hún tæki nokkurn tíma þátt í veiðiskap, en hún hafði frá barnæsku tekið eftir hvar aðr- ir veiddu og var ekki fremur en fyrri daginn sink á að miðla stút- ungsstrák af reynslu sinni. Sömu sögu var að segja um Eyþór, hann fórnaði okkur líka tíma sínum. Til dæmis fór hann með mig ríðandi fram að Hraunþúfuklaustri fyrir þrjátíu og átta árum. Til þeirrar farar fékk ég léðan gráa klárinn hans afa míns og síðan hefi ég ekki komið á hestbak svo heitið geti, enda þyrfti meira en meðal- hest til að bera öll þau kíló sem síðan hafa bæst við. Svo liðu árin og milli okkar Unnu voru engir gagnvegir. Samt voru ekki langar vegalengdir á milli okkar hin síðari ár, en hlutirn- ir bara verða þannig. Og frænd- systkini mín hefi ég varla séð svo áratugum skiptir. Samt virðist dag- urinn í gær ekkert nær heldur en dagarnir fyrir fimmtíu árum þegar litið er til baka og ljúflyndið henn- ar móðursystur minnar og elsku- semin jafn raunveruleg og þá og fyrir það vildi ég svo gjarnan mega þakka við leiðarlok. Páll postuli rit- aði einu sinni: Nú varir þrennt, trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. Og þegar við felum þessa móðursystur mína í Drottins faðm að hún sé umvafin kærleika hans, þá vil ég þakka fyrir að hafa kynnst kær- leiksþeli hennar á þeim árum sem eru Samshuganum svo mikilvæg. Sigurður Helgi Guðmundsson. Það er merkilegt hvað dauðinn kemur manni alltaf að óvörum. Dauðsfall Sæunnar var ekki óvænt og þó var ég alls ekki undir það búinn. Ótal mörg atvik frá liðnum árum koma upp í hugann og eru ljúf og sár í einni tilfinningu. Ég man varla svo eftir mér að hún væri ekki einhvers staðar í nánd, í það minnsta í huganum. Móðir mín og hún voru góðar vinkonur og þegar mamma veiktist og lagð- ist banaleguna tók Sæunn mig að sér á fleiri en einn veg. Það má raunar segja að hún gengi mér í móður stað. Hvernig sem á stóð og hvernig sem aðstæður voru reyndist hún mér einstaklega vel. 491 Ég held raunar að það hafi ekki verið til sem hún vildi ekki fyrir mig gera og þar skipaði ég sama sess og börnin hennar. Þeir tímar komu þegar erfiðleikar sóttu að mér á margan veg, en alltaf gat ég leitað til hennar og alltaf hafði hún tíma til að hlusta og leiðbeina án þess að dæma. Slík var þolin- mæði hennar að ég hefi aldrei kynnst neinu slíku fyrr né síðar og ég efast um að hennar líkar séu margir hvað það snertir. Þau Eyþór fluttust hingað suður 1965. Ég var þá fluttur hingað fyrir nokkru þó ég hefði jafnan samband norður. Það var mér að sjálfsögðu gieðiefni að fá þau hing- að, enda hefí ég jafnan litið á fjöl- skyldu hennar sem mína. Og ekki brást Sæunn heldur vonum mínum hér. Heimili hennar stóð mér jafnan opið og þá ekki síður kærleiksfaðm- ur hennar. Hvernig sem á stóð fyr- ir mér virtist hún jafnan hafa skiln- ing á öllu og ætíð geta hlustað. Ég veit að hún hafði oft áhyggjur af mér. Við öðru var ekki að búast þar sem ég veit að henni þótti vænt um mig og þegar tímarnir breyttust og urðu bjartari gladdist _ hún líka einlæglega og fylgdist með öllu. Það er gæfa að kynnast fólki eins og Sæunni en það er lífsgæfa að eignast slíka manneskju að vini og fyrir það vil ég þakka. Hvar sem lífsbrautin liggur mun minningin um hana jafnan verða með því bjartasta sem ég á og hefi upplifað. M Hreiðar Margeirsson. SÆUNN JÓNSDÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.