Morgunblaðið - 05.06.1997, Side 51

Morgunblaðið - 05.06.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 51 SKÓLASLIT ÚTSKRIFTARNEMAR við athöfnina í hátíðarsal skólans. í fararbroddi SKEIFUNNI 2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550 BílavörubúSin FJÖDRIN BODDÍ Eigum mikið úrval af boddíhlutum í flestar gerðir bifreiða. Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar í síma 588 2550 Morgunblaðið/Asdís Helga Thoroddsen, dux scholae, með fangið fullt af verðlaunum. Skólaslit Verslunar- skóla Islands Útskrift- arhópur óvenju I fámennur BRAUTSKRÁÐ var frá Verslunar- skóla íslands föstudaginn 30. maí sl. Brautskráðir voru 176 nemendur og telst það óvenju fámennur hópur. 132 stúdentar luku prófum. 101 af hagfræðibraut, 12 af málabraut og 19 af stærðfræðibraut. 22 luku versl- unarprófi og af þeim höfðu 2 einnig lpkið stúdentsprófi úr öldungadeild. Úr öldungadeild luku 19 til viðbótar prófum. 3 nemendur luku stúdents- prófí utanskóla. Helga Thoroddsen varð dux scholae með meðaleinkunnina 9,12. Onnur varð Inga Magnúsdóttir með 8,65 og þriðji hæsti varð Birkir Rún- ar Gunnarsson með 8,64 í meðalein- kunn. Halla Thoroddsen, systir Helgu, varð 5. efst á stúdentsprófi með meðaleinkunnina 8,60. Fram kom að 199 nemendur gengu til prófs í 5. bekk nú í vor og er því fyrirsjáanleg veruleg fjölgun í 6. bekk næsta vetur. Fjölmargir nýstúdentar voru verðlaunaðir fyrir góðan námsárangur í ýmsum grein- um. Bestan árangur í viðskiptagrein- um á stúdentsprófí sýndi Yngvi Hall- dórsson og hlaut hann verðlaun Verslunarráðs íslands. Kristrún Sig- urgísladóttir hlaut einnig verðlaun ráðsins fyrir hæstu aðaleinkunn á verslunarmenntaprófí. Helga Thoroddsen var á leið í út- skriftarferð til Mallorca með skóla- systkinum sínum. Hún var að vonum ánægð með árangurinn og kvaðst hafa verið búin að gefa það upp á bátinn að hún yrði efst á prófum þar sem henni hafði ekki þótt sér ganga nægjanlega vel. í sumar hyggst hún vinna hjá heildsölu en með haustinu setur hún stefnuna á Þýskaland, þar sem hún ætlar að nema viðskipta- fræði og tungumál við háskólann í Mannheim. Tungumálakunnátta sé nauðsynleg hyggi maður á starf í viðskiptum innan Evrópu. Reiknadu með SP-Fjármögnun - efþú ert í fjárfestingarhugleiðingum SP-Fjármögnun hf. býður fyrir- tækjum og einstaklingum i rekstri eignarleigusamninga til að fjár- magna kaup á atvinnutækjum. Eignarleigusamningar hafa marg- víslegt rekstrarhagræði í för með sér: Staðgreiðsluafslátt sem getur sparað stórar fjárhæðir, sveigjan- lega greiðslubyrði innan hvers árs, skattalegt hagræði með styttri afskriftartíma, ábyrgð í tækinu sjálfu er helsta tryggingin auk þess sem að ekki þarf að ganga á dýnnætt rekstrarfé fyrirtækisins. • Staðgreiðsluafsláttur • Tækið er helsta tryggingin • Skattalegt hagræði • Sveigjanleg greiðslubyrði • Allt að 100% fjármagnað SP- FJARMOGNUN HF Vegmúla 3 ■ 108 Reykjavik ■ Simi 588 7200 ■ Fax S88 7250 SP-Fjármögnun hf. er hlutafélag i eigu Sparisjóöanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.