Morgunblaðið - 05.06.1997, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
JMtfgmtMafeife
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
KAUPFÉLAGSVERSLUNIN var byggð 1930
við hlið Norska hússins.
Skipulagsslys endur-
vakið í Stykkishólmi
Frá Eðvnrði Arnasyni:
SNÆFELLSNES vekur ávallt
hrifningu ferðalanga fyrir nátt-
úrufegurð. Fjöldi ferðamanna um
Snæfellsnes hef-
ur aukist á liðn-
um árum. Sveit-
arfélögin og íbú-
ar bæjanna á
Nesinu hafa gert
sitt til þess að
laða að ferða-
menn, með fegr-
un bæjanna,
byggt upp söfn
sem segja sögu
lífsbaráttu, og
um atvinnuhætti þerra sem byggðu
Snæfellsnes í fyrri tíð. Má nefna
sjóminjasafnið á Hellissandi þar má
sjá húsakost liðinnar tíðar, bát og
klæði þeirra sem stunduðu sjósókn
undir Jökli. Þá má nefna gamla
Pakkhúsið í Ólafsvík, þar er haldið
utan um tæki og tól sem notuð
voru fyrir tíma véla og tæknialdar.
Stykkishólmur í sinni fögru um-
gjörð á sér gamla sögu, og enn eru
í elsta hluta bæjarins, hús sem
byggð voru í byrjun aldarinnar og
önnur sem voru byggð á fyrri hluta
síðustu aldar, svo sem Norska hús-
ið, sem er þeirra elst, byggt 1832,
pg er fyrsta tvílyfta íbúðarhúsið á
íslandi. Clausenshús (byggt 1874)
sem búið er að endurnýja svo að
mikill bæjarsómi er að. Apótekið,
Settuhús, skrifstofuhúsnæði Sig-
urðar Ágústssonar hf. (TANG og
Riis). Þetta eru allt hús sem eiga
sér langa og merka sögu að baki,
þó að saga Norska hússins sé
eflaust þeirra merkust, en því miður
á Stykkishólmur fátt sem gestum
er sýnilegt, sem tengist atvinnusögu
fyrri tíma.
Gamalt
skipulagsslys
Það mun hafa verið um árið 1930
sem það skipulagsslys varð að reist-
ur var steinkumbaldi, kaupfélags-
verslun, milli gömlu húsanna, og
bókstaflega ofan í Norska húsinu,
sem gerði það að verkum að þessi
perla Stykkishólms í dag, hefur ekki
notið sín síðan. Steinkumbaldi þessi
hefur alla tíð skemmt þetta um-
hverfi, þennan elsta byggðarkjarna
Stykkishólms.
Um langt árabil hefur þetta kaup-
félagshús verið ónotað. Eftir að
rekstri kaupfélagsins var að hætt,
gerði Samband íslenskra samvinnu-
félaga tilraunir til þess að selja þetta
hús. Á þessum tíma komu sérfróðir
aðilar til Stykkishólms til þess að
skoða og gera úttekt á húsinu, með
hugsanleg kaup í huga fyrir opin-
bera stofnun.
Ónýtt hús
Eftir ítarlega úttekt og skoðun
þessara skoðunarmanna var álit
þeirra að húsið vari nánast ónýtt, og
kostnaðarminna væri að byggja nýtt.
Veggimir væru ónýtir á tveimur hlið-
um eftir áralangan vatnsgang inn í
þá og í gegnum þá. Þak og þakviðir
væru ónýtir. Vegna ónógra styrkinga
væru gólf hússins sigin. Tréverk,
gluggar og hurðir ónýtt. Niðurstaða
þessara sérfróðu manna var að það
væri „óráðsía með almannafé" að
ætla að endurbyggja þetta hús.
Nokkru síðar keypti Stykkishólms-
bær eignir þrotabús kaupfélagsins,
og þar á meðal þetta hús. Fljótlega
eftir að þessi kaup voru gerð var
kunngert að þetta hús ætti að endur-
byggja og þar ættu m.a. að vera
skrifstofur _ Stykkishólmsbæjar til
framtíðar. Á síðustu árum hefur ver-
ið eytt einhvetjum milljónum í þetta
hús, það klætt að utan með dýru
klæðningarefni, sem nú hefur komið
í ljós að er gallað, ónýtt efni. Þá
hafa nýir gluggar verið settir í húsið,
(það er það eina af því sem búið er
að gera, sem gæti talist varanlegt).
Eftir að hreinsað var innan úr hús-
inu, blöstu berir, ónýtir veggirnir við
þeim sem að hreinsuninni unnu.
Ekki hefur fengist birt hver kostn-
aður er nú þegar kominn í íjármálaór-
áðsíu kringum þetta hús. Því síður
hefur fengist uppgefíð hver endan-
legur endurbyggingakostnaður verð-
ur í framkvæmdalok.
Skattfé
Áætlað er að setja um 15 milljón-
ir af takmörkuðu fé Stykkishólms-
bæjar nú í ár í þetta hús og verður
það aðeins hluti af þeim kostnaði sem
endurbygging þess krefst. Sérfróðir
iðnaðarmenn í Stykkishólmi segja
mun ódýrara að bijóta þetta hús nið-
ur og byggja nýtt fyrir skrifstofur
Stykkishólmsbæjar. Með því að brjóta
þennan steinkumbalda niður væri
bætt fyrir það skipulagsslys sem varð
þegar þessu húsi var valinn staður.
Perlur Stykkishólms, gömlu húsin á
þessum stað, fengju aftur að njóta
sín. Hægt væri að gera við Norska
húsið skemmtilegan garð sem hefði
að geyma muni úr atvinnusögu
Stykkishólms frá þeim tíma er þessi
hús voru reist.
Það varð alvarlegt skipulagsslys
árið 1930 þegar þessi steinkumbaldi
var reistur þar sem hann stendur,
en alvarlegra er það nú að fram-
lengja það skipulagsslys, nú með
skattpeningum íbúa Stykkishólms
sem væntalega yrðu að greiða her-
virkið fram á nýja öld.
EÐVARÐ ÁRNASON,
yfirlögregluþjónn á Snæfellsnesi.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skíptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉK: Ritstjórn 569 1329, frcttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.1S / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.