Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
T
\
Hercutes
f:MMM
Höfum úrval höggdeyfa i margar gerðir
bifreiða. Leiðbeinum einnig við val á högg-
deyfum í breyttar bifreiðar.
BílavörubúSin
FJÖÐRIN
/ fararbroddi
SKEIFUNNI 2,108 REYKJAVÍK
SÍMI 588 2550
Einstakt tækifæri
Við flutningana
í Skeifuna 6
kom ýmislegt
eigulegt í ljós úr
kjallaranum;
stólar, lampar,
sófar, borð,
efnisbútar o.fl.
Allt selt á ótrú-
lega hagstæðu
verði.
Fimmtudag og föstudag,
opið kl. 9-18,
laugardag kl. 10-14
epol
Skeifunni 6, sími 568 7733.
Velkomin á
Elizabeth Arden
kynningu
ídagfimmtudag, fóstudag og laugardag gefst þér einstakt
tœkifieri til að kynnast Elizabeth Arden snyrtivörunum i
Kringlunni
Þessi glæsilegi
kaupauki tylgir
þegar keyptir eru
tveir hlutir í
kremlínunni
V
Wrrrrryj
H Y G E A
dnyrlivöruverjlun
• Austurstrreti
• Laugavegi
• Kringlunni.
______________J
með hroðvirka brúnkuflýtinum Banana Boat Tan Express
Þú þekkir sólarmargfaldarann Banana Boat Sun Ampllfier (magnar sólarljósiö), Banana Boat
djúpsólbrunkugelið (dýpri húölög framleiöa einnig sólbrúnku), Banana Boat dökksólbtunkukremið/oliuna
(framkallar svart-brúna sólbrúnku) og sólbrúnkufeslinn Banana Boat Dark Accelerator (lengir endingu
sólbrúnkunnar um 7 - 9 vikur). Nú hafa þessir eiginleikar verið sameinaðir í eitt í hraðvitka brúnkuflýbnum
Banana BoatTan Express. Með Hrað-brunkuflýtinum Banana BoatTan Express nærðu á mettíma
dýpstu, dekkstu, fallegustu og endingarbestu sólbrúnku sem völ er á. Um leið nærir þú húöina meö
Aog E vitamíni, sólblomaolíu, Aloe Vera, kókos, kvöldvorrósarolíu og öðru heilsufæði húðarinnar. 6
gerðir: Olia, krem, gel, mjólkur-sprey, sólbrúnkufestandi After Sun lotion og friskandi After Sun spray.
Onnur Banana Boat nýjung: Bitvörnin Banana Boat Bite Block, skordýrafælandi sólkrem með sólvörn
#15.
Banana Boatfæst f vönduðum sólbaðsstofum, apótekum, snyrtivöruverslunum, i öllum heilsubúðum
utan Reykjavikur og í Heilsuvali, Barónsstig 20 i Reykjavik, simar 562 6275 og 551 1275.
I DAG
skák
llmsjón Margcir
Pétursson
Hvítur leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp á
meistaramóti Skákskóla
Islands sem fram fór um
helgina. Jón Viktor
Gunnarsson (2.270) var
með hvítt og átti leik, en
Sigurður Páll Steind-
órsson (1.675) hafði
svart.
15. Hxe5! (En auðvitað
ekki 15. Bxf6? — Rxd3+
og mát á h7 er ekki leng-
urtil staðar) 15.
— Bxg2 (Eina
tilraunin, því
eftir 15. —
Dxe5 16. Bxf6
valdar svartur
ekki lengur
mátið, á h7) 16.
Dxg2 — Dxe5
17. Rc6 - Dc7
18. Rxe7+ -
Dxe7 19. Re4
- Kh8 20. Rxf6
— gxf6 21. Dh3
og svartur gafst
upp.
Þeir Jón Viktor Gunn-
arsson og Bergsteinn Ein-
arsson urðu jafnir og efst-
ir á mótinu með 6 vinn-
inga af 7 mögulegum og
verða að tefla einvígi.
Bragi Þorfinnsson og Ein-
ar Hjalti Jensson komu
næstir með 5 72 v.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu nýlega
til styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn
3.707 krónur. Þær heita Edda Rut Þorvaldsdóttir
og Sylvía Björg Runólfsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót o.fl. lesendum sínum
að kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynningum
og eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329. Einnig
er hægt að skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Nemendur
Laugarvatns-
skóla 1940-’42
Nú ætlum við að hittast
á veitingastaðnum LA
Cafe, Laugavegi 45a,
föstudaginn 6. júní kl.
19.30. Borða þar og
spjalla saman. Frekari
upplýsingar hjá: Binna
551-2203, Dóra 552-
6069 og Soffíu 553-
7411.
Fyrirspurn til
Pósts og síma
BELLA hringdi og var
hún með fyrirspurn til
Pósts og síma. Hún
segir að sonur hennar
hafi fengið nú um
miðjan maí jólakort sem
sett var í póst um
miðjan desember í
Kópavogi. Henni fínnst
pósturinn lengi á
leiðinni milli Kópavogs
og Reykjavíkur og spyr
hvernig standi á þessu.
Tapað/fundið
Slæða tapaðist
SILKISLÆÐA, rauð í
grunninn með frönsku
munstri, tapaðist fyrir
utan Borgarleikhúsið
sl. laugardagskvöld.
Hafi einhver fundið
slæðuna er hann
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 557-3549
á milli kl. 17 og 19.
Nike-skór
töpuðust
SVARTIR lágir
Nike-skór nr. 38
töpuðust í Sundlaug
Kópavogs milli kl. 16
og 18.15 mánudaginn
2. júní. Skilvís finnandi
vinsamlega hafi sam-
band í síma 554-3354.
Fríhafnarpoki
tapaðist
UNGUR piltur kom
með véi frá Portúgal
síðdegis sl. þriðjudag ti!
Keflavíkur. Hann hafði
tekið að sér að kaupa í
Fríhöfninni fyrir vini
sína og var búinn að
geyma 8.000 krónur til
þess. Með einhvetjum
hætti varð varningur-
inn viðskila við hann og
líklega hefur einhver
tekið pokann í mis-
gripum, en í honum var
m.a. sælgæti og ilm-
vatn. Viti einhver
heiðarlegur um pokann
er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma
478-8116.
Lesgleraugu
töpuðust
LESGLERAUGU
töpuðust á göngustíg
fyrir neðan kirkju-
garðinn í Fossvogi.
Gleraugun eru karl-
mannsgleraugu. Skilvís
ftnnandi vinsamlega
hafi samband í síma
533-1500.
Nike-bakpoki
tapaðist
NIKE-bakpoki,
vínrauður, tapaðist á
Laugardalsvelli föstu:
daginn 16. maí. í
töskunni eru íþrótta-
skór. Skilvís finnandi
vinsamlega hafi sam-
band í síma 562-1747.
Dýrahald
Hvolpa vantar
framtíðarheimili
10 VIKNA gamlir
hvolpar, blandaðir
labrador og skota, eru
að leita sér að fram-
tíðarheimilum. Uppl. í
síma 565-6978.
Border-collie
leitar að heimili
SJO mánaða hundur,
sem er border-collie
íslensk blanda, fæst
gefins á gott sveita-
heimili. Hlýðinn og
fallegur, vanur litlum
börnum. Uppl. í síma
482-2779.
Víkverji skrifar...
KUNNINGI Víkvetja var einn
af þeim mörgu sem notfærði
sér boð ISALs fyrir skömmu um
að skoða verksmiðjuna í sunnu-
dagsblíðunni. Var bæði fróðlegt og
skemmtilegt að betja þessi miklu
mannvirki augum innan frá. Það
er undarleg tilfinning að standa í
öðrum enda nýju álmunnar og rétt
grilla í hinn endann, vegalengdin
er nær kílómetri!
Starfsmenn ÍSALs á staðnum
stóðu sig einnig vel er þeir svöruðu
spurningum gestanna og virtust
ágætlega undirbúnir fyrir verkefn-
ið. Athyglisvert er hve mikil áhersla
er lögð á umhverfismál og að sögn
starfsmanna mælist nú engin
mengun frá álvinnslunni í gróðri
utan við lóð verksmiðjunnar, svo
vel hefur tekist til.
Eitt fór þó mjög í taugarnar á
kunningja Víkvetja. Inni í matsaln-
um var myndasýning þar sem rak-
inn var ferill verksmiðjunnar og
skýrt frá mörgu forvitnilegu í sam-
bandi við álvinnslu. Textinn við
myndirnar virðist hins vegar hafa
verið saminn af einhverjum sem
ekki ber neitt skynbragð á réttrit-
un. Viðstaddir töldu í fljótheitum
meira en tvo tugi af grófum villum,
sérheiti voru með litlum upphafs-
staf og þannig mætti lengi telja.
Fjöldi barna á grunnskólaaldri
var í gestahópnum. Næsta vetur
segja þau vafalaust íslenskukennar-
anum sínum að það sé alveg
ástæðulaust að læra réttritun. Full-
orðna fólkið stafi orðin bara ein-
hvern veginn.
Ef ÍSAL er á móti réttritunar-
kennslu, sem er auðvitað afstaða
út af fyrir sig, þá hefði verið heiðar-
legra að skýra frá því en varpa
ekki vandanum á kennara og for-
eldra. Hirðuleysi af þessu tagi er
ekki fyrirtækinu til sóma.
xxx
*
ISÍÐUSTU viku, nánar tiltekið á
þriðjudegi, varð Víkverji vitni
að einstöku kæruleysi vagnstjóra
SVR í umferðinni. Víkverji var að
aka upp Háteigsveginn, rétt við
apótekið, er strætisvagn kom niður
Háteigsveginn. Bílstjóri vagnsins
virtist upptekinn af einhveiju, sem
var að gerast uppi á gangstéttinni
sunnan götunnar, stöðvaði þó ekki
vagninn, en hélt áfram að aka,
komin yfir á vinstri götuhelming-
inn. Stefndi hann beint á bíl Vík-
veija og virtist ekki vakna af þess-
um vökusvefni sínum, fyrr en Vík-
vetji þeytti horn bifreiðar sinnar til
hins ýtrasta. Þóttist Víkveiji góður
að sleppa við að vagninn æki beint
á bifreið hans.
Umferðarlög ku kveða svo á að
strætisvagnar eigi forgang í um-
ferðinni. Til dæmis ber mönnum að
vlkja fyrir þeim, er þeir aka út úr
biðstöðvunum. Þessi forgangur
vagnanna virðist, a.m.k. meðal
sumra vagnstjóra, valda því að þeir
telja sig eiga meiri rétt í umferð-
inni en aðrir. Þessi vagnstjóri, sem
var þarna um níuleytið að morgni,
virtist svo sannarlega telja sig eiga
götuna og aliir aðrir voru greinilega
aðeins að flækjast fyrir honum. Það
vill nú svo til að „Palli var einn í
heiminum" er ekki raunverulegt
ævintýr, þótt ýmsir vagnstjórar
SVR virðist líta svo á að þeir séu
í hlutverki hans. A.m.k. virðast
þeir sofa jafn vært við aksturinn
og Palli í ævintýrinu.