Morgunblaðið - 21.06.1997, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Séra Auður Br Viihjálmsdattír segir tíma til kominn að kona verði biskup yfir ísiandi:
Hefði b
mönnui
8'sm
Hefði boðið Spaugstofu
mönnum vínaibrauð
ÞAÐ verður allt annað líf eftir yður biskup minn, ekkert vatnsgutl og brauð í öll mál . . .
Skráning fornleifa að aukast
Fomleifauppgröftur verður á fleiri
stöðum í ár en verður minni um sig
en áður. Umfangsmiklar rannsóknir
á Bessastöðum detta niður og eins
mun rannsóknin á Hofsstöðum í
Garðabæ liggja niðri í sumar, sam-
kvæmt upplýsingum Bjarna F. Ein-
arssonar, verkefnisstjóra á Þjóð-
minjasafninu.
„Þjóðminjasafn íslands mun
rannsaka kuml á Rauðasandi í
Barðastrandarsýslu og hugsanlega
verður þar forn rúst einnig rann-
sökuð. Þjóðminjasafnið mun gera
rannsókn að Eiríksstöðum í Dölum
í tilefni af landafundum Eiríks og
annarra," sagði Bjarni F. Einars-
son, verkefnisstjóri á Þjóðminja-
safninu. Að auki mun Bjami sjálf-
ur, í samHornafirði, gera rannsókn
á iandnámsbýlinu Hólmi í Austur-
Skaftafellssýslu. Fomleifastofnun
íslands mun gera rannsókn að
Hofsstöðum í Mývatnssveit og
Steinunn Kristjánsdóttir er að gera
rannsókn á Austurlandi á meintri
kirkjurúst sem þá væri sú elsta á
landinu.
Aukning hefur orðið á skráningu
fornleifa sem Fomleifastofnun Is-
lands og Þjóðminjasafnið standa
fyrir. „Við vitum ekki hvað við eig-
um mikið af fornleifum," sagði
Bjarni. Hann segir að skráning fari
stigvaxandi enda sé hún eitt brýn-
asta mál minjavörslunnar með tilliti
til fornleifa. Án yfirsýnar yfir forn-
leifarnar sé ekki hægt að marka
ábyggilega stefnu í varðveislu. Ekki
sé hægt að varðveita fornminjar ef
ekki er vitað um tilvist þeirra. Utan
Reykjavíkur og nágrennis er landið
að mestu óskráð og Bjami segist
viss um að íslendingar eigi miklu
merkilegri fornminjar og öðruvísi
en talið hefur verið.
Fornleifastofnun hefur undanfar-
in sumur verið að skrá Eyjafjörð,
fomleifaskráning hófst á Jökuldal í
fyrra og Akranes verður einnig
skráð. Þjóðminjasafnið mun stunda
skráningu yst á Snæfellsnesi í fyrir-
huguðum þjóðgarði sem þar á að
koma. í samvinnu við Garðabæ mun
Þjóðminjasafnið framkvæma forn-
leifaskráningu þar. Sýslusafnið á
Höfn mun skrá Hornafjarðarbæ
undir leiðsögn Þjóðminjasafnsins og
Hafnarfjörður er sömuleiðis að hefja
skráningu undir leiðsögn safnsins.
Enginn uppgröftur verður á veg-
um borgarinnar í sumar að sögn
Margrétar Hallgrímsdóttur, borgar-
minjavarðar. Unnið verður skrán-
ingarverkefni fyrir Hitaveitu
Reykjavíkur þar sem fornleifar og
örnefni verða kortlögð á svæðum
þar sem framkvæmdir em áætlað-
ar. „Ef af sameiningu Kjalarness
og Reykjavíkur verður þarf að skrá
það svæði allt og fara yfír allar fom-
leifar á svæðinu,“ sagði Margrét.
Úrvinnsla á minjum úr Viðey stend-
ur yfir en uppgreftri hefur verið
frestað um óákveðinn tíma vegna
niðurskurðar á fjárveitingu. Mar-
grét segist vonast til að þráðurinn
verði aftur tekinn upp árið 2000.
Ráðstefnan Heilsa og heilbrigðir lífshættir á Sauðárkróki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÁ kynningu á ráðstefnunni. F.v. Snorri Björn Sigurðsson,
bæjarstjóri Sauðárkróks, Gunnlaugur K. Jónsson, forseti NLFÍ,
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, og Örn
Ragnarsson heilsugæslulæknir.
Ábyrgð
einstakl-
ingsins á
eigin heilsu
RÁÐSTEFNAN Heilsa og heilbrigðir
lífshættir verður haldin á Sauðár-
króki 12.-13. júlí nk. Hún er hluti
af afmælisdagskrá Sauðárkróksbæj-
ar og er skipulögð í samvinnu við
heilbrigðisráðuneytið, Sauðár-
króksbæ og Náttúrulækningafélag
Íslands. NLFÍ er sextíu ára um þess-
ar mundir og var félagið stofnað á
Sauðárkróki 5. júlí 1937.
Viðfangsefni ráðstefnunnar verð-
ur hvort þjóðin geti með heilbrigðari
lífsháttum bætt almenna heilsu og
með því dregið úr sívaxandi kostnaði
við heilbrigðiskerfið. Fjallað verður
um ábyrgð einstaklingsins á eigin
heilsu.
Gunnlaugur K. Jónsson, forseti
NLFÍ, sagði að tilgangur ráðstefn-
unnar væri að nálgast umræðuna
um heilbrigðismál með öðrum hætti
en gert hefur verið hingað til.
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, segir að mark-
miðið með ráðstefnunni sé ekki að
finna sparnað í heilbrigðiskerfínu
heldur að einstaklingum líði betur
og taki aukna ábyrgð á eigin heilsu.
Litið sé á heilbrigðiskerfið sem „við-
gerðarþjónustu" meðan meginhlut-
verk og markmið þess sé að efla
ábyrgð einstaklinga á eigin heilsu
svo þeir þurfí sem minnst að nota
heilbrigðiskerfið.
Ámi Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri NLFÍ, sem verður ráðstefnu-
stjóri, segir að mikil umræða sé í
gangi víða um heim um skipulag
heilbrigðisþjónustu og hvemig hægt
sé að færa hana meira til almennings
og auka ábyrgð einstaklinganna á eig-
in heilsu. Sú umræða sé ekki farin
af stað hérlendis og ráðstefnan á Sauð-
árkróki þjóni einmitt þeim tilgangi.
Grunnskólar og tölvunotkun
Stúlkur ræddu
gngn en piltar
fremur gaman
Sólveig Jakobsdóttir
RANNSÓKN Sólveig-
ar var styrkt af
Rannsóknastofu í
kvennafræðum við Háskóla
íslands og hlaut sérstaka
viðurkenningu AECT í
Bandaríkjunum en það eru
samtök á sviði rannsókna
á upplýsingatækni í skóla-
starfí. Sólveig segir að
ýmsar rannsóknir hafí verið
gerðar á viðfangsefninu
áður en niðurstöður verið
mismunandi og erfitt að
henda reiður á þeim. Oft
hafí verið beitt of þröngu
sjónarhomi við rannsókn-
irnar, menn hafí einblínt á
einkunnir eða skoðanak-
annanir eftir mjög stutta
reynslu af tölvunotkun.
Heimasíða Sóiveigar er
http://draupn-
ir.ismennt.is/soljak.
„Markmiðið var að rann-
saka mun á kynjunum varðandi
tölvunotkun og ég reyndi að greina
hvemig sá munur tengdist aldri og
kyni. Eg reyndi að setja tölvumenn-
inguna í skólunum í samhengi við
umhverfi þeirra en umdæmið er í
auðugu úthverfí. Reynt var að sýna
hvemig ýmsir þættir tölvumenning-
ar og samfélags hefðu áhrif og
hvort þeir stuðluðu að jafnrétti eða
misrétti.
Meginniðurstöður voru að þótt
kynjamunur virtist vera á ýmsum
sviðum ríkti jafnrétti í tölvunotkún
innan skólans. Stúlkur og drengir
notuðu tölvumar álíka mikið og
höfðu jafn mikinn áhuga og ánægju
af notkuninni.
Margir samvirkandi þættir í og
utan skólans virtust stuðla að þessu
jafnrétti. Aðgangur kynjanna að
tölvum virtist vera jafn, tölvueign
á heimilum var svipuð og kynin
notuðu tölvur álíka mikið heima
fýrir.“
► SÓLVEIG Jakobsdóttir er
verkefnissljóri hjá Islenska
menntanetinu semhefur aðsetur
í Kennaraháskóla íslands. Hún
er fædd í Reykjavík 1958, lauk
B.S.-prófi í jarðfræði við Háskóla
íslands og uppeldis- og kennslu-
fræði 1983. Síðar lauk Sólveig
mastersnámi í kennslufræði við
Minnesota-háskóla í Minneapolis
og doktorsprófi í kennslu- og
upplýsingatækni þar í fyrra.
Efni ritgerðarinnar var tölvu-
menning grunnskóla. Gerði Sól-
veig rannsókn á mismunandi við-
brögðum 1.-6. bekkjar grunn-
skólanema eftir kyni og aldri við
tölvunotkun í meðalstórum
grunnskóla sem er í einu um-
dæma borgarsvæðis St. Paul og
Minneapolis.
Sólveig er gift Jóni Jóhannesi
Jónssyni, þau eiga þijú börn.
- Var veitt mikið fé til tölvumála skrifað er, lítur fallega út. Þau
/ umdæminu?
verða hreyknari af því sem þau
„Það var mikið lagt upp úr því hafa gert.
í þessu umdæmi að styrkja tölvu- Þetta var vel skipulagt og enginn
notkun í skólunum, fjárveitingar þurfti að beijast um aðgang. Ég
háar til þessara mála. Nemendumir held að þetta hafí verið stór þáttur
höfðu flestir þegar fengið talsverða
reynslu af því að nota tölvu í skólan-
að efla jafnrétti. Það kom stundum
fyrir að aðgangur var hafður fijáls
um. Metnaðurinn var mikill, þtjár eða tölvumar vom ekki nógu marg-
tölvustofur í þessum skóla og stefnt ar. Þá ruddust strákamir fram.“
að því að i hverri skólastofu yrði
a.m.k. ein tölva, allar yrðu net-
tengdar. Boðið var upp á sérstakt
- Voru áhugasviðin ólík eftir
kynjum?
„Já það sem mest var áberandi
námsefni í samskiptum og öllum var að drengjunum þótti meira
var tryggð lágmarkskennsla í tölvu- gaman að leikjunum. Þetta kom
notkun, einn til tveir tímar á viku fram í vaii nemenda, viðtölum og
fyrir hvem bekk. Sérstakur kennari könnunum. Drengimir tengdu
sá um kennsluna og kennarar fengu tölvunotkun meira við leikur og
mikinn stuðning með námskeiðum
til að læra þessa tækni.‘
kvörtuðu stundum yfír því að
ákveðinn leikur, sem hefði verið til
Hvað með námsefnið, hvemig árið á undan, hefði ekki verið til
staðar núna.
Stúlkumar fóru yfír-
leitt strax að tala um
það, hve gott væri að
skrifa ritgerðir í tölvu,
nota myndvinnsluforrit
forrit voru notuð?
„Það voru notuð forrit Tölvur gagri'
sem jafnt drengir og |eqarviðmÓð-
stúlkur höfðu áhuga á
að nota. Það kom fram
þegar ég kannaði áhug-
urmálsnám
ann með spumingum og beinum eða þess háttar. Þær tengdu tölvur
athugunum mínum í þijár vikur á miklu fremur einhveiju sem gagn
hegðun nemenda í kennslustund- væri að en einhveiju til skemmtun-
um. ar. Þær litu frekar á þetta sem
Jafnt kennarar sem nemendur verkfæri."
voru sammála um að tölvurnar
kæmu að mjög góðu gagni við
móðurmálsnám. Það er auðvelt að
leiðrétta í tölvu, þetta var það fyrsta
sem allir nefndu. Bömin urðu já-
kvæðari og metnaðarfyllri. Þau átt-
- Er hægt að nýta sér niðurstöð-
umar á íslandi? Hvernig er ástand-
ið hér?
„Ég er tiltölulega nýkomin heim
og á því erfitt með að dæma um
það. En ég óttast að séu aðstæður
uðu sig betur en fyrr á því að það þannig að aðgangur sé mjög tak-
yrði að laga ritgerð og henni væri markaður að tölvunum og kennara
ekki lokið eftir fyrstu skrif. Þegar skorti þekkingu á notkun þeirra í
þau prenta út afraksturinn er hann skólastarfi, hvemig skipuleggja beri
miklu nær því að vera eins og eitt- tímana, sé hætta á misrétti mikil
hvað eftir fullorðna en þegar hand- og strákamir taki völdin.“