Morgunblaðið - 21.06.1997, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
h
Reuter
*
Atök í Hebron sjöunda
daginn í röð
Kjör Hagnes
sigur fyrir
Thatcher
Parkinson verður formaður á ný
London. Reuter, The Daily Telegraph.
Morðið á Martin
Luther King
Sonur
Kings tal-
ar um
samsæri
Atlanta. Reuter.
DEXTER King, sonur blökkumanna-
leiðtogans Martins Luthers Kings,
telur morðið á föður sínum hafa
verið skipulagt af háttsettum banda-
rískum embættismönnum. Þetta
kom fram í sjónvarpsviðtali á
fimmtudag.
King sagðist þess fullviss að
stjórnvöld hefðu staðið á bak við
morðið, árið 1968, af ótta við vax-
andi völd föður síns og andstöðu við
Víetnamstríðið. Það hefði síðan verið
skipulagt af hernum, leyniþjón-
ustunni og alríkislögreglunni.
Aðspurður sagðist hann telja að
Lyndon Johnson forseti hefði vitað
um samsærið þar sem það hefði
verið allt að því ómögulegt að fram-
kvæma svo stóra aðgerð án vitn-
eskju hans.
James Earl Ray, sem játaði á sig
morðið í mars árið 1969, dró játn-
ingu sína til baka nokkrum dögum
síðar. Hann sagðist hafa játað til
að sleppa við dauðarefsingu og
kvaðst vera blóraböggull í skugga-
iegu samsæri. Áður hafði eldri bróð-
ir Dexters sagt að hvorki hann né
fjölskylda hans telji Ray sekan. Nið-
urstaða rannsóknar þingnefndar og
fjölmargra sagnfræðinga er hins
vegar sú að Ray hafi átt aðild að
morðinu.
William Pepper lögfræðingur
Rays hefur lengi talað um samsæri.
Hann hefur m.a. haldið því fram að
Billy Eidson hafi farið fyrir herdeild
sem átti að sjá um aftöku Kings ef
tilræðið mistækist. I sjónvarpsþætt-
inum var Pepper leiddur á fund Eid-
son, sem hann hafði haldið fram að
tekinn hefði verið af lífi. Hann varð
því að viðurkenna að hafa byggt
mál sitt á röngum upplýsingum.
King-fjölskyldan hefur lagt til við
Bill Clinton Bandaríkjaforseta, að
hann skipi nefnd til að taka málið
upp.
-----» -»—♦----
Léttist með
snarli
Dyflinni. Reuter.
ÞAÐ getur gagnast fólki, sem vill
grennast, að fá sér dálítið snarl
fyrir mat. Er þetta niðurstaða rann-
sókna í Bretlandi.
Það, sem ræður mestu um lík-
amsþyngdina, er brennslan og það,
sem fólk lætur ofan í sig, en venju-
legir megrunarkúrar enda oft með
því, að fólk þyngist um meira en
það léttist í sveltinu. Nú hefur kom-
ið í ljós, að það getur verið áhrifa-
ríkt að fá sér dálítinn bita 90 mínút-
um fyrir mat. Þá hefur líkamirin
tíma til vinna úr honum og draga
um leið úr matarlystinni. Ef menn
láta þennan aukabita ofan í sig
hálftíma fyrir mat, þá hefur hann
hins vegar miklu minni áhrif.
-----------» ♦ ♦-----
Geimveru-
hátíð
FIFE Symington, ríkisstjóri í
Arizona, er hér að kynna „geim-
veru“, sem er sögð hafa valdið
dularfulium Ijósagangi fyrir
vestan Phoenix í mars sl. Þetta
var þó allt til gamans gert en í
næsta mánuði ætla íbúar í Ariz-
ona að minnast þess að þá eru
50 ár liðin frá því að geimverur
hröpuðu þar til jarðar i fari sínu.
Að minnsta kosti hefur því verið
haldið fram alla tíð síðan.
TIL átaka kom í borginni Hebron
á Vesturbakkanum í gær, sjö-
unda daginn í röð. Var myndin
tekin er um eitthundrað palest-
ínskir unglingar köstuðu gijóti
og bensínsprengjum að 60 manna
sveit ísraelskra lögregluþjóna.
Slösuðust a.m.k. 20 Palestínu-
menn er þeir urðu fyrir gúmmí-
kúlum sem lögregluþjónarnir
skutu á þá. Átökin blossuðu upp
eftir atkvæðagreiðslu á Banda-
ríkjaþingi þar sem þess var kraf-
ist að Bandaríkjastjórn lýsti því
yfir að austurhluti Jerúsalem
væri hluti af Israel.
NYR leiðtogi stjórnarandstöðunar í
Bretlandi, William Hague, hófst í
gær handa við að bera klæði á vopn-
in í herbúðum íhaldsflokksins, eftir
að leiðtogakjör hafði skerpt deilur
manna í millum, sérstaklega vegna
Evrópumála.
Hague bar sigurorð af Kenneth
Clarke í þriðju umferð leiðtoga-
kjörsins, sem fram fór á fimmtu-
dag, og varð þar með yngsti leið-
togi flokksins í tæp 200 ár, eða
síðan 1783 er Pitt yngri varð leið-
togi, 24 ára.
Stjórnmálaskýrendur segja að
kjör Hagues sé sigur fyrir Margar-
et Thatcher, sem var forsætisráð-
herra Bretlands í 11 ár, en var
velt úr sessi sem leiðtoga flokksins
1990. Hague er eindreginn hægri-
sinni og ungur að árum, og því lík-
legt að hann þurfi leiðsögn sér eldri
stjómmálamanna. Þá kemur Thatc-
her til sögunnar, og skoðanir Hagu-
es á tengslum við Evrópu eru í takt
við skoðanir Thatchers sjálfrar.
Hún styður af heilum hug andstöðu
hans við að Bretar taki þátt í mynt-
bandalagi Evrópu.
Að beiðni Hagues hefur Cecil
Parkinson tekið að sér formennsku
í flokknum, en því embætti gegndi
hann einnig þegar Thatcher var
leiðtogi. Parkinson er 65 ára og
lenti milli tannanna á fjölmiðlum
1983 fyrir aðild að hneykslismáli
er tengdist einnig ritara hans.
Leiddi það tii afsagnar hans,
skömmu eftir að Thatcher hafði
unnið stóran kosningasigur. Hann
hætti setu í neðri deild þingsins
1992 og á nú sæti í lávarðadeildinni.
Fyrrverandi keppinautum
boðin skuggaráðuneyti
Hague bauð í gær fjórum mönn-
um af hægra armi flokksins stöður
í skuggaráðuneyti sínu, en
„skuggaráðuneyti" stjómarand-
stöðunnar fylgjast með og gagn-
rýna opinberlega ráðuneyti ríkis-
stjórnarinnar. Allir þeir er fengu
boð þáðu þau, og segja fréttaskýr-
endur að mikilvægast verði að telja
að John Redwood, sem deildi opin-
berlega við Hague í leiðtogakjörinu
og myndaði bandalag við Clarke,
þáði boð um að taka að sér skugga-
ráðuneyti viðskipta og iðnaðar.
Peter Lilley tekur að sér fjár-
málaráðuneytið og Michael Howard
utanríkisráðuneytið. Báðir gáfu
kost á sér í leiðtogakjörinu en drógu
framboð sín til baka eftir fyrstu
umferð. Stephen Dorrell, sem hætti
við framboð áður en fyrsta umferð
fór fram, verður skuggaráðherra
mennta- og atvinnumála. Clarke
fékk ekki boð um skuggaráðuneyti,
en hann tók fram strax að kjörinu
loknu á fimmtudag að hann hefði
ekki áhuga á slíku.
Jospin ætlar að byija á því sem hægrimenn töluðu um en þorðu ekki að gera
Vill tekjutengja velferðina
París. Reuter.
LIONEL Jospin, hinn nýi forsæt-
isráðherra sósíalista í Frakklandi,
hefur gert það, sem hægrimenn
hafa talað um ámm saman en
þorðu ekki að ráðast í. Hann hefur
stigið fyrstu skrefin í þá átt að
tekjutengja franska velferðarkerf-
ið. Kom það fram í stefnuræðu
hans á fimmtudag og vakti strax
upp hávær mótmæli ýmissa hags-
munafélaga fjölskyldufólks, nokk-
urra kristilegra hópa og stéttarfé-
laga þeirra, sem eru í efri tekju-
þrepunum.
I ræðu sinni sagði Jospin, að
fjölskyldum með tvö börn og meira
en 300.000 ísl. kr. í mánaðartekjur
fengju ekki iengur 7.800 kr. í
skattfrjálsar bamabætur mánað-
arlega eins og nú er. Fyrrnefnd
samtök ráku þá upp mikið rama-
kvein og Martine Aubry atvinnu-
málaráðherra flýtti sér þá að lýsa
yfir, að tekjuþröskuldurinn yrði
hærri fyrir barnmargar fjölskyld-
ur. Fjölskyldur með þijú börn fá
nú rúmlega 14.400 kr. á mánuði.
Skrefið, sem sósíalistastjórnin
er að stíga, er ekki stórt en áætlað
er, að hætt verði að styrkja
200.000 fjölskyldur af 4,1 milljón
alis. Þetta er þó byijunin.
Eina framlagið, sem Jospin lof-
aði að hækka, er árleg eingreiðsla
til tekjulágra fjölskyldna með böm
á skólaaldri. Það verður fjórfaldað
og verður 19.500 kr. fyrir barn.
Áætlað er, að útgjöld ríkisins
vegna þessa verði rúmlega 70
milljarðar ísl. kr. á ári en á móti
vega aukin neysla og virðisauka-
skattur.
í skýrslu, „Frakkland árið
2000“, sem Edouard Balladur,
þáverandi forsætisráðherra, lét
taka saman 1994, leggur hagfræð-
ingurinn Alan Minc til, að tekin
verði upp tekjutenging í velferðar-
kerfinu. Segir hann, að ríkið hafi
engin efni á að ausa íjármunum á
báðar hendur út um ailt þjóðfélag-
ið í stað þess að takmarka stuðn-
inginn við þá, sem hans þurfa.
Juppe gafst upp
í forsetakosningunum 1995 út-
hrópaði Jacques Chirac þessa
skýrslu sem „einhliða tæknikrata-
sýn“ og þegar Chirac var sestur í
forsetastólinn var skýrslunni kast-
að. Alain Juppe, forsætisráðherra
Chiracs, gældi líka við þá hugmynd
að tekjutengja velferðarkerfið en
gafst upp þegar því var mótmælt
með 24 daga löngu verkfalli starfs-
manna í samgöngum. Tilraunir
hans til að hækka eftirlaunaaldur
opinberra starfsmanna báru heldur
engan árangur.
„Vandamálið í þessu landi er,
að við emm svo upptekin af því,
sem við köllum jafnrétti, bræðra-
lag og réttlæti," segir háttsettur
embættismaður, sem ekki vildi láta
nafns síns getið en hefur starfað
jafnt fyrir hægri- sem vinstri-
stjórnir. „Þess vegna getum við
aldrei sætt andstæður á borð við
fulla atvinnu og há lágmarkslaun;
styttri vinnuviku og óskert laun,
háa launaskatta og meiri atvinnu-
sköpun."
Fréttaskýrendur segja, að
standi Jospin fast á sínu muni
hann ganga lengra, til dæmis með
því að tekjutengja heilbrigðisþjón-
ustuna en kostnaðurinn við hana
hefur farið úr böndunum. Hætt er
þó við, að millistéttarfólkið í hans
eigin flokki og komúnistaflokknum
muni ekki taka breytingum af
þessu tagi með þegjandi þögninni.
Reuter
Kossinn ekki
tveggja ára virði
Japan. Morgunblaðið.
YFIRDÓMARI í Singapore hefur
linað fangelsisdóm sem kveðinn var
upp yfir búrmískum manni, Than
Lwin, 37 ára, sem dæmdur var fyr-
ir að reyna að kyssa kærustuna sína.
Dómarinn lækkaði dóminn,
tveggja ára fangelsi og fiengingu,
niður í 82 daga fangelsi. Haft var
eftir manninum að hann ætli að gift-
ast unnustu sinni þrátt fyrir allt.
Than Lwin var handtekinn í mars
síðastliðnum eftir að kærastan hafði
kvartað yfir því við starfsmann lest-
arstöðvar, þar sem þau voru stödd
þegar atvikið átti sér stað, að Lwin
hefði reynt að neyða sig til að kyssa
sig. í héraði var hann dæmdur til
fyrrnefndra tveggja ára I fangelsi
og þriggja vandarhögga. Yfirdómar-
inn í Singapore sagði að atvikið hefði
verið lítið annað en saklaust rifrildi
milli tveggja elskenda, þó vissulega
hefði Lwin beitt óþarfa harðneskju
til að koma fram vilja sínum.
Hann sagði að dómur eins og sá
sem fyrst var kveðinn upp ætti meira
við þegar um alvarlegar líkamsmeið-
ingar væri að ræða.
i
i
»
I
»
»
i
»
I
i:
f
»
I
»
»
»
i
»
C
f
í
«
I
‘
*
k